Morgunblaðið - 19.10.2005, Síða 16
Reykjarfjörður | Á haustdög-
um er freistandi að heimsækja
Hornstrandir og sleppa burt
frá amstri hins daglega lífs,
burt frá áreiti gemsa og tölvu-
pósta. Líney Sigurðardóttir,
fréttaritari Morgunblaðsins,
fór ásamt fjölskyldu sinni í
ljúfa ferð um Hornstrandirnar
á dögunum og naut veðurblíðu,
friðsældar og náttúrufegurðar.
Á sandkassa við hús í Reykj-
arfirði er neglt stórt hvalbein
og á því situr ætíð ein kría.
Segist „heimafólk“ visst um að
hér sé alltaf um að ræða sömu
kríuna. Lítill snáði sem var
með í för var farinn að líta út
um gluggann áður en hann fór
út til að gá hvort einhver væri
á „kríuvaktinni“ og ef svo var
leit hann á afa sinn áhyggju-
fullur og sagði: „O–ó, kía á
beini“ og þorði ekki í kassann
nema með afa sínum. Krían
virtist þó hin spakasta þar sem
hún sat.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
„O – ó, kía á beini“
Spök
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Hansaverslun fagnað | Hafnfirðingar
geta kæst næstu helgi, en Hansadagar verða
haldnir í Hafnarfirði dagana 21.–23. október
í tilefni þess að bærinn fékk nýverið inn-
göngu í Hansasamtökin, Städtebund Die
Hanse, enda Hansakaupmenn ráðandi í
Firðinum á 16. öld.
Markmiðið með dögunum er að efla versl-
un og þjónustu í Hafnarfirði, kynna sögu
Hansakaupmannanna og efla tengsl við
Þýskaland. Fyrirtæki og ferðaþjónustuað-
ilar taka virkan þátt í að skapa þýska stemn-
ingu í bænum og verður dagskrá fjölbreytt.
Meðal þess sem gestir Hansahátíðar geta
gert sér til dægrastyttingar verður að skoða
Þýskubílinn, sem kynnir HM í knattspyrnu í
Þýskalandi árið 2006. Þá verður Hansa-
borgasýning á göngustíg við Fjarðargötu
þar sem saga Hansaborga verður rakin um
leið og sérstök áhersla er lögð á Hansabæinn
Hafnarfjörð. Þýskt þema verður á bókasafn-
inu og auk þess verður sýning á ljósmyndum
Bernt Schlüsselburg frá Cuxhaven, vinabæ
Hafnarfjarðar, í kaffistofu Hafnarborgar. Þá
verður októberfest á Fjörukránni.
Menningarsinnaðir Hafnfirðingar geta
einnig mætt á fyrirlestra í Byggðasafni
Hafnarfjarðar í Pakkhúsinu að Vesturgötu
8, en þar mun dr. Gísli Gunnarsson, prófess-
or í sagnfræði, fjalla um Hafnarfjörð, Ham-
borg og Hansasambandið á 16. öld og Guð-
mundur Mar Magnússon bruggmeistari
mun segja frá fornum þýskum ölgerð-
arhefðum og ölneyslu á Íslandi fyrr á öldum.
Frekar má fræðast um Hansadagana á vef
Hafnarfjarðar, www.hafnarfjordur.is.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Atvinnuhúsnæði | Nú er hafin gerð
nýrrar götu fyrir atvinnustarfsemi á Laug-
um. Gert er ráð fyrir fjórum lóðum við göt-
una fyrir atvinnuhúsnæði. Nú þegar hefur
Iðnbær ehf. tryggt sér fyrstu lóðina og mun
félagið byggja 400 m² atvinnuhúsnæði.
Húsið skiptist í þrjú jöfn bil og er á hverju
þeirra sérstakur inngangur og háar inn-
keyrsludyr. Það er Jón Ingi Björnsson,
Jóngi, verktaki sem sér um gatnagerðina í
samstarfi við Jarðverk. Lóðirnar eru stað-
settar í alfaraleið, við þjóðveg 1. Frá þessu
er sagt á vef Þingeyjarsveitar.
Nýtt hús | Verið er að reisa nýtt 720 fer-
metra stálgrindarhús fyrir Samgöngu-
minjasafnið á Ystafelli í Kaldakinn. Stór-
hugur ríkir á safninu enda er nýja húsið
umtalsvert stærra en það sem fyrir er og
hýsir marga dýrgripi. H. Hauksson flytur
húsið inn. Sverrir Ingólfsson safnstjóri
fagnar góðviðri undanfarna daga á heima-
síðu safnsins, ystafell.is, enda kærkomið
tækifæri núna til þess að standa í bygging-
arframkvæmdum.
Patreksfjörður | Skólasund hófst á
mánudag í nýju sundlauginni í
Íþróttamiðstöðinni Brattahlíð, en
það voru börn í fyrsta bekk Grunn-
skólans sem stungu sér þar til sunds
í indælis blíðviðri haustsins. Þetta
kemur fram á fréttavef Tíðis,
www.patreksfjordur.is.
Brynjar Þór Þorsteinsson íþrótta-
kennari kveðst ánægður með að-
stöðuna og sagði í samtali við frétta-
mann Tíðis að kennsla í lauginni
væri draumur þar sem sundlaugin
nýja væri töluvert öruggari og tær-
ari en sú gamla. Í gær var hafist
handa við að leggja parket á íþróttasalinn.
Guðmundur Baldursson, nýr umsjónarmaður Íþróttamiðstöðvarinnar sagði í sam-
tali við fréttamann að vænta mætti þess að sundlaugin verði opnuð almenningi í nóv-
ember og íþróttahúsið í desember. Laugin, sem er tilbúin til notkunar, er 113 cm á
dýpt í grynnri endanum og 160 cm í þeim dýpri. Þá eru við hana tveir heitir pottar.
Spriklað Yngstu börnin sprikluðu kát í tærri
og fallegri nýrri sundlaug Patreksfirðinga.
Fyrstu bekkingar
vígja nýja sundlaug D
avíð Hjálmar Har-
aldsson yrkir á
Akureyri:
Stangar hrútur. Stingur mý.
Stálma baular kýrin.
Krækir rottu köttur í.
Kæfir Rauðku mýrin.
Syngur fuglinn. Súrnar mjólk.
Selur dauður morknar.
Þorskur syndir. Fitnar fólk.
Flot í kæli storknar.
Hani veit í haugnum orm.
Hundar éta ruður.
Brakar rúm með brotinn gorm.
Bráðum skrepp ég suður.
Umsjónarmaður girnt-
ist vísurnar, bað um birt-
ingu hjá þessum alkunna
hlaupara og vísa fylgdi:
Aftur vinnur afrek glæst
er með rjóðar kinnar
Davíð Hjálmar hleypur næst
til höfuðborgarinnar.
Davíð Hjálmar svaraði
að bragði:
Legg af stað með þrek og þor
þegar nálgast vetur
en kannske verður komið vor
er kem ég suður, Pétur.
Af hlaupara
pebl@mbl.is
Ísafjörður | Bæjarráð Ísafjarðarbæjar
hefur lagt til við bæjarstjórn að veitt verði
hálfri milljón króna til kaupa á sneið-
myndatæki til Fjórðungssjúkrahússins á
Ísafirði. Var þetta ákveðið á fundi ráðsins í
gær. Þetta kemur fram á fréttavef Bæj-
arins besta, www.bb.is.
Bæjarins besta skýrir enn fremur frá því
að hópur áhugamanna hafi staðið fyrir
söfnun svo hægt verði að kaupa sneið-
myndatæki til sjúkrahússins og hafi nú
safnast hálf fjórða milljón króna, að því
gefnu að bæjarstjórn samþykki tilmæli
bæjarráðs. Tækið kostar tæpar 11 millj-
ónir og er talið að það muni auka öryggi og
hagræði vestfirskra sjúklinga til muna.
Bæjarráð
styrkir kaup á
sneiðmyndatæki
Styrkja kaup á flygli | Stjórn Verka-
lýðsfélags Húsavíkur hefur samþykkt að
styrkja kaup á flygli í Þorgeirskirkju um
kr. 100.000,-. Áætlaður kostnaður er um
1,5 milljónir. Kirkjan hefur notið mikilla
vinsælda sem hljómlistarhús enda hljóm-
burður þar afar góður en gott píanó hefur
vantað segir á vef félagsins. Söfnun stend-
ur nú yfir vegna kaupa á nýjum flygli í
kirkjuna.
Þorgeirskirkja gegnir lykilhlutverki í
þingeyskum sagnagarði. Hún er fyrsta ís-
lenska „vegkirkjan“ sem felur í sér að hún
er opin gestum og gangandi yfir sum-
artímann, þar tekur „staðarhaldari“ á móti
fólki, fræðir það og leiðbeinir
Laugarvatn | Grunnskóli Bláskóga-
byggðar á Laugarvatni hefur staðið
sig vel í umhverfisvernd og umhverf-
ismennt og hefur því hlotið umhverf-
isviðurkenninguna Grænfánann.
Að sögn Tryggva Felixsonar, fram-
kvæmdastjóra Landverndar, er að-
staða skólanna að Laugarvatni fyrir
útikennslu og náttúrufræðslu frá
náttúrunnar hendi afar góð. Þá hefur
verið útbúin einstök aðstaða fyrir
náttúrufræðikennslu í gróðurhúsi
skammt frá. „Starfið á þessu sviði er
afar fjölbreytt og finnst tæplega ann-
að sambærilegt á Íslandi,“ segir
Tryggvi m.a. og bætir við að grunn-
skólinn hafi tekið upp samstarf við
KHÍ um útikennslu og verið sé að
skipuleggja rjóður við vatnið fyrir úti-
kennsluaðstöðu, en þar muni Græn-
fáninn blakta til vitnis um góða við-
leitni og árangur.
„Grænfáninn er umhverfismerki
sem nýtur virðingar víða í Evrópu
sem tákn um góða fræðslu og um-
hverfisstefnu í skólum,“ segir
Tryggvi. „Fánann fá skólar í kjölfar
þess að hafa leyst fjölþætt verkefni
sem efla vitund nemenda, kennara og
annarra starfsmanna skólans um um-
hverfismál. Verkefnin eru bæði til
kennslu og til að bæta daglegan
rekstur skóla. Þau efla þekkingu
nemenda og skólafólks og styrkja
grunn að því að tekin sé ábyrg afstaða
og innleiddar raunhæfar aðgerðir í
umhverfismálum skóla.“ Tryggvi seg-
ir reynsluna í Evrópu jafnframt sýna
að skólar sem taka þátt í verkefninu
geti sparað talsvert í rekstri. Fáninn
er veittur til tveggja ára í senn.
Að baki Grænfánanum stendur
Sjálfseignarstofnun sem heitir
Foundation for Environmental
Education (FEE) og var stofnuð árið
1981. Landvernd á aðild að FEE og
hefur umsjón með Grænfánanum á
Íslandi. Verkefnið nýtur stuðnings
bæði menntamálaráðuneytis og um-
hverfisráðuneytis.
Sífellt fleiri skólar á Íslandi leggja
áherslu á umhverfismennt og um-
hverfisvernd í samstarfi við Græn-
fánaverkefni Landverndar.
Frekari upplýsingar um Grænfán-
ann er að finna á heimasíðu Land-
verndar, www.landvernd.is/graenfan-
inn.
Grænfáni í
Bláskógabyggð
♦♦♦
♦♦♦
Vesturland | Nemendum við framhalds-
skólana á Vesturlandi fjölgaði um 141 á
milli ára. Á síðasta skólaári voru 749 nem-
endur við framhaldsskólana á Vesturlandi
en árið þar á undan voru þeir 608. Þarna
leikur tilkoma Fjölbrautaskóla Snæfell-
inga stórt hlutverk, en á síðasta skólaári
voru nemendur þar 132 talsins. Þá hækkar
hlutfall þeirra sem búa og stunda nám í
landshlutanum. Á síðasta skólaári var það
52,4% og hafði aukist úr 44,5%.
Svo virðist því sem tilkoma Fjölbrauta-
skólans á Snæfellsnesi hafi aukið nokkuð
hlutfall þeirra nema sem búa á Vesturlandi
og kjósa að stunda nám sitt þar því Fjöl-
brautaskóli Vesturlands hefur ekki misst
sína hlutdeild í nemendum úr landshlut-
anum. Þetta kemur fram á fréttavefnum
Skessuhorn.is.
Þá kemur ennfremur fram að háskóla-
nemum á Vesturlandi hefur fjölgað um
67% frá árinu 2001. Þannig fjölgaði nem-
endum við Landbúnaðarháskólann á
Hvanneyri úr 100 í 166, en á Bifröst úr 254 í
590. Hefur háskólanemendum búsettum á
Vesturlandi fjölgað um 122% frá 1997.
Framhaldsskóla-
nemum fjölgar