Morgunblaðið - 19.10.2005, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
www.jpv.is
ÞETTA ER BÓKIN SEM UNGA FÓLKIÐ ER AÐ TALA UM
Meira en tvær milljónir
eintaka seldar í 37 löndum.
Kvikmynd eftir sögunni væntanleg í júní 2006.
„Hæfileikaríkur
höfundur, frábært verk.”
The New York Times
„Christopher Paolini spinnur
töfravef og kemur fram sem
þroskaður höfundur í þessari
fyrstu bók sinni.”
People
Metsölubók um allan heim,
skrifuð af 15 ára dreng!
„Eitt
óvenjulegasta
verk ársins“
The Observer
RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að skipa
starfshóp til að yfirfara hvort rétt sé að end-
urskoða verklagsreglur um útboð og sölu
ríkisfyrirtækja í ljósi reynslunnar og eftir
atvikum hvort rétt sé að lögfesta þýðing-
armestu reglurnar í þeim efnum.
Umboðsmanni Alþingis hefur jafnframt
verið tilkynnt um þetta, en hann óskaði í
fyrra mánuði eftir upplýsingum um framtíð-
arfyrirkomulag varðandi sölu ríkiseigna í
framhaldi af því að hann taldi ekki ástæðu
til að skoða hæfi forsætisráðherra vegna
sölu Búnaðarbanka Íslands, en þingflokkar
stjórnarandstöðuflokkanna höfðu beint til
hans erindi þess efnis.
Starfshópurinn verður skipaður fulltrúum
forsætisráðuneytis, utanríkisráðuneytis,
fjármálaráðuneytis og viðskipta- og iðnaðar-
ráðuneytis og skal hafa samráð við fram-
kvæmdanefnd um einkavæðingu hvað þetta
varðar.
Í bréfinu til umboðsmanns kemur jafn-
framt fram að tæp tíu ár séu liðin frá því
núgildandi verklagsreglur voru settar og nú
sé ráðrúm til endurskoðunar þar sem far-
sællega sé lokið umfangsmikilli einkavæð-
ingu Landsíma Íslands hf. og ekki hafi verið
teknar ákvarðanir um frekari sölu ríkis-
eigna. Bent er á að lagaumhverfi stjórnsýsl-
unnar hafi mikið breyst á ofangreindu tíma-
bili með setningu upplýsingalaga 1996, laga
um fjárreiður ríkisins 1997 og laga um op-
inber innkaup 2001.
„Forsætisráðuneytið telur að við fyrr-
nefnda endurskoðun verklagsreglnanna sé
rétt að meta einnig hvort gera beri stöðu
þeirra aðila sem koma að sölu ríkiseigna,
þ.m.t. nefnda, embættismanna, ráðgjafa,
sérfræðinga og umsýsluaðila, skýrari og
hvort taka þurfi betur fram með hvaða hætti
reglur stjórnsýsluréttarins eigi við um störf
þeirra,“ segir orðrétt í bréfinu til umboðs-
manns.
Fram kemur einnig að við upplýsingagjöf
af hálfu þeirra sem komið hafi að undirbún-
ingi og töku ákvarðana á grundvelli verk-
lagsreglnanna hafi verið fylgt meginreglum
stjórnsýsluréttar og stjórnsýslulaga.
Stjórnsýslurétturinn gildi
„Komið hefur fyrir að einstakir aðilar sem
ætlað var að koma að söluferlinu hafi ekki
tekið þátt í einstökum sölumálum af þeim
sökum. Hæfi aðila með vísan til stjórn-
sýslulaga og reglna stjórnsýsluréttarins hef-
ur því komið til umfjöllunar innan fram-
kvæmdanefndar um einkavæðingu af
ýmsum tilefnum. Af hálfu nefndarinnar hef-
ur þess verið gætt, svo sem kostur hefur
verið á, að allir sem að málum koma væru
hæfir til þátttöku í meðferð mála samkvæmt
grunnreglum stjórnsýsluréttar. Í störfum
framkvæmdanefndar um einkavæðingu hef-
ur verið gengið út frá því að almennar regl-
ur stjórnsýsluréttarins gildi eins og þær
birtast í II. kafla stjórnsýslulaga nr. 37/
1993,“ segir einnig.
Jafnframt segir að forsætisráðuneytið
telji að einnig sé rétt að meta hvort ástæða
sé til að útfæra nánar hinar almennu reglur
stjórnsýsluréttarins á þessu sviði.
Verklagsreglur um sölu
ríkiseigna endurskoðaðar
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is Nær 10 ár eru liðin
síðan núgildandi regl-
ur voru teknar upp
ÁKVÖRÐUN borgaryfirvalda um
að heimila móttökuanddyri og
bílastæðakjallara við Skaftahlíð
24, þangað sem starfsemi 365 –
miðla mun flytjast, var mótmælt í
ályktun sem fundur íbúa í Hlíða-
hverfi samþykkti í gærkvöldi.
Fundurinn fór fram í sal Ísaks-
skóla og var vel sóttur.
Hilmar Sigurðsson, einn íbúa í
hverfinu, skipulagði fundinn og
kom fram í máli hans að óánægja
væri með fyrirsjáanlega aukn-
ingu á umferð í hverfinu sem
mun hljótast af því að fjölmiðla-
samsteypa flytjist þangað með
alla sína starfsemi. Hilmar rakti
feril málsins og rifjaði upp að alls
hefðu 112 íbúar í hverfinu mót-
mælt ákvörðuninni auk þess sem
borgaryfirvöldum bárust tólf at-
hugasemdir frá íbúum og hús-
félögum á svæðinu. Hann sagði
lítið mark hafa verið tekið á and-
mælum íbúanna, sem meðal ann-
ars komu fram á grenndarkynn-
ingu. Hilmar benti á að
nýtnihlutfallið á lóðinni væri
komið upp í 1,47 sem væri á við
það sem gerist á þjónustusvæð-
um.
Guðfinna Jóhanna Guðmunds-
dóttir, lögfræðingur íbúa á svæð-
inu, sagði að húsnæðið að Skafta-
hlíð 24 væri á íbúasvæði
samkvæmt skilgreindu að-
alskipulagi. Á slíku svæði mætti
einungis vera íbúabyggð eða svo-
kölluð nærþjónusta, s.s verslun.
Dagur B. Eggertsson, formaður
skipulagsráðs, sagði það hafa leg-
ið ljóst fyrir í málinu að starf-
semi 365 – miðla myndi flytjast í
Skaftahlíð 24 með tilheyrandi
umferð. Um það hvaða starfsemi
færi fram í einstökum byggingum
hafi borgaryfirvöld ekkert að
segja og í stöðunni hafi því verið
að annaðhvort veita leyfi fyrir
móttökuanddyri og fá þá í leið-
inni 70 bílastæði í kjallara undir
húsið eða að synja beiðninni og
bíða og sjá hvaða önnur starfsemi
kæmi í húsið. Því hafi verið
ákveðið að veita leyfið, til þess að
fjölga bílastæðum á svæðinu.
Ákvörðunin um að veita leyfið
fyrir byggingunum sem slíkum
hafi ekki verið til umfjöllunar nú,
hún hafi verið tekin fyrir þremur
áratugum og ekki væri hægt að
afturkalla þau leyfi. Guðlaugur
Þór Þórðarson, borgarfulltrúi
sjálfstæðismanna, sagðist ekki
hafa kynnst öðrum eins vinnu-
brögðum og benti á að rétt hefði
verið að skoða umferðarmál í
hverfinu heildstætt áður en þessi
ákvörðun hefði verið tekin.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stækkun við Skaftahlíð
24 mótmælt á
fjölmennum íbúafundi
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
JÓN Þórisson hefur verið ráðinn til Sam-
son-samstæðunnar og mun þar sinna sér-
verkefnum í tengslum við fjárfestingar í
fjármálafyrirtækjum,
jafnt innlendum sem er-
lendum, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu
frá Samson. Jón er fyrr-
verandi aðstoðarforstjóri
Íslandsbanka og gegndi
því starfi þar til fyrr á
þessu ári en síðan þá hef-
ur hann unnið við
rekstrarráðgjöf og verið
í fleiri verkefnum.
Í samtali við Morgunblaðið sagði Jón að
það væri ánægjulegt fyrir sig að vera kom-
inn í hóp Samson-manna og fá tækifæri til
að vinna að þeim fjölmörgu spennandi og
krefjandi verkefnum sem þar bíða. „Ég á
nú frekar von á því að reynsla mín og þekk-
ing muni nýtast vel á þeim vettvangi. Eins
og allir vita á Samson fjölbreytta hagsmuni
í íslenskum og erlendum fjármálafyrirtækj-
um og það er mjög ánægjulegt að fá tæki-
færi til að nýta þekkingu sína þar,“ sagði
Jón.
Aðspurður sagðist hann ekki geta farið
nánar út í þau verkefni sem hans bíða. „En
mér finnst þetta vera spennandi vettvang-
ur,“ sagði Jón.
Jón Þórisson
til Samson
Jón Þórisson
ÍSLAND er það land heimsins þar
sem minnst spilling þrífst innan stjórn-
kerfisins að mati stofnunarinnar
Transparency International, sem birti
árlega skýrslu sína í gær. Ísland hefur
lengi verið í 2. sæti á þessum lista á eft-
ir Finnlandi en á síðasta ári var Ísland í
3.–4. sæti ásamt Danmörku. Alls er
lagt mat á 159 ríki í skýrslu stofnunar-
innar, sem telur spilltustu ríki heims
vera Tsjad og Bangladesh.
Á skalanum 1–10 þar sem 10 táknar
enga opinbera spillingu fær Ísland 9,7 í
einkunn, Finnland og Nýja-Sjáland fá
9,6, Danmörk 9,5, Singapúr 9,4, Sví-
þjóð 9,2, Sviss 9,1, Noregur 8,9, Ástr-
alía 8,8, Austurríki 8,7, Holland og
Bretland 8,6, Lúxemborg 8,5, Kanada
8,4 og Hong Kong.
Minnst
spilling á
Íslandi