Morgunblaðið - 10.11.2005, Síða 1
Morgunblaðið/Sverrir
ALVARLEG mistök hafa verið
gerð við skipulag atvinnulóða við
Borgartún, þar sem allar lóðirnar
eru notaðar undir bílastæði og
engar tilraunir gerðar til að mynda
skjólgóð útisvæði. Þetta kom fram
í máli Gunnlaugs Kristjánssonar,
framkvæmdastjóra þróunarsviðs
Íslenskra aðalverktaka, á fundi á
vegum Skipulags- og byggingar-
sviðs Reykjavíkurborgar í gær.
Benti Gunnlaugur á að engin al-
menningssvæði væru t.d. á jarð-
hæðum húsanna og engar eðlilegar
göngutengingar milli lóða. Sagði
hann þetta skipulag minnka mjög
möguleika á lifandi samfélagi í
Borgartúninu, þar sem annars
væri hægt að skapa mjög líflega
stemningu með réttum hætti.
Miklabraut í stokk
Gunnlaugur ræddi einnig Miklu-
brautina og vildi sjá hana fara í
stokk meðfram Hlíðahverfinu og
leysa þannig Hlíðarnar úr gíslingu.
Mælti Gunnlaugur með stokk
allt frá Grensásvegi að Snorra-
braut, en Miklubraut ofanjarðar
yrði breytt í borgargötu með ró-
legri umferð, götu á borð við
Lækjargötu eða Snorrabraut, þar
sem ýmiss konar þjónusta og
íbúðabyggð þrifist við hlið götunn-
ar.
„Ég vil líka velta því fyrir mér
hvort seldur byggingaréttur með-
fram þessari nýju borgargötu færi
ekki langt með það að borga kostn-
aðinn við að setja Miklubrautina í
stokk, því þetta land er mjög verð-
mætt. Þá er líka mjög viðkvæmt að
byggja t.d. meðfram Miklatúninu,
en það væri hægt að gera það án
þess að skerða sjálft útivistar-
svæðið.“
Mistök
gerð í
skipulagi
Borgartúns
Eftir Svavar Knút Kristinsson
svavar@mbl.is
Þörf á því að minnka | 19
STOFNAÐ 1913 305. TBL. 93. ÁRG. FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Hljómurinn
fundinn
Þriðja plata Írafárs kemur
út á morgun | Menning 42
Opið til
21:00 í kvöld!
Nýtt kortatímabil!
Moskvu. AP. | Mannréttindahreyfingar í
Rússlandi gagnrýndu í gær þá ákvörðun
yfirvalda að endurreisa styttu af Felix
Dzerzhinskí, stofnanda sovésku örygg-
islögreglunnar, fyrir framan höf-
uðstöðvar lögreglunnar í Moskvu.
Brjóstmynd af Dzerzhinskí, sem kall-
aður var Járn-Felix, stóð fyrir framan
aðallögreglustöðina í Moskvu frá átt-
unda áratugnum og þar til hún var tekin
niður eftir hrun Sovétríkjanna 1991.
Járn-Felix átti þátt í stofnun Tsjeka
(seinna KGB) árið 1917 og lét handtaka
og lífláta hundruð þúsunda Rússa, auk
þess sem reistar voru fangabúðir gúlags-
ins svonefnda.
Styttan var reist aftur á sama stað í
fyrradag að beiðni gamalla lögreglu-
manna fyrir árlegan hátíðisdag rúss-
nesku lögreglunnar í dag. Talsmaður
hennar sagði lögreglumenn bera virð-
ingu fyrir Járn-Felix. Hann hefði látið
margt gott af sér leiða í málefnum mun-
aðarlausra og heimilislausra barna.
„Barnavinurinn“ Járn-Felix
Umdeild brjóstmynd
af Járn-Felix.
Viðskipti, Málið og Íþróttir
TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands,
varð fyrir miklu pólitísku áfalli í gær þegar
neðri deild þingsins hafnaði tillögu stjórnar
hans um að heimila lög-
reglu að halda meintum
hryðjuverkamönnum í
varðhaldi í allt að þrjá
mánuði án ákæru.
Kvaðst ráðherrann vona
að menn ættu ekki eftir
að „iðrast þess“ mikið
einhvern tíma síðar að
hafa fellt tillöguna sem
breska lögreglan studdi.
Er þetta í fyrsta skipti
sem Blair bíður ósigur í atkvæðagreiðslu
um lagafrumvarp á þinginu frá því að hann
varð forsætisráðherra árið 1997.
Michael Howard, leiðtogi breska Íhalds-
flokksins, kvaðst telja að forsætisráð-
herrann þyrfti að íhuga afsögn. Atkvæða-
greiðslan sýndi að hann hefði ekki lengur
Verkamannaflokkinn á bak við sig og hann
hefði sýnt slæma dómgreind með því að
leggja tillöguna fram núna.
Charles Kennedy, leiðtogi Frjálslyndra
demókrata, sagði að Blair gæti orðið „leið-
togi í lamasessi“.
Niðurstaðan sögð geta grafið
undan áhrifavaldi Blairs
Þótt Blair þurfi ekki að segja af sér telja
fréttaskýrendur líklegt að ósigurinn grafi
undan áhrifavaldi hans. Forsætisráð-
herrann neitaði því í viðtali við breska rík-
isútvarpið, BBC, í gærkvöldi og kvaðst ekki
telja að atkvæðagreiðslan hefði áhrif á
stöðu hans sem forsætisráðherra. „Ég held
að þetta hafi ekki áhrif á myndugleika
minn,“ sagði ráðherrann. „Ég er sannfærð-
ur um að þjóðinni finnst að þingið hafi sýnt
mikið ábyrgðarleysi í dag.“
Tillögu stjórnarinnar var hafnað með 322
atkvæðum gegn 291 og 49 þingmenn Verka-
mannaflokksins greiddu atkvæði gegn
henni, margir sátu hjá.
Meirihluti deildarinnar samþykkti síðan
tillögu um að heimila varðhald manna, sem
grunaðir eru um hryðjuverkastarfsemi, í
allt að 28 daga án ákæru í stað 14 daga eins
og núgildandi lög kveða á um.
Líklegt er að frumvarp stjórnarinnar um
baráttuna gegn hryðjuverkastarfsemi verði
að lögum þrátt fyrir ósigurinn í gær þar
sem flest ákvæði þess njóta stuðnings þing-
manna í öllum flokkum. Talið er þó að í lá-
varðadeildinni, sem þarf að samþykkja
frumvarpið, sé mikil andstaða við nokkur
umdeild ákvæði þess.
Blair beið
ósigur
á þinginu
Tony Blair
STJÓRNVÖLD í Jórdaníu sögðu í
gærkvöld að minnst 57 hefðu látið
lífið og um 300 særst í sprengju-
tilræðum í þremur hótelum í höf-
uðborginni Amman. Talsmaður
lögreglunnar sagði tilræðin bera
keim af aðferðum al-Qaeda hryðju-
verkasamtakanna. Marwan Moas-
her aðstoðarforsætisráðherra
sagði að flest fórnarlömbin hefðu
verið innlend. Sagði hann líkur
benda til þess að tvö tilræðin hefðu
verið verk fjöldamorðingja með
sprengjubelti en í þriðja tilfellinu
hefði bíl með sprengiefni verið ekið
að öryggisgirðingu við eitt hótelið.
Abdullah II. konungur var
staddur í opinberri heimsókn í
Kasakstan en batt þegar enda á för
sína. Hann fordæmdi hryðjuverkin
og hét því að þeir sem staðið hefðu
á bak við þau yrðu látnir svara til
saka. Adnan Badri forsætisráð-
herra ákvað í gær að allir skólar og
opinberar skrifstofur yrðu lokuð í
dag, fimmtudag, einnig var landa-
mærum lokað. Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, sem ætlaði að sækja Jórdana
heim í dag, aflýsti heimsókninni.
Hermenn slógu skjaldborg um
sendiráð og hótel í Amman og
settu upp vegatálma. Hótelin þrjú
sem ráðist var á eru öll mikið notuð
af vestrænum og ísraelskum ferða-
mönnum, einnig stjórnarerindrek-
um og útlendingum sem starfa í
grannlandinu Írak. Hafa þeir
margir notað tækifærið til að hvíl-
ast í Amman.
Brúðkaup endar
með blóðbaði
Sprengingarnar þrjár urðu nær
samtímis um kl. níu að staðartíma í
hótelum Radisson SAS og Grand
Hyatt í verslunarhverfinu Jebel
Amman, einnig á Days Inn í Rab-
yieh-hverfi, skammt frá sendiráði
Ísraels. Á Radisson SAS, sem er
rétt hjá Grand Hyatt, stóð yfir
brúðkaupsveisla með um 300 gest-
um og þar var manntjónið sagt
mest. Sumir heimildarmenn sögðu
að sprengjan hefði verið falin bak
við blómapott. „Við héldum að
þetta væru flugeldar vegna brúð-
kaupsins en þá sá ég fólk falla til
jarðar,“ sagði Ahmed, einn veislu-
gesta. „Ég sá blóð. Fólk hafði verið
drepið. Þetta var hræðilegt.“
Jórdanía hefur sloppið að mestu
við hryðjuverk á síðari árum, þrátt
fyrir gott samstarf við vesturveld-
in. „Loksins hefur hryðjuverka-
mönnum tekist að rjúfa öryggisvið-
búnað Jórdaníu,“ sagði Ayman
al-Safadi, ritstjóri dagblaðsins Al-
Ghad, í sjónvarpsviðtali. Fjöldi ísl-
amskra öfgamanna hefur þó verið
handtekinn í landinu fyrir ráða-
brugg um hermdarverk. Hafa
margir þeirra verið dæmdir til
dauða, þ. á m. jórdanski al-Qaeda-
leiðtoginn Abu Musab al-Zarqawi
sem ekki hefur náðst enn. Hann
mun vera helsti leiðtogi al-Qaeda í
Írak. Fimm Jórdanar voru ákærðir
í júlí fyrir að undirbúa árásir á
ferðamenn og hótel í Amman.
Mannskæð tilræði á
hótelum í Jórdaníu
Minnst 57 manns týndu lífi og um 300 særðust í
Amman Aðferðirnar sagðar benda til aðildar
al-Qaeda-manna Landamærum Jórdaníu lokað
Reuters
Lík eins fórnarlambsins á Hyatt-hótelinu í Amman flutt á brott eftir til-
ræðið þar í gærkvöld. Jórdanskir embættismenn sögðu að minnst 57
hefðu látið lífið í sprengjutilræðunum þrem sem voru gerð samtímis.
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Viðskipti | Kremlverjar seilast í olíuna Alltaf verið í fiski Málið |
Layla með Clapton Dinnertónlist fyrir rykmaura Íþróttir | Einfalt
golf og mikil þolinmæði Langt hlé í kvennahandboltanum