Morgunblaðið - 10.11.2005, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 10.11.2005, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 13 FRÉTTIR DEILUR stjórnvalda og borgaranna sem koma til kasta umboðsmanns Al- þingis kristallast stundum í því hvort stjórnsýslulög eiga við í ákveðnum málum þar sem álitaefnið er þá hvaða rétt borgararnir eiga í skiptum sínum við stjórnvöld að sögn Páls Hreins- sonar, lagaprófessors við Háskóla Ís- lands, sem heldur framsögu á mál- þingi um stjórnsýslulög og stjórnvaldsákvarðanir á morgun, föstudag. Á málþinginu, sem haldið er á veg- um Íslandsdeildar norræna stjórn- sýslusambandsins í samstarfi við for- sætisráðuneytið og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála, verður rætt um spurninguna hvenær stjórnsýslulög gildi og hvaða ákvarðanir séu stjórnvalds- ákvarðanir. Ásamt Páli Hreinssyni mun Tryggvi Gunn- arsson, umboðs- maður Alþingis, flytja framsögu- erindi. Málþingið verður á morgun í Öskju Náttúru- fræðihúsi HÍ, í sal 132 kl. 15 og 17. „Gildissvið stjórnsýslulaga af- markast af því hvenær stjórnvöld taka stjórnvaldsákvarðanir. Þegar skiptir borgarana almennt miklu hvort stjórnsýslulögin gilda um með- ferð mála þeirra því þá eiga þeir rétt til að fá aðgang að gögnum málsins, tjá sig um það, krefjast rökstuðnings fyrir ákvörðun í málinu o.s.frv. Álita- efni hvaða ákvarðanir teljast stjórn- valdsákvarðanir er því grundvallar- þáttur við afmörkun á því hvenær stjórnsýslulög eiga við.“ Danski umboðsmaðurinn vill rýmka hugtakið Tilefni málþingsins er öðrum þræði deilur hérlendis og erlendis um skilgreiningu á hugtakinu stjórn- valdsákvörðun og má þess geta að umboðsmaður danska þjóðþingsins hefur viljað rýmka hugtakið en dæmi eru um að Hæstiréttur Danmerkur hafi túlkað hugtakið mjög þröngt, a.m.k. í sumum málum er varða starfsmannarétt að sögn Páls. „Það er ljóst að með „réttindavæð- ingu“ á sviði heilbrigðisþjónustu og þjónustu við aldraða eru fleiri ákvarðanir í dag sem teljast stjórn- valdsákvarðanir en fyrir 10–15 árum. Þessu veldur 76. gr. stjórnarskrár- innar svo og almenn lög þar sem rétt- urinn til þjónustu er nánar skil- greindur. Þannig er hægt að velta því fyrir sér hvort eldri borgari sem sættir sig ekki við að deila herbergi með öðrum á dvalarheimili geti feng- ið tekna stjórnvaldsákvörðun um það hvort hann eigi rétt á meira rými.“ Álitaefni hvað telst stjórnvaldsákvörðun Páll Hreinsson prófessor TÆPLEGA 148 þúsund far- þegar fóru um Keflavíkurflug- völl í október í ár samkvæmt upplýsingum frá Keflavíkur- flugvelli, en það er 9% aukning á milli ára. Frá áramótum hafa rúmlega 1,4 milljónir farþega farið um völlinn og nemur fjölgunin á því tímabili um 11%. Keflavíkurflugvöllur Tæp 150 þús. far- þega í okt. MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi fréttatilkynning: „Landssamband lögreglumanna harmar verulega óeðlilega væga refsingu héraðsdóms Reykjavíkur í máli ákæruvaldsins gegn einstak- lingi er kveðinn var upp 8. nóv- ember sl. Dómþoli var dæmdur fyrir lífshættulega árás á tvo lög- reglumenn með því að hafa lagt til annars þeirra tvívegis með hnífi og einu sinni til hins. Í niðurstöðu dóms er tekið fram að atlögur dómþola gagnvart lögreglumönn- unum, sérstaklega í tilviki annars þeirra, hafi verið stórháskalegar en lag hans með flugbeittum hnífi hafi beinst að svæði þar sem stór- ar slagæðar eru grunnt undir húð. Þá var tiltekið að brot væri sér- staklega hættulegt og tilviljun ein hafi ráðið því að ekki hlytist af mikið líkamstjón. Brot mannsins voru heimfærð undir 106. gr. og 2. mgr. 218. gr. almennra hegning- arlaga nr. 19/1940. Þá var dómþoli í sama máli dæmdur fyrir ítrek- aðar alvarlegar hótanir í garð barnsmóður sinnar og annarra auk eignarspjalla. Þrátt fyrir að refsirammi 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/ 1940 er varðar hótanir og árásir gegn valdstjórninni heimili að dæma brotlega í allt að 6 ára fang- elsisrefsingu og 2. mgr. 218. gr. sömu laga heimili að dæma brot- lega í allt að 16 ára fangelsisrefs- ingu hlaut brotamaður í þessu til- viki aðeins 18 mánaða fangelsisrefsingu. Dómþoli á veru- lega langan afbrotaferil er nær allt aftur til ársins 1986 og hefur ítrek- að verið gerð refsing fyrir marg- vísleg brot, síðast 7. febrúar á þessu ári. Dregur úr vinnuöryggi Ljóst er að afleiðing svo vægra refsinga í málum er varða ofbeldi gegn lögreglumönnum er að veru- lega dregur úr fælingaráhrifum refsingarinnar. Telur Landssam- band lögreglumanna einsýnt að þessi dómur sem og margir aðrir er varða sama málsefni dragi aug- ljóslega úr vinnuöryggi lögreglu- manna. Þá stefni slíkir dómar ör- yggi almennings í hættu þar sem fullyrða má að brotamenn fái þau skilaboð með svo vægum refsing- um að það teljist ekki alvarlegt brot að ráðast gegn lögreglu. Slíkt er óþolandi. Að mati Landssambands lög- reglumanna er þörf á viðhorfs- breytingu dómenda til ofbeldis gagnvart fulltrúum valdstjórnar- innar. Núverandi ástand þar sem refsirammi hegningarlaga er nýtt- ur að óverulegu leyti er með öllu ólíðandi og ógn við réttaröryggi lögreglumanna sem og allra ann- arra borgara.“ Landssamband lögreglumanna Harma óeðlilega væga refsingu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.