Morgunblaðið - 10.11.2005, Síða 36

Morgunblaðið - 10.11.2005, Síða 36
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn EKKI DAÐRA VIÐ PIRRAÐA KASSADÖMU HÚN VIRÐIST SAMT HAFA GEFIÐ ÞÉR TVO POKA HÉR KEM ÉG! KOSTNAÐUR VIÐ MENNTUN HÆKKAR... VONANDI KEMST ÉG INN Á ÍÞRÓTTA- STYRK ÉG HÉLT AÐ HÚN VÆRI EKKI AÐ HLUSTA ÞAÐ ER ORÐIÐ DÝRARA AÐ FARA Í HÁSKÓLA ÉG VEIT AÐ LÚÐVÍK ER SÁ EINI RÉTTI FYRIR MIG HVERNIG VEISTU ÞAÐ? VIÐ HUGSUM BÆÐI BARA UM EITT HVAÐ ER ÞAÐ? MIG SÆLL, ÉG HEITI BARÐI OG MUN KENNA ÞÉR AÐ VERJA ÞIG BYRJAÐU Á ÞVÍ AÐ TAKA ÞÉR VARNARSTÖÐU ÞAÐ VAR EKKI ÉG! ÉG BORÐAÐI EKKI BAUNIR Í HÁDEGINU! ÞÚ MISSKILDIR MIG, EN EF ÞÚ VILDIR VINSAMLEGAST FÆRA ÞIG AFTUR UM NOKKRA METRA ÉG VAR AÐ TALA VIÐ SYSTUR MÍNA Í ALASKA UM PABBA OG SKERTA AKSTURSHÆFNI HANS HVAÐ SAGÐI HÚN? ALLT GOTT. ÉG VILDI SAMT AÐ HÚN BYGGI NÆR OKKUR ÞVÍ ÞÚ SAKNAR HENNAR? NEI, SVO EINHVER ANNAR EN ÉG GÆTI SKUTLAÐ PABBA FRAM OG TIL BAKA MORÐINGJAR DRÁPU FJÖLSKYLDUNA MÍNA EF ÉG DREP ÞIG ÞÁ ER ÉG ENGU BETRI EN ÞEIR ÞETTA ER HÆTTAN VIÐ AÐ TAKA LÖGIN Í SÍNAR HENDUR HÆGT OG RÓLEGA GETURÐU ORÐIÐ EINS OG ÞEIR Dagbók Í dag er fimmtudagur 10. nóvember, 314. dagur ársins 2005 Kunningi Víkverjahafði aldrei heyrt um hin virtu bók- menntaverðlaun Gullna rýtinginn sem Arnaldur Indriðason hlaut í vikunni. Allir þekkja verðlaun á borð við bókmennta- verðlaun Norð- urlandaráðs og Nób- elsverðlaunin en þessi rýtingur, hvað er nú það? Enda spurði kunninginn þegar honum var sagt að Arnaldur hefði fengið rýtinginn hvar hann hefði fengið vopnið í sig og hvort árásarmaðurinn hefði náðst. Nýjasta bók Arnaldar heitir Vetr- arborgin og Víkverji ætlar að lesa hana um jólin og vonandi fyrr. Enn í dag man Víkverji þegar hann tók sér Mýrina í hönd í árslok 2000 rétt áður en Arnaldur varð frægur. Vík- verji var fullur efasemda um að ís- lensk glæpasaga gæti eitthvað skemmt honum en eftir tvær blað- síður lá hann sem límdur við bókina. „Þetta er allt ein helvítis Norð- urmýri,“ rifjar Víkverji oft upp þeg- ar hann ekur um Norðurmýrina. Í sumar las hann Röddina og fannst ágæt. Enn eru þó ólesnar fyrri bækurnar, þ.e. þær sem komu út á undan Mýrinni. Úr því verður bætt hið bráð- asta. x x x Einnig ætlar Vík-verji að lesa sögu Telmu Ásdísardóttur og endurskoða um leið hugmyndir sínar um hvort íslenska þjóðin sé eins friðsöm og oft er talað um. Er það til marks um friðsemi að 17% barna verði fyrir kynferðisofbeldi fyrir 18 ára aldur? Þetta er ekki lítil, frið- söm þjóð í litlu landi. Sjálft landið er stærra en mörg önnur lönd heimsins þótt þjóðin sé fámenn. En friðsama vill Víkverji ekki kalla hana. Þótt ekki sé her og herskylda á Íslandi og landið vopnlaust er ekki þar með sagt að þjóðin sé friðsöm. Og já, vopnum viðvíkjandi. Íslend- ingar eru óðir í vopn. Rifflar og haglabyssur eru ótrúlega víða og þar að auki er alltaf verið að reyna smygla inn loftskammbyssum. Þó er ekki mikið um að landinn noti skotvopn hver gegn öðrum en hnífa- brjálæðið í landinu er efni í annan pistil fljótlega. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is      Myndlist | Opnuð verður á laugardaginn sýning með verkum Sossu Björns- dóttur í Galleri Sct Gertrud, í Hyskenstræde 9, Kaupmannahöfn. Segja má að um ákveðin tímamót séu að ræða því samstarf þeirra Kurt Svendsen hjá Sct Gertrud og Sossu byrjaði fyrir réttum tíu árum, en hún hefur sýnt þar á hverju ári frá 1995. Sýningin í Hyskenstræde verður opnuð kl. 12 á laugardaginn og verður opin til 3. desember. Verkin sem Sossa sýnir að þessu sinni eru öll unnin í Kaupmannahöfn á þessu ári, þar sem hún hefur verið með vinnustofu. Sossa í Kaupmannahöfn MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: En það er hið eilífa líf að þekkja þig, hinn eina sanna Guð, og þann sem þú sendir, Jesú Krist. (Jh. 17, 3.)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.