Morgunblaðið - 19.10.2005, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 19.10.2005, Qupperneq 44
44 MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ SÖNGKONAN Jarþrúður Karls- dóttir kallar sig Jöru. Hún hefur undanfarin misseri unnið að sólóferli sínum eftir að hafa sungið með hljómsveitum á borð við Singapore Sling og Bang Gang ásamt fleirum. Afraksturinn gefur að líta á Airwav- es-tónlistarhátíðinni í kvöld á Nasa. Jara segir erfitt að lýsa tónlist sinni en helst megi skilgreina hana sem rafmagnaða popptónlist. Jara syngur sjálf auk þess að spila á gítar og hljómborð. Hún hefur jafnframt sett saman hljómsveit sér til full- tingis. „Já, þær Bíbí og Sigrún spila und- ir með mér. Auk þess leikur hann Hallvarður með mér í einu lagi og svo er ég með tvær bakradd- arsöngkonur í tveimur lögum,“ segir Jara. Nú er í bígerð fyrsta plata Jöru en hún segir óvíst hvenær hún komi út. „Ég er að taka upp þessa dagana og er komin vel á veg,“ segir hún. Að sögn Jöru er líklegt að hún muni halda fleiri tónleika í kjölfar tónleikanna í kvöld. „Það hefur ekkert verið ákveðið ennþá en fyrst við erum búin að æfa saman hljómsveit held ég að við reynum að spila sem mest í framtíð- inni,“ sagði Jara að lokum. Tónlist | Jara spil- ar á Iceland Airwaves Fyrsta plat- an í bígerð Jara kemur fram á Iceland Airwav- es í kvöld ásamt hljómsveit sinni. Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is Tónleikar Jöru eru á Nasa í kvöld klukkan 21. HLJÓMSVEITIN Depeche Mode hefur verið að í aldarfjórðung og gengið í gegnum talsverðar breyt- ingar á þeim tíma, þótt hún hafi starfað í sama andblæ meira og minna. Eins og vill vera kunna aðdáendur hljómsveitarinnar því betur við hana sem hún breytist minna og sumir hafa því verið óánægðir með tilraunir á síðustu plötum. Eftir að hafa átt erfiða tíma um hríð, meðal annars vegna óreglu meðlima, hefur Depeche Mode sótt í sig veðrið og liðsmenn hennar, þar á meðal söngvarinn David Gahan, segja að hún hafi ekki verið betri í langan tíma. Ekki hefur það þó sést á plötum sveitarinnar þar til nú að hún gefur loks út plötu, Playing the Angel, sem jafnast á við það besta sem hún hefur gert árum saman, ef marka má gagnrýnendur – besta plata Depeche Mode síðan Violator kom út 1990, segja margir, en Violator er einmitt talin ein helsta plata hljómsveitarinnar. David Gahan gaf færi á sér til spjalls í Lundúnum fyrir nokkru til að kynna Playing the Angel. Hann lítur mjög vel út og greinilegt að hann er búinn að ná sér vel upp úr óreglunni, kurteis og tillitssamur og gríðarlega ræðinn, kjaftar á honum hver tuska. Úr allt annarri átt Það vakti nokkra athygli þegar hljómsveitin valdi að vinna með Ben Hiller að nýrri skífu, en Hiller hef- ur meðal annars unnið með svo ólíkum listamönnum sem U2, Sophy-Ellis Baxter, Erasure og Doves. David Gahan segir að það hafi einmitt verið skemmtilegast við að vinna með Hiller að hann þekkti lítið til hljómsveitarinnar og þeir nánast ekkert til hans. „Hann kom úr allt annarri átt, sem var skemmtilegt, ólík öðrum sem við höfum unnið með gegnum árin,“ segir Gahan og bætir við að Hiller hafi verið skemmtilega strangur og ákveðinn í hljóðverinu, hafi rekið þá áfram og ekki leyft þeim að komast upp með neitt múður. „Hann hafði auðvitað heyrt einhver lög með okkur en aldrei hlustað á heila De- peche Mode-plötu,“ segir Gahan. Gahan segir að Hiller hafi rekið þá svo vel áfram að eftir fimm vikur voru þeir komnir með átta lög. „Við fundum það vel að það var eitthvað spennandi í vændum, það var hljómur í lögunum sem okkur fannst ferskur og nýstárlegur – það má eiginlega segja að við höfum ekki skemmt okkur eins vel við upptökur síðan Violator var tekin upp fyrir fimmtán árum,“ segir Gahan, og vill skrifa það að miklu leyti á Hiller – hann hafi skapað rétta andrúmsloftið. „Ég hef áður unnið með svona upptökustjóra af gamla skólanum, vinnusömum og ákveðnum, þegar ég gerði Monsters með Ken Thomas, og kann því vel.“ Áhrif frá Sigur Rós Á Playing the Angel notar Gahan röddina víða eins og hvert annað hljóðfæri og í ljósi þess að hann vann sólóskífu sína með Ken Thom- as, sem unnið hefur með Sigur Rós, er ekki úr vegi að spyrja hann hvort hér sé um að ræða áhrif frá Sigur Rós. „Ég hef reyndar alltaf litið á röddina í mér sem hljóðfæri, en það er rétt að söngur minn í lagasmíð- um mínum og líka í söngnum á plöt- unni er undir áhrifum frá Sigur Rós og það hvernig ég sem lögin er undir sterkum áhrifum frá Sigur Rós.“ Í gegnum árin hefur Martin Gore samið lög Depeche Mode og vekur því eðlilega nokkra athygli að Gah- an á þrjú lög á plötunni nýju. „Ég hef alltaf átt auðvelt með að syngja textana hans Martins, enda er hann að fjalla um lífið í óteljandi birting- armyndum þess. Mig hefur þó lengi langað til að leggja meira af mörk- um en ekki haft kjark til þess fyrr en nú. Lögunum okkar svipar sam- an um margt, enda erum við að fjalla um álíka hluti, um lífið og samskipti milli manna og það hvernig við erum báðir ekkert of sáttir við lífið; mér hefur ekki liðið of vel í eigin skinni.“ Fram og aftur blindgötuna Depeche Mode var á hápunkti ferils síns 1990 þegar Violator kom út, platan seldist mjög vel og lög af henni urðu vinsæl. Næsta plata, Songs of Faith & Devotion, sem kom út 1993, gekk líka vel, fór beint í efstu sæti sölulista, en á sama tíma var hljómsveitin líka að detta í sundur – eins og Gahan rekur sög- una leið mönnum eins og þeir væru komnir í blindgötu, að það sem þeir væru að gera hefði engan tilgang. „Mér leið eins og ég væri fastur í litlum kassa og sá kassi var sífellt að minnka, mig skorti alla lífsfyll- ingu og fyrir vikið leitaði ég í áfengi og eiturlyf til að deyfa þessar til- finningar, til að reyna að gefa lífinu eitthvert inntak.“ Gahan segir það sitt mat að álíka tilfinningar hafi bærst með Alan Wilder, sem hætti í sveitinni 1995 eftir að hafa verið í henni í fjórtán ár. „Hann lagði hart að sér í að gera Violator, var mjög ráðandi í upptökum á þeirri plötu og líka á Songs of Faith & Devot- ion, en eftir það held ég að honum hafi fundist eins og nú yrði ekki lengra komist með Depeche Mode, hljómsveitin hefði ekki meira að gefa honum eða hann henni.“ Þótt David Gahan sé léttur í tali og það geisli af honum barnsleg einlægni er margt það sem De- peche Mode hefur gefið út með því myrkasta sem í boði er í poppheim- inum; textarnir alla jafna þunglynd- islegir, jafnvel niðurdrepandi, tón- listin mollleg og söngurinn þrunginn sorg og trega. Aðspurður hvort eitthvert eitt stef sé ríkjandi á plötunni nýju svarar Gahan með bros á vör: „Sársauki og þjáningar, platan snýst um það eitt, sársauka og þjáningar, með mishröðum takti eins og reyndar allt það sem De- peche Mode hefur gefið út hingað til,“ segir hann og hlær við. „Nei, réttara er kannski að segja sárs- auki og þjáningar og von. Það er um að gera að þjást sem mest en hafa þó í huga að þegar myrkrið er sem svartast er birtan ekki langt undan.“ Depeche Mode sendi í gær frá sér plötu sem sögð er besta plata hennar í fimmtán ár. Peter Bishop ræddi við David Gahan, söngvara sveitarinnar. Sársauki og þjáningar og von Nýjustu plötu Depeche Mode, Playing the Angel, er nú líkt við bestu plötu sveitarinnar Violator. ’Ég hafði mitt hlutverk,að túlka lög og hreyfa mig á sviði, vera leikari, en það var mér ekki nóg …‘ Upplifðu stórkostlegustu endurkomu allra tíma. Óskarsverðlaunahafarnir Russell Crowe og Renée Zellweger fara á kostum í sterkustu mynd ársins. Mynd eftir Ron Howard (“A Beautiful Mind”). TOPPMYNDIN Í USA 2 VIKUR Í RÖÐ Spenntu beltin og undirbúðu þig undir háspennumynd ársins með Óskarsverðlaunahafanum Jodie Foster. Sjáið Wallace & Gromit í sinni fyrstu bíómynd. Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna FRÁ FRAMLEIÐENDUM TOPPMYNDIN Í USA 2 VIKUR Í RÖÐ Spenntu beltin og undirbúðu þig undir háspennumynd ársins með Óskarsverðlaunahafanum Jodie Foster. Flight Plan kl. 5.50 - 8 - 10.15 b.i. 12 ára Cinderella Man kl. 5.30 - 8.30 - 10.10 b.i. 14 ára Must Love Dogs kl. 8 Charlie and the... kl. 8 Strákarnir Okkar kl. 6 - 8 - 10 Gargandi snilld kl 5.15 Drabet 10.15 KÓRINN íslensk heimildarmynd Sýnd kl. 6 Næst síðasta sýning Það er gaman að vera í kór! Vinsælasta myndin í USA og á BRETLANDI Í dag.  V.J.V. TOPP5.IS ROGER EBERT Kvikmyndir.com  H.J. / MBL M.M.J. / Kvikmyndir.com M.M.J. / Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is  Kvikmyndir.is  Roger Ebert Roger Ebert HEIMFRUMSÝND Á FÖSTUDAG

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.