Morgunblaðið - 19.10.2005, Page 19

Morgunblaðið - 19.10.2005, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 19 MINNSTAÐUR LANDIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Hólmavík | Stefán Jónsson starfsmaður áhaldahússins á Hólmavík vann verðskuldaðan sigur í karókíkeppni vinnustaða sem veitingastaðurinn Café Riis stóð fyrir um helgina. Fimmtán keppendur, fulltrúar flestra vinnustaða í sveitarfélaginu, mættu til leiks í fyrri umferð keppninnar sem fram fór í lok september. Þeir átta sem eftir stóðu að henni lokinni kepptu svo í Bragganum á Hólmavík á laugardagskvöldið. Þar fylgdust hátt í tvö hundruð manns með líflegri keppni þar sem hver keppandi flutti tvö lög. Auk þess að hljóta fyrsta sætið í keppninni var Stefán kosinn vinsælasti keppandinn af áhorf- endum í sal. Í öðru sæti, að mati dómnefndar, var Sigurrós G. Þórðardóttir starfsmaður leikskólans Lækjarbrekku og Salbjörg Engilbertsdóttir, fulltrúi skrifstofu Hólmavík- urhrepps í því þriðja. Það var hólmvíska idolstjarnan Heiða Ólafs sem afhenti verðlaunin, en hún átti sæti í dómnefndinni. Eigendur Café Riis voru afar ánægðir með viðtökur við keppninni, sem nú var haldin í fyrsta sinn. Karókí- keppni vinnustaða Morgunblaðið/Kristín Sigurrós Sigurvegari Stefán virðir fyrir sér glæsilegan verðlaunagripinn, sem smíðaður var af Kristjáni Jóhannssyni, einum af eigendum Café Riis. Til vinstri er Sigurrós G. Þórðardóttir sem var í 2. sæti. Morgunblaðið/Kristín Sigurrós Í dómnefnd Heiða Ólafs, söng- og Strandakona að störfum. Fossvogur | Krot og úðabrúsasull hefur vakið athygli vegfarenda í Fossvogi og Bústaðahverfi und- anfarið og segja viðmælendur Morgunblaðsins í hverfinu krotið til hins mesta ósóma fyrir hverfið. Hafa skemmdarvargar einnig vald- ið miklu tjóni á svæði íþróttafélags- ins Víkings og hefur stjórn félags- ins heitið 20.000 króna verðlaunum fyrir upplýsingar um spellvirkjana. Gunnlaugur Júlíusson, stjórn- armaður í Víkingi, hefur und- anfarið unnið ötullega að því að skrá og benda á veggjakrot og subbuskap á opinberum bygg- ingum, upplýsingaskiltum og svæði Víkings. Segir hann tjónið hið minnsta upp á milljónir króna, ef einungis eigi að reikna með kostn- aði við að þrífa og eyða krotinu, svo ekki sé minnst á þann skaða sem felst í óþægindum fyrir fólk og sérstaklega yngstu kynslóðina, en mikið er um krot á leikvöllum barna. „Mér blöskraði hreinlega. Það er hreinlega allt útkrotað. Fótstykki undir styttum, rafmagnskassar, umferðarskilti, upplýsingaskilti, auglýsingaskilti, undirgöng, brýr, bekkir, brúarhandrið, ruslakassar, ljósastaurar, veggir, leikvallatæki, leikskólar, grindverk, skólarnir Fossvogsskóli og Réttarholtsskóli eru útkrotaðir, leikskólinn Kvista- borg og fleira,“ segir Gunnlaugur m.a. á vefsíðu sinni, gajul.blogs- pot.com. „Þetta er náttúrulega hrein skrílmennska hjá þeim sem stunda þessa iðju og síðan ves- aldómur hjá borginni að gera ekki minnstu tilraun til að hamla á móti óþverranum. Hvað eiga börnin að halda sem eru í leikskólum og grunnskólum þegar þeir eru út- krotaðir ár og síð og alla tíð? Þau halda vitaskuld að svona eigi þetta að vera og einhver þeirra næla sér vitaskuld í brúsa eða breiðan túss og taka þannig við keflinu.“ Þarf ekki að vera svona Gunnlaugur segir það óþolandi að hverfin, sem annars séu hin ágætustu, „séu útbíuð í þessu krabbi sem ég get ekki sé að sé neinum til yndisauka en miklu frekar til leiðinda og ama fyrir ut- an hið fjárhagslega tjón sem unnið er af þessu liði.“ Hann kveðst hafa orðið sífellt gáttaðri eftir því sem hann skoðaði hverfið sitt betur, en hann er ötull skokkari og eyðir því góðum tíma í útivist í hverfinu. „Það er með ólíkindum hvernig hverfið lítur út,“ segir Gunnlaugur og bætir við að segja megi að allt sem falli undir opinberar eigur sé útkrassað á einn eða annan hátt en alltaf ljótan. „Einn leikskóla fann ég þó upp við Breiðagerðisskóla þar sem sást ekki strik á einu eða neinu. Hann var vel afgirtur en annars veit ég ekki hvaða fæling- armáttur er þar á ferðinni. Skól- arnir í hverfinu eru útkrassaðir, mismunandi þó. Reyndar sést að yfirvöld hafa verið að reyna að þvo ósómann af en kemur fyrir ekki. Það kemur stöðugt nýtt í staðinn. Mest blöskrar mér að sjá umhverfi Réttarholtsskóla. Þar eru margir veggir útkrassaðir og næstu hús og veggir. Einn leikskóli er þar rétt hjá og hann er hryllilegur útlits. Þetta þarf ekki að vera svona og er ekki í öðrum hverfum. Skaðinn nemur milljónum ef ætti að skipta öllu út, þvo og mála. Síðan er mér sagt að það sé krassað á bílskúrs- hurðir og nýjar steniklæðningar á íbúðarhúsum. Þetta er alvöru vandamál.“ Átaksverkefni framundan Sighvatur Arnarson, skrif- stofustjóri gatna- og eignaumsýslu á framkvæmdasviði Reykjavík- urborgar, segir nú í bígerð sam- stillt átak með nokkrum fyr- irtækjum, þ. á m. Orkuveitunni og Símanum, þar sem ráðist verði á veggjakrotið. „Það er nýkominn starfsmaður hjá okkur sem á að sjá um þessi verkefni,“ segir Sig- hvatur. „Það hefur líka verið vandamál að það er verið að líma auglýsingaplaköt á rafmagnskassa og víða á veggi og eigur borg- arinnar í miðbænum.“ Sighvatur segir að tilhneigingin sé sú að ef starfsmenn borgarinnar séu nógu snöggir að mála yfir skemmdirnar virðist það virka letj- andi á menn, þar sem „list“ þeirra endist ekki. Sighvatur segir erfitt að ná til þeirra sem stunda þessa iðju, til að fræða þá, en þegar til þeirra náist, sé reynt að fræða þá um þann kostnað sem af verknaði þeirra hlýst, bæði fjárhagslegan og sam- félagslegan. „Þetta kemur í bylgj- um, er mest á haustin þegar fjör fer að færast í skólana, en svo minnkar þetta á veturna,“ segir Sighvatur en bætir við að vissulega séu hér ekki einungis grunn- skólanemar á ferð, heldur standi líka eldra fólk í þessu. „Sumum finnst þetta vera list, en menn geta ekki skemmt eigur annarra eins og þeim dettur í hug. Það væri ágætt ef borgarbúar væru vakandi fyrir þessu og létu lögreglu vita af því þegar þetta gerist, því þetta er brot á lögreglusamþykkt.“ Íbúar í Fossvogi og Bústöðum ósáttir við faraldur veggjakrots í hverfinu Tjón sem snertir bæði budduna og börnin Ófrýnilegt Ekki er leikumhverfi barnanna á þessum leikskóla kræsilegt að sjá. Ljósmynd/Gunnlaugur Júlíusson Óupplýst Umhverfislistaverk veggjakrotaranna skemma útivistarmögu- leika borgarbúa og eyðileggja gildi upplýsingaskilta. MÝVATN varð alísa í síðustu viku enda fór frostið þá í 15°. Þá færist ró yfir lífríki vatnsins. Fyrir löngu sagði eitt af skáldum sveit- arinnar „silungshöllin skænir“ um það þegar ísskæni kom á vatnið. Í þíðviðri og regni síðustu daga safnast vatn á ísinn og verður það allt sem spegill. Þetta nota fjöllin sér óspart til að spegla sig á ísnum svo sem Bláfjall gerir hér á mynd. Jón Aðalsteinsson í Belg segir þetta eitt alversta haust sem hann man, er hann þó aldraður maður og minnugur. Ekki varð mikil rjúpnaveiði á veiði- svæðum mývetnskum um helgina þó nóg væri af byssuhólkum. Tölur um veidda fugla eru afar lágar, en haft er eftir veiði- mönnum að eitthvað sé af rjúpu, en hún sé afar stygg. Ekki mun fjarri að segja að 40 til 50 veiðimenn hafi verið í Búrfells- hrauni og Lúdent þessa daga og flestir með aðeins fáeina fugla heyrist mér. Haraldur Þórarinsson í Kvistási í Kelduhverfi hér norður undan segist ekki hafa heyrt byssuskot hinn 15. og er það nýtt fyrir honum á veiðitíma rjúpu. Hann hafði þá sögu að segja að mjög lítið hefði sést af rjúpu þar um slóðir og veiði nær engin. Þetta styður þá kenningu að mjög lítið sé af rjúpu í Þingeyjarsýslu. Morgunblaðið/BFH Ís á Mývatni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.