Morgunblaðið - 10.11.2005, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Asparhvarf 19D
Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í einkasölu mjög glæsilega neðri hæð í tvíbýli
með sér inngang, 134,3 fermetrar, ásamt stæði í bílageymslu, vel staðsetta á frábær-
um útsýnisstað í austurhlíðum Vatnsendahvarfs. Hæðin stendur hátt og er fagurt út-
sýni yfir Elliðavatn og Heiðmörk og allt að Hengilssvæðinu, Vífilfelli og Bláfjöllum.
Hæðin skiptist í anddyri, gang, gestasnyrtingu, hol, eldhús, stofu, borðstofu, hjóna-
herbergi, tvö barnaherbergi, baðherbergi, geymslu og þvottahús. Glæsilegar innrétt-
ingar frá HTH, tæki frá AEG og gólfefni hlynparket og mustangflísar.
Eign í algjörum sérflokki. Verð 34,9 millj. Myndir af eigninni á mbl.is .
EGYPTAR gengu að kjörborðinu í
gær en þá fór fram fyrsta umferð
þingkosninga í landinu. Stjórn-
arandstaðan gerir sér vonir um að
styrkja verulega stöðu sína á þingi
en almennt er talið að valdaflokk-
ur landsins, hinn Þjóðlegi lýðræð-
isflokkur Hosni Mubaraks forseta,
verði eftir sem áður allsráðandi í
egypskum stjórnmálum.
Þátttaka í þingkosningum hefur
jafnan verið lítil í Egyptalandi, oft
um 10%. Stuðningur við menn og
flokka mótast enda oftlega af öðr-
um viðmiðum en þekkjast í rót-
grónum lýðræðisríkjum. Í Egypta-
landi er algengt að menn greiði
atkvæði þeim sem þeir telja að
fært geti þeim hinum sömu at-
vinnu. Þá er og alsiða að fé sé
borið á kjósendur.
Margir Egyptar hafa lítið álit á
þingheimi. Þeir telja tilgang
þingsins þann einan að leggja
blessun sína yfir ákvarðanir Mub-
araks forseta. Margir telja því
næsta tilgangslítið að ganga á
kjörfund. Andstæðingar stjórn-
valda benda á að Þjóðlegi lýðræð-
isflokkurinn hafi haft öll ráð
Egypta í höndum sér undanliðin
30 ár. Helsta afrek flokksins felist
í að hafa komið upp viðamiklu
kerfi flokksgæðinga og alltumlykj-
andi spillingar.
Þrátt fyrir yfirburðastöðu hins
einráða Mubaraks í egypskum
stjórnmálum er litið svo á að þing-
kosningarnar nú geti talist mik-
ilvægar. Mubarak hefur boðað
ákveðnar pólitískar breytingar í
landi sínu sem margir telja að feli
í sér „umbætur“ þótt afar hægt
verði farið. Stjórnarandstaðan tel-
ur stöðu sína hafa verið að styrkj-
ast og flokkar sem hana mynda
horfa mjög til forsetakosninganna
árið 2011 en þá munu stjórn-
málaflokkar, sem fengið hafa
meira en 5% fylgi á landsvísu,
geta boðið fram.
„Íslam er lausnin“
Innan stjórnarandstöðunnar,
sem myndað hefur bandalag fyrir
kosningarnar nú, ber mest á
Múslímska bræðralaginu, ísl-
ömskum flokki, sem bannað hefur
verið að bjóða fram. „Íslam er
lausnin“ er slagorð flokksins, sem
berst fyrir því að Egyptaland
verði lýst íslamskt ríki. Flokks-
menn sinna ýmsum félagslegum
verkefnum, sem stjórnvöld
hundsa, og sýnast njóta umtals-
verðs „grasrótarfylgis“ af þeim
sökum.
Flokkurinn hefur verið gerður
útlægur úr stjórnmálum landsins
en fulltrúar hans fara hins vegar
fram sem „óháðir“ og gera þeir
sér vonir um að vinna allt að 50
þingsæti. Slík niðurstaða þætti
umtalsverð tíðindi í stjórnmálum
Egyptalands. Gera ýmsir ráð fyrir
að stjórnvöld hyggist ekki taka
slíka áhættu og muni því beita
brögðum.
Verði á hinn bóginn ekki gripið
til kosningasvika kunna kosning-
arnar nú að leiða í ljós raunveru-
legan styrk Múslímska bræðra-
lagsins. Þá telja ýmsir að gott
gengi „óháðra“ frambjóðenda, sem
raunar koma einnig úr flokki
Mubaraks, geti haft veruleg áhrif í
stjórnmálum landsins þ.e.a.s. fari
svo að menn þessir kasti ekki
hamnum og gangi til liðs við
flokka eftir kosningarnar.
Á þingi landsins sitja 444 menn.
Kosið var til 164 sæta í gær og
voru um 1.600 manns í framboði.
Önnur umferð kosninganna fer
síðan fram 20. þessa mánaðar og
hin síðasta 1. desember. Alls bjóða
um 5.000 manns sig fram í kosn-
ingum þessum. Á kjörskrá í gær
voru ellefu milljónir manna. Mub-
arak forseti hvatti landsmenn til
að nýta sér atkvæðisréttinn. Sagði
hann „þátttöku sona og dætra
þjóðarinnar“ afar mikilvæga og
vísaði til „góðrar“ kjörsóknar í
forsetakosningunum fyrr í ár en
hún kann að hafa náð 15%. Þá var
framboð (heldur lítt þekktra
manna) gegn Mubarak í fyrsta
skipti heimilað en fram til þessa
hafði þingið tilnefnt einn fram-
bjóðanda. Það kerfi fól í sér að
Mubarak varð jafnan fyrir valinu
en hann hefur farið með völdin í
landinu frá 1981. Kosningarnar
sigraði Mubarak með miklum yf-
irburðum og kom sú niðurstaða
engum á óvart en samhliða þeim
fór fram áður óþekkt umræða um
pólitískar umbætur í landinu.
Þingkosningarnar nú vekja því
ef til vill einkum athygli með tilliti
til langtímaþróunar á stjórn-
málasviðinu í Egyptalandi.
Stjórnarandstaðan í
sókn í Egyptalandi?
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
AP
MAKAREM el-Deiri (fyrir miðju) er eini kvenframbjóðandi Múslímska
bræðralagsins þótt formlega fari hún fram sem „óháður“ frambjóðandi þar
eð flokkurinn má ekki bjóða fram í kosningum í Egyptalandi. Múslímska
bræðralagið berst fyrir því að Egyptaland verði lýst íslamskt ríki og telur
að konum beri einkum að sinna heimili og fjölskyldu. Makarem er 55 ára
gömul og hefur doktorspróf í arabískum bókmentum. Með henni á mynd-
inni er Nehad Ahamed, kosningastjóri hennar.
Konur eru lítt áberandi í þingkosningunum í Egyptalandi. Eftir því sem
næst verður komist voru 36 konur í framboði í fyrstu umferðinni í gær en
frambjóðendur voru alls 1.635. Auk Makarem el-Deiri hefur borið einna
mest á stjórnmálafræðiprófessornum Makram Eibed, sem er kristin kopti,
og vel þekkt fyrir stjórnmálastörf í heimalandi sínu. Hún hefur m.a. verið
skipuð þingkona af forseta landsins en hefur oftlega skipt um flokka. Hálf
öld er nú liðin frá því að hin egypska Rawiyya Attiya var kjörin til setu á
þingi, fyrst kvenna í ríkjum Araba.
Eini kvenframbjóðandinn
Múslímska bræðralagið með „óháða“ frambjóðendur
New York. AP, AFP. | Demókratar
bættu við sig verulegu fylgi í ýms-
um kosningum, sem fram fóru í
Bandaríkjunum í fyrradag, en þá
voru meðal annars kjörnir ríkis-
stjórar í tveimur ríkjum, margir
borgarstjórar, dómarar og til ann-
arra embætta. Einna mesta athygli
vekur þó mikill ósigur Arnolds
Schwarzeneggers, ríkisstjóra í
Kaliforníu, en fjórar tillögur, sem
hann bar undir kjósendur í ríkinu,
voru allar felldar.
Demókratar héldu ríkisstjóra-
embættunum í New Jersey og
Virginíu með auknum meirihluta
en í báðum ríkjum einkenndist
kosningabaráttan af gífurlegum
fjáraustri og persónulegu níði. Sem
dæmi um það er nefnt, að Jerry
Kilgore, frambjóðandi repúblikana
í Virginíu, hélt því fram í sjón-
varpsauglýsingum, að Tim Kaine,
frambjóðandi demókrata og mikill
andstæðingur dauðarefsingar, hefði
ekki látið taka Adolf Hitler af lífi,
hefði hann einhverju um það ráðið.
Í New York var repúblikaninn
og auðjöfurinn Michael Bloomberg
endurkjörinn sem borgarstjóri en
sagt er, að hann hafi lagt fram 100
millj. dollara, rúmlega sex millj-
arða ísl. kr., til kosningabaráttunn-
ar.
Vantraust á Schwarzenegger
Í Kaliforníu beið Schwarzenegg-
er mikinn ósigur en margir litu á
atkvæðagreiðsluna sem stuðnings-
yfirlýsingu við hann sjálfan. Fyrir
tveimur árum var hann kjörinn rík-
isstjóri með miklum yfirburðum en
nú mælist stuðningur við hann
rúmlega 30%. Fór það líka fyrir
brjóstið á mörgum, að hann skyldi
halda tillögunum fjórum til streitu
með tilheyrandi kostnaði fyrir ríkið
þótt skoðanakannanir sýndu, að
þær yrðu felldar.
Mikilvægasta tillagan var að
setja þak á árleg útgjöld ríkisins
og opna fyrir niðurskurð á fjárlög-
unum á miðju kjörtímabili. Önnur
var sú, að vald til að breyta kjör-
dæmamörkum skyldi tekið frá
þinginu og fært í hendur nefndar,
sem skipuð yrði fyrrverandi dóm-
urum, og sú þriðja, að verkalýðs-
félög mættu ekki styrkja pólitíska
flokka nema að fengnu samþykki
félagsmanna. Var þessari tillögu
beinlínis beint gegn demókrötum,
sem njóta mikils fylgis í verkalýðs-
hreyfingunni.
Fjórða tillagan var um, að
reynslutími kennara, sá tími, sem
þarf að líða áður en þeir fá skipun,
yrði lengdur.
Allar voru tillögurnar felldar og
sumar með miklum mun.
Schwarzenegger reyndi að bera
sig vel þrátt fyrir niðurstöðuna en
kannanir sýna nú, að 55% kjósenda
ætla að hafna honum í ríkisstjóra-
kosningum á næsta ári.
Ólíkar túlkanir
Demókratar eru að sjálfsögðu
sigri hrósandi og Howard Dean,
formaður flokksins, sagði í gær, að
niðurstaðan endurspeglaði ónægj-
una með ríkisstjórn George W.
Bush forseta.
„Kjósendum líkar ekki valdníðsl-
an, þeim líkar ekki spillingin og
vilja beina þjóðinni inn á nýjar
brautir,“ sagði Dean en repúblik-
anar neita því, að lesa megi mikið
út úr kosningunum. Þeir viður-
kenna þó, að þeir eigi verk fyrir
höndum áður en kemur að kosn-
ingum á næsta ári en þá verður
kosið um fjölda þingmanna og 36
ríkisstjóra.
Skammbyssubann
í San Francisco
Kosið var um ýmislegt annað í
hinum ýmsu ríkjum og það líklega
merkilegast, að kjósendur í San
Francisco samþykktu að banna
skammbyssur í borginni. Var líka
samþykkt að hvetja stjórnendur
opinberra skóla til að banna skrán-
ingarstjórum hersins að koma þar.
Byssubannið þýðir, að óbreyttir
borgarar mega ekki vera með
skammbyssu á heimili sínu eða í
fyrirtækjum.
Demókratar sigruðu í
ríkisstjórakosningum
Schwarzenegger varð fyrir pólitísku áfalli í Kaliforníu
Reuters
Þessi kjósandi í Kaliforníu vandaði Arnold Schwarzenegger ekki kveðj-
urnar en „Tortímandinn“ nýtur ekki lengur sömu vinsælda og hann gerði
fyrir tveimur árum er hann var kjörinn ríkisstjóri með miklum mun.