Morgunblaðið - 10.11.2005, Síða 17

Morgunblaðið - 10.11.2005, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 17 ERLENT • Einstaklingsmiðað nám er skipulagt í ljósi námsgetu, áhuga og stöðu hvers nemanda. • Nemandinn setur sér sjálfur markmið í samvinnu við kennara og foreldra og velur sér námsleiðir. Menntasvið Stefán Jón Hafstein, formaður menntaráðs, og Gerður G. Óskarsdóttir, sviðsstjóri Menntasviðs Reykjavíkur- borgar, kynna hugmynda- fræðina á bak við einstaklingsmiðað nám og nýtt matstæki fyrir grunnskóla. Kynnt u þér skóla á nýr ri öld Opnir fundir fyrir skólafólk og foreldra í Breiðholtsskóla fimmtudag 10. nóv. kl. 20:00 Hvað er einstaklingsmiðað nám og hvernig er það metið?                                          !     "       #                  ! " #  $  !% &' (()  !"  $ %    ( ) *   +  ,  !   -( "(! . (    (  (  + "      #  ,, (  /( 0  (   ( 0                                              !       "            #      "          "  $    % &           Erlendum óeirða- seggjum vísað úr landi mestu óeirðum þar í landi frá stúd- entauppreisninni í maí 1968 væri að linna. Er þetta í fyrsta skipti í nær hálfan mánuð sem árásum fækkar frá nótt- inni áður í borgarhverfum þar sem óeirðir hafa geisað. Að sögn franska innanríkisráðuneytisins var kveikt í 617 bílum í landinu öllu í fyrrinótt, en yfir 1.100 nóttina áður. Lögreglan handsamaði um 300 manns í fyrrinótt og alls hafa yfir 1.800 verið handteknir frá því að óeirðirnar hófust. Skoðanakönnun, sem birt var í gær, bendir til þess að 73% Frakka styðji þá ákvörðun stjórnarinnar að grípa til neyðarlaga sem heimila út- göngubann á næturnar í hverfum þar sem óeirðir geisa. Um 12% aðspurðra sögðust hafa skilning á óeirðunum en aðeins eitt prósent kvaðst hafa samúð með óeirðaseggjunum. Stjórnin sagði að hægt yrði að beita lögunum á öllu Parísarsvæðinu ef þörf krefði en lögreglan sagði í gær að engin áform væru um útgöngubann í miðborginni. París. AFP. | Nicolas Sarkozy, innan- ríkisráðherra Frakklands, fyrirskip- aði í gær að óeirðaseggjum, sem ekki eru með franskan ríkisborgararétt, yrði vísað úr landi. Ráðherrann sagði að lögreglan hefði handtekið 120 útlendinga fyrir þátttöku í óeirðunum í Frakklandi. Þeim yrði öllum vísað úr landi, meðal annars nokkrum sem eru með dval- arleyfi. Verulega dró úr íkveikjum og árás- um á lögreglumenn í Frakklandi í fyrrinótt og vakti það vonir um að Monrovíu. AP, AFP. | Hagfræðing- urinn Ellen Johnson-Sirleaf virtist í gær vera að tryggja sér forseta- embættið í Líberíu en þegar búið var að telja á þriðjungi kjörstaða hafði hún mikið forskot á knatt- spyrnusnillinginn George Weah. Samkvæmt þessum fyrstu tölum var Sirleaf með 60,4% atkvæða en Weah 39,6%. Brást Weah við með því að lýsa því yfir, að mikil brögð hefðu verið í tafli og sakaði hann starfsmenn á kjörstöðum um að hafa fyllt kjörkassa með at- kvæðaseðlum merktum Sirleaf. Tóku stuðningsmenn hans undir það með því að hrópa „Enginn Weah, enginn friður“ en flestir vona, að í því hafi þó ekki falist nein hótun. Weah hélt því raunar líka fram að eftir fyrri umferð forsetakosn- inganna hefði verið beitt víðtæku kosningasvindli en Frances John- son Morris, yfirmaður landskjör- stjórnar, sagði, að í bæði skiptin hefðu ásakanirnar verið tilhæfu- lausar. Alan Doss, fulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Líberíu, sagði í gær, að kosningarnar hefðu farið vel fram og yrðu vonandi til að boða betri tíma fyrir íbúana í þessu stríðs- hrjáða landi. Fyrsti kvenforseti í Afríku? Sirleaf er hagfræðingur frá Har- vard í Bandaríkjunum og hefur meðal annars starfað fyrir Samein- uðu þjóðirnar. Störf hennar á veg- um fyrri ríkisstjórna í Líberíu þykja henni þó ekki til framdráttar en verði hún kjörin, verður hún jafnframt fyrsta konan til að gegna forsetaembætti í Afríku. Um 1,3 milljónir manna voru á kjörskrá en svo virðist sem kjör- sókn hafi verið minni í síðari um- ferðinni en þeirri fyrri. Þá fékk Weah 28% atkvæða en Sirleaf 20% en þá voru frambjóðendur alls 22. Sirleaf með gott for- skot á George Weah Ellen Johnson-Sirleaf

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.