Morgunblaðið - 10.11.2005, Blaðsíða 39
Menntaskólinn við Hamrahlíð | 19 háskól-
ar frá Bandaríkjunum og Evrópu halda
„College Fair“ – kynningu á námsframboði
sínu, kl. 16–19.30. Fjallað verður um um-
sóknarferlið í nokkrum fyrirlestrum, og
fulltrúar skólanna sitja fyrir svörum. Nán-
ari upplýsingar á www.fulbright.is.
Námskeið
Fræðslumiðstöð sparisjóðanna | Spari-
sjóður Hafnarfjarðar, SPH, stendur fyrir
námskeiðum um fjármál einstaklinga 8. og
10. nóv. kl. 19.30–21 og eru þau við-
skiptavinum Sparisjóðsins að kostn-
aðarlausu. Fjallað verður um verðbréf,
verðbréfaviðskipti, og lífeyrissparnað.
Námskeiðin fara fram í Fræðslumiðstöð
sparisj., Rauðarárstíg 27.
Frístundir
Kiwanisklúbburinn Geysir | Félagsvist í
kvöld kl. 20.30 í Kiwanishúsinu, Mos-
fellsbæ, í landi Leirvogstungu á bökkum
Köldukvíslar við Vesturlandsveg. Spila-
verðlaun.
Útivist
Stafganga í Laugardalnum | Tímar fyrir
byrjendur og vana í stafagöngu eru klukk-
an 17.30. Tímar fyrir vana stafgöngu kl.
17.30. Upplýsingar og skráning á www.-
stafganga.is eða gsm 616 8595/
694 3571.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 39
DAGBÓK
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Í KVÖLD kl. 20 verður kvöldvaka í
Fella- og Hólakirkju.
Tónlistarmennirnir Gunnar
Gunnarsson og Sigurður Flosason
verða með spuna út frá sálmalög-
unum, tónlist innblásna af trú-
arupplifun tónlistarmannanna
sjálfra, klassíska tónlist, gospel,
djass og frjálsan spuna. Sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson og Ragn-
hildur Ásgeirsdóttir djákni lesa
íhugunartexta og flétta við tónlist-
ina.
Boðið er upp á kaffi og veitingar
í safnaðarheimilinu eftir stundina.
Allir velkomnir.
Morgunblaðið/Arnaldur Halldórsson
Kvöldvaka í Fella-
og Hólakirkju
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
kóræfing. Kl. 13–16 glerbræðsla. Kl.
14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9.30–12.30. Bókband og pennasaum-
ur kl. 9–13, morgunstund kl. 9.30,
boccia kl. 10, hárgreiðsla og fótaað-
gerðarstofur opnar, handmennt alm.
kl. 13–16.30, glerskurður kl. 13, frjáls
spilamennska kl. 13.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyr-
irbænastund kl. 12. Léttur hádeg-
isverður á eftir. Fullorðinsfræðsla kl.
20: Hvers vegna farnast einum vel en
öðrum illa? Sr. Sólveig Halla Krist-
jánsdóttir. Lofgjörð kl. 21.
Árbæjarkirkja | Starf með tíu til tólf
ára börnum í Ártúnsskóla kl. 16.
Söngur, sögur, helgistund og leikir.
Áskirkja | Foreldramorgnar í safn-
aðarheimili á fimmtudagsmorgnum
kl. 10–12. Opið hús kl. 14–16, sam-
söngur undir stjórn organista, kaffi
og meðlæti. Klúbbur 8–9 ára barna.
Samvera kl. 17–18, danskennsla.
Breiðholtskirkja | Biblíulestur í
umsjá dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar
kl. 20. Lesið er úr bréfi Páls postula
til Galatamanna og efni þess útskýrt.
Digraneskirkja | Foreldramorgnar kl.
10 á neðri hæð. Kl. 11.15 leikfimi IAK.
Bænastund kl. 12. Barnastarf 6–9 ára
kl. 17–18 á neðri hæð. Unglingastarf
kl. 19.30–21.30 á neðri hæð.
www.digraneskirkja.is.
Dómkirkjan | Opið hús í Safn-
aðarheimilinu kl. 14–16. Kaffi og með-
læti.
Fella- og Hólakirkja | Samverustund
í Gerðubergi í umsjá presta og djákna
Fella- og Hólakirkju kl. 10.30. Kvöld-
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Myndlist í dag kl. 13.
Jóga kl. 9. Boccia kl. 10. Vídeóstund
kl. 13.15, ýmsar myndir og þættir.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16. Handa-
vinna kl. 9–16.30. Smíði/útskurður kl.
9–16.30. Boccia kl. 9.30. Helgistund
kl. 10.30. Leikfimi kl. 11. Myndlist kl.
13.30.
Bergmál – líknar- og vinafélag | Op-
ið hús sunnudaginn 13. nóv. kl. 16 í
Hamrahlíð 17, 2. hæð. Gestur sr.
Bryndís Malla Elídóttir. Söngstund í
umsjá Grétu Jónsdóttur og Sigmund-
ar Júlíussonar. Tangósveit Lýðveld-
isins. Veislustjóri Elfa Björk Gunn-
arsdóttir. Matur að hætti Bergmáls.
Tilkynnið þátttöku í síma 552 1567,
864 4070, 568 1418 eða 820 4749.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, leikfimi,
myndlist, bókband, fótaaðgerð. Fé-
lagsmiðstöðin er lokuð í dag frá kl.
12.30 vegna starfsdags starfsfólks.
Dalbraut 18–20 | Fastir liðir eins og
venjulega. Opið alla virka daga kl. 8–
16. Skráning stendur yfir á Halldór í
Hollywood og Vínarhljómleikana. Sr.
Bjarni Karlsson kemur í sönginn
fimmtudag kl. 14. Sími: 588 9533.
FEBÁ, Álftanesi | Útskurðar- og út-
sögunarnámskeið í smíðastofu
grunnskólans á fimmtudögum kl.
15.30–18.30. Áhöld og viður til að
skera út á staðnum. Kennari Friðgeir
H. Guðmundsson.
FEBÁ, Álftanesi | Sperrileggirnir
ganga saman, með eða án stafa,
þriðjudags- og fimmtudagsmorgna
kl. 10–11. Mæting fyrir framan Bess-
ann og molasopi þar eftir göngu. Allir
60 ára og eldri velkomnir í hópinn.
Uppl. hjá Guðrúnu, sími 565 1831.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids kl. 13. Fræðslunefnd FEB heldur
annan fund í fundaröð um málefni
aldraðra á morgun, föstud. 11. nóv., kl.
15, í Stangarhyl 4. Ásta Möller mætir
fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hún ræðir
um áherslur flokksins í þessum mála-
flokki og svarar fyrirspurnum. Fé-
lagsmenn fjölmennið og sýnið áhuga
á eigin málum.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Gullsmárabrids. Bridsdeild FEBK í
Gullsmára spilar alla mánu- og
fimmtudaga. Skráning kl. 12.45 á há-
degi. Spil hefst kl. 13. Kaffi og með-
læti fáanlegt í spilahléi.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Glerskurður kl. 9, málun kl. 13 og ull-
arþæfing og perlur kl. 13.30 í Kirkju-
hvoli. Vatnsleikfimi kl. 9.45, karla-
leikfimi kl. 13.15 í Mýri.
Handavinnuhorn kl. 13 í Garðabergi.
Síðustu forvöð að kaupa miða í
næstu leikhúsferð hjá FAG.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 10.30
samverustund, umsjón sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson. Kl. 12.30
vinnustofur opnar, m.a. myndlist og
silkimálun. Kl. 13.45 mæting hjá
Gerðubergskór, Þorvaldur Jónsson
harmonikkuleikari leikur létt lög, síð-
an syngur kórinn undir stjórn Kjart-
ans Ólafssonar fyrir eldri Esso-
félaga.
Félagsstarfið Langahlíð 3 | Hand-
mennt almenn kl. 13. Kaffiveitingar kl.
14.30.
Hraunbær 105 | Kl. 9 perlusaumur,
postulínsmálun. Hjúkrunarfræðingur
á staðnum. Kaffi, spjall, dagblöðin.
Hárgreiðsla. Kl. 10 boccia. Kl. 11 leik-
fimi. Kl. 12 hádegismatur. Kl. 14 fé-
lagsvist. Kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Pútt kl. 10. Leikfimi kl. 11.20. Gler-
bræðsla kl. 13. Opið hús kl. 14. Um
opna húsið sér menningarmálanefnd
FEBH. Skemmtið ykkur – með okkur.
Hvassaleiti 56–58 | Hannyrðir hjá
Halldóru kl. 9–16. Boccia kl. 10–11. Fé-
lagsvist kl. 13.30, góðir vinningar,
kaffi og nýbakað. Böðun fyrir hádegi.
Fótaaðgerðir 588 2320. Hársnyrting
517 3005.
Korpúlfar, Grafarvogi | Sundleikfimi í
Grafarvogslaug á morgun kl. 9.30.
Laugardalshópurinn í Laugardals-
höll | Leikfimi í dag kl. 12.10 í Laug-
ardalshöll.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir Kl. 9–10 boccia. Kl.
9.15–14 aðstoð v/böðun. Kl. 9.15–
15.30 handavinna. Kl. 10.15–11.45
spænska. Kl. 11.45–12.45 hádeg-
isverður. Kl. 13–14 leikfimi. Kl. 13–16
vaka í kvöld kl. 20. Tónlistarmennirnir
Gunnar Gunnarsson og Sigurður
Flosason flytja trúarlega tónlist með
nýstárlegum hætti. Kaffiveitingar í
safnaðarheimili kirkjunnar. Allir vel-
komnir.
Fríkirkjan í Reykjavík | Kyrrðar- og
bænastund í hádeginu á fimmtudög-
um kl. 12.15. Tónlistin er vel fallin til að
leiða mann í íhugun og bæn.
Garðasókn | Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund er hvert fimmtudagskvöld í
Vídalínskirkju kl. 22. Gott er að ljúka
deginum og undirbúa nóttina í kyrrð
kirkjunnar og bera þar fram áhyggjur
sínar og gleði. Tekið er við bænar-
efnum af prestum og djákna. Boðið
upp á kaffi í lok stundarinnar.
Grafarvogskirkja | Foreldramorgnar
kl. 10–12. Fræðandi og skemmtilegar
samverustundir, ýmiss konar fyr-
irlestrar. Alltaf heitt á könnunni, djús
og brauð fyrir börnin. TTT fyrir börn
10–12 ára á fimmtudögum í Húsa-
skóla kl. 17.30–18.30.
Grensáskirkja | Hversdagsmessa kl.
19. Hversdagsmessur eru sér-
staklega ætlaðar fólki í önnum dags-
ins. Áhersla er lögð á létta og að-
gengilega tónlist. Í hverri
guðsþjónustu er altarisganga. Þor-
valdur Halldórsson leiðir tónlistina.
Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Orgelleikur, íhugun. Léttur máls-
verður í safnaðarsal eftir stundina.
Háteigskirkja | Vinafundir í Setrinu
kl. 14. Umsjón sr. Tómas og Þórdís
þjónustufulltrúi. Á vinafundum hjálp-
ast fólk við að vekja upp gamlar og
góðar minningar. Kaffi á eftir.
Hjallakirkja | Opið hús í Hjallakirkju
kl. 12–14. Léttur hádegisverður og
skemmtileg samverustund. Kirkju-
prakkarar, 6–9 ára börn, hittast í
Hjallakirkju kl. 16.30–17.30.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Eld-
urinn – fyrir fólk á öllum aldri – sam-
vera kl. 21. Lofgjörð, vitnisburðir og
kröftug bænastund.
KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUM
kl. 20 á Holtavegi. „Saga úr lífshlaup-
inu.“ Davíð Sch. Thorsteinsson, fv.
forstjóri, sér um efni. Sr. Jón Dalbú
Hróbjartsson hefur hugleiðingu.
Hörður Geirlaugsson syngur. Allir
karlmenn eru velkomnir.
Langholtskirkja | Opið hús fyrir for-
eldra ungra barna kl. 10–12. Spjall og
kaffisopi, söngur og fræðsla. Umsjón
hefur Lóa Maja Stefánsdóttir.
Laugarneskirkja | Kl. 12 Kyrrðar-
stund í hádegi. Gunnar Gunnarsson
leikur á orgel kirkjunnar kl. 12–12.10.
Að samveru lokinni bíður léttur máls-
verður í safnaðarheimilinu allra sem
lyst hafa. Kl. 15 tólf ára starf Laug-
arneskirkju. Umsjón hafa Hildur Eir
æskulýðsfulltrúi og Stefán Einar guð-
fræðinemi.
Neskirkja | Samtal um sorg kl. 12.05.
Samtal um sorg er opinn vettvangur
þeirra sem glíma við sorg og missi og
vilja vinna úr áföllum sínum. Þar kem-
ur fólk saman til að tjá sig eða hlusta
á aðra. Prestar Neskirkju leiða fund-
inn.
Óháði söfnuðurinn | 12 sporin – and-
legt ferðalag kl. 19–21.
Selfosskirkja | Morguntíð sungin kl.
10. Fyrirbænir – og einnig tekið við
bænarefnum. Kaffisopi í safn-
aðarheimilinu á eftir. Æskulýðsfélag
Selfosskirkju heldur fund í kvöld kl.
19.30.
1. d4 Rf6 2. Rf3 d6 3. c4 b6 4. g3 Bb7 5.
Bg2 Rbd7 6. Rc3 e5 7. d5 Be7 8. 0–0
0–0 9. e4 a5 10. b3 Rc5 11. Re1 Dd7 12.
h3 Ba6 13. Be3 Rb7 14. Hc1 Hfc8 15.
Rd3 De8 16. f4 exf4 17. gxf4 Hab8 18.
e5 dxe5 19. fxe5 Ba3 20. Hc2 Rd7 21.
Bd4 Rbc5 22. He2 Rxd3 23. Dxd3 Bc5
24. e6 Bxd4+ 25. Dxd4 fxe6 26. Hxe6
Dh5 27. He7 Rf6
Staðan kom upp á Skákþingi Ís-
lands, kvennaflokki, sem lauk fyrir
skömmu. Guðlaug Þorsteinsdóttir
(2.114) hafði hvítt gegn Sigurlaugu
Friðþjófsdóttur (1.920). 28. Hxg7+!
Kxg7 29. Dxf6+ Kg8 30. Hf5 svartur
er nú algjörlega varnarlaus en hann
reyndi að halda baráttunni áfram með
því að gefa eftir drottninguna sína.
30. … Dxf5 31. Dxf5 Hf8 32. De6+
Kg7 33. De5+ Kg8 34. d6 Bb7 35.
Bxb7 Hxb7 36. Dd5+ og svartur gafst
upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.