Morgunblaðið - 19.10.2005, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Samvera eldri borgara
fimmtudaginn 20. október kl. 15.00
Gestur samverunnar er
sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson,
prestur við Akureyrarkirkju.
Hildur Tryggvadóttir sópran syngur við undirleik Hjartar
Steinbergssonar. Kaffiveitingar og helgistund að venju.
Allir velkomnir.
Glerárkirkja
GLERÁRKIRKJA
ræða efni fyrirlestra og hópstjórar
munu safna saman gögnum og
skila til undirbúningshóps ráð-
stefnunnar. Niðurstöður hópanna
verða síðan að sögn bæjaryfirvalda
notaðar til að styrkja enn frekar
og efla Reykjanesbæ sem fjöl-
skylduvænt sveitarfélag.
Boðið verður upp á barnagæslu
og munu Solla stirða og Halla
hrekkjusvín úr Latabæ koma og
skemmta börnunum, en skemmti-
atriði þeirra hefst kl. 10.10.
Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ
hvetja alla bæjarbúa til að taka
þátt og eiga saman fróðlegan og
skemmtilegan morgun í Holta-
skóla.
ar og Inga Þórsdóttir, prófessor.
Á sama tíma verður fjallað um
eldri fjölskyldur og verða fyrirles-
arar þar Jón Eyjólfur Jónsson,
öldrunarlæknir, Berglind Magnús-
dóttir, öldrunarsálfræðingur og
Margrét Margeirsdóttir, formaður
eldri borgara í Reykjavík.
Í þriðja lagi verður fjallað um
fjölskyldur með stálpuð börn og
verða fyrirlesarar Geir Sveinsson,
framkvæmdastjóri Íþróttaaka-
demíunnar, Einar Gylfi Jónsson,
sálfræðingur og dr. Sigrún Júl-
íusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf
við Háskóla Íslands.
Umræður verða í lok hvers
hluta þar sem ráðstefnugestir
Reykjanesbær | „Fjölskyldan í
Reykjanesbæ“ er heiti ráðstefnu
sem haldin verður í Holtaskóla í
Reykjanesbæ laugardaginn 22.
október n.k. milli kl. 10 og 13.
Á ráðstefnunni verður fjallað um
málefni fjölskyldunnar og leitað
verður leiða til að skapa fjöl-
skylduvænna samfélag. Ráðstefn-
unni verður skipt í þrjá hluta. Í
fyrsta lagi verður fjallað um fjöl-
skyldur sem eru með ung börn
þ.e.a.s. frá fæðingu til framhalds-
skóla og verða fyrirlesarar í þeim
hluta þau Konráð Lúðvíksson,
lækningaforstjóri HSS, Gylfi Jón
Gylfason, yfirsálfræðingur á
Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæj-
Fjölskylduráðstefna í Holtaskóla
AKUREYRI
SUÐURNES
MIKIL eftirspurn er eftir íbúðar-
húsnæði á Akureyri og hefur íbúð-
arverð hækkað jafnt og þétt það
sem af er ári. Sævar Jónatansson
fasteignasali sagði að eftirspurn
væri mun meiri en framboð, jafnt
á nýjum sem notuðum íbúðum og
þannig hefði ástandið verið til
nokkuð langs tíma. Hann sagði að
það hefðu orðið miklar verðhækk-
anir undanfarna mánuði, framboð
á íbúðarhúsnæði væri enn lítið en
þó væri erfitt að spá í hvert fram-
haldið verður. „Hækkunin er orð-
in það mikil og spurningin því
hvort markaðurinn fari eitthvað
að róast.“
Mesta fjörið í nýbyggingum er í
Naustahverfi en þar eru fjölmarg-
ir byggingaverktakar að byggja
eða hefja byggingu hundraða
íbúða. Magnús Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Fjölnis ehf., sagði
að eftirspurn eftir nýjum íbúðum
væri mikil, bæði frá einstaklingum
og aðilum sem hefðu áhuga á að
kaupa fleiri en eina íbúð. Hann
sagði að margir hefðu trú á því að
íbúðarverð ætti eftir að hækka
enn frekar og að menn litu því á
íbúðarkaup sem vænlegan fjár-
festingarkost. Magnús sagði að
verð á notuðum íbúðum væri jafn-
vel enn hærra en á nýjum íbúðum
og að það helgaðist ekki síst af því
hversu eftirspurnin er mikil.
Fjölnir er að byggja yfir 20 íbúðir
í Naustahverfi og á lóð undir 6
íbúðir til viðbótar í 3. áfanga
hverfisins.
Sami aðili keypt
hátt í 70 íbúðir
Örn Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri Hyrnu ehf., sagði að fyrir-
tækið hefði selt 33 íbúðir í Nausta-
hverfi til eins og sama aðila og að
sá aðili hefði jafnframt gert bind-
andi kauptilboð í 33 íbúðir til við-
bótar í hverfinu. Örn vildi þó ekki
upplýsa hver þessi kaupandi er.
„Mér hefur gengið vel að selja
þær íbúðir sem við byggjum. Við
eigum lóðir undir 200 íbúðir til við-
bótar í Naustahverfi og ætlum að
byggja þær á næstu 3–4 árum,“
sagði Örn en um er að ræða íbúðir
í par- og raðhúsum og fjölbýlis-
húsum. Hann sagði að raðhús á
einni hæð væru alltaf vinsælust,
einnig litlar íbúðir í fjölbýli.
Vegna þessarar miklu þenslu í
byggingaiðnaðinum er mikil eftir-
spurn eftir smiðum í bænum.
„Mig vantar tíu smiði í vinnu og þú
mátt alveg láta það koma skýrt
fram,“ sagði Örn.
Pólskir starfsmenn í vinnu
Tvö fyrirtæki á svæðinu hafa
ráðið til sín erlenda starfsmenn í
gegnum íslenska starfsmanna-
leigu og er það nýlunda í grein-
inni, að sögn Guðmundar Ómars
Guðmundssonar, formanns Fé-
lags byggingamanna Eyjafirði.
„Þetta er nýtt hér og áður óþekkt
vandamál, á meðan ekki er vitað
hvort þessir erlendu starfsmenn
fá greitt samkvæmt kjarasamn-
ingum. Ég veit um 7–8 pólska
starfsmenn sem hafa verið hér í
fáar vikur og eru notaðir sem
smiðir af tveimur fyrirtækjum á
svæðinu. Starfsmannaleigan hef-
ur ekki upplýst okkur um kaup og
kjör þessara manna þótt eftir því
hafi verið leitað,“ sagði Guðmund-
ar Ómar. Hann sagði að áfram
yrði unnið að málinu í samstarfi
við ASÍ.
Verð íbúðarhúsnæðis á Akureyri hefur hækkað jafnt og þétt á árinu
Enn mikil eftirspurn
Morgunblaðið/Kristján
Byggingaframkvæmdir Það er mikið um að vera í Naustahverfi en þar er verið að byggja hundruð íbúða.
Eftir Kristján Kristjánsson
krkr@mbl.is
UPPSELT er á allar sýningar Leik-
félags Akureyrar á Fullkomnu brúð-
kaupi eftir Robin Howdon en verkið
verður frumsýnt annað kvöld, fimmtu-
dagskvöld. Bætt var við aukasýningu
vegna þessa mikla áhuga og gengur
miðasala með ólíkindum vel.
Sömu sögu er að segja varðandi söng-
leikinn Piaf sem sýndur verður í Sam-
komuhúsinu á næstunni, 10., 11. og 12.
nóvember. Fljótt seldust allir miðar
upp og var bætt við aukasýningu.
Þá komust færri að en vildu á Belg-
íska Kongó en verkið var sýnt fyrr í
haust.
Kortasalan stefnir í að verða jafn-
mikil eða jafnvel meiri en metsalan á
síðastliðnu leikári, en þá sjöfaldaðist
kortasala milli ára. Á liðnu leikári voru
rúmlega 900 áskriftarkort seld.
Mikill leikhúsáhugi
Uppselt
á allar
sýningar
Konur í framboð | Á fundi jafnréttis- og fjöl-
skyldunefndar voru ræddar hugmyndir um
hvatningu til stjórnmálaflokka og framboða
um að gæta að kynjahlutfalli á framboðs-
listum. Nefndin samþykkti jafnframt að skora
á konur á Akureyri að gefa kost á sér á fram-
boðslista fyrir bæjarstjórnarkosningar vorið
2006 sem og í nefndir og ráð að loknum kosn-
ingum. Með því móti geta konur haft áhrif á
þær ákvarðanir sem teknar eru og tekið þátt í
mótun bæjarfélagsins.Jafnréttis- og fjöl-
skyldunefnd hvetur stjórnmálaflokka og vænt-
anleg framboð til bæjarstjórnarkosninga á Ak-
ureyri vorið 2006 til þess að skipa á
framboðslista jafnt hlutfall kvenna og karla.
Nefndin minnir á ákvæði Laga um jafna stöðu
og jafnan rétt kvenna og karla en þar segir
m.a. „Í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum
ríkis og sveitarfélaga skulu, þar sem því verð-
ur við komið, sitja sem næst jafnmargar konur
og karlar.“ Slíkt markmið næst ekki nema
kynjahlutfall á framboðslistum sé jafnt og
tryggt að bæði konur og karlar komist að, seg-
ir ennfremur í bókun nefndarinnar.
LANDSMÓT æskulýðsfélaga kirkj-
unnar var haldið á Akureyri um
helgina. Það voru Glerárkirkja og
Síðuskóli sem voru gestgjafar mótsins
að þessu sinni. Á mótinu, sem haldið
er árlega, hittast unglingar úr æsku-
lýðsfélögum kirkjunnar víðs vegar af
landinu. Að þessu sinni voru þátttak-
endur rúmlega 320 talsins, á aldrinum
14–17 ára og frá 22 kirkjum. Aðeins
einu sinni áður hafa þátttakendur ver-
ið fleiri en 320 en það var árið 1997.
Fjölbreytt dagskrá var í gangi frá
föstudagskvöldi og fram á sunnudag
en yfirskrift mótsins þetta árið var; ,,Í
örmum Guðs“.
Mótið þótti takast mjög vel en því
lauk með guðsþjónustu í Glerárkirkju
á sunnudag.
Fjölmennt
landsmót
æskulýðsfélaga
Morgunblaðið/Kristján
Landsmót Á fjórða hundrað ungmenna, víðs vegar af landinu, tók þátt í landsmóti æskulýðsfélaga.
Ók gegn rauðu ljósi | Héraðsdómur Norð-
urlands eystra hefur dæmt konu í 30 daga skil-
orðsbundið fangelsi til tveggja ára, en hún var
ákærð fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og um-
ferðarlagabrot. Þá var hún svipt ökurétti í tvo
mánuði og gert að greiða sakarkostnað, rúm-
lega 150 þúsund krónur, auk málsvarnarlauna
verjanda síns.
Konan ók bifreið sinni yfir gatnamót Þór-
unnarstrætis og Hrafnagilsstrætis að morgni
dags í janúar síðastliðnum á móti rauðu ljósi
með þeim afleiðingum að hún lenti á dreng
sem var á gangbraut á leið yfir götuna. Hann
hlaut ýmsa áverka.
Fram kemur í dómi héraðsdóms að konan
hafi þekkt vel til á umræddum stað, ekið um
gatnamótin á leið til vinnu í árabil. Álagstími
var í umferðinni er óhappið varð og skyggni
slæmt og því vítavert að aka gegn rauðu ljósi,
segir í dómnum. Konan á engan sakaferil að
baki.
Kristinn Halldórsson kvað upp dóminn. Til
varnar var Árni Pálsson hrl. en Eyþór Þor-
bergsson sýslumannsfulltrúi sótti málið.