Morgunblaðið - 10.11.2005, Blaðsíða 18
MÁLIÐ ER
Í MIÐJUN
NI Á MOG
GANUM Í
DAG
Seyðisfjörður | Þessi grágás
spókaði sig á götum úti í Seyð-
isfjarðarkaupstað eitt nið-
dimmt síðkvöldið fyrir
skemmstu. Vegfarandi hafði
rétt svo að segja ekið yfir hana,
þar sem hún þrammaði ákveðin
eftir miðri götunni, en náði til
allrar blessunar að staðnæmast
og aukinheldur taka af henni
myndir. Enda greinilega
mannvön og arkaði upp að bif-
reiðinni til að athuga hver væri
á ferð. Bæjarstjórinn á Seyð-
isfirði, Tryggvi Harðarson,
kom akandi úr hinni áttinni í
sömu svifum og upplýsti að
gæsin sú arna væri íbúi í bæn-
um og héldi yfirleitt til á sama
stað þar sem dýravinur æli önn
fyrir henni.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Á síðkvöldsgöngu
Seyðfirðingur
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Sameining | Hreppsnefnd Broddanes-
hrepps hefur óskað eftir viðræðum við
Hólmavíkurhrepp um sameiningu sveitar-
félaganna. Tillaga um sameiningu sveitar-
félaga á Ströndum var felld í kosningum í
byrjun október í öllum sveitarfélögunum,
nema í Broddaneshreppi þar sem 75% kjós-
enda samþykktu þá tillögu um sameiningu
sem fyrir lá. Í Broddaneshreppi eiga rétt
rúmlega 50 manns lögheimili.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Hagræðing í rekstri | Skrifað hefur verið
undir samninga á milli Húsavíkurbæjar og
Þekkingar hf. annars vegar og Húsavík-
urbæjar og Orkuveitu Húsavíkur hins veg-
ar vegna umfangsmikilla breytinga sem nú
eru að eiga sér stað í rekstrarfyrirkomulagi
á tölvumálum Húsavíkurbæjar. Unnið hef-
ur verið að því um nokkurra mánaða skeið
að ná fram hagræðingu í rekstri og umsjón
tölvukerfa, ásamt endurskipulagningu
gagnaflutningsmála og endurnýjun bún-
aðar að hluta.
Þekking hf. tekur að sér heildarumsjón
tölvumála þar sem áhersla er lögð á að
byggja upp heildstætt upplýsingakerfi allra
stofnana Húsavíkurbæjar. Allnokkur end-
urnýjun á sér stað í búnaði og högun sam-
hliða flutningi kerfa í miðlægt rými með
hagkvæmni og öryggi að leiðarljósi.
Ný sundlaug | Bæjarráð Hornafjarðar
fjallaði nýlega um greinargerð Hönnunar á
Reyðarfirði vegna nýrrar sundlaugar á
Höfn. Áætlaður kostnaður við nýja laug
með tilheyrandi mannvirkjum er 243 millj-
ónir króna.
Áætlaður kostnaður við stækkun og end-
urbætur á núverandi sundlaug er 116 millj-
ónir. Á fundinum kynnti bæjartæknifræð-
ingur hugmyndir tækni- og umhverfissviðs
um staðsetningu á sundlaugarmannvirkjum
við Heppuskóla.
ember nk. Í boði eru
skemmtiatriði og ým-
islegt fleira fyrir alla
aldurshópa og mörg af-
mælistilboð í gangi. Um
síðustu helgi var boðið
upp á fjölbreytta dag-
skrá og meðal þeirra
UM þessar mundireru fimm ár fráþví versl-
unarmiðstöðin Glerártorg
var opnuð og af því til-
efni hefur verið efnt til
afmælishátíðar sem stend-
ur yfir fram til 13. nóv-
sem stigu á svið var stór-
söngvarinn Óskar Pét-
ursson. Hann hefur gefið
út nýja hljómplötu og
tók nokkur lög af henni
fyrir þá fjölmörgu gesti
sem voru á svæðinu á
laugardag.
Morgunblaðið/Kristján
Afmæli Óskar Pétursson söng lög af nýrri hljómplötu sinni fyrir fjölmarga gesti.
Afmælishátíð á Glerártorgi
Einar Kolbeinssonyrkir að morgni:
Upp úr hafi eldar rísa,
austurroðann magnast sérð.
Þetta er allra versta vísa,
sem verður nokkurn tíma gerð.
En síðan gengur hann al-
veg fram af sér:
Á mér hárin óðar rísa,
og ég vonlaus styn,
enda er þessi árans vísa,
ennþá verri en hin!
Davíð Hjálmar Haralds-
son:
Bisa menn við bjánahátt
og bögglast ekki lítið.
Er það flestum ósjálfrátt
aðra daga. Skrýtið.
Hjálmar Freysteinsson:
Sumir eilíft kvarta um krísur
við kveðskap eiga ei hægt
um vik,
en þegar gera á vondar vísur
virðast þeir ná sér á strik.
Ragnar Ingi Að-
alsteinsson orti fyrripart:
Oft er lífið gramt mér gerði
gladdi vonarröðull bjartur.
Og botnaði svo sjálfur:
Borin von að botninn verði
betri en þessi fyrripartur.
Vondar vísur
pebl@mbl.is
ENN hefur dregist að semja um kaup á
nýrri Grímseyjarferju.
Kristín Sigurbjörnsdóttir hjá Vega-
gerðinni sagði við samtali við vefmiðilinn
Dag að búið væri að semja við seljendur
írska skipsins Olean Arann um kaupverð
sem gerði ráð fyrir nokkrum lagfæringum
og breytingum á skipinu áður en það hæfi
siglingar hér. Raunar er búið að ganga
frá öllum helstu atriðum og ekkert að
vanbúnaði að skipið verði skráð hér á
landi til bráðabirgða á meðan á viðgerðum
stendur en Siglingamálastofnun þarf að
veita samþykki sitt fyrir því að skipið sé
skráð hér.
Stofnunin hefur nú farið fram á að
skoðunarmenn frá henni fari út og skoði
skipið áður en það verður skráð hér. Það
verður því varla fyrr en í næstu viku sem
endanlega fæst úr því skorið hvort um-
rædd ferja kemur. Þá þarf að bjóða út
lagfæringar á skipinu með löglegum hætti
á Evrópska efnahagssvæðinu svo gera má
ráð fyrir nokkurra mánaða bið í viðbót á
meðan útboð stendur og viðgerðir fara
fram áður en ný ferja fer að sigla milli
Grímseyjar og lands
Enn ósamið
um Gríms-
eyjarferju
Blönduós | Bæjarráð Blönduóss fagnar
áformum dómsmálaráðherra um að vinna
að því með embætti Sýslumannsins á
Blönduósi að innheimtustöð sekta og sak-
arkostnaðar á landinu verði rekin af emb-
ættinu á Blönduósi. Við þetta gætu skapast
10 til 15 störf, en áætlað er að flutningurinn
verði á næsta ári.
„Með þessari aðgerð sýnir dóms- og
kirkjumálaráðherra vilja í verki með flutn-
ingi opinberra starfa og uppbyggingu rík-
isstofnana á landsbyggðinni. Bæjarráð lýs-
ir sig reiðubúið til samstarfs við framgang
verkefnisins,“ segir í bókun bæjarráðs af
þessu tilefni.
Sýnir vilja
í verki
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
♦♦♦
Olíubirgðastöð í Flatey | Reykhóla-
hreppi hefur borist erindi frá Umhverf-
isstofnun varðandi olíubirgðastöð í Flatey
á Breiðafirði. Fram kemur að Umhverf-
isstofnun hafi móttekið umsókn Olíu-
dreifingar ehf. um starfsleyfi fyrir olíu-
birgðastöð fyrirtækisins í Flatey. Beðið er
um að tillagan liggi frammi til kynningar
fyrir almenning en umsagnarfrestur um
tillöguna er til 30. desember. Þetta kemur
fram á vefnum skessuhorn.is.