Morgunblaðið - 10.11.2005, Síða 32
32 FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Árni Sighvats-son rafvéla-
virkjameistari og
söngkennari fæddist
í Ártúnum í Rangár-
vallahreppi í Rang-
árvallasýslu 26. maí
1929. Hann lést á
líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi
31. október síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Sighvatur
Andrésson, f. 14.
mars 1892 í Hemlu,
Vestur-Landeyja-
hreppi, Rangárvallasýslu, d. 6. júlí
1979, og Krístín Árnadóttir, f. 16.
feb. 1894 í Haga, Holtahreppi,
Rangárvallasýslu, d. 22. janúar
1975. Systkini Árna eru: Kristín f.
9. mars 1920, d. 13. nóv. 1921;
Hólmfríður, f. 21. apríl 1921, d. 21.
maí 1992; Andrés, f. 10. júlí 1923;
Steindór, f. 27. apríl 1925, d. 6.
mars 1998; Kristín, f. 26. ágúst
1926; Margrét, f. 23. maí 1930; Est-
er, f. 30. maí 1931, d. 15. nóvember
1987; og Bjarney, f. 28. október
1932.
Árni kvæntist 26. desember 1953
Guðrúnu Jónsdóttur, f. 27. ágúst
1928 í Mið-Meðalholtum, Gaul-
verjabæjarhreppi, Árnessýslu.
Foreldrar hennar voru Jón Þor-
varðarson frá Mið-Meðalholtum,
Gaulverjabæjarhreppi, og Vigdís
Helgadótttir frá Ósabakka, Skeiða-
hreppi, Árnessýslu. Börn Árna og
Guðrúnar eru: 1) Sighvatur Sævar,
f. 30. desember 1952, maki Þór-
halla Arnljótsdóttir, f. 6. janúar
1959. Börn þeirra eru Hrafnkell, f.
28. febrúar 1985, og Ásta Guðrún,
f. 9. mars 1992. 2) Ásta, f. 19. októ-
ber 1956, maki Gunnar Árni Óla-
son, f. 28. mars 1941. Sonur Ástu er
Árni Þór Jónsson, f.
23. maí 1974, maki
Rakel Þráinsdóttir, f.
21. maí 1983. Sonur
Árna Þórs er Andri
Már, f. 1. nóvember
1993. 3) Kristín, f. 3.
júní 1963; maki Hlyn-
ur Reimarsson, f. 19.
júní 1964. Börn
þeirra eru Birgitta
Rut Birgisdóttir, f.
29. október 1981, og
Ingi Rafn, f. 22. júlí
1988.
Árni ólst upp í Ár-
túnum í Rangárvallasýslu og síðar
á Ragnheiðarstöðum í Árnessýslu.
Hann lærði til rafvélavirkjunar í
Iðnskólanum í Reykjavík, stofnaði
rafvélaverkstæðið Raf árið 1958
og starfaði eftir það sjálfstætt við
góðan orðstír. Árni var í ýmsum
kórum yfir ævina, m.a. Þjóðleik-
húskórnum, Pólýfónkórnum, Dóm-
kirkjukórnum og Árnesingakórn-
um í Reykjavík. Einnig söng hann í
Íslensku óperunni. Hann sótti
einkatíma hjá Sigurði Demetz og
fleirum, og lauk á miðjum aldri 8.
stigs prófi frá Söngskólanum í
Reykjavík. Árið 1983 seldi Árni
verkstæðið, fór tvo vetur til Ítalíu í
söngnám, og vann eftir það sem
söngkennari við Tónlistarskólann í
Keflavík og víðar auk einka-
kennslu. Árið 2001 gaf Árni ásamt
Jóni Sigurðssyni píanóleikara út
geisladiskinn „Úr söngvasafni
Kaldalóns“. Árni málaði einnig og
hélt einkasýningar í Gerðubergi og
Þrastalundi. Árni hafði mikið yndi
af trjárækt í sumarbústaðalandi
þeirra hjóna í Grímsnesi.
Útför Árna fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.
Árni tengdapabbi hefur kvatt og
margt er að þakka. Það sem ein-
kenndi Árna fram á síðustu stundu
var sterkur vilji og þor til að takast á
við það sem þurfti til að láta
draumana rætast. Í vöggugjöf fékk
hann listrænt auga, eyra og hljóm-
fagra rödd. Aldarfar og aðstæður
gerðu að ekki lagði Árni beint á lista-
brautina. Hann nýtti þó þau tækifæri
sem gáfust í dagsins önn og ræktaði
hæfileikana. Á sextugsaldri lét hann
æskudrauminn rætast, seldi fyrir-
tækið og lagði land undir fót í söng-
nám á Ítalíu. Eins og endranær naut
hann til þess fulls stuðnings frá
tengdamömmu. Upp frá því hafði
hann atvinnu af söngkennslu. Upp úr
sjötugu gaf Árni út einsöngsdisk. Á
sama tíma var hann farinn að mála,
sér og öðrum til mikillar ánægju. Árni
hafði ekki síður trú á drauma annarra
og hvatti sína nánustu í hverju sem
þeir tóku sér fyrir hendur, var eðl-
islægt að sýna hrifningu og aðdáun og
hafði lag á að benda á björtu hliðarn-
ar.
Við kveðjum kæran tengdaföður
með þakklæti og munum gera okkar
besta til að halda jákvæðri sýn hans
lifandi áfram.
Ef inni er þröngt, tak hnakk þinn og hest
og hleyptu á burt undir loftsins þök.
Hýstu aldrei þinn harm. Það er best.
Að heiman, út, ef þú berst í vök.
Það finnst ekki mein, sem ei breytist og
bætist,
ei böl sem ei þaggast, ei lund sem ei kætist
við fjörgammsins stoltu og sterku tök.
Lát hann stökkva, svo draumar þíns hjarta
rætist.
(Einar Benediktsson.)
Gunnar, Hlynur og Þórhalla.
Afi var magnaður maður. Snilling-
ur í flestu því sem hann tók sér fyrir
hendur. Það var sama hvað var,
syngja, leika, mála, skera út eða trjá-
ræktin. Allt þetta stundaði hann af
þvílíkum áhuga og gleði að maður gat
ekki annað en smitast af, enda var út-
koman oft stórfengleg.
Hann var sannur listamaður.
Lífsglaðari mann er líka erfitt að
finna. Alltaf á fullu inni í skúr, úti í
garði, dytta að húsinu eða austur í bú-
stað. Og alltaf var hann brosandi að
því og sönglaði með.
Hann elskaði líka að ferðast. Sagði
mér oft sögur að því þegar hann var á
Ítalíu, þegar hann þvældist um í lest-
unum, gekk um þröngu göturnar og
kíkti á kaffihúsin, það fannst honum
geggjað.
En sumarbústaðurinn var samt
hans uppáhaldsstaður. Þar gat hann
dundað sér dögunum saman við að
hugsa um þær þúsundir trjáa sem
hann var búinn að gróðursetja og við
að setja fleiri niður. Alltaf var pláss
fyrir fleiri.
Já hann afi var magnaður.
En magnaðastur var hann samt i
hlutverki afans. Hann var mér svo
góður. Sundferðir á hverjum degi og
þá var sko minnsta málið að skella sér
í rennibrautina nokkrar ferðir, kom-
inn á sjötugsaldur. Á hverjum morgni
kom hann svo niður til að athuga
hvort ég væri ekki örugglega vöknuð
fyrir skóla og vinnu, og oftar en ekki
skutlaði hann mér.
Eða þar til ég fékk bílprófið, þá var
nú ekki mikið mál að gera upp gamla
bílinn sinn fyrir mig. „Einhverju
verður stelpan mín að keyra“.
Og allar stundirnar sem hann sat
með mér, hvort sem það var þegar
hann var að rembast við að kenna mér
hvað trén, fuglarnir og fjöllin hétu eða
bara hlusta á pælingar ungrar stúlku,
þá var gott að hafa afa.
Elsku afi minn. Takk fyrir allar
stundirnar sem við áttum, sérstak-
lega þá sem við áttum daginn áður en
þú kvaddir okkur. Hun er mér svo
dýrmæt núna.
Það er svo sárt að þurfa að kveðja
þig, en ég er full þakklætis að hafa átt
þig að. Þú átt svo stóran part í mér og
minni þroskagöngu, þú og amma.
Þú ert og verður alltaf í huga mín-
um og hjarta, elsku afi minn.
Þín
Birgitta.
Elsku afi.
Ég ætla að kveðja þig með þessum
orðum sem ég rakst á í dag og fannst
hjálpa mér svolítið.
Þeim mun dýpra sem sorgin
gefur sig í hjarta manns
þeim mun meiri gleði getur það rúmað.
…
Þegar þú ert sorgmæddur,
skoðaðu þá aftur huga þinn,
og þú munt sjá að þú grætur vegna þess,
sem var gleði þín.
(Úr Spámanninum e. Kahlil Gibran.)
Takk fyrir allt sem þú hefur gert
fyrir mig elsku afi minn.
Þinn
Ingi Rafn.
Elsku afi minn, ég á svo erfitt með
að skrifa einhver orð til að kveðja þig
með því að nokkrar línur geta aldrei
dugað til þess að sýna hversu ynd-
islegur og góður afi þú varst. Ég fékk
að sjá þig á verkstæðinu þínu, uppi á
sviði í Óperunni, vera með tónleika,
halda myndlistarsýningar, endur-
bæta heilu húsin og gróðursetja skóg
uppi í sumarbústað, þú virtist geta
gert allt og kunna allt og þú varst afi
minn. Ég sakna þín svo mikið en ég
veit að þú ert á betri stað núna og það
fyrsta sem ég hugsaði eftir að þú
varst farinn var að nú værir þú farinn
að syngja og mála aftur sem aldrei
fyrr.
Það voru forréttindi fyrir mig og
hann Andra minn að fá að alast upp
svo nálægt þér og ömmu og fyrir það
er ég svo þakklátur.
Kom, huggari, mig hugga þú,
kom, hönd, og bind um sárin,
kom, dögg, og svala sálu nú,
kom, sól, og þerra tárin,
kom, hjartans heilsulind,
kom, heilög fyrirmynd,
kom, ljós, og lýstu mér,
kom, líf, er ævin þver,
kom, eilífð, bak við árin.
(Vald. Briem.)
Árni Þór Jónsson.
Í rúmlega 40 ára sögu Tónlistar-
skólans í Keflavík störfuðu margir af
helstu söngkennurum þjóðarinnar við
skólann; sumir um skamman tíma og
aðrir lengur. Nær allir komu þessir
kennarar af höfuðborgarsvæðinu og
nýttust sönglífi á Suðurnesjum m.a.
með því að taka að sér raddþjálfun
einhvers þeirra kóra sem starfandi
voru á svæðinu á hverjum tíma, sam-
hliða söngkennslu við skólann. Árni
Sighvatsson var einn þessara kenn-
ara en hann starfaði við skólann í 13
ár, frá árinu 1986 til 1999, og kom að
raddþjálfun sönghópa og kóra á sama
tíma.
Ég hafði aðeins verið skólastjóri
Tónlistarskólans í Keflavík í eitt ár
ÁRNI
SIGHVATSSON
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
EINAR JÓHANNESSON
bóndi,
Jarðlangsstöðum
í Borgarbyggð,
lést á Sjúkrahúsi Akraness fimmtudaginn
3. nóvember.
Útförin fer fram frá Borgarneskirkju mánudaginn 14. nóvember kl. 14.00.
Sigríður Bárðardóttir,
Sigríður Bára Einarsdóttir,
Þuríður Einarsdóttir, Friðrik Alexandersson,
Kristín Einarsdóttir, Lárus Þ. Sigurðsson,
Fanney Einarsdóttir, Brynjólfur Brynjólfsson,
Jóhannes Guðmundur Einarsson, Kristína H. M. Elizondo,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
KRISTINN JÚLÍUSSON
bóndi á Leirá,
lést á Sjúkrahúsi Akraness föstudaginn
4. nóvember.
Útförin fer fram frá Leirárkirkju föstudaginn
11. nóvember kl. 14.00.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á Sjúkrahús Akraness.
Sigurást Indriðadóttir,
Hallfríður Kristinsdóttir, Björn Jónsson,
Björg Kristinsdóttir,
Júlíus Birgir Kristinsson, Svanhvít Aðalsteinsdóttir,
Hafdís Kristinsdóttir, Þór Ægisson,
Ásgeir Örn Kristinsson, Anna Leif Elídóttir,
Ragnheiður Kristinsdóttir, Óskar Helgi Guðjónsson,
Sigrún Gréta Magnúsdóttir, Jón Helgason
og afabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
HANNES BJÖRGVINSSON
frá Skriðustekk,
Ásvegi 23,
Breiðdalsvík,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað
laugardaginn 5. nóvember.
Jarðsett verður frá Heydalakirkju föstudaginn 11. nóvember kl. 14.00.
Kristín Skúladóttir,
börn, tengdabörn, afabörn og langafabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐLAUG MAGNÚSDÓTTIR ARNDAL,
Vitastíg 12,
Hafnarfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi föstudaginn
4. nóvember.
Útförin auglýst síðar.
Sigríður H. Arndal, Ægir Benediktsson,
Jónína H. Arndal, Þorsteinn Hjaltason,
Guðrún H. Arndal, Guðmundur Gunnarsson,
Magnús H. Arndal, Ingibjörg Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg systir mín,
HELGA KARITAS RÖGNVALDSDÓTTIR,
Sundstræti 25A,
Ísafirði,
sem andaðist á öldrunardeild Fjórðungssjúkrahú-
sins á Ísafirði laugardaginn 5. nóvember, verður
jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 12.
nóvember kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jenný Rögnvaldsdóttir.
Elskulegur eiginmaður minn, sonur, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SVERRIR STEINDÓRSSON,
Grundartjörn 14,
Selfossi,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn
12. nóvember kl. 11.00.
Sigríður Þóra Yngvadóttir,
Guðbjörg Pálsdóttir,
Guðbjörg Dóra Sverrisdóttir, Magnús Bergsson,
Steindór Sverrisson, Hjördís Ásgeirsdóttir,
Ríkharður Sverrisson, Valgerður Hansdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.