Morgunblaðið - 19.10.2005, Page 27

Morgunblaðið - 19.10.2005, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 27 UMRÆÐAN SAMTÖK um betri byggð, eins konar þverpólitísk neytendasamtök á sviði borgarskipulags, kynntu starf sitt í sl. mánuði í Listasafni Reykjavíkur í boði borgaryfirvalda. Þar var m.a. kynntur samanburður flugvall- arvalkosta, sem vakti athygli fundargesta. Þessum samanburði er nú komið á framfæri við almenning. Bornir eru saman fjórir valkostir fyrir nýjan innanlands- flugvöll: A. Miðdals- heiði, B. Hvassahraun, C. Keflavík og D. Löngusker. Kostnaður Kostnaður án landverðs er sá sami fyrir nýja velli. Líklega eru þó aðstæður á Miðdalsheiði hagstæðari en í Hvassahrauni og kostnaður við Löngusker ofmetinn um 10% því fullgerð landfylling er nánast tilbúin undir malbik. Kostnaður við innan- landsflugstöð og flughlöð í Keflavík var metinn á um 4 milljarða króna árið 2002. Flugfjarlægð Flugfjarlægð frá landsbyggð styttist um 15 km á flugvöll á Mið- dalsheiði, er óbreytt í Hvassahrauni en lengist um 30 km á Keflavík- urflugvöll. Munur á Miðdalsheiði og Keflavík jafngildir 6–8 mínútna flugtíma. Núvirtur aksturskostnaður Miðað við akstur að miðborg Reykjavíkur er niðurstaðan sú sama fyrir Hvassahraun og Miðdalsheiði. Keflavík kemur verr út og staðan versnar enn ef erlendum ferða- mönnum fjölgar eins og spáð er. Nýtingarhlutfall Í ljós hefur komið að loka þyrfti flugvelli í Hvassahrauni í allt að 4 daga á ári um- fram völl í Vatnsmýri vegna sviptivinda. Flugvellir á Miðdals- heiði, á Lönguskerjum og í Keflavík eru tald- ir jafngóðir og völlur í Vatnsmýri varðandi sviptivinda. Andstaða landsbyggðar Andstaða landsbyggðar við flutn- ing innanlandsflugs til Keflavíkur er mikil og andstaða við flutning í Hvassahraun virðist vera meiri en á Miðdalsheiði, í beinu hlutfalli við lengd flugtíma. Andstaða nágrannasveitarfélaga Andstaða er á Seltjarnarnesi, í Kópavogi, Bessastaðahreppi og Garðabæ gegn flugvelli á Löngu- skerjum, en líklega fagna Sunnlend- ingar flugvelli á Miðdalsheiði. Áhrif á byggð Flugvöllur á Miðdalsheiði hefur ekki áhrif á byggð í fyrirsjáanlegri framtíð. Áhrif flugvallar í Hvassa- hrauni á byggð í Hafnarfirði eru fyrirsjáanleg og áhrif af flugvelli á Lönguskerjum verða strax mikil og vaxandi. Stækkun í millilandaflugvöll Flugvöll á Miðdalsheiði má stækka í millilandaflugvöll þegar og ef hagkvæmt telst að sameina allt flug á einum stað. Hagkvæmt verð- ur að flytja millilandaflug nær höf- uðborgarsvæðinu ef erlendum ferðamönnum fjölgar líkt og spáð er. Samrekstur innan- og millilandaflugvalla Lítill sparnaður næst með sam- rekstri innan- og millilandaflugs á einum flugvelli. Rekstur í Reykjavík kostar um 200 milljónir króna á ári og í Keflavík um 1.000 milljónir. Sparnaður gæti numið allt að helm- ingi rekstrarkostnaðar Reykjavík- urflugvallar. Fórnarkostnaður vegna fram- kvæmda og pólitískra ákvarðana myndast við það að í Vatnsmýri liggja a.m.k. 200 milljarðar króna ónýttir. Miðað við 6% vexti af bundnu fé glatast einn milljarður króna á mánuði. Útreiknuð tímatöf í mánuðum vegna pólitískrar and- stöðu er summa úr línum 5 og 6 margfölduð með 3 því miðað er við að það taki samfélagið 3 mánuði að yfirvinna hverja einingu pólitískrar andstöðu. Útreiknuð tímatöf vegna undirbúnings, hönnunar, útboðs og framkvæmda byggist á reynslu og skýrir sig sjálf. Samanburður flugvallarvalkosta Örn Sigurðsson ber saman kosti og galla flugvallarstæða fyrir innanlandsflug Örn Sigurðsson ’Bornir eru saman fjór-ir valkostir fyrir nýjan innanlandsflugvöll.‘ Höfundur er arkitekt. Samanburður á flugvallarvalkostum á höfuðborgarsvæðinu A Miðdalsheiði B Hvassahraun C Keflavík D Löngusker 1. Kostnaður v. flugvöll, flugstöð ofl. ca. 10 milljarðar ca. 10 milljarðar ca. 4 milljarðar ca.10 milljarðar Landfylling (ca. 6-8 mi.) 2. Flugfjarlægð til landsbyggðar X + 15 km X km X + 30 km X km 3. Núvirtur aksturskostnaður í miðborg ca. 6 milljarðar ca. 6 milljarðar ca. 12 milljarðar ca. 1 milljarður 4. Nýtingarhlutfall lokunardagar m.v: Vatnsmýri 0 dagar 4 dagar 0 dagar 0 dagar 5. Pólitísk andstaða landsbyggðar á skala 1–10 2 4 9 1 6. Pólitísk andstaða í nágrannasveitarfél. á skala 1–10 1 3 0 9 7. Áhrif á núverandi og framtíðarbyggð á skala 1–10 1 3 1 9 8. Stækkun í millilandaflugvöll JÁ ! NEI ! NEI ! 9. Samrekstur á millilanda- og innanlandsflugi Allt að 100 milljónir 0 kr. Allt að 100 milljónir 0 kr. 10. Fórn vegna pólitískra ákvarðana, fórnarkostn. um 12 milljarðar kr. á ári 3 X 3 = 9 mánuðir 9 milljarðar 3 x 7 = 21 mánuður 21 milljarður 3 x 9 = 27 mánuðir 27 miljarðar 3 x 10 = 30 mánuðir 30 milljarðar 11. Fórn vegna undirbún., hönnunar og framkv. um 12 milljarðar kr. á ári 33 mánuðir 33 milljarðar 27 mánuðir 27 milljarðar 6 mánuðir 6 milljarðar 49 mánuðir 49 milljarðar 12. Samfélagslegur kostn. summa úr röðum 1, 3, 10, 11 58 milljarðar 64 milljarðar 49 milljarðar 96–98 milljarðar Samtök um betri byggð í september 2005 w w w .is ak w in th er .c om Í dag, miðvikudaginn 19. október, stendur áskrifendum Morgunblaðsins til boða að kaupa miða í forsölu á tónleika Sigur Rósar í Laugardalshöll þann 27. nóvember. Salan fer fram á mbl.is undir "NÝTTÁ ", vinstra megin á forsíðu vefsins. Miðaverð er kr 4500 í stúku og kr 3500 í stæði. Salan hefst kl 10:00 og miðafjöldi er takmarkaður.- meira fyrir áskrifendur Meira á mbl.is/greinar Jónína Benediktsdóttir: Sem dæmi um kaldrifjaðan siðblind- an mann fyrri tíma má nefna Rockefeller sem Hare telur einn spilltasta mógúl spilltustu tíma... Örn Sigurðsson: Bornir eru saman fjórir valkostir fyrir nýj- an innanlandsflugvöll. Prófkjörsgreinar á mbl.is www.mbl.is/profkjor PRÓFKJÖR Páll Gíslason, læknir, styður Vilhjálm G. Vilhjálmsson Baldur Dýrfjörð styður Krist- ján Þór Júlíusson Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.