Morgunblaðið - 19.10.2005, Side 48

Morgunblaðið - 19.10.2005, Side 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. HALLDÓR Ásgrímsson forsætisráðherra segir að það væri vond niðurstaða sem allir myndu skaðast á ef það yrði niðurstaða launanefndar aðila vinnumarkaðarins að segja upp launalið gildandi kjarasamninga, en ráðherrar ríkis- stjórnarinnar áttu fund með Alþýðusambandi Íslands og fulltrúum landssambanda í gær. Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusam- bands Íslands, segir að á fundi með ríkisstjórn- inni í gær hafi ASÍ lagt ríka áherslu á að fá af- dráttarlaus svör varðandi þau efnisatriði sem væru uppi á borðum mjög fljótlega. „Það blasir auðvitað við að ef það á að vera einhver von til þess að ná þessu saman fyrir 15. nóvember verður ríkisstjórnin að koma mynd- arlega að málinu. Auðvitað reynir ekki síður á aðalviðsemjandann, sem er auðvitað Samtök at- vinnulífsins. Það þarf hvort tveggja að koma til ef það á að nást samkomulag um að brúa þetta bil sem er orðið á milli þess sem við töldum okk- ur vera að semja um og svo raunveruleikans í dag,“ sagði Grétar. Kaupmáttaraukning og skattahækkanir Halldór sagði að fundurinn hefði verið hald- inn að ósk Alþýðusambandsins. „Við fórum yfir þessa stöðu og það liggur ljóst fyrir og er óum- deilt að verðlagshækkanir eru meiri en gert var ráð fyrir í þeim samningum sem gerðir voru 2004. Það eru hins vegar önnur atriði sem skipta að mínu mati miklu máli. Kaupmáttaraukningin hefur verið mikil og þar hjálpa til þær skatta- lækkanir sem voru ákveðnar eftir samningana,“ sagði Halldór. Hann sagði að fram hefðu komið óskir varð- andi nokkur atriði sem vörðuðu samskipti rík- isvaldsins við aðila vinnumarkaðarins. Það lyti að hlutum eins og starfsmannaleigum, atvinnu- leysisbótum, fræðslumálum og lífeyrissjóðum, einkum að því er varðaði örorkumál. Ákveðið hefði verið að vinna frekar í þeim málum og sjá hvort hægt væri að skýra línurnar í þessum efn- um, en allt væru þetta atriði sem hefðu verið í umræðu milli aðila. Framhald yrði á þessum samskiptum en annar fundur ekki tímasettur að svo komnu. Forsætisráðherra segir alla myndu skaðast á uppsögn á launalið samninga ASÍ vill afdráttarlaus svör Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is  Vond niðurstaða | 11 „ÉG er sannfærður um það að sýningin hafi mikið forvarnargildi, sé afskaplega uppfræðandi fyrir börnin, og kenni þeim hvaða leiðir eru færar fyrir þau til þess að gera viðvart og leita eftir hjálp,“ sagði Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barna- verndarstofu, eftir brúðuleikhússýningu Hallveigar Thorlacius og Helgu Arnalds, Krakkarnir í hverfinu, í Breiðholtsskóla á mánudag. Sýningin er liður í verkefninu Blátt áfram, sem stofnað var til af systr- unum Sigríði og Svövu Björnsdætrum, en er unnið á vegum Ungmennafélags Ís- lands. Markmið verkefnisins er að efla for- varnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börn- um á Íslandi. Í brúðuleiknum kynnast áhorfendur börnum sem orðið hafa fyrir slíku ofbeldi og ungir áhorfendur fá tæki- færi til að spyrja spurninga sem tengjast efninu. Sýninguna sóttu tíu ára krakkar í Breið- holtsskóla, kennarar og skólastjórnendur, en einnig ýmsir helstu forsjármenn slíkra mála í samfélaginu, þar á meðal ráð- herrar, landlæknir, umboðsmaður barna og fleiri. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sagði meðal annars að gott væri að samfélagið allt væri að vakna til meðvitundar um ofbeldi gegn börnum. | 41 Morgunblaðið/Golli Hallveig Thorlacius og Helga Arnalds með Krakkana í hverfinu. Samfélagið að vakna til vitundar Brúðuleikhús eflir forvarnir gegn ofbeldi á börnum MIKIÐ hefur verið um fiðrildi á ferli að undanförnu og hefur Náttúrufræðistofnun fengið margar ábendingar þar að lút- andi. Veðrið, þ.e.a.s. hlýindin undanfarna daga og ráðandi aust- og suðaustlægar vind- áttir, ræður þarna mestu um, að sögn Erlings Ólafssonar, dýrafræðings. Erling sagði að annars veg- ar væri geysilega mikið af haustfeta þessa dagana, en þar væri um að ræða tiltölulega lít- il drapplit fiðrildi, sem gjarnan sætu á húsveggjum á kvöldin. „Þetta er mesti skaðvald- urinn í görðunum hjá okkur þessi lirfa hans á vorin eða fyrripart sumars. Hann étur öll lauf og hann flýgur á þess- um tíma,“ sagði Erling. Hann sagði að haustfetinn hefði haft hægt um sig í síð- ustu viku í kuldakastinu, en væri mjög áberandi nú eftir að hlýnað hefði. „Annar þáttur í þessu er að um helgina kom geysimikið af útlenskum fiðr- ildum til landsins með þessum hlýja loftmassa sem kom hér yfir,“ sagði Erling. Einnig fuglar Hann sagði að þar væri um nokkrar tegundir að ræða, en upplýsingar í þessum efnum væru smám saman að koma inn og heildarmyndin lægi ekki enn fyrir. Einnig hefði komið mikið af fuglum með þessum vindáttum. Aðspurður hvort hann vissi til þess að sjaldgæf fiðrildi hefðu borist hingað að þessu sinni sagðist Erling ekki vita til þess enn sem komið væri. Þarna væri um að ræða al- gengar flækingstegundir, til dæmis svonefndar yglur. Erling sagði einnig að veð- urskilyrði undanfarið væru að mörgu leyti dæmigerð fyrir komu þessara tegunda. Hann væri samt sem áður dálítið hissa hversu mikið hefði verið um þetta í ljósi þess hve mikil úrkoman hefði verið. Yglur og haustfetar á ferðinni VEIÐAR á beitukóngi eru nú í fullum gangi á Breiðafirði. Þrír bátar stunda veiðarnar og rær hver þeirra með 3.000 gildrur. Vikulegur afli er um 10 til 12 tonn og er hann unninn í Grundarfirði. Beitu- kóngurinn fer á markaði í Japan og Kóreu og segir verkandinn og útgerðarmaðurinn, Ásgeir Valdi- Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson marsson, að verðið sé í lagi en gengisskráningin ekki. Kuðungurinn er veiddur í gildrur sem eru gerðar úr plastfötum og í þeim er sérstakt agn í majonesdósum. Á myndinni sést Jóhann Valdimar Kjartansson draga beitukóngsgildru um borð í bátn- um Garpi SH á Breiðafirði. | B2 Veiðar á beitukóngi í fullum gangi ÞORGERÐUR Katrín Gunnars- dóttir, menntamálaráðherra og nýkjörinn varaformaður Sjálf- stæðisflokksins, segir í viðtali í Morgunblaðinu í dag að hún telji niðurstöðu fjölmiðlanefndar um 25% hámark á eignarhlut eins eða tengdra aðila á fjölmiðlum vera of hátt. „Mér finnst 25% allt of hátt. Ég hef ekkert breytt þeirri skoðun minni en þetta er sú niðurstaða sem nefndin komst að og við áttum okkar fulltrúa þar,“ segir Þorgerður. Hún kveðst ekki vilja nefna ákveðið hlutfall sem sé æskilegt í þessum efnum. Það sé nokkuð sem þurfi að ræða. Þorgerður Katrín segir jafn- framt að það hafi fyrst og fremst verið Samfylkingin sem barðist fyrir því að hafa þetta svona hátt. „Við verðum að skoða niðurstöð- una í ljósi þess umróts sem ríkti. Það var mikil áhersla lögð á að ná ákveðinni sátt,“ segir hún. Þorgerður segir í viðtalinu að sjálfstæðismenn hafi gert mjög margt til þess að aðstoða við að ná fram sátt í fjölmiðlamálinu. „Við höfum gert mjög margt til þess að koma til móts við það að reyna að ná þessari sáttargjörð. Það verður erfitt að breyta nið- urstöðunni frá því sem stendur í fjölmiðlaskýrslunni en ég held að það sé alveg ljóst að landsfund- urinn er búinn að gefa okkur ákveðna línu um að löggjöfin verði skýr og hafi það markmið að það verði dreifð eignaraðild að fjölmiðlum,“ segir Þorgerður. Þá leggur Þorgerður áherslu á að enginn tali lengur um að ekki beri að setja fjölmiðlalög. „Ég mun sérstaklega fylgjast með því hvað stjórnarandstöðuflokkarnir koma til með að gera í þessu máli.“ 25% eignarhlutfall í fjölmiðlum allt of hátt Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segir að mikil áhersla hafi verið lögð á að ná sátt í fjölmiðlamálinu Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is  Einkarekstur getur styrkt | 24 ÞRJÁR rjúpnaskyttur sem höfðu verið á skyttiríi nálægt Skjaldbreið villtust af leið um sexleytið í gærkvöldi og þurfti að kalla til björgunarsveitir til að leita að þeim. Leiðir mannanna höfðu skilið en þeir fundust þó allir, sá síðasti eftir að hafa verið týndur í um þrjá tíma. Hinir tveir fundust um sjöleytið. Reynt var að ná símasambandi við menn- ina og var notast við NMT-síma annarrar rjúpnaskyttu, Ævars Guðmundssonar, sem hafði sjálfur verið á skyttiríi við Skjaldbreið í gærkvöldi. Náði Ævar sambandi við mennina og sagðist hann einnig hafa skotið upp neyðarblysum og þannig leiðbeint mönnunum til sín. Mennirnir voru vel búnir og varð ekki meint af. Alls tóku um 30 björgunarsveit- armenn þátt í leitinni. Rjúpnaskytt- ur villtust Morgunblaðið/Sverrir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.