Morgunblaðið - 19.10.2005, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 19.10.2005, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skuldabréf á morgun A U G LY SI N G A ST O FA SK A PA R A N S 1. Inngangserindi Dr. Björn Karlsson, brunamálastjóri. 2. Dæmi um áhættugreiningu og áhættumat Gestur Pétursson, Inpro. 3. Áhættumat og viðbragðsáætlanir Helgi Jensson, Umhverfisstofnun. 4. Dæmi um hollustu og öryggi á vinnustöðum Inghildur Einarsdóttir, Vinnueftirlitinu. 5. Umræður og fyrirspurnir ER ALLT Á HREINU Í ÞÍNU FYRIRTÆKI? F U N D U R U M Á H Æ T T U G R E I N I N G U O G Á H Æ T T U M A T : - UM AUKNAR KRÖFUR, FRAMKVÆMD OG TÆKIFÆRI SAMTÖKUM ATVINNULÍFSINS BORGARTÚNI 35, 6. HÆÐ 26. OKTÓBER 2005, KL. 8:30-10:30 Skráning á sa@sa.is og í síma 591 00 00 DAG S K RÁ Fyrsta flokks fjármögnunar- kostur FINNUR Árnason, forstjóri Haga, sendi í gær frá sér fréttatilkynn- ingu í tilefni ummæla Guðmundar Ólafssonar, lektors í hagfræði, í fréttum Stöðvar 2 í fyrrakvöld. Til- kynning forstjóra Haga og með- fylgjandi línurit um þróun vísitölu matvöru og fatnaðar fer hér á eftir: „1. Ummæli Guðmundar eru ómakleg og órökstudd. Líta verður á ummælin sem vangaveltur Guð- mundar, en um leið róg gegn ís- lenskum framleiðendum og ís- lenskri verslun. 2. Fyrirtæki Haga bjóða lægsta vöruverð á Íslandi í flestum þeim vöruflokkum sem fyrirtækin selja. Þar með talið matvöru og fatnaði. 3. Bónus hefur í 16 ár boðið lægsta vöruverð í matvöru á Ís- landi og gerir enn. Hagkaup hefur boðið lægsta vöruverð á Íslandi í mörgum öðrum vöruflokkum. 4. Bæði Hagkaup og Bónus hafa verið talin vinna íslenskum heim- ilum meira gagn en margir, sem gefa sig út fyrir að sinna eingöngu störfum í almannaþágu. 5. Hlutur matvöru í ráðstöfunar- tekjum heimilanna hefur lækkað svo um munar frá stofnun Bónuss og vegur nú um 15% af heildar- útgjöldum heimila. 6. Álagning verslana á matvöru- markaði hefur lækkað undanfarið ár vegna samkeppni á markaði. 7. Álagning í matvöruverslun á Íslandi er ekki hærri en álagning matvöruverslana í nágrannalöndum okkar. Álagning verslunar er eini mælikvarðinn sem er raunhæfur, til þess að meta frammistöðu versl- unar hvað varðar verðlagningu í al- þjóðlegu samhengi. 8. Hagkvæmni í rekstri og gæði íslenskrar matvöruverslunar stenst allan alþjóðlegan samanburð. 9. Fáar, ef nokkur önnur at- vinnugrein en matvara, er undir jafnmiklu eftirliti opinberra aðila, samtaka launþega, neytendasam- taka, fjölmiðla og neytenda, hvað varðar verðlagningu. 10. Lækkun tolla og vörugjalda á grænmeti fyrir nokkrum misserum skilaði sér til neytenda og engin ástæða er til að fullyrða að frekari lækkun opinberra gjalda á mat- vöru, hvort sem um tolla, vörugjöld eða virðisaukaskatt er að ræða, skili sér ekki til neytenda. 11. Tollar, vörugjöld, tæknilegar hindranir og almenn skattlagning á matvöru er í mörgum tilfellum óheyrileg. Stjórnvöld hafa algjör- lega í hendi sér, ef þau vilja lækka verðlag á matvöru á Íslandi. Eðli- legast væri að þau sýndu það í verki. 12. Aðgangur að matvörumark- aði er opinn öllum og krefst ekki mikillar fjárfestingar miðað við aðrar atvinnugreinar. Á höfuðborg- arsvæðinu starfa nokkrir tugir lög- aðila á matvörumarkaði. 13. Þróun verðlags á matvöru undanfarin ár sýnir, svo ekki verð- ur um villst, að verðlag þar hefur hækkað mun minna, en t.a.m. vísi- tala neysluverðs, sbr. meðfylgjandi mynd. 14. Stór hluti vara, sem neyt- endur skilgreina sem matvöru, ber 24,5% virðisaukaskatt, en ekki 14%, dæmi um það er kex og app- elsínusafi. Umræða um lækkun á virðisaukaskatti á matvöru úr 14% á því eingöngu við um hluta þeirrar vöru sem almennir neytendur skil- greina sem matvöru. 15. Ég hvet alla hlutaðeigandi aðila til þess að skoða einstaka þætti í verðlagsþróun, sérstaklega þá þætti sem mynda vísitölu neysluverðs, og bera saman við vísitölu matar og drykkjarvöru. Sá samanburður mun sýna ótvírætt að almenn umræða um matvöruversl- un á Íslandi byggir ekki á stað- reyndum. 16. Gera má ráð fyrir að vel inn- an við 5% af beinum vörukaupum matvöruverslunar á Íslandi sé tengd bandarískum dollar. Ástæð- an er m.a. tæknilegar hindranir stjórnvalda, vörugjöld og tollar, sem gera það að verkum að Íslend- ingar geta ekki nýtt sér þá hag- kvæmni sem gæti falist í auknum innflutningi frá Bandaríkjunum. Í Bandaríkjunum eru stærstu og hagkvæmustu verksmiðjur verald- ar í matvöru. 17. Á milli 60 og 70% af inn- kaupum matvöruverslunar á Ís- landi er tengdur íslenskri krónu, þar sem varan er framleidd á Ís- landi. Vegna haftastefnu stjórn- valda og skattlagningar í formi tolla og vörugjalda á ýmsan inn- flutning, á íslensk matvöruverslun enga valkosti í þessu efni. 18. Beinn innflutningur matvöru- verslana á Íslandi er innan við 15% af heildarinnkaupum. Matvöru- verslunin getur því eingöngu skilað þeim gengisávinningi sem þau inn- kaup skapa. Af framangreindu er ljóst að lækkun opinberra gjalda af mat- vöru, hvort sem um niðurfellingu tolla, vörugjalda eða virðisauka- skatts er að ræða, þá mun sú lækk- un koma íslenskum neytendum til góða.“ Forstjóri Haga mótmælir ummælum lektors í hagfræði            !" '  ,-!  ) , " +  ( *.//0 "1*.//2              #$%$& &'& GUÐMUNDUR Ólafsson lektor í hagfræði við Háskóla Íslands sagði í fréttum Stöðvar 2 í fyrrakvöld að ólíklegt væri að lækkun á mat- arskatti skili sér í vasa neytenda. Líklegra væri að verslanir og heild- salar hækki álagningu sem skatta- lækkuninni nemur. Allsherj- arskattalækkanir skili sér mun betur til almennings. „Við búum við frjálsa verslun og kaupmenn eru ekkert skyldugir til þess að lækka verð þó að þessi skattur væri eitthvað lækkaður, samanber það til dæmis að nú hefur innkaupsverð á vörum lækkað vegna hærra gengis en vöruverðið hefur jafnvel hækkað,“ sagði Guð- mundur. Hann sagði í fréttaviðtalinu að við þær aðstæður sem nú ríkja sé mjög ólíklegt að lækkun virð- isaukaskatts af matvælum myndi skila sér í miklum mæli til neyt- enda. „Ég gæti trúað að það væri kannski 20%. 80% myndu fara til framleiðenda og seljenda og ef maður gerir ráð fyrir að Baugur sé til dæmis með 30% meðalálagningu, þá myndi þetta þýða 500 til 600 milljóna styrk til verslunarkeðj- unnar,“ sagði Guðmundur. Hann sagði einnig að þetta væri einhver dýrasta aðferð sem til er til að koma peningum aftur til fátæks fólks. „Það eru kannski 100 til 200 milljónir sem myndu rata til fátæk- linga en það kostar ríkið fjóra millj- arða, þannig að þetta er ekki skyn- samleg leið til að dreifa peningum til fátæklinga, ef að það var hug- myndin.“ Ummæli Guðmundar Ólafssonar á Stöð 2 Ólíklegt að lækkun mat- arskatts skili sér í vasa neytenda

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.