Morgunblaðið - 10.11.2005, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 41
MENNING
SÉRSTÖK forsala á takmörk-
uðum eintakafjölda glæpasög-
unnar Þriðja táknsins eftir Yrsu
Sigurðardóttur verður í Bókabúð
Máls og menningar á Laugavegi
18 í kvöld. Sala bókarinnar hefst
þar kl. 21.30 og er gert ráð fyrir að
hún standi í hálfa til eina klukku-
stund eða á meðan kynningarupp-
lagið endist.
Þriðja táknið er væntanlegt úr
prentun á föstudag og er formleg
útgáfa á laugardag. „Vegna mik-
illar eftirspurnar eftir bókinni mun
Prentsmiðjan Oddi hins vegar af-
greiða 200 bækur í kvöld og verða
þær sendar beint í Bókabúð Máls
og menningar á Laugavegi 18. Þar
verða þær á sérstöku kynning-
artilboði eða með 20% afslætti. Þá
verða gestum og gangandi boðnar
léttar veitingar í tilefni þess að
fyrsta útgáfa bókarinnar er að
koma úr prentverkinu,“ segir Pét-
ur Már Ólafsson hjá bókaútgáf-
unni Veröld sem gefur Þriðja tákn-
ið út.
Þegar hefur verið gengið frá
samningum um útgáfu á bókinni á
níu tungumálum í þrjátíu löndum
áður en hún kemur út hér á landi
en slíkt er einstakt þegar um ís-
lenskt skáldverk er að ræða, að
sögn Péturs Más. „Viðræður
standa nú yfir við enn fleiri erlend
bókaforlög um útgáfuréttinn á bók
Yrsu og er frekari tíðinda að vænta
af því á næstu dögum og vikum,“
segir Pétur Már.
Þriðja táknið er fyrsta skáldsag-
an sem Yrsa Sigurðardóttir ritar
fyrir fullorðna. Hún hefur áður
gefið út fimm skáldverk fyrir börn
og unglinga og hefur hún hlotið
verðlaun og viðurkenningar fyrir
þau verk sín. Hún er bygging-
arverkfæðingur að mennt, starfar
um þessar mundir sem eftirlits-
verkfræðingur við virkjanafram-
kvæmdirnar á Kárahnjúkum og
vann þar að handriti glæpasög-
unnar sem nú er að koma á út.
Bækur | Þriðja táknið kemur út
Forsala á takmörkuðum
eintakafjölda í kvöld
Yrsa Sigurðardóttir, höfundur
glæpasögunnar Þriðja táknsins.
„ÆVINTÝRAMAÐUR og róm-
antíker“ er yfirskrift tónleika
Ágústs Ólafssonar barítónsöngvara
og Izumi Kawakatsu píanóleikara,
sem fram fara í Salnum í kvöld kl.
20. Heitið vísar til þeirra tveggja rit-
höfunda sem eiga heiðurinn af text-
um þeim er sungnir verða í kvöld;
þýska leikskáldsins Friedrichs
Schillers og danska ævintýraskálds-
ins H.C. Andersens.
Ríkar andstæður
Um þessar mundir eru tvö hundr-
uð ár liðin frá dauða hins fyrrnefnda,
en fæðingu hins síðarnefnda, og seg-
ir Ágúst þau Izumi því gjarnan hafa
viljað setja saman efnisskrá tileink-
aða þeim. „Það kom í ljós að við átt-
um í fórum okkar eða höfðum lengi
haft augastað á tónlist sem tengdist
þessum tveimur rithöfundum, þann-
ig að það lá beint við að setja saman
slíka efnisskrá á þessu ári,“ segir
hann.
Á tónleikunum gefur að heyra ólík
verk að sögn Ágústs, og endurspegla
þau vel þann mun sem er að finna á
skáldunum tveimur. Þannig gefur að
heyra sönglög eftir Edvard Grieg og
Robert Schumann við texta H.C.
Andersens, sem og aríur úr óperum
eftir Giuseppi Verdi og Gioacchino
Rossini sem byggðar eru á leikritum
Schillers, svo dæmi séu tekin.
„Andersen og Schiller eru mjög
ólíkir – Andersen er meira á útopnu
með allar tilfinningar og oft eru verk
hans á mörkum þess að vera meló-
dramatísk. Schiller er á móti mikill
heimspekingur, og tekur oft fyrir
stór þemu á borð við frelsi ein-
staklingsins og höft samfélagsins.
Þessi munur endurspeglast í text-
unum,“ segir Ágúst og bætir við að
tónskáldin sem samið hafa við texta
þessara manna séu ennfremur mjög
ólík. „Útkoman er því efnisskrá sem
einkennist af ríkum andstæðum; við
erum til dæmis með Grieg sem sem-
ur mjög aðgengileg lög við texta
H.C. Andersens, bæði blátt áfram og
tilfinningarík, og hins vegar Schu-
bert sem er að berjast við að koma
til skila hinum heimspekilegu hug-
myndum Friedrichs Schillers – en
eins og raunar í öllum sönglögum
hans gerir hann það með mjög
skemmtilegum laglínum. Síðan er-
um við með óperuaríurnar á efnis-
skránni, sem eru mjög sterkar og
dramatískar.“
Fischer-Dieskau áhrifavaldur
Þau Ágúst og Izumi hafa komið
fram saman undanfarin þrjú ár, þar
á meðal nokkrum sinnum hér á
landi, en leiðir þeirra lágu saman á
námskeiði í Karlsruhe í Þýskalandi.
Það var þó sameiginlegur mast-
erklass þeirra hjá hinum heims-
fræga söngvara Dietrich Fischer-
Dieskau sem endanlega innsiglaði
samvinnu þeirra.
„Það var þessi ferð okkar til hans í
Berlín sem var upphafið að því að við
fórum að vinna svona náið saman. Í
kjölfarið tókum við þátt í alþjóðlegri
ljóðasöngkeppni í Stuttgart, þar sem
okkur tókst að hreppa önnur verð-
laun,“ segir Ágúst.
Aðspurður hvort heiti tónleikanna
vísi á einhvern hátt til þeirra sjálfra;
hvort þau Izumi séu ævintýramenn
og rómantíkerar, svarar Ágúst neit-
andi og hlær. „Ætlunin var nú bara
að vísa til Andersens og Schillers,
Andersens sem ævintýrasnillingsins
og Schillers sem frumkvöðuls róm-
antíkurinnar,“ segir hann en neitar
því þó ekki að orðin geti átt við á
vissan hátt um tónlistina á tón-
leikum kvöldins: „Hún er að minnsta
kosti hárómantísk, og við gætum
sagt að það felist ákveðin ævintýra-
mennska í ferðalagi sem liggur allt
frá Ítalíu gegnum Þýskaland og
norður til Noregs.“
Tónlist | Ágúst Ólafsson barítónsöngvari og Izumi Kawa-
katsu píanóleikari með tónleika í Salnum í kvöld
Efnisskrá rómantíkur
og ævintýra
Morgunblaðið/Ásdís
Ágúst Ólafsson og Izumi Kawakatsu flytja tónlist ólíkra tónskálda á borð
við Grieg og Rossini, við texta H.C. Andersens og Friedrichs Schiller.
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is
Seltjarnarneskirkju, fimmtudaginn 10. nóv. kl. 20:00
Víðistaðakirkju, laugardaginn 12. nóv. kl. 16:00
Stjórnandi Hrafnhildur Blomsterberg
Píanóleikari Antonía Hevesi
Miðaverð kr. 1500
Forsala aðgöngumiða er hjá kórfélögum,
Súfistanum, Máli og menningu, Reykjavík
og Strandgötu 9, Hafnarfirði.
www.kvennakorinn.org
10 ára afmælistónleikar
Kvennakórs Hafnarfjarðar
SÓLVEIG Eggerz Péturs-
dóttir opnar sýningu í Bog-
anum í Gerðubergi á morgun
kl. 16.00
Myndirnar eru vatns-
litamyndir og málaðar á heim-
ili Sólveigar á Hrafnistu í ár.
Þemað er blóm og myndir
máluð á Árbæjarsafni.
Sólveig Eggerz Pétursdóttir
myndlistamaður er fædd árið
1925 í Reykjavík. Sólveig nam
myndlist frá barnæsku á Ís-
landi og í London og hefur
sýnt víða, bæði einkasýningar
og samsýningar, á Íslandi,
Norðurlöndunum, Bretlandi,
Þýskalandi og Bandaríkj-
unum.
Á opnuninni syngur Gerðu-
bergskórinn og Kór Hrafnistu.
Sýningin, sem er sölusýn-
ing, er opin virka daga frá 11–
17, miðvikudaga frá 11–21 og
helgar frá 13–16.
Sólveig
sýnir í
Boganum