Morgunblaðið - 19.10.2005, Síða 10

Morgunblaðið - 19.10.2005, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR RANNVEIG Guðmundsdóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, mælti í gær fyrir tillögu til þingsályktunar um að ríkisstjórninni verði falið að endurskoða fyrirkomulag við skipun ráðuneytisstjóra og annarra emb- ættismanna Stjórnarráðsins í því skyni að skilja pólitísk störf frá fag- lega skipuðum embættismönnum Stjórnarráðsins. Í greinargerð tillögunnar er m.a. bent á að í fyrsta bindi sögu Stjórn- arráðs Íslands komi fram að á Ís- landi hafi skilin milli embættis- manna og stjórnmálamanna verið óljós allt frá stofnun Stjórnarráðs- ins. „Ýmsar heimildir styðja þá full- yrðingu að á þeim hundrað árum sem Stjórnarráðið hefur starfið hafi ekki tekist að skilja pólitískar skip- anir frá faglegum,“ segir í grein- argerðinni. „Með setningu núgildandi laga nr. 73/1969, um Stjórnarráð Íslands, var heimilað að ráðherra gæti kvatt mann utan ráðuneytis sér til að- stoðar enda hverfi hann úr starfi um leið og ráðherra. Með þessari heim- ild skapaðist forsenda til að styrkja pólitíska forystu ráðuneytanna. Ekki eru þó vísbendingar um að þetta fyrirkomulag hafi dregið úr af- skiptum ráðherra af skipunum ráðu- neytisstjóra og annarra embættis- manna Stjórnarráðsins,“ segir ennfremur í greinargerðinni. Í lok greinargerðarinnar er því m.a. lagt til að það verði metið, með hliðsjón af fyrirkomulagi í ná- grannaríkjunum, hvernig best sé að standa að faglegum skipunum emb- ættismanna ráðuneytanna. Pólitísk störf verði skilin frá faglega skipuðum embættismönnum Þingfundur Alþingis hefst kl. 13.30 í dag. Verður þá umræða utan dag- skrár um stöðu útflutningsgreina. Kl. 15.30 verður utandagskrár- umræða um Reykjavíkurflugvöll. Auk þess verða fyrirspurnir til ráð- herra. LÖGMAÐUR 365-prentmiðla og Kára Jónassonar, ritstjóra Frétta- blaðsins, hefur krafist þess fyrir dómi að fellt verði úr gildi lögbann á birtingu tölvupósta Jónínu Bene- diktsdóttur og að Kári verði sýkn- aður af refsikröfu sem Jónína gerði á hendur honum. Krafan byggist m.a. á því að fréttaflutningur Frétta- blaðsins hafi verið fyllilega eðlilegur og að afrit af tölvupósti Jónínu hafi ekki verið einkagögn þegar þau bár- ust blaðinu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í greinargerð sem lögmaður- inn, Jón Magnússon hrl., lagði fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þess er krafist að lögbanninu verði hrundið að öllu leyti og að 365-prent- miðlum verði heimilað að birta áfram fréttir og umfjöllun um þau atriði sem þegar hafa birst í Fréttablaðinu og að gögnin sem sýslumaður tók í sína vörslu verði afhent. Það sé aðalatriði í málinu hvort Fréttablaðið hafi farið út fyrir þær hverjir standi að aðför gegn öðrum borgurum í þjóðfélaginu er ekki meingerð gagnvart þeim sem stend- ur að slíku athæfi,“ segir í greinar- gerðinni. Ekki einkagögn Önnur ástæða sem lögmaður 365- prentmiðla og ritstjóra Fréttablaðs- ins byggir á er að þau gögn sem vís- að var til í Fréttablaðinu hafi ekki verið einkagögn Jónínu þegar þau bárust blaðinu. Um sé að ræða gögn sem auðvelt sé að prenta út og fjöl- falda auk þess sem hægt sé að senda þau á fjölmarga aðila í einu. Að mati lögmannsins eiga ákvæði í almennum hegningarlögum um bann við að hnýsast í eða skýra frá einka- málum fólks, ekki við enda sé í tölvu- póstinum ekki fjallað um einkamál- efni. Þá hafi Fréttablaðið hvorki brotið gegn friðhelgi einkalífs eins og það sé skilgreint í stjórnarskránni né eigi ákvæði fjarskiptalaga við um þetta mál. Hið sama gildi um lög um persónuvernd. Farið var fram á að málinu verði flýtt sem kostur er. skorður sem settar séu við tjáning- arfrelsinu í stjórnarskrá. Það hafi blaðið ekki gert og í stjórnarskránni séu engar heimildir sem réttlætt geti lögbannið. Birting eðlileg Í greinargerðinni segir að það sé rangt að Fréttablaðið hafi hagað birtingu úr einkagögnum á þann veg að samhengi hlutanna hafi verið fært úr skorðum eða lagt út af efni þeirra á villandi hátt. Þá hafi fréttaflutn- ingur blaðsins verið mikilvægur m.a. vegna þess að í umræddum gögnum kæmi fram hvernig Jónína og nokkr- ir aðrir þekktir einstaklingar í þjóð- félaginu hefðu borið saman bækur sínar og lagt á ráðin um að einstak- lingur, Jón Gerald Sullenberger, kæmi fram kæru á hendur forráða- mönnum Baugs, eins stærsta fyrir- tækis landsins. Á öðrum stað í greinargerðinni segir að aðili eins og Jónína geti ekki búist við að þagað verði yfir slíku at- hæfi þegar upp kemst eða litið á slík- ar aðgerðir sem einkamálefni við- komandi. „Það að skýra frá því Greinargerð 365-prentmiðla og ritstjóra Fréttablaðsins lögð fram í héraðsdómi Krefjast þess að lög- bannið verði fellt úr gildi Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Í Morgunblaðinu í gær misrituðust ummæli Sivjar Friðleifsdóttur, þing- manns Framsóknarflokksins, í um- ræðum á Alþingi. Hið rétta er að hún sagði: „Framsóknarmenn eru sein- þreyttir til vandræða og við reynum að sýna samstöðu með samstarfs- flokknum í viðkvæmum málum þótt okkur finnist það ekki alltaf jafn auð- velt.“ Beðist er velvirðingar á mis- tökunum. Leiðrétting SIGRÍÐUR Anna Þórðardóttir um- hverfisráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um að stjórnvöld- um verði skylt að veita almenningi aðgang að upplýsingum um um- hverfismál. Í frumvarpinu eru þó settar ákveðnar takmarkanir á þá upplýsingaskyldu. Hún nær t.d. ekki til upplýsinga sem sérstök lagaákvæði um þagnarskyldu taka til. Samkvæmt frumvarpinu verður heimilt að bera synjun stjórnvalds um aðgang að upplýsingum undir úrskurðarnefnd um upplýsingamál. Í athugasemdum við frumvarpið segir að frumvarpið sé samið í þeim tilgangi að uppfylla skyldur íslenska ríkisins vegna EES-samningsins. „Í alþjóðlegum umhverfisrétti hefur aukin áhersla verið á það lögð að al- menningur hljóti fræðslu um um- hverfismál og hafi aðgang að upp- lýsingum um umhverfismál sl. áratugi,“ segir í athugasemdum frumvarpsins. Frumvarpið er á sumum sviðum víðtækara en upplýsingalögin. Til dæmis taka ákvæði frumvarpsins ekki bara til upplýsinga í gögnum mála eins og upplýsingalögin heldur einnig til upplýsinga um umhverf- ismál í skrám og gagnagrunnum. Aðgangur að upp- lýsingum Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra. FRAM kom í máli Halldórs Ás- grímssonar forsætisráðherra á Al- þingi í gær að ekki stæði til að falla frá áformum um skattalækkanir rík- isstjórnarinnar, þrátt fyrir ábend- ingar í þá veru í skýrslu Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins. Hann sagði að meginþungi skattalækkananna yrði á árinu 2007 þegar stóriðjufram- kvæmdir yrðu að mestu gengnar yf- ir. „Þetta eru mjög mikilvægar skattalækkanir sem auka kaupmátt ráðstöfunartekna á næsta og þar- næsta ári,“ sagði hann. Halldór var þarna að svara fyr- irspurn Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Steingrímur sagði að í nýrri skýrslu Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins væri lagt til að áformum um skattalækkanir yrði slegið á frest. Sérfræðingar sjóðsins teldu að skattalækkanirnar myndu auka á of- hitun hagkerfisins. Árni M. Mathiesen fjármálaráð- herra sagði að ríkisstjórnin fengi mikið hrós í skýrslunni m.a. fyrir tök sín á efnahags- og fjármálum. Í skýrslunni væru þó gerðar athuga- semdir við áform um skattalækkan- ir. Hann sagði að í forsendunum fyr- ir þeirri niðurstöðu væri gert ráð fyrir mun minna aðhaldi á þessu ári en raunin yrði. „Það er gert ráð fyrir því að afgangur af ríkissjóði á þessu ári verði 1,4% á landsframleiðslu í staðinn fyrir 2,8%,“ sagði hann. Skattalækk- anir standa LAGT var til að settar verði reglur til þess að vernda Elliðaárnar fyrir ágangi manna á fundi borg- arstjórnar í gær, og var samþykkt samhljóða tillaga þess efnis að um- hverfisráð Reykjavíkurborgar beiti sér fyrir því að reglurnar verði sett- ar. „Það er ljóst að það er vaxandi ásókn í að nota Elliðaárnar sem leik- völl af ýmsu tagi fyrir bæði íþrótta- og útivistarfólk. Það er vaxandi um- ferð hestamanna, hundamanna og hjólamanna, og ýmissa sem vilja skipuleggja uppákomur í Elliðaár- dalnum með Elliðaárnar sem vett- vang fyrir starfsemi sína,“ sagði Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi Reykjavíkurlista og formaður sam- ráðshóps um Elliðaárnar, þegar hann kynnti afrakstur starfs hópsins á fundi borgarstjórnar í gær. „Ég tel að það sé rétt að umhverf- isráð beiti sér fyrir því að skil- greindar verði ákveðnar umgengn- isreglur sem eigi að sjá til þess að ánauð manna við árnar aukist ekki. [...] Við teljum að það eigi að virða árnar á þeim forsendum sem þær renna og hafa runnið um borg- arlandið, en séu ekki eins og hvert annað baðkar eða leikvöllur fyrir alls konar starfsemi sem ófyrirsjáanlegt er hvernig getur orðið á næstu ár- um, en við sjáum fyrir okkur að ásókn í slíkt muni aukast mjög.“ Léleg hrygning ofarlega í ánum Meðal annars sem hópurinn lagði til var að skilgreind verði eðlileg vatnshæð Elliðavatns, sem sé í raun miðlunarlón fyrir árnar. Með því að halda yfirborðinu stöðugu mætti varðveita hrygningarstaði bleikj- unnar við fjöruborðið. Einnig þurfi að halda flæði í báðum kvíslum ár- innar stöðugu til að m.a. tryggja við- gang seiða, sagði Stefán. Hrygning laxastofnsins ofarlega í ánum hefur ekki gengið eins vel und- anfarin ár eins og áður þekktist, og sagði Stefán Jón enga eina skýringu á því. Hugsanlegt sé að eftir kýlaveikiáfallið fyrir um áratug hafi laxi í ánni fækkað svo mikið að ekki sé tilefni til þess fyrir þá laxa sem eftir eru að fara ofarlega í árnar til að hrygna. Hins vegar sagði Stefán Jón að hrygning hafi gengið vel í neðri hluta Elliðaáa, á svæði virkjunarinnar, og þakkaði hann það einkum því að árn- ar fengju ekki að þorna upp lengur. Undanfarin tvö sumur hafi verið gerðar tilraunir með að flytja laxa upp árnar til þess að auka líkur á hrygningu þar, og virðast þær að- gerðir bera einhvern árangur. Aðeins 1 af 32 aðgerðum framkvæmd Guðlaugur Þ. Þórðarson, borg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokks, minnti á fundi borgarstjórnar á að á síðasta kjörtímabili hafi borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks flutt tillögu um að Elliðaárnar og umhverfi þeirra yrði skoðað nákvæmlega. Fulltrúar Reykjavíkurlista hafi tekið vel í það, en víkkað starfið út til að ná yfir öll vatnasvið borgarinnar þar sem væri lax- eða silungsveiði. Í framhaldi af því hafi verið sam- þykkt stefnumörkun og aðgerð- aráætlun, þar sem nefndar hafi verið ákveðnar dagsetningar fyrir alls 32 aðgerðir sem grípa átti til. Guð- laugur sagði að þegar síðast hafi ver- ið spurst fyrir um stöðu aðgerð- aráætlunarinnar, í ágúst árið 2004, hafi einungis ein af 32 aðgerðum ver- ið framkvæmd að fullu. Umhverfisráð mun beita sér fyrir því að Reykja- víkurborg setji reglur um umgengni við Elliðaár Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Vernda þarf Elliðaárnar fyrir ágangi almennings, sem fyrirsjáanlegt er að aukist verulega á næstu árum, segir Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi og formaður samráðshóps um Elliðaárnar. „Vaxandi ásókn í að nota Elliðaárnar sem leikvöll“ Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.