Morgunblaðið - 10.11.2005, Page 6

Morgunblaðið - 10.11.2005, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR F í t o n / S Í A F I 0 1 5 0 0 7 SJÓN:ARGÓARFLÍSIN „ALVEG FANTASKEMMTILEG BÓK“ – Illugi Jökulsson, Talstöðinni „ÞETTA ER LISTILEGA SKRIFUÐ SAGA“ – Silja Aðalsteinsdóttir, TMM NÝ BÓK EFTIR NORÐURLANDA- MEISTARANN Í BÓKMENNTUM RANNSÓKN lögreglunnar í Reykjavík á smygli um pósthús beinist m.a. að innflutningi á um 600 grömmum af amfetamíni í sum- ar. Tvennt sat um tíma í gæslu- varðhaldi, karlmaður og kona sem vann á pósthúsinu, en þeim hefur báðum verið sleppt. Að sögn Ásgeirs Karlssonar, yf- irmanns fíkniefnadeildar lögregl- unnar í Reykjavík, var lagt hald á rúmlega 50 grömm af kókaíni og rúmlega 20 grömm af hassi við rannsókn málsins. Hún hafi auk þess beinst að fyrrnefndum amfeta- míninnflutningi. Hann vildi ekki greina frá því hvaða aðferð talið er að hafi verið beitt við smyglið og sagði að þær upplýsingar myndu koma fram við dómsmeðferð máls- ins. Rannsaka smygl á amfetamíni HÁTT gengi íslensku krónunnar hefur smám saman verið að draga tennurnar úr íslenskum útflutnings- greinum og ferða- þjónustu án þess að nokkuð sé að- hafst. Bergur Elí- as Ágústsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyj- um, segir að nú sé nóg komið og þetta sé enn eitt dæmið um skiln- ingsleysi stjórn- valda á stöðu út- flutningsgreina og aðför þeirra gegn landsbyggðinni sem aldrei ætli að linna. Bergur segir þetta ekki aðeins koma niður á útgerð og fiskvinnslu í Vestmannaeyjum heldur allri þjón- ustu. Gæti svo farið að bæjarsjóður yrði að horfa upp á 5% til 7% lækkun útsvarstekna sinna. Sjávarplássum blæðir út „Já, nú er nóg komið og miklu meira en það,“ sagði Bergur. „Á meðan okkur og öðrum sjávarpláss- um blæðir út eru önnur svæði að hala inn meira fjármagn en áður hefur sést í sögu íslenska lýðveldisins. Það er einfaldlega þannig að ef efnahags- stefna ríkisstjórnarinnar helst óbreytt og gengismál verða eins á næstu misserum munu sjávarbyggð- irnar bíða afhroð. Það er vegna þess að það gengur ekki upp að vinna fiskinn með því skilaverði sem við sjáum í dag. Þetta gerist þrátt fyrir sögulegt hámark í verði á fiskafurð- um í erlendri mynt og m.a.s. Norð- menn græða á sinni fiskvinnslu. Við höfum séð það undanfarið að rækju- verksmiðjur eru að loka vegna þessa hver á fætur annarri og fyrirtæki í landvinnslu eru farin að draga sam- an í vinnslu. Og fyrr en síðar kemur að okkur hérna í Vestmanaeyjum,“ segir hann. Ekkert bólar á aðgerðum Bergur sagði ljóst að stjórnvöld ætluðu að horfa framhjá vandanum og ekkert bólaði á aðgerðum til að koma til móts við fyrirtæki og sjáv- arbyggðir sem margar hverjar stæðu nú á tímamótum. „Ég nenni ekki að telja upp þau störf hjá hinu opinbera sem héðan hafa horfið og þann kvóta sem rík- isstjórnin hefur tekið af okkur. Það verður gaman að ræða þetta við þingmenn þegar og ef þeir koma,“ sagði Bergur og vísar til þess að þingmenn Suðurkjördæmis hafi enn ekki náð að heimsækja Vestmanna- eyjar á þessu hausti þrátt fyrir góð- an vilja. – Sérðu eitthvað til ráða? „Tvímælalaust. Það á að flytja stofnanir sem tengjast sjávarútvegi frá Reykjavík til staða eins og Vest- mannaeyja,“ sagði Bergur og nefndi sem dæmi Hafrannsóknastofnun og Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins.“ Álframleiðendur njóta sérstakra kjara – Er eitthvað hægt að gera til að breyta genginu? „Það er nú þannig að ekki verður bæði haldið og sleppt í gengismálum. Ríkisstjórnin hefur ekki sýnt nokk- urn vilja til að draga úr útgjöldum ríkisins og beinir síðan þeim tilmæl- um til sveitarfélaga að draga úr framkvæmdum. Innflutningur hefur heldur aldrei verið meiri og það er kannski eitthvað sem allir eiga að lifa á? Annars má benda á álframleiðend- ur á Íslandi sem njóta sérstakra kjara þar sem raforkuverð miðast við heimsmarkaðsverð á áli. Ekki hafa sjávarbyggðirnar þessa vörn.“ Bergur sagði að svo væru menn hissa á því að hér væru erfiðleikar og menn ekki hressir með stöðuna. „Þetta vilja þeir ekki tala um og benda á hagsæld sem er fyrir suma en aðra ekki. Það hlýtur að vera hlut- verk stjórnvalda að verja sjávar- byggðir eins og aðrar byggðir nema það sé markviss stefna að draga tennurnar hægt og rólega úr fólki sem þar býr. Að vísu er talað og talað og fyrirheitin yfirleitt góð en vanda- málið er að ekkert gerist. Satt best að segja á ég erfitt með að trúa því að frá okkur hafi verið teknar var- anlegar heimildir fyrir einn milljarð króna á síðasta ári, loftskeytastöðin lögð niður og um leið störf sem þar voru. Í staðinn fáum við reyndar nokkur fiskistofustörf sem við erum í raun að borga sjálf í gegnum auð- lindagjaldið. Staðreyndin er sú að staðan hér væri í heildina mun betri ef við hefðum fengið að vera í friði til að bjarga okkur sjálf og verið laus við þessar endurteknu náttúruham- farir af mannavöldum.“ Bergur sagði að þetta hefði ekki aðeins áhrif á sjávarútveginn, þetta snerti alla þætti samfélagsins í Vest- mannaeyjum. „Þetta kemur niður á öllu bæjarfélaginu, sjómönnum og öðru launafólki, þjónustu og verslun og líka bæjarsjóði því útsvarstekjur verða 5% til 7% lægri nú en í fyrra. Munar um minna fyrir bæjarfélag sem okkar. Ég veit ekki hvar við værum stödd ef við hefðum ekki þessi öflugu sjávarútvegsfyrirtæki sem er stjórnað af bæði djörfung og dug. Bæjaryfirvöld munu standa við bakið á þeim og þau við bakið á okk- ur því við erum samfélag sem mun ekki láta kveða sig í kútinn.“ Gagnrýnir stjórnvöld fyrir skilningsleysi á stöðu útflutningsgreina Keyra sjávarbyggðir í kaf Eftir Ómar Garðarsson Bergur Elías Ágústsson SÍMINN áformar að ljúka ISDN- væðingu sinni í sveitum landsins í þessum mánuði með tengingu við um 30 bæi á Vestfjörðum. Þar með eiga nær 100% heimila landsins kost á stafrænu gagnaflutningssambandi um ISDN, en samkvæmt upplýs- ingum frá Símanum er það eins- dæmi í heiminum. Munurinn á ISDN- og ADSL- þjónustu felst í því að ADSL- þjónustan er fyrst og fremst sniðin fyrir gagnaflutning í þéttbýli en ISDN-þjónustan er bæði fyrir þétt- býli og dreifbýli og hefur víðtæka notkunarmöguleika fyrir sambland af stafrænni tal- og gagnaflutnings þjónustu. Til þess að eiga möguleika á að tengjast ADSL verður viðkom- andi að vera innan 3–5 km frá næstu símstöð til þess að línan beri gagna- flutninginn á meðan ISDN nær, þeg- ar best lætur, vel á annan tug km frá símstöð. Síminn hefur varið um 700 millj- ónum í uppbyggingu á símakerfinu frá árinu 2002 og hafa verið settar upp um 80 símstöðvar til þess að þétta kerfi og gefa öllum lands- mönnum kost á ISDN-sambandi og meiri talgæðum. Um síðustu mánaðamót hóf Sím- inn að bjóða viðskiptavinum sínum nýja áskriftarleið, ISDN plús. Með áskriftarleiðinni er greitt fast mán- aðargjald fyrir allt að 60 klukku- stunda notkun á mánuði með ISDN plús. Með því er komið til móts við þarfir þeirra sem nota netið mikið. Eftir 60 klukkustunda netnotkun er greitt venjulegt mínútuverð en eng- in upphafsgjöld eru innheimt, eins og tíðkast í hefðbundnum símtölum. Fjarskiptamál verða rædd á ráð- stefnu um upplýsingatækni í dreif- býli sem haldin verður í Reykholti í dag. Ráðstefnan hefst kl. 10 með ávarpi Guðna Ágústssonar landbún- aðarráðherra, en þar verður gerð grein fyrir verkefnum sem unnið er á þessu sviði. ISDN-væðingu Símans að ljúka SÖNGKABARETTINN Nína og Geiri – söngbók Björgvins Hall- dórssonar verður forsýndur á Broadway annað kvöld, föstudag- inn 11. nóvember. Byggist sýn- ingin á söngferli Björgvins Hall- dórssonar síðastliðin 35 ár og sjálfur tekur Björgvin þátt í sýn- ingunni. Ljósmyndari Morgun- blaðsins fékk að mynda æfingu í vikunni en alls koma um 50 manns að sýningunni. Að sögn Björgvins hafa æfingar gengið vel og er allt að smella fyrir for- sýninguna. „Ég er mjög ánægður með viðtökurnar og ekkert lát er á eftirspurn eftir miðum, það er nánast orðið uppselt á sýningar fram að jólum“, segir Björgvin. Segir hann að bætt hafi verið við einni sýningu sunnudaginn 4. des- ember en þá verður sérstök fjöl- skyldusýning. Söngkabarett byggður á söngferli Björgvins Halldórssonar forsýndur Morgunblaðið/Brynjar Gauti Alls koma um 50 manns að sýningunni Nína og Geiri – söngbók Björgvins Halldórssonar tónlistarmanns. Ánægður með við- tökurnar GEIR H. Haarde utanríkisráðherra kynnti norska starfsbróður sínum Jonas Gahrstöre stöðuna í varnar- viðræðum Ís- lands og Banda- ríkjanna á fundi utanríkisráð- herra Barents- ráðsins í Herstad í Noregi í gær. Norski utanríkis- ráðherrann átti frumkvæði að fundi þeirra Geirs til að ræða marg- vísleg mál sem varða samskipti land- anna og afstöðu í alþjóðamálum og voru varnarmálin meðal umræðu- efna „Norðmenn hafa auðvitað mikinn áhuga á þeim málum því öll varn- arstaðan á Norður-Atlantshafi skipt- ir miklu máli fyrir Norðmenn eins og allt Atlantshafsbandalagið,“ sagði Geir. Áherslumunur milli landa í Svalbarðadeilunni Í Barentsráðinu sitja utanríkis- ráðherrar Norðurlandanna, auk Rússlands og héraða á norðurslóð- um. Geir tók þó fram að einungis hefði verið um klukkustundarlangan kynningarfund ráðherranna að ræða. Á fundinum var Svalbarðadeil- an einnig rædd og sagði Geir að ráð- herrarnir hefðu undirstrikað þann áherslumun sem er milli landanna í málinu. Íslenska ríkisstjórnin ákvað fyrir um ári að hefja undirbúning að hugs- anlegri málssókn á hendur Norð- mönnum fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag fyrir meint ítrekuð brot norskra stjórnvalda á Svalbarða- samningnum. Geir sagði norska ráð- herranum að Íslendingar vildu halda dómstólaleiðinni opinni þótt æski- legra væri að ná pólitískri lausn í málinu. „Siðað fólk á alltaf það úr- ræði að fara með deiluefni sín fyrir dómstóla og Norðmenn draga ekki í efa að við getum það. Þeir munu taka til varna en telja sinn málstað þannig að þeir þurfi ekki að kvíða því.“ Geir segir íslenskum stjórnvöld- um vera full alvara við undirbúning málsóknarinnar en bendir á að málið sé flókið og krefjist vandaðs undir- búnings. „Við höldum því opnu að láta af þessu verða þótt ekki sé búið að taka ákvörðun um það,“ segir hann. Greindi Gahrstöre frá stöðu varnarviðræðna Geir H. Haarde

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.