Morgunblaðið - 10.11.2005, Side 34

Morgunblaðið - 10.11.2005, Side 34
34 FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Atvinnuauglýsingar Heimilishjálp Lítil fjölskylda í vesturbæ Reykjavíkur óskar eftir aðstoð við almenn heimilisstöf, svo sem hrein- gerningar og frágang á þvotti. Góð laun í boði fyrir rétta manneskju. Umsóknir sendist til augld. Mbl eða á box@mbl.is, merktar: „H — 17864.“ Raðauglýsingar 569 1100 Fundir/Mannfagnaðir Heimsókn frá Panama Irasema og Rogelio Boswell syngja og tala á samkomum í Reykjavík og Kópavogi 11.-13. nóvember. Allir eru velkomnir. Fös. kl. 20 á Hjálpræðishernum, Kirkjustr. 2. Lau. kl. 16.30 og 20 í Veginum, Smiðjuv. 5. Sun. kl. 11 og 20 á Hjálpræðishernum. Félagsfundur/ Faggreinafundur Félagsfundur/Faggreinafundur verður haldinn í Félagi iðn- og tæknigreina í Borgartúni 30 fimmtudaginn 17. nóvember. Dagskrá: 1. Staða kjarasamninganna (Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur ASÍ). 2. Nýjustu tölur Kjararannsóknanefndar (Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur ASÍ). 3. Faggreinafundur. 4. Önnur mál. Stjórnin. Til sölu Eldhústæki í stóreldhús til sölu Electrolux steikaraofn með gufu, tekur 6 gastro- bakka. Gaseldavél með 4 hellum og ofni. Áleggshnífur. Diskastandur fyrir 100 diska og diskahitari. Nánari upplýsingar í síma 660 2435.Uppboð Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Hringbraut 110, 200-2464, Reykjavík, þingl. eig. Walter Helgi Jónsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og LM fiskur ehf., mánudaginn 14. nóvember 2005 kl. 14:00. Kárastígur 13, 200-6467, Reykjavík, þingl. eig. Guðný Björk Hauksdótt- ir, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., útibú 515, mánudaginn 14. nóv- ember 2005 kl. 14:30. Lindarbraut 4, 206-7549, Seltjarnarnes, þingl. eig. Kristín Ólafsdóttir og Karl Óskar Hjaltason, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Lífeyrissj. starfsm. rík. B-deild og Tollstjóraembættið, mánudaginn 14. nóvem- ber 2005 kl. 13:30. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 9. nóvember 2005. Félagslíf I.O.O.F. 11  18611108½  9.0*  Njörður 6005111019 III Hfj.  HELGAFELL 6005111019 VI Landsst. 6005111019 VII Í kvöld kl. 20.00 Bænastund í tilefni samkomu herferðar næstu daga. Sjá sér- auglýsingu. I.O.O.F. 5  18611108  ET1 Kk Fimmtudagur 10. nóv. 2005 Almenn samkoma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42. Predikun Halldór Lárusson. Mikill söngur og vitnisburðir. Allir velkomnir. www.samhjalp.is. Atvinnuauglýsingar sími 569 1100 Raðauglýsingar augl@mbl.is Bridsfélag Hafnarfjarðar Mánudaginn 7. nóv. lauk þriggja kvölda A. Hansen-tvímenningi. Friðþjófur og Guðbrandur skoruðu látlaust og settust í efsta sætið þegar 4 lotur voru eftir. Því sæti héldu þeir til enda og lokastaðan varð: Guðbr. Sigurbergss. – Friðþjófur Einarss. 98 Guðlaugur Bessason – Stefán Garðarson 93 Svala Pálsdóttir – Ólöf Þorsteinsdóttir 68 Björn Jónsson – Þórður Jónsson 62 Næsta keppni sem hefst mánudag- inn 14. nóv. er svo Aðalsveitakeppnin. Aðstoðað verður við myndun sveita. Einnig viljum við minna á hið veg- lega afmælismót BH laugardaginn 12. nóv. kl. 12. Spilað er í glæsilegum og rúmgóðum sal í Flatahrauni 3 (Hraunseli). Veitingasala. Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Þriðjudaginn 8. nóvember var spil- að á 14 borðum. Meðalskor 312. Úrslit urðu þessi í N/S Albert Þorsteinss. – Sigurður Hallgrímss. 387 Bragi Björnsson – Auðunn Guðmss. 377 Stígur Herlufsen – Sigurður Herlufsen 341 A/V Stefán Ólafsson – Kristján Þorláksson 386 Þorvarður Guðmss. – Jón Sævaldsson 358 Bragi V. Björnsson – Guðrún Gestsd. 341 Brids á Grand rokki Þátturinn hefir haft spurnir af harðsnúnu liði bridsspilara sem hefir efnt til spilamennsku í boði Grand rokks. Síðast var spilað sunnudaginn 6. nóvember og spiluðu 14 pör. Lúðvík Ólafsson og Sigurður Dag- bjartsson unnu N/S-riðilinn með skorina 224 og Björn Björnsson og Friðrik Indriðason A/V-riðilinn með 204. FEBK í Gjábakka Spilað var á 8 borðum sl. föstudag og urðu úrslitin þessi í N/S: Ólafur Ingvarss. – Ægir Ferdinandss. 202 Einar Einarss. – Magnús Halldórss. 199 Lárus Hermannss. – Ólafur Lárusson 184 A/V: Eysteinn Einarss. – Ragnar Björnss. 220 Karl Karlss. – Sigurður Steingrss. 196 Hrafnhildur Skúlad. – Þórður Jörundss. 165 Bridsdeild FEB í Reykjavík Tvímenningskeppni var spiluð í Ás- garði, Stangarhyl, mánud. 7.11. Spilað var á 11 borðum. Meðalskor 216 stig og besti árangur N–S: Björn Pétursson – Gísli Hafliðason 266 Júlíus Guðmss. – Rafn Kristjánsson 248 Oddur Halldórss. – Sæmundur Björnss. 231 Hannes Ingibergss. – Magnús Oddss. 231 Árangur A–V Jón Hallgrímsson – Helgi Hallgrímsson 272 Gunnar Jónsson – Guðbjörn Axelsson 261 Ægir Ferdinandss. – Jóhann Lútherss. 252 Bridsdeild Barðstrendinga og Bridsfélag kvenna Þriggja kvölda hraðsveitakeppni hófst hjá félaginu mánudaginn 7. nóv- ember og verður að segjast að þátt- takan er heldur dræm. Aðeins sjö sveitir skráðu sig í þessa skemmti- legu keppni þar sem jafnan hafa 10 eða fleiri sveitir verið með. Ákveðið hefur verið að leyfa sveitum að bæt- ast við á meðalskori á öðru kvöldinu, 14. nóvember, ef einhverjir hafa áhuga, enda byggist afkoma félagsins á því að einhverjir bætist við. Þeir sem vilja bætast við í þessa keppni eru beðnir að mæta tímanlega. Eftirtaldar sveitir náðu hæsta skorinu á fyrsta spilakvöldinu, með- alskor 540: Anna Guðlaug Nielsen 615 Barðstrendingar 571 Örvi 568 Séra Hermann 536 Gullsmárabrids Bridsdeild FEBK Gullsmára spil- aði tvímenning á 16 borðum fimmtu- daginn 3. nóvember. Miðlungur 264. Beztum árangri náðu í N-S: Eysteinn Einarsson – Jón Stefánsson 341 Tómas Sigurðsson – Þorsteinn Laufdal 324 Filip Höskuldsson – Páll Guðmundss. 307 A-V Karl Gunnarss. – Gunnar Sigurbjörnss. 323 Kristinn Guðmss. – Guðm. Magnússon 306 Jón Jóhannsson – Oddur Jónsson 293 Þá var spilað á 14 borðum mánu- daginn 7. nóvember. Miðlungur 265. Beztum árangri náðu í NS: Björn Björnsson - Oddur Jónsson 337 Róbert Sigmundsson - Ernst Backmann 295 Stefán Ólafsson - Sigtryggur Ellertsson 289 AV Kristinn Guðmss Stefán Friðbjarnars. 315 Leifur Jóhannesson - Ari Þóðarson 308 Sigurpáll Árnas.- Sigurður Gunnlaugss. 295 Spilað alla mánu- og fimmtudaga í Gullsmáranum. Nk. fimmtudag verð- ur sveitakeppni BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson FRÉTTIR HALDIN verður í dag ein, ef ekki allra, viðamesta kynning erlendra háskóla á námsframboði sínu á Ís- landi en hér eru staddir fulltrúar nítján háskóla frá Bandaríkjunum og Evrópu. Kynningin, sem fer fram í Menntaskólanum við Hamrahlíð, er fyrst og fremst fyrir þá sem stefna að grunnháskólanámi, þ.e. BS eða BA-gráðu. Skólarnir nítján eru af öllum gerð- um en fimmtán þeirra eru frá Bandaríkjunum en fjórir frá Evrópu, meðal þess sem er í boði er háskóli sem sérhæfir sig í öllu sem viðkemur flugi, hótel- og veitingaskóli og svo hefðbundnir skólar – eins mismun- andi og þeir eru margir. Kynningin hefst í hátíðarsal MH en einnig verða flutt erindi í þremur kennslustofum og því hægt að hlusta á mismunandi erindi eftir því hvar áhuginn liggur. Það eru „Council of International Schools“, samtök skóla um allan heim sem leggja áherslu á alþjóðleg samskipti, sem standa fyrir kynning- unni í samstarfi við IB-deild MH og Fulbright-stofnunarinnar. Kynningin er frá kl. 16 til 19:30. Viðamikil háskóla- kynning í MH í dag STÍGAMÓT standa fyrir svoköll-uðum hádegissmell í dag, fimmtu- dag. Fundurinn hefst í Norræna húsinu kl. 12. Fulltrúar stjórn- málaflokkanna segja frá því hvern- ig þeir vilja að borgaryfirvöld komi að kynbundnu ofbeldi og hver stefna þeirra sé í málaflokknum. Frummælendur eru Stefán Jó- hann Stefánsson fyrir Samfylk- inguna, Marsibil Sæmundsdóttir fyrir Framsóknarflokkinn, Sóley Tómasdóttir fyrir Vinstri hreyf- inguna – grænt framboð og Jórunn Frímannsdóttir fyrir Sjálfstæð- isflokkurinn. Frjálslyndir sáu sér ekki fært að senda fulltrúa. Fundur um kyn- bundið ofbeldi BJÖRN S. Lárusson, samskipta- stjóri Bechtel, óskar eftir að koma á framfæri leiðréttingu vegna fréttar í blaðinu um pólska starfsmenn starfsmannaleigunn- ar 2 B frá 8. nóvember sl. Þar sagði Jón Ingi Kristjánsson, for- maður AFLS, starfsgreinafélags að fimm Pólverjum hefði verið komið í vinnu hjá Bechtel á Reyðarfirði á vegum verkalýðs- félaganna. Björn segir þetta ekki rétt. Ákveðið hafi verið að ráða þá ekki, en þeir geti sótt um starf hjá Bechtel eins og aðrir í gegn um skrifstofu fyrirtækisins í Krakow í Póllandi. „Við viljum alls ekki vera bendlaðir við starfsmannaleigur eða neitt þeim tengt. Við erum Athugasemd frá samskiptastjóra Bechtel Pólverjarnir geta sótt um vinnu hjá Bechtel eins og aðrir eitt af örfáum fyrirtækjum sem ráða beint á launaskrá hjá okkur. Þetta er gert í góðu samráði við verkalýðsfélög, Vinnumálastofn- un og útlendingaeftirlit. Okkur er mjög í mun að það sé ekki ver- ið að minnast á okkur í sömu andrá og þessi fyrirtæki þar sem við höfum aldrei haft neitt saman að sælda við þau,“ segir Björn. STJÓRN Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hefur samþykkt ályktun þar sem segir að mjög brýnt sé að flugvöllur innanlandsflugs á höfuðborgarsvæðinu verði áfram í Vatnsmýrinni. „Stjórnin undirstrik- ar þá nauðsyn að umræður og ákvarðanir um staðsetningu flug- vallar fyrir innanlandsflug í höfuð- borg Íslands verði á landsvísu þar sem um gríðarlega þjónustu og ör- yggishagsmuni er að ræða fyrir alla landsmenn,“ segir m.a. í ályktuninni. Undirstrikar stjórnin mikilvægi greiðra samgangna landsbyggðar- fólks við höfuðborgina og er í því samhengi bent á að tími og fjarlægð- ir skipti höfuðmáli þegar kemur að alvarlegum veikindum, slysum og hvers konar hamförum. „Að færa innanlandsflugið út fyrir höfuðborgina mun enn auka á þann samskipta- og þjónustuójöfnuð sem íbúar landsbyggðarinnar búa við. Stjórn SSNV vill því með bókun þessari ítreka mikilvægi þess að inn- anlandsflug verði áfram í Vatnsmýr- inni og áréttar að um hagsmunamál landsbyggðarinnar er að ræða ekki síður en Reykvíkinga og ber að ræða málið og taka ákvarðanir í því ljósi, “ segir í ályktun stjórnar SSNV. Telja brýnt að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.