Morgunblaðið - 10.11.2005, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF | NEYTENDUR
Bónus
Gildir 10. - 13. nóv. verð nú verð áður mælie. verð
Euroshopper snakk, 200 g.................... 98 0 490 kr. kg
Euroshopper tagliatelle, 500 g.............. 69 0 138 kr. kg
Frosið fiskfars ...................................... 399 499 399 kr. kg
Bónus hveiti ,2 kg ................................ 39 59 19 kr. kg
Sykur .................................................. 68 75 68 kr. kg
Smjörlíki, 500 g................................... 79 89 158 kr. kg
Thule léttbjór í gleri, 6*33 cl ................. 299 399 151 kr. ltr
Bónus lambalæri kryddað ..................... 899 998 899 kr. kg
KF frosin hangiframpartur m/ beini ........ 595 699 595 kr. kg
Frosin lambabógur ............................... 599 0 599 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 10. - 12. nóv. verð nú verð áður mælie. verð
Rækja 1kg (Merlo) ............................... 595 0 595 kr. kg
Nautahakk 1 flokkur............................. 798 1038 798 kr. kg
Bestu kaupin, 1/2 skrokkur .................. 598 798 598 kr. kg
Léttreyktur lambahryggur ...................... 1.298 1.703 1.298 kr. kg
Alí partý skinka.................................... 1.274 1.698 1.274 kr. kg
Lamba framhryggjafille úr kjötborði........ 1.898 2.698 1.898 kr. kg
Nauta roastbeef úr kjötborði ................. 1.598 1.998 1.598 kr. kg
Ora Tómatsósa, 1.020 g....................... 129 159 130 kr. kg
Egg meðalstór, 10 stk. í pakka .............. 228 285 228 kr. pk.
Skyr.is, 500 g, 7 teg............................. 159 189 159 kr. stk.
Hagkaup
Gildir 10. - 13. nóv. verð nú verð áður mælie. verð
Holta kjúklingalundir í magnpak. ........... 1.607 2.295 1.607 kr. kg
Lambahryggur Kjötborð ........................ 995 1.378 995 kr. kg
Lambasirlon Kjötborð ........................... 998 1.278 998 kr. kg
Lambakótilettur Kjötborð ...................... 1.195 1.398 1.195 kr. kg
Floridás Natural ávaxtasafi 1.8 ltr .......... 199 299 99 kr. ltr
Kjörís konfekt ísterta 12 manna ............ 999 1.499 999 kr. stk.
Krónan
Gildir 9. - 15. nóv. verð nú verð áður mælie. verð
Gourmet ungnautahakk........................ 899 1.365 899 kr. kg
Krónu þurrkryddað lambalæri................ 989 1.498 989 kr. kg
Goða kjötfars í poka nýtt/saltað ............ 452 646 452 kr. kg
Bautabúrs grísahnakki léttreyktur .......... 901 1502 901 kr. kg
Ali Medisterpylsa ................................. 357 649 357 kr. kg
Melónur Cantalópa .............................. 99 170 99 kr. kg
Kiwi .................................................... 119 170 119 kr. kg
Stjörnu kartöflusalat............................. 219 365 313 kr. kg
Dalhof swiss roll kökur, 4 teg. ............... 99 179 330 kr. kg
Persil þvottaefni, 5,4 kg........................ 989 1.198 183 kr. kg
Nóatún
Gildir 10. - 16. nóv. verð nú verð áður mælie. verð
Lambalæri krydduð .............................. 1298 1498 1298 kr. kg
Ungnauta T-beinsteik ........................... 2.990 3.198 2.990 kr. kg
Folaldahakk ........................................ 169 399 169 kr. kg
Folaldavöðvi innralæri .......................... 1.398 1.798 1.398 kr. kg
Bautab. folaldakj. reykt/saltað m.be ..... 389 599 389 kr. kg
Greip rautt/hvítt................................... 99 179 99 kr. kg
Cheerios tvöfaldur pakki, 1.050 g ......... 299 489 285 kr. kg
Egils Jólaöl, 0,5 ltr ............................... 99 119 198 kr. ltr
Spergilkál / brokkólí............................. 249 479 249 kr. kg
Dalhof hringkökur, 3 teg. ...................... 99 199 248 kr. kg
Samkaup/Úrval
Gildir 10. - 13. nóv. verð nú verð áður mælie. verð
Lambahamborgahryggur, Goði .............. 994 1529 994 kr. kg
Helgarlamb m/krydd f. ísl. Lamb. .......... 1.224 1.748 1.224 kr. kg
Folaldakjöt reykt, Borgarnes ................. 399 587 399 kr. kg
SS Lambalæri hálf úrbeinað ................. 1259 1798 1.259 kr. kg
Kalkúnaborgarar steiktir ....................... 979 1398 979 kr. kg
Vivana Ís 0,9L ..................................... 399 549 443 kr. kg
Vínber rauð ......................................... 199 389 199 kr. kg
Sveppir „Náttúra“, 250 g box ................ 99 213 396 kr. kg
Folaldakjöt á lækkuðu verði
HELGARTILBOÐIN| neytendur@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
É
g borða ekki mikið
heima og því hafa mín
innkaup þróast í þá
átt að ég versla yf-
irleitt í Krambúðinni
á Skólavörðustíg. Það er eiginlega
eina búðin sem ég versla í og mín
rök fyrir því eru að þegar maður er
einhleypur þá eldar maður minna,
er sjaldnar heima og enginn borðar
matinn nema maður sjálfur, því
skemmist hann bara,“ segir Helga
og bætir við að þótt matvara í
Krambúðinni sé aðeins dýrari en
annars staðar geri hún svo mikil
smáinnkaup að verðið skipti ekki
miklu máli. „Ég hef fengið gagn-
rýni á að ég sé ekki beint hagsýnn
námsmaður að versla alltaf í Kram-
búðinni og vissulega er ég það ekki
alltaf en annar innkaupamáti hent-
ar mér ekki. Ég tók mig á um dag-
inn og fór í Bónus og keypti þar
fullt af mat. Vikan á eftir fór svo
bara í það að stressa sig yfir að
klára matinn svo hann skemmdist
ekki. Í lok vikunnar endaði ég á því
að henda átján kjúklingavængjum
sem ég keypti á þessu þvílíka til-
boði því ég náði ekki að torga þeim,
hefði ég eldað þá hefði ég þurft að
borða eintóma kjúklingavængi
næstu dagana. Ég var búin að elda
fullt af því sem ég keypti í stór-
innkaupaferðinni og hafði ekki und-
an, tekið skal fram að ég er ekki
með frysti. Þá komst ég að því að
hagstæðustu innkaup mín geri ég í
Krambúðinni því þar kaupi ég
skynsamlega inn og í takt við minn
lífsstíl.“
Haldin valkvíða
Helga segir að það fáist allt í
Krambúðinni og ef það sé ekki til
þar þá þurfi hún ekki á því að
halda. „Ég er líka haldin ákveðnum
valkvíða og því er fínt að versla í
Krambúðinni, þar þarf ekki að
velja á milli margra tegunda af
hverri vöru.“
Helga verslar einu sinni til tvisv-
ar í viku til heimilisins í Krambúð-
inni en kaupir sér svo mat í skól-
anum, vinnunni og á kaffihúsum.
Hún reynir að passa upp á mat-
aræðið þótt hún eldi ekki ofan í sig
sjálf og segist ekki borða neitt
skyndibitafæði. „Það er alveg hægt
að vera í hollustunni þótt maður
geri ekki stórinnkaup,“ segir Helga
en að eigin sögn er ísskápurinn
heima hjá henni yfirleitt tómur.
„Ég elda ekki oft heima hjá mér
því það er ekkert gaman að borða
einn og ég hef lítinn tíma til að
elda. Þá sjaldan ég geri stór-
innkaup býð ég vinum og ætt-
ingjum í mat til þess að hjálpa mér
að klára heilu farmana af tilboðsk-
júklingum.“
Uppáhaldsmatur Helgu er ís-
lensk kjötsúpa, aðspurð segist hún
aldrei elda hana sjálf heldur láti
aðra um það. „Taílenskur matur er
líka í miklu uppáhaldi hjá mér og
sesarsalatið á Vegamótum.“
Eggaldinslasagna
Á bak við uppskriftina sem
Helga gefur okkur hér í lokin er
lítil saga. „Ég og ítölsk vinkona
mín vorum skiptinemar úti í
Frakklandi og eins og oft rétt fyrir
mánaðamót áttum við ekki neinn
pening fyrir mat. Þá dró hún fram:
eitt eggaldin
tómatsósu í niðursuðudós (hægt
að kaupa lasagnatómatsósu)
mozzarellaost
parmesanost
salt og pipar
Hún skar eggaldinið niður í
langsum sneiðar, saltaði þær og lét
þær svitna í svolítinn tíma. Steikti
síðan sneiðarnar á pönnu og bjó til
lasagna. Til þess notaði hún egg-
aldinið eins og lasagnaplötur, setti
svo tómatsósuna, mozzarella-
sneiðar, parmesanost, salt og pipar
á milli sem fyllingu og ost yfir. Svo
var þetta sett inn í ofn í u.þ.b. tutt-
ugu mínútur eða þangað til ost-
urinn var bráðnaður. Þetta er
mjög gott, tiltölulega einfalt og ein
ljúffengasta máltíð sem ég hef
fengið. Við urðum mjög saddar eft-
ir þetta og lifðum fram að mán-
aðamótum.“
MATARKARFA | Helga Arnardóttir verslar í Krambúðinni
Gerir ekki
stressandi
stórinnkaup
Morgunblaðið/Ásdís
Í lok vikunnar endaði Helga Arnardóttir á því að henda átján kjúklinga-
vængjum sem hún keypti á þessu þvílíka tilboði.
Helga Arnardóttir er fréttamaður á fréttastofu Út-
varps og nemi á lokaári í stjórnmálafræði við Há-
skóla Íslands. Hún hefur búið ein í miðbæ Reykja-
víkur síðustu fimm ár. Á þeim árum hefur reynslan
kennt henni að það borgar sig ekki að gera stór-
innkaup.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
JÁ, dótturfélag Símans, hefur tekið í
notkun nýja þjónustu þar sem sím-
notendur geta fengið upplýsingar
um símanúmer með SMS-skila-
boðum. Símnotendur sem vilja vita
hver á tiltekið símanúmer senda ein-
faldlega SMS-skilaboð með þessu
tiltekna númeri til 118 og nær sam-
stundis fá þeir SMS-skilaboð með
umbeðnum upplýsingum. Í SMS-
skilaboðunum frá 118 kemur fram
nafn þess sem skráður er fyrir núm-
erinu og heimilisfang.
Í fréttatilkynningu frá Já kemur
fram að þjónustan eigi eftir að koma
sér vel fyrir þá sem eru á ferðinni og
komast ekki í tölvusamband.
Gjald fyrir þessa þjónustu er 29
krónur fyrir hvert SMS-skilaboð.
NÝTT
Svara með
SMS-skila-
boðum
Ora kynnir tómatsósu
Ora hefur sett á
markað tómatsósu.
Forskriftin er klass-
ísk uppskrift frá
Bandaríkjunum og í
fréttatilkynningu frá
Ora kemur fram að
varan sé unnin í
nánu samstarfi við
gamalgróið banda-
rískt tómatsósu-
fyrirtæki.
Í vöruna eru
eingöngu notaðir
fullþroskaðir
tómatar, sem á
að tryggja betra
bragð og rétta
áferð. Ora-
tómatsósa er fá-
anleg í plast-
flöskum, annars vegar 680 g og hins
vegar 1020 g.
Íslenskir dagar í Fjarðarkaupum
Íslenskir dagar standa yfir í
Fjarðarkaupum til laugardagsins 12.
nóvember. Dagarnir eru hluti af
landsátaki Samtaka iðnaðarins og
fyrirtækja innan samtakanna undir
kjörorðinu Þitt val skiptir mál-
isemhófst í ágúst í fyrra. Á íslensk-
um dögum verður lögð áhersla á að
kynna nýjungar í íslenskri fram-
leiðslu og áhugaverða framsetningu
á vörum og þjónustu. Fjöldi vöru-
kynninga verður fyrir viðskiptavini.