Morgunblaðið - 10.11.2005, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 15
ÚR VERINU
EIGENDUR krókabáta vilja láta
banna uppsjávarveiðar á síld og
loðnu með flotvörpu tafarlaust. Þeir
vilja líka að dragnótaveiðar verði
bannaðar og segja þær hafa „riðið
sandsílisstofninum að fullu og
grundvallað, að stórum hluta, hinn
mikla fugladauða á umliðnum miss-
erum“. Þetta er hluti ályktana aðal-
fundar Félags kvótabátaeigenda.
Fundurinn krefst þess að lögum um
greiðslumiðlun sjávarútvegsins
verði breytt í samræmi við úrskurð
umboðsmanns Alþingis frá árinu
2001: „Félag kvótabátaeigenda fer
fram á að ríkisstjórn, ráðherrar og
þingmenn fari að hysja uppum sig
buxurnar og beiti sér fyrir því, hið
bráðasta, að framangreindum lögum
verði breytt, til þess vegar, að fé-
lagafrelsisákvæði stjórnarskrárinn-
ar standist. Það hlýtur að vera
aumkunarvert hlutskipti eiðsvarinna
alþingismanna að sitja undir löggjöf
er skýlaust brýtur gegn stjórnar-
skránni. Slíkt getur vart talist trú-
verðugt gagnvart þegnum þessa
lands,“ segir í ályktuninni.
Fundurinn telur að vistvænar
veiðar með handfæri ættu í raun að
vera frjálsar öllum landsmönnum,
sem hafa tilskilin réttindi til skip-
stjórnar, vélgæslu og björgunar-
námskeið að baki og hafa haffæri á
bát sínum. Sóknardagakerfið sáluga
sé eina kerfið sem kemur í veg fyrir
brottkast alfarið. Fundurinn varar
við slæmri umgengni neðan sjávar-
máls og segir hana ekkert einkamál
fárra útvaldra, heldur allrar þjóðar-
innar.
Vilja banna
veiðar á síld
og loðnu í
flotvörpu
NOKKUR brögð hafa verið að því
að stóru útgerðirnar séu að kaupa
sig inn í krókakerfið. Nýlega
keypti Samherji Matthías SH frá
Rifi ásamt þeim kvóta sem honum
fylgdi. Báturinn er nú í Grund-
arfirði og mun ætlun þeirra að
gera hann út héðan. Samherji hef-
ur keypt útgerðina Pétur Konn
ehf. hér í Grundarfirði en þeir
voru með tvo smábáta, Pétur
Konn og Má sem gerðir voru út
héðan. Þá hefur Mylla ehf einnig
úr Grundarfirði verið seld til
Grindavíkur með þeim kvóta sem
bátnum Myllu fylgdi.
Ljósmynd/Gunnar Kristjánsson
Fiskveiðar Samherji keypti nýlega smábátinn Matthías og gerir hann út
frá Grundarfirði. Nokkuð er um það að stærri útgerðirnar kaupi smábáta.
Stóru útgerðirnar kaupa smábáta
NÝSKIPUÐ ráðgjafarnefnd Haf-
rannsóknastofnunarinnar kom sam-
an til síns fyrsta fundar nú í vikunni.
Meginverkefni nefndarinnar er að
fjalla um helstu þætti í starfsemi
Hafrannsóknastofnunarinnar og
áherslur í rannsóknum. Nefndin er
stjórn stofnunarinnar og forstjóra til
ráðuneytis auk þess að vera tengilið-
ur stofnunarinnar við sjávarútveg-
inn og innlenda og erlenda fagaðila.
Á fundinum var Michael Sinclair
kosinn fyrsti formaður nefndarinnar
en hana skipa: Árni Bjarnason, skip-
stjóri; Åsmund Bjordal, forstöðu-
maður veiðarfærarannsókna við
Hafrannsóknastofnunina í Bergen;
Benedikt Jóhannesson, stærðfræð-
ingur og framkvæmdastjóri; Elín-
björg Magnúsdóttir, fiskvinnslu-
maður; Kristján Þórarinsson,
stofnvistfræðingur; Michael Sin-
clair, fiskifæðingur og forstjóri Bed-
ford Hafrannsóknastofnunarinnar í
Dartmouth í Kanada, Sigrún H. Jón-
asdóttir, sjávarlíffræðingur við
dönsku Hafrannsóknastofnunina og
Ólafur J. Daðason, skipstjóri.
Á fyrsta fundinum kynntu starfs-
menn Hafrannsóknastofnunarinnar
nefndarmönnum helstu þætti í starf-
seminni. Að sögn Jóhanns Sigur-
jónssonar, forstjóra Hafrannsókna-
stofnunarinnar, eru miklar
væntingar gerðar til starfa nefndar-
innar og vænta starfsmenn þess að
ráðgjafarnefndin verði til styrkingar
faglegri starfsemi stofnunarinnar.
Ljósmynd/Kjartan Kjartansson
Hafrannsóknir Michael Sinclair, fiskifræðingur og forstjóri Bedford Haf-
rannsóknastofnunarinnar í Dartmouth í Kanada, hefur verið valinn for-
maður ráðgjafarnefndar Hafrannsóknastofnunar.
Ráðgjafarnefnd
Hafró tekur til starfa
Fáðu úrslitin
send í símann þinn
Námsstefna
á vegum
iðjuþjálfa á
Reykjalundi
- Samspil manns og vinnuumhverfis -
Föstudaginn 11. nóvember nk. milli kl. 13:00-16:00
verður námsstefna á vegum iðjuþjálfa á Reykjalundi.
Aðalfyrirlesari er Karen Jacobs, Ed.D., OTR/L, C.P.E., FAOTA, prófessor
í iðjuþjálfun við Boston University, sérfræðingur í vinnuvistfræði.
Hún er einnig höfundur bókarinnar Ergonomics for Therapists
og ritstjóri fagtímaritsins WORK.
Dagskrá:
Kl. 13:00 Setning.
Kl. 13:10 Iðjuþjálfun og vinnuvistfræði:
Gunnhildur Gísladóttir, iðjuþjálfi.
Kl. 13:30 Tölvuvinna - að hverju skal gæta?: Karen Jacobs.
Kl. 14:10 Kaffi og fagleg ráðgjöf á starfsstöðvum.
Kl. 14:50 Stoðkerfisverkir og fartölvunotkun
framhaldsskólanema: Halldóra Jónsdóttir og
Sigurbjörg Júlíusdóttir, sjúkraþjálfarar.
Kl. 15:10 Umræður.
Verð 1.500 kr.
Skráning í netfangið idjuthjalfun@reykjalundur.is
og í síma 585 2155.