Morgunblaðið - 19.10.2005, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 19.10.2005, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 37 DAGBÓK Árnaðheilla dagbók@mbl.is Ráðstefna um kynjajafnrétti í fé-lagsvísindarannsóknum verður haldiní Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavíkföstudaginn 21. október frá klukkan 13.30 til 17 en markmið ráðstefnunnar er að ræða hugsanlegar skekkjur í fjármögnun rann- sókna á Íslandi og í Evrópu almennt, þ.e. skekkjur sem tengjast kyni vísindamanna. Eiríkur Smári Sigurðsson, deildarstjóri rann- sóknar- og nýsköpunarsviðs Rannsókn- armiðstöðvar Íslands, Rannís, segir það vera ljóst að konur séu í talsverðum minnihluta í æðstu metorðastigum vísinda og rannsókna. „Þetta á líka við um félagsvísindi og hugvís- indi, þar sem maður á þó síður von á því en í t.d. verkfræði. Því hefur löngum verið haldið fram að breytingar til meira jafnræðis séu óhjá- kvæmilegar, en að þær taki tíma. Um þetta efast margir og telja of mikla íhaldssemi í kerf- inu hamla eðlilegri þróun,“ segir Eiríkur. „Á ráðstefnunni verða fluttir þrír fyrirlestrar. Barbara Bagilhole, prófessor við Háskólann í Loughborough í Englandi, ríður á vaðið með fyrirlestur um framabraut kvenna í fé- lagsvísindum. Elisabetta Addis, prófessor í hag- fræði við Háskólann á Sardiníu, fjallar síðan um hugtakið vísindaleg gæði í ljósi kyngervis og að lokum flytur Harriet Silius, prófessor við aka- demíuna í Åbo í Finnlandi, erindi um fé- lagsvísindi í ljósi kyngervis. Ráðstefnan nálgast málið frá sjónarhóli stofnana sem fjármagna rannsóknir úr samkeppnissjóðum. Til að fá styrk þarf að senda inn umsókn, hún er metin af jafningjum – þ.e. bestu fáanlegu sérfræð- ingum sem hafa vit á sviðinu – og síðan er styrkjum úthlutað á þessum grunni. Því hefur verið haldið fram að þetta kerfi sé of íhaldssamt í eðli sínu og að það hamli breytingum – m.a. til aukins kynjajafnréttis. Nú er enginn að halda því fram að taka beri konu fram yfir karl þegar valið er milli umsækjenda. Málið er mun flókn- ara. Sjóðir bjóða upp á mismunandi tegundir styrkja og það er vitað að sumar tegundir henta ákveðnum hópum betur en aðrar tegundir. Við þurfum að huga betur að þessum þætti.“ Eiríkur segir að ef litið er til samkeppn- issjóða sem styrkja rannsóknir í félagsvísindum þá sé Ísland ekki illa sett miðað við mörg önnur lönd. „Okkar sjóðir eiga ekki við sömu vandamál að stríða og sjóðir í mörgum öðrum löndum. Í Þýskalandi, t.d., er mjög lítill hluti umsækjenda um styrki til rannsókna í félagsvísindum konur og það kemur á óvart hvað skekkjan er mikil á Norðurlöndum almennt. Ástandið hér er þó mun skárra. Þetta er með- al þess sem verður rætt á ráðstefnunni.“ Félagsvísindi | Ráðstefna um kynjajafnrétti í félagsvísindarannsóknum Íhaldssamt kerfi er til trafala  Dr. Eiríkur Smári Sigurðarson er fæddur í Reykjavík hinn 6. nóvember árið 1968. Hann lauk stúdents- prófi frá Versl- unarskóla Íslands og doktorsnámi í heim- speki frá Háskólanum í Cambridge árið 2002. Eiríkur er deildarstjóri hjá Rannís, rann- sóknar- og nýsköpunarsviði Rannsókn- armiðstöðvar Íslands. Auk þess er Eiríkur stundakennari við Háskóla Íslands og Menntaskólann í Reykjavík. 60 ára afmæli. Í dag, 19. október,er sextug Steinunn Pálsdóttir, Valhúsabraut 33, Seltjarnarnesi. Hún og eiginmaður hennar taka á móti gestum í Félagsheimili Seltjarnarness klukkan 18 á afmælisdaginn. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Punktur is Margt er til boða gálaust glys, og greindin er notuð ranghverfis .is .is .is Von er að margur geri gys að grátlegu staglinu á „punktur.is“ .is .is .is Margir auglýsa merkileg dót á mjög lágu verði í þokkabót .is .is .is Sumir bregðast við samstundis og selja vöruna ókeypis .is .is .is Menn þurfa að annast matarkaup meira en að hafa bara í staup .is .is .is Eflaust fara þeir mikils á mis sem muna ekki að kaupa „Skyr.is“ .is .is .is Þú færð hér boli þrjá fyrir tvo þannig á það að vera, sko, .is .is .is Eftir það verslarðu alltaf hér og aðra teymirðu hingað með þér .is .is .is Allir keppa við Bónus og Baug og bráðlega stefnir í alvöruspaug .is .is .is Svo heldur það áfram hérlendis hallæris staglið á „punktur is“ .is .is .is Leifur Eiríksson, fyrrverandi kennari. Músalína er týnd MÚSALÍNA er rúmlega 15 ára gelt grábröndótt læða með stórt rautt leð- urhjarta um háls- inn, heim- ilismerk- ingu og stórt VÍS end- urskins- merki. Hún hefur aldrei horfið en hvarf um helgina frá heimili sínu í Lyngbergi í Hafnafirði. Hún er „eldri borgari“ og orðin tannlaus í neðri góm. Henn- ar er sárt saknað. Þeir sem geta gef- ið einhverjar upplýsingar eru vin- samlega beðnir um að hafa samband við Elísabetu , Lyngbergi 19b, eða í síma : 551 3282 og 899 3382. Fund- arlaun. Kisa í óskilum ÞESSI kisa er í óskilum í Straum- sölum í Kópa- vogi. Upplýs- ingar í síma 552 4413 eða 698 3477. Hlutavelta | Þessi duglega stúlka, Soffía Sóley Helgadóttir, hélt tombólu og safnaði kr. 10.000 kr. til styrktar Rauða krossi Íslands, söfnun til bág- staddra í Pakistan. Morgunblaðið/Golli Evrópubikarinn. Norður ♠ÁD53 ♥Á A/NS ♦ÁK743 ♣G108 Vestur Austur ♠102 ♠K864 ♥KDG97 ♥3 ♦D85 ♦10962 ♣952 ♣D763 Suður ♠G97 ♥1086542 ♦G ♣ÁK4 Vestur Norður Austur Suður Lauria Duboin Versace Bocchi -- -- Pass Pass 1 hjarta Dobl Pass 1 grand Pass 3 grönd Allir pass Keppnin um hinn svokallaða Evr- ópubikar fór fram í Brussel í síðustu viku og unnu Ítalir eftir úrslitaleik við danska sveit. Í sigurliðinu spiluðu Lauria/Versace, Fantoni/ Nunes og Sementa/Angelini, en danska liðið var skipað Schaltz- hjónunum Peter og Dorthe, syninum Martin, Mathias Bruun, Sören Christiansen og lánsmanninum frá Svíþjóð, Peter Fredin. Tólf lið hófu keppni – tíu efstu þjóðirnar á EM í Málmey í fyrra, ásamt gestgjöfunum frá Belgíu og fyrrverandi sigurvegurum Ítala. Fyrst var liðunum skipt í tvo 6 sveita riðla, en síðan spiluðu tvær efstu úr báðum riðlum til úrslita. Báðar ítölsku sveitirnar komust áfram og mættust í undanúrslitum, en í hinum undanúrslitaleiknum lagði Schaltz-fjölskyldan sveit Zorlu frá Tyrklandi. Spilið að ofan er frá undanúrslita- leik ítölsku sveitanna og þar eigast við tvö af sterkustu pörum heims, Lauria/Versace og Bocchi/Duboin. Þessir menn spila venjulega saman í liði, en hér voru þeir mótherjar. Lorenzo Lauria vakti létt á einu hjarta í þriðju hendi, en síðan varð Norberto Bocchi sagnhafi í þremur gröndum. Útspilið var hjartakóngur og Bocchi fór vel af stað: hann spil- aði spaða á gosann, spaða á ás (tían féll) og enn spaða. Versace tók á spaðakóng og skipti yfir í smáan tígul – gosi, drottning og kóngur. Bocchi tók fríslaginn á spaða og svo tígulás. Lauria hafði hent hjarta og tígli í spaðana tvo og Bocchi taldi líklegt að vestur hefði byrjað með skiptinguna 2-5-3-3. Sem var rétt reiknað. Ef vestur átti drottninguna í laufi, væri hægt að neyða hann til að gefa níunda slaginn á hjarta með því að spila ÁK og þriðja laufinu. Bocchi valdi þá leið, en var óheppinn, því Versace í austur lenti inni á lauf- drottningu og átti síðustu slagina á lauf og tígul – einn niður. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. e5 Rfd7 5. f4 c5 6. Rf3 Rc6 7. Be3 cxd4 8. Rxd4 Bc5 9. Dd2 O-O 10. O-O-O a6 11. Rb3 Bb4 12. Bd3 b5 13. Hhf1 Rb6 14. a3 Be7 15. Rd4 Dc7 16. Rxc6 Dxc6 17. Bd4 Rc4 18. De2 Hb8 19. Bxh7+ Kxh7 20. Dh5+ Kg8 21. Hd3 f5 22. Hh3 Bc5 23. Hff3 Bxd4 24. Hfg3 Hb7 25. Dh7+ Kf7 26. Dxg7+ Ke8 Staðan kom upp í heimsmeist- arakeppni FIDE sem lauk fyrir skömmu í San Luis í Argentínu. Vis- wanathan Anand (2788), hvítt, hafði fórnað tveim mönnum fyrir sókn gegn Alexander Morozevich (2707). Fórnirnar leiddu ekki til þess að svartur yrði mát og voru nú síðustu forvöð fyrir hvítan að tryggja sér jafntefli í stöðunni og það gerði hann með að fórna drottningunni 27. Dxf8+! og jafntefli var samið þar sem eftir 27... Kxf8 28. Hh8+ Kf7 29. Hh7+ væri þráskák óumflýj- anleg. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. ÞÓRHALLUR Heimisson mun kynna nýútkomna bók sína Hin mörgu andlit trúarbragðanna, sem Bókaútgáfan Salka gefur út, á fimmtudaginn kl. 20 á Súfistanum. Um er að ræða fyrsta rit sinnar tegundar á íslensku sem veitir grein- argóðar upplýs- ingar og vitneskju um mismunandi trúarbrögð og lífssýn í fjölhyggju- samfélagi nútímans. Í fyrri hluta bókarinnar fjallar höfundur um hin hefðbundnu trúarkerfi með áherslu á stöðu mála í samtím- anum; kristni, íslam, gyðingdóm, búddisma og hindúisma en í síðari hlutanum snýr hann sér að ný- trúarhreyfingum og öðrum trúar- hugmyndum við upphaf nýrrar aldar. Undir lokin er sérstakur kafli um trúfélög á Íslandi og ýmsa nýja strauma í guðfræði og andlegri leit. Auk þess er kafli um samsæriskenningar og leynihreyf- ingar, sbr. þær sem Da Vinci lyk- illinn er byggður á. Bókarkynning Þórhalls MARTIN Regal heldur fyrirlestur um Hollywood-söngleiki í stofu 301 í Árnagarði á morgun, fimmtudag, kl. 12.15 á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur. Þar rýnir hann í þær aðferðir sem kvikmyndaver í Hollywood hafa notað meðvitað til þess að kalla fram ákveðin viðbrögð áhorfenda. „Eitt sérkenni söngleika sem framleiddir hafa verið af MGM, Warner Brothers, Paramount, RKO og smærri kvikmyndaverum í Holly- wood er að þeir vísa hver í annan, eru hver öðrum háðir og endurvinna þekkt þemu. Verstu söngleikirnir eru sjálfhverfir og hver öðrum líkir, sem mörgum finnst ákaflega erfitt að sætta sig við. En þeir bestu bjóða upp á eitthvað nýtt og áhorfendum finnst þeir hin besta skemmtun og jafnvel spennandi,“ segir í kynningu. Meðal spurninganna sem Martin Regal mun reyna að svara í fyr- irlestri sínum eru: Hvaða fagurfræði býr að baki Hollywood-söngleikjum? Er hægt að búa til aðdáendur úr efa- semdarmönnum? Eru söngleikir meðal ómerkilegustu tegunda sviðs- listar? Stutt brot úr nokkrum söng- leikjum frá árunum 1920-1980 verða sýnd. Fyrirlesturinn er á ensku og er öllum opinn. Martin Regal Söngleikir: Hví hötum við þá bæði og elskum? Milljónaútdráttur Þar sem einvörðungu er dregið úr seldum miðum þarf miðaeigendi bæði að hafa rétt númer og bókstaf til að hljóta vinning í þessum útdrætti. Birt með fyrirvara um prentvillur. 10. flokkur, 18. október 2005 Kr. 1.000.000,- 873 G 1104 B 1209 F 2106 G 4821 H 8230 G 17150 E 28873 B 30147 B 46753 B

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.