Morgunblaðið - 19.10.2005, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Vessgú, þingið óskar eftir hefðbundnu uppeldi, því kóngur á hann að verða.
Hinn 24. októbernæstkomandiverða 30 ár liðin
frá Kvennafrídeginum
svokallaða. Kvennaráð-
stefna sem haldin var í
júní 1975 í Reykjavík
skoraði á konur að taka
sér frí frá störfum á degi
Sameinuðu þjóðanna 24.
október það sama ár til að
sýna fram á mikilvægi
vinnuframlags síns og
hversu lítils það væri met-
ið, en 18. desember 1972
lýstu Sameinuðu þjóðirn-
ar því yfir að árið 1975
skyldi helgað málefnum kvenna
undir kjörorðunum: JAFN-
RÉTTI – FRAMÞRÓUN –
FRIÐUR.
Framkvæmdanefnd Kvennafrí-
dagsins var skipuð og í upphafi
var ákveðið að tala ekki um verk-
fall heldur kvennafrí. Nefndin
skipulagði opið hús allan daginn á
sex stöðum í miðbæ Reykjavíkur
þar sem konurnar gátu hist og
rætt málin. Samkomur voru
haldnar á meira en tuttugu stöð-
um utan Reykjavíkur. Þátttakan
fór fram úr björtustu vonum því
talið er að um 90% kvenna um allt
land hafi lagt niður vinnu og lam-
aðist atvinnulífið meira og minna.
Margir feður urðu að taka börn
með sér í vinnu eða vera heima.
Fundurinn á Lækjartorgi varð
fjölmennasti útifundur sem hald-
inn hafði verið á Íslandi og líklega
einn sá fjölmennasti til dagsins í
dag. Dagskráin, sem stóð í tvo
tíma síðdegis, var fjölbreytt. Flutt
voru ávörp, hvatningarorð og
kvennakrónika og sunginn fjölda-
söngur. Þegar fundinum lauk var
áberandi hversu víða mátti sjá
karlmenn með börn í kerrum,
vögnum og á handlegg sér.
Breytt hlutverk skóla
Inga Þórunn Halldórsdóttir,
skólastjóri Borgaskóla í Grafar-
vogi, segir að engar ráðstafanir
hafi verið gerðar þar á bæ varð-
andi endurvakningu Kvennafrí-
dagsins næstkomandi mánudag
því nær allir kennarar skólans
hafi lokið kennslu kl. 14.08. Mikil
vinna væri þó eftir fyrir kennara
við úrvinnslu og undirbúning.
Ekkert hefði komið frá mennta-
sviði Reykjavíkurborgar til skóla-
stjóra en hún sagði mjög erfitt
fyrir starfsfólk skólastofnana að
ganga út því skólar séu orðnir
mun meiri þjónustustofnanir en
var fyrir 30 árum og skólinn vilji
reyna að þjónusta börnin og heim-
ilin eins vel og hægt er.
Inga var viðstödd útifundinn
fyrir 30 árum og segir að jafnvel
þótt hún vilji endurtaka leikinn sé
samfélagið orðið allt annað og
hlutverk skólanna hafi breyst
mikið. Ekki veiti þó af að endur-
vekja Kvennafrídaginn því okkur
hafi miðað áfram en alls ekki í
launum.
Erna Einarsdóttir, sviðsstjóri
starfsmannamála hjá Landspítala
– háskólasjúkrahúsi, segir mikla
dreifstýringu ríkja á vinnustaðn-
um og því sé undir yfirmönnum á
hverri deild komið hvernig brugð-
ist verði við á Kvennafrídaginn en
hún segist ekki eiga von á að
starfsmenn gangi út ef sinna þurfi
sjúklingum. Sjálf var Erna að
vinna á gjörgæsludeild Landspít-
alans á Kvennafrídaginn 1975.
Rifjar hún upp að tiltölulega fáir
sjúklingar hafi verið á deildinni og
því gátu nokkrir starfsmenn tekið
þátt með kalltækið í vasanum.
Gerður G. Óskarsdóttir, sviðs-
stjóri Menntasviðs Reykjavíkur-
borgar, segir að ályktun hafi bor-
ist frá leikskólastjórum í
Reykjavík varðandi Kvennafrí-
daginn á mánudaginn. Hún segist
eiga von á því að konur sem vinni
á Menntasviði Reykjavíkurborgar
muni taka þátt í þeirri dagskrá
sem fram muni fara.
Borgarstjóri, Steinunn Valdís
Óskarsdóttir, sendi í gær frá sér
yfirlýsingu þar sem konur meðal
starfsmanna Reykjavíkurborgar
eru hvattar til að taka þátt eftir
því sem aðstæður leyfa.
Munu taka frí
Unnur Jónsdóttir, leikskóla-
stjóri á leikskólanum Mýri, segist
hafa orðið mjög glöð þegar hún
frétti af því að endurvekja ætti
Kvennafrídaginn, svo glöð að hún
ákvað að taka málið upp á starfs-
mannafundi leikskólans og ákveð-
ið hafi verið að loka leikskólanum.
Ákvörðunina kynnti hún á for-
eldrafundi og sú krafa gerð að for-
eldrar sæktu börnin, en Mýri er
að hluta til einkarekinn leikskóli.
Foreldra hvatti hún til að taka
þátt í dagskránni með starfsfólki
leikskólans. Segir hún foreldra
hafa tekið einstaklega vel undir
þessa kröfu og að enginn hafi
kvartað.
Unnur segir að í haust hafi ver-
ið mikil umræða um manneklu
leikskólanna og því sé vel tilheyr-
andi að leikskólakennarar taki
þátt í deginum, manneklan sé til
komin vegna lágra launa starfs-
manna leikskólanna.
Kvennafrídagurinn er Unni í
fersku minni og segir hún þetta
einn mesta stemmningsdag í
hennar lífi. Segist hún hafa mætt
mikilli mótstöðu frá rekstraraðil-
um þess leikskóla sem hún vann á.
Unnur segist ekki búast við slíkri
mótstöðu frá vinnuveitendum í
dag.
Fréttaskýring | Áfram stelpur enn á ný
30 ár liðin frá
Kvennafrídegi
Hinn 24. október 1975 sýndu íslenskar
konur samstöðu og lögðu niður vinnu
Frá Kvennafrídeginum 24. október 1975.
Kvennafrídagur endurvak-
inn næstomandi mánudag
Hvergi í heiminum mun at-
vinnuþátttaka kvenna vera eins
mikil og hér á landi. Mánudaginn
næstkomandi, 24. október, verð-
ur Kvennafrídagurinn endurvak-
inn og hafa ýmsir hvatt konur til
að leggja niður störf kl. 14.08 en
þá hafa þær unnið fyrir launum
sínum þann daginn, ef litið er til
þess að atvinnutekjur kvenna
eru 64,15% af atvinnutekjum
karla. Ganga hefst frá Skóla-
vörðuholti kl. 14.08 og útifundur
á Ingólfstorgi kl. 15.
Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur
sigurhanna@mbl.is
HALLDÓR Ásgrímsson forsætis-
ráðherra fór upp að virkjunarsvæð-
inu við Kárahnjúka á mánudag til að
kynna sér aðstæður af eigin raun
eftir umræður undanfarinna vikna
um tafir á framkvæmdum og óvissu
þar. Einkum er um að ræða miklar
tafir á borun aðrennslisganga Kára-
hnjúkavirkjunar vegna vatnsaga og
lausra berglaga. Hefur aðeins einn
bor af þremur verið í gangi síðustu
vikurnar.
Þá hafði Landsvirkjun nokkrar
áhyggjur af hugsanlegum töfum á
verki sem Slippstöðin á Akureyri
hafði með höndum sem undirverk-
taki þýska fyrirtækisins DSD Stahl-
bau GmbH en Slippstöðin varð ný-
lega gjaldþrota.
Að sögn Halldórs Ásgrímssonar
var ferðin farin að hans frumkvæði.
Tekur hann fram að ferðin hafi bæði
verið áhugaverð og skemmtileg.
Segir hann að menn hafi við fram-
kvæmdina lent í margvíslegri óvissu.
„Þetta er stærsta framkvæmd sem
um getur í sögu landsins og þarna er
verið að vinna á mjög mörgum stöð-
um í einu,“ segir Halldór. „Ég vildi
vita hvað væri um að vera þarna en
það hefur mikið verið talað um
óvissu vegna þess vanda sem þarna
hefur komið upp. En menn eru með
margvíslegar ráðstafanir til að taka
á því.“
„Þarna hafa menn staðið frammi
fyrir mjög flóknum verkefnum en ég
sé ekki betur en að menn séu að
leysa þetta allt saman. Þrátt fyrir
ákveðnar tafir eru menn enn bjart-
sýnir á að standast þær tímaáætl-
anir sem settar voru í upphafi.“
Halldór segir það hafa verið mjög
eftirminnilegt að koma inn í stöðvar-
húsið í Valþjófsstaðafjalli og einnig
að sjá hversu Kárahnjúkastífla er
orðin há. „Þetta eru feiknalega mikil
mannvirki og auðvitað vekur það at-
hygli manns að standa frammi fyrir
þessari stóru framkvæmd,“ segir
forsætisráðherra.
Ljósmynd/Harald Alfreðsson
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra á virkjunarsvæðinu ásamt starfsmönnum Impregilo og Landsvirkjunar.
Bjartsýni þrátt fyrir tafir
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
ÞRJÁR hópsýkingar af völdum mat-
areitrana komu upp í september á
mismunandi stöðum á landinu. Þetta
kemur fram í nýjasta tölublaði Far-
sóttafrétta.
Fyrsta matareitrunin kom upp um
miðjan septembermánuð í lítilli
veislu á Suðurnesjum, en þá veiktust
sjö af átta veislugestum með upp-
köstum u.þ.b. 1–1,5 klst. eftir neyslu
matvælanna. Einkennin gengu fljótt
yfir. Heilbrigðisfulltrúar á Suður-
nesjum önnuðust rannsókn á upp-
runa eitrunarinnar, en grunur vakn-
aði um Bacillus cereus-mengun í
remúlaðisósu.
Næsta matareitrun kom upp á
vinnustöðum á Suðvesturlandi, sem
fengu mat sendan frá sama stóreld-
húsinu og veiktust þar samtals 32
einstaklingar. Helstu einkenni voru
niðurgangur sem hófst um 7–20 tím-
um eftir neyslu matvæla sem líklegt
er talið að hafi verið menguð. Ein-
kennin gengu yfir í flestum tilfellum
innan sólarhrings. Gerð var ítarleg
rannsókn á neyslu matmæla þeirra
sem sýktust og tekin voru sýni.
Þriðja eitrunin kom upp á Austur-
landi í skólaeldhúsi þar sem 11 ein-
staklingar neyttu sama matar, af
þeim veiktust sex mjög hastarlega
en þrír fengu vægari einkenni. Ein-
kennin komu nánast um leið og
neyslu matvælanna lauk en gengu
jafnframt mjög fljótt yfir. Helstu
einkenni voru slæmir krampakennd-
ir kviðverkir ásamt ógleði og í ein-
staka tilfellum niðurgangur.
Þrjú tilfelli matareitrunar