Morgunblaðið - 10.11.2005, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 37
DAGBÓK
Skólaþing er haldið í Garðabæ í dag. PállJóhann Hilmarsson er formaður skóla-nefndar Garðabæjar: „Markmið okkarmeð skólaþinginu er að vinna áfram að
endurskoðun skólastefnu Garðabæjar, en hún
nær yfir leikskólann, grunnskólann og tónlistar-
skólann. Við viljum móta stefnuna til ársins 2009
og skipaði bæjarstjórnin nýverið stýrihóp sem
falið hefur verið að leiða þessa vinnu. Stýrihóp-
urinn valdi þá leið að efna til íbúaþings svo að
viðhorf og skoðanir bæjarbúa fái að koma fram.“
Páll segir öflugt skólastarf eina af forsendum
velferðar barna: „Öll eigum við það sameiginlegt
að vilja hag barna okkar sem mestan og skóla-
yfirvöldum er ljóst mikilvægi þess að virkja
íbúana og foreldrana, jafnt sem starfsmenn skól-
anna, til að koma að þessari vinnu, þannig að við
fáum góða stefnu sem endurspeglar viðhorf íbú-
anna og framtíðarsjónarmið.“
„Fyrirséð er að nám til stúdentsprófs mun
styttast og þá aðallega á framhaldsskólastigi. Þar
með mun vægi grunnskólanámsins aukast og því
mikilvægt að vel verði hugað að því,“ segir Páll
og bætir við að margt hafi áunnist með núver-
andi skólastefnu: „Skólarnir okkar eru vinsælir,
eftirsóttir af foreldrum jafnt sem kennurum – en
hvergi má finna hærra hlutfall menntaðra grunn-
skólakennara en í skólum Garðabæjar. Nýleg
könnun leiddi sömuleiðis í ljós að foreldrar í
Garðabæ eru almennt mjög ánægðir með starf
skólanna.“
Sem dæmi um atriði sem Garðabær getur
hreykt sér af nefnir Páll það valfrelsi sem for-
eldrar hafa um í hvaða skóla þeir senda börn sín:
„Engir hverfamúrar stýra vali fólks og við látum
raunhæft fjármagn fylgja hverju barni sem kýs
að fara í einkarekna skóla innan sem utan sveit-
arfélagsins. Því þarf ekki að innheimta skóla-
gjöld af börnum sem koma úr Garðabæ. Fjár-
magnið tryggir að raunverulegt jafnrétti ríkir til
náms fyrir öll börn í Garðabæ.“
Á fundinum gefst þátttakendum færi á að
koma hugmyndum sínum á framfæri á óform-
legan og auðveldan hátt. Þá verða myndaðir fjór-
ir smærri umræðuhópar, hver fyrir sitt svið: leik-
skóla, grunnskóla, tónlistarskóla og loks
samstarf og samþættingu. „Okkur er mjög í mun
að efla samstarf og samþættingu allra þessara
liða, sem og tengslin við íþrótta- og æskulýðs-
félögin, og huga að samfellunni í skólastarfinu,“
segir Páll.
Að skólaþinginu loknu gefst áhugasömum
kostur á að skrá sig til frekari þátttöku í vinnu
tengdri hverjum þætti.
Skólaþingið er haldið í Flataskóla og mun
standa frá kl. 19.30 til 22.
Menntamál | Skólaþing fyrir íbúa Garðabæjar haldið í Flataskóla í kvöld
Skólastefna Garðabæjar mótuð
Páll Hilmarsson er
bæjarfulltrúi og for-
maður skólanefndar í
Garðabæ. Hann útskrif-
aðist sem viðskipta-
fræðingur frá Háskól-
anum í Reykjavík árið
1987.
Páll starfar sem fram-
kvæmdastjóri mark-
aðssviðs hjá Innnesi
ehf. og þar á undan sem
framkvæmdastjóri
heildverslunarinnar Þórður Sveinsson & co.
en hún sameinaðist Innnesi árið 2001. Páll
situr í stjórn Sorpu og sem varamaður í stjórn
Strætó bs.
Páll er kvæntur og á tvö börn.
Úrslitaleikurinn.
Norður
♠K86
♥KD S/Allir
♦D6432
♣DG7
Vestur Austur
♠ÁD1092 ♠3
♥G9753 ♥Á10842
♦75 ♦KG9
♣2 ♣8643
Suður
♠G754
♥6
♦Á108
♣ÁK1095
Fyrsta tveggja stafa sveiflan í síð-
ustu lotu úrslitaleiksins á HM datt í
dálk Ítala. NS eiga 25 punkta sín á
milli og því er ekki óeðlilegt að enda í
þremur gröndum. Sá samningur er þó
vonlaus með hjartaútspili, svo Fantoni
og Nunes gerðu vel í því að stansa í
bút:
Vestur Norður Austur Suður
Soloway Fantoni Hamman Nunes
-- -- -- 2 lauf
Pass 2 tíglar * Pass 2 spaðar
Pass 3 lauf Pass Pass
Pass
Eftir eins konar Precision-opnun á
tveimur laufum hlerar Fantoni með
tveimur tíglum og gefur svo geim-
áskorun með þremur laufum í kjölfar-
ið. Sem Nunes hafnar, auðvitað, enda
með lágmarksopnun. Útspilið var tígull
og Nunes var fljótur að innbyrða níu
slagi: 110 í NS.
Góð afgreiðsla, en Lauria og Versace
gerðu enn betur á hinu borðinu:
Vestur Norður Austur Suður
Versace Meckstroth Lauria Rodwell
-- -- -- 1 tígull
2 tíglar * 2 hjörtu * 4 hjörtu Pass
Pass Pass
Versace kom hálitunum í spilið með
því að melda ofan í tígulopnun Rod-
wells og Lauria stökk í fjögur hjörtu.
Meckstroth stillti sig um að dobla,
þrátt fyrir 13 punkta á móti opnun
makkers. Það reyndist viturlegt, því
vörnin fékk aðeins þrjá slagi. Rodwell
spilaði út laufás og lagði síðan niður
tígulásinn. Lauria þurfti þá ekki að
hitta í litinn og gaf aðeins einn slag í
viðbót á tromp: 620 í AV og 12 stig til
Ítala.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Um sölu á
Heilsuverndarstöðinni
ÉG sá auglýsingu í Morgunblaðinu
sunnudaginn 6. nóvember um sölu á
Heilsuverndarstöðinni.
Hvað er í gangi hjá borginni og
ríkinu? Það á ekki að selja Heilsu-
verndarstöðina, hún á að vera nýtt
fyrir okkur fólkið í landinu eins og
hún var. Það vantar pláss fyrir
minnisveikt fólk, fyrir gamla fólkið,
fyrir hvíldarinnlögn, mæðraskoðun,
ungbarnaeftirlit o.fl. Húsið er kjörið
í það og nægt er plássið.
Nú finnst mér að ráðamenn þjóð-
arinnar eigi að taka til hendinni og
stoppa þessa vitleysu. Það er verið
að tala um það að byggja og byggja.
Af hverju ekki að nýta þetta fallega
hús fyrir okkur í landinu? Það er
komið nóg af mistökum hjá R-
listanum. Takið til hendinni. Eru
ekki kosningar á næsta ári?
E.D.
Blá ökuljós
ÞAÐ er alveg hræðilega vont að
mæta bílum með halógenljósum (blá
ljós). Við höfum rætt þetta fjöl-
skyldan og vinir, bæði ungir sem
gamlir, og erum sammála því að
þessi ljós séu slæm því að eftir að
maður mætir bíl með þessum ljósum
þá blindast maður í augnablik. Það
hlýtur að vera slæmt fyrir augun.
Ég skil ekki af hverju það er leyft að
nota svona ljós því ég álít þau skað-
leg.
Guðbjörg.
Hvítur gári týndur
í Hafnarfirði
HVÍTUR gári týndist sl. sunnudag í
norðurbæ Hafnarfjarðar. Hann er
með bláan depil á bakinu og ekki
mjög spakur. Þeir sem hafa séð
hann eða náð honum vinsamlegast
hringið í síma 565 4675 eða 822 7473.
Morgunblaðið/Golli
Hlutavelta | Þær Karitas Marý
Bjarnadóttir og Laufey Jörgensdóttir
færðu Kópavogsdeild Rauða krossins
2.267 kr. sem þær söfnuðu með því að
halda tombólu fyrir utan Nettó í Sala-
hverfi. Upphæðin mun að venju renna
til styrktar börnum í neyð í gegnum
verkefni Rauða krossins erlendis.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
SÖLUSÝNING á hringum verður
opnuð í anddyri Norræna hússins í
dag. Á sýningunni sýna 40 hönnuðir
frá Noregi, Svíþjóð og Danmörku
með ólíkar útfærslur á hringaform-
inu.
Efniviðurinn er af ýmsum toga,
allt frá eðalmálmum, gulli og silfri í
silíkon, glerperlur, gúmmí, fílabein
og skinn. Hugmyndaflugið virðist
endalaust og útkoman er æv-
intýraleg á köflum, segir í kynningu.
Sýningin hefur ferðast á milli
safna í Noregi frá október 2004. 250
hringar eru til sýnis og geta áhuga-
samir sýningargestir mátað og
keypt hringa sem þeir hrífast af.
Sýningin er opin frá 9–17 alla daga
og stendur til 18. desember.
Hringasýning
í Norræna húsinu
!"#
#
!$# #
!" #! $ %& ' $ !" #! $ ((( & $ %
Traustur kaupandi óskar eftir raðhúsi við Boðahlein.
Staðgreiðsla í boði.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali.
RAÐHÚS VIÐ BOÐAHLEIN
ÓSKAST
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
VETRARSTARF Skálholtskórsins
er nú komið á fullt skrið og mörg
verkefni framundan. Í september
og október tók kórinn þátt í ára-
mótakveðju Ríkissjónvarpsins
ásamt fleiri kórum á Suðurlandi.
Upptökur fóru fram í Hveragerð-
iskirkju, en myndatökur voru í fjör-
unni á Stokkseyri og við Húsið á
Eyrarbakka.
Nú er verið að æfa fyrir upp-
tökur á nýjum geisladiski sem tek-
inn verður upp í Skálholtskirkju og
styrkir Skálholtsstaður útgáfuna. Á
diskinum verða sálmar og önnur
kirkjuleg tónlist, ýmist með eða án
orgelundirleiks. Útgáfudagur verð-
ur undir vorið 2006.
Aðventutónleikar kórsins verða
haldnir laugardaginn 10. desember
nk. kl. 17 og aftur kl. 20 í Skálholts-
dómkirkju. Einsöngvarar verða
Sigrún Hjálmtýsdóttir og Páll Ósk-
ar Hjálmtýsson ásamt hörpuleik-
aranum Monicu Abendroth og einn-
ig syngur Barna- og kammerkór
Biskupstungna með á tónleikunum.
Sú hefð hefur myndast undanfarin
ár að frumflytja nýtt jólalag eftir
tónskáld af heimaslóðum og verður
í þetta sinn frumflutt lag eftir
Hreiðar Inga Þorsteinsson úr
Laugarási.
Á næsta ári eru liðin 950 ár frá
stofnun biskupsstóls í Skálholti, 50
ár frá endurreisn Skálholtsstaðar
og 400 ár frá fæðingu Brynjólfs
biskups Sveinssonar í Skálholti.
Eitt af því sem á döfinni þá er flutn-
ingur á Brynjólfsmessu eftir Gunn-
ar Þórðarson á vormisseri 2006 og
eru æfingar hafnar.
Margt á döfinni hjá
Skálholtskórnum