Morgunblaðið - 15.11.2005, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
RÍFLEGA 8.000 gestir hafa sótt sýn-
ingarnar Tími Romanov-ættarinnar í
Rússlandi og Rússneskir íkonar á Ís-
landi, sem opnaðar voru 15. október í
Gerðarsafni í tilefni Rússneskrar
menningarhátíðar í Kópavogi, að
sögn Guðbjargar Kristjánsdóttur for-
stöðumanns safnsins. Á sýningunum
eru um 200 gripir í eigu Rík-
isminjasafnsins Tsarskoje Selo í Rúss-
landi auk íkona frá ýmsum tímum í
eigu Íslendinga og Rússa.
Romanov-keisaraættin ríkti í Rúss-
landi í meira en þrjár aldir eða allt til
byltingarársins 1917 og safnaði á
þeim tíma miklum fjölda listaverka. Á
sýningunni eru valdir gripir ætt-
arinnar og fjöldi gripa sem tengjast
síðasta keisara Rússlands, Nikulási
öðrum.
Sýningarnar eru opnar alla daga
nema mánudaga frá kl. 11–17 og
standa til 4. desember.
Morgunblaðið/Sverrir
Gestir skoða sýninguna í Gerðarsafni.
8.000 manns
hafa séð
rússnesku
sýningarnar
ÞAÐ styttist í aðventuna, þegar
músík hljómar úr hverju skúma-
skoti alla daga. Í Vesturbænum
verður tekið
forskot á sæl-
una, því þar
verður nú, ann-
að árið í röð,
efnt til sér-
stakrar listahá-
tíðar, eða að-
ventuinngangs
sem hefst í dag,
og lýkur laug-
ardaginn 3. des-
ember. Hátíðin ber heitið Tónað
inn í aðventuna, og heimili hennar
er í Neskirkju, en það er organist-
inn þar, Steingrímur Þórhallsson
sem skipuleggur herlegheitin og
er listrænn stjórnandi. „Vest-
urbærinn hefur aldrei átt sína
listahátíð. Það hafa verið Tónlist-
ardagar í Dómkirkjunni, og
Kirkjulistahátíð í Hallgríms-
kirkju, og draumurinn hjá mér
var að Vesturbærinn eignaðist
sína eigin litlu listahátíð,“ segir
Steingrímur. Á hátíðinni í ár
verða sex tónleikar með tónlist frá
ýmsum tímum og af ýmsum teg-
undum. „Það er bara tónlist á há-
tíðinni núna, og það helgast ein-
faldlega af því að ég er
tónlistarmaður, get hvorki leikið
né teiknað beint strik. Hátíðin
mótast talsvert af því sem ég er að
gera í mínu starfi. Þetta þróast
smátt og smátt, og við erum enn
að vinna í því að verða okkur út
um peninga í verkefnið. Á næsta
ári ætlum við að hafa myndlistina
með, og þar næsta ár verður leik-
listinni bætt við.“ Steingrímur
segir að þessi árstími sé góður
fyrir listahátíð, – það sé aðeins
farið að dimma, og jólastressið
ekki hafið. Fólk ætti því að hafa
góðan tíma til að sækja list-
viðburði. „Með hátíðinni viljum
við líka kynna kirkjuna sem mið-
stöð lista í hverfinu. Kirkjan hefur
staðið vel á bak við hugmyndina
og þetta er partur af safn-
aðarstarfinu.“ Steingrímur kveðst
hafa horft upp til „stóru kallanna“
Marteins H. Friðrikssonar í Dóm-
kirkjunni og Harðar Áskelssonar
í Hallgrímskirkju. „Þeir hafa
haldið svona hátíðir og hvers
vegna ætti maður ekki að reyna
sjálfur?“
„Listin fyrir fólkið“
„Listin fyrir fólkið“ eru orð sem
Steingrímur notar um dagskrá
hátíðarinnar, og á við að hún verði
fjölbreytt, – ekki bara háklassísk.
Á dagskránni eigi að vera við-
burðir sem séu aðgengilegir fyrir
allan almenning. „Dagskráin á að
endurspegla stefnu kirkjunnar, –
hún er opin öllum.“
Hátíðin hefst í kvöld kl. 20, með
tónleikum sem bera yfirskriftina:
Hin heilaga þrenning, en á tón-
leikunum verður flutt samnefnd
óratoría eftir Alessandro Scar-
latti. Verkið er samið fyrir ein-
söngvara og barokkstrengi. Það
Rinacente hópurinn sem syngur,
en hann skipa: Marta Halldórs-
dóttir, sópran, Hallveig Rúnars-
dóttir, sópran, Jóhanna Halldórs-
dóttir alt, Hrólfur Sæmundsson,
bariton og Ólafur Rúnarsson ten-
ór. Steingrímur leiðir sjálfur frá
orgelinu litla kammersveit, en í
henni eru auk hans, Hildigunnur
Halldórsdótttir, Martin Frewer,
Sarah Buckley, Sigurður Hall-
dórsson og Örnólfur Kristjánsson.
Steingrímur segir flutning órat-
oríunnar stærsta viðburð hátíð-
arinnar. „Við fluttum hluta órat-
oríunnar í maí, en hún heyrist afar
sjaldan. Það eru reyndar til ein
eða tvær upptökur af henni, og
varla hægt að fá nótur að henni.
Ég fékk afrit af handriti tón-
skáldsins sent frá Mílanó og vinn
uppúr því. Þetta er æðisleg músík
og þess vegna langaði okkur að
flytja þetta aftur í heild sinni.“
Sunnudaginn 20. nóvember
verður orgelið í aðalhlutverki, á
tónleikum sem hefjast kl. 17. Þar
leikur Steingrímur verk eftir
Bach, þar á meðal Vivaldi konsert
sem Bach umskrifaði, og tokkötur
eftir ítalska meistarann Girolamo
Frescobaldi. Báðir voru Bach og
Frescobaldi miklir orgelsnill-
ingar. Heimildir herma að Bach
hafi orðið fyrir miklum áhrifum af
verkum Frescobaldis og því
spennandi að hlýða á verk þeirra
leikin á sömu tónleikum. Þriðju-
daginn 22. nóvember kl. 20 verða
afar sérstakir tónleikar, en þá
verða leidd saman hjónin Ellen
Kristjánsdóttir og Eyþór Gunn-
arsson og tengdasonur þeirra,
Þorsteinn Einarsson, betur
þekktur sem Steini söngvari í
Hjálmum. „Það verður kerta-
ljósastemmning yfir þessum tón-
leikum, – þau djamma saman, Ell-
en syngur vafalítið sálma, og svo
syngur Steini sjálfsagt eitthvað af
sínum lögum.“
Hlý stemning
Frönsk, hlý og rómantísk
stemmning verður ríkjandi
sunnudaginn 27. nóvember kl. 17
á tónleikum Duo Giocoso, en það
skipa þær Pamela de Sensi þver-
flautuleikari og eiginkona og sam-
starfskona Steingríms við hátíð-
ina, og Sophie Marie Schoojans
hörpuleikari. Þær leika verk eftir
franska meistara á borð við Ibert
og André. Báðar hafa þær hlotið
ýmis verðlaun og viðurkenningar
fyrir tónlistarflutning sinn í
heimalöndum sínum Ítalíu og
Belgíu en samstarf þeirra hófst
fyrir um ári. Þriðjudaginn 29. nóv-
ember kl. 20, leikur Biber tríóið
Rósakrans-sónötur eftir Ignacio
Franz von Biber, Rósakrans-
sónöturnar eru meðal merkustu
verka tónskáldsins. Þær eru alls
15 og er inntak þeirra hugleið-
ingar um ævi Jesú Krists. Á þess-
um fimmtu tónleiku Listahátíðar í
Neskirkju verða fluttar fimm
fyrstu sónöturnar sem tengjast
hugleiðingu um fæðingu frels-
arans og fyrstu 12 árin í lífi hans.
Í Biber tríóinu eru Martin Frew-
er, Steingrímur Þórhallsson og
Dean Ferrel.
Listahátíðinni í Neskirkju lýk-
ur með kórtónleikum laugardag-
inn 3. desember kl.17, þegar Kór
Neskirkju, undir stjórn Stein-
gríms syngur dagskrána Tónað
inn í aðventuna. Þar verða fluttir
valdir kaflar úr Petit Messe sol-
ennelle eftir Rossini, auk hefð-
bundinna aðventu- og jólalaga.
„Kórinn hefur verið í mikilli end-
uruppbyggingu síðustu tvö árin,
og er að vaxa úr grasi og verða
góður. Hann leikur stórt hlutverk
í uppbyggingarstarfinu í kirkj-
unni.“
Tónlist | Listahátíðin Tónað inn í aðventuna hefst í Neskirkju í kvöld
Draumurinn að Vestur-
bærinn eignaðist listahátíð
Steingrímur
Þórhallsson
Morgunblaðið/Billi
Bibertríóið: Martin Frewer, Steingrímur Þórhallsson og Dean Ferrell.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
DAVID Edwards, kallaður Honey-
boy, er ótrúlegur maður. Kallaður
síðasti deltablússöngvarinn, orðinn
níræður og lék bæði með goðsögn
allra blúsgoðsagna, Robert Johnson
og Big Joe Williams. Hinn klassíski
blús, kenndur við árósa Mississippi,
er fyrsta snilldarsköpun hins
bandaríska negra, djassinn kom
síðar, og í raun eru allir meistarar
deltablúsins jafnframt djassmeist-
arar; svo samofin er saga þessara
tónlistarstefna í upphafi síðustu
aldar. Ég óx úr grasi hlustandi
jafnt á Louis Armstrong, Lionel
Hampton, Leadbelly og Big Bill
Broonsey. Fínn skóli það, en Ho-
neyboy var ekki í þeim hópi enda
hljóðritaði hann ekki hljómplötur
fyrr en 1942 fyrir Library of Con-
gress og voru þá margir stórmeist-
arar deltablúsins gengnir til feðra
sinna.
Blúsinn streymdi framaf vörum
gamla mannsins og gítarinn sleg-
inn. Ég hefði nú heldur kosið að
hann léki eingöngu á órafmagnaðan
gítar því rafmagnsgítar hæfir síður
deltablúsnum. Munnhörpuleikari
hans, Michael Frank, var heldur
klénn, enda er hann fyrst og
fremst hjálparhella Honeyboy og
verndari. Siggi í Kentár var miklu
betri þegar hann blés með karli og
Pollockbræður blúsuðu með,
Gummi P og fleiri.
Efnisskráin var að mestu byggð
upp á blúsum Honeyboy. Þó hann
verði seint talinn til helstu meist-
ara deltablúsins, tókst honum að ná
hinum eina sanna blústóni, frásagn-
ir hans voru klassískar og röddin
fín þótt öldruð væri. Hann söng
einnig lög eftir fleiri, m.a. vin sinn
Robert Johnsson og Charlie Pat-
ton, einn magnasta listamann blús-
ins.
Áheyrendur voru á öllum aldri
og hrifust mjög. Þetta var sann-
arlega góð heimsókn og minnist ég
aðeins tveggja blúsheimsókna til
Íslands þessari betri. Þá fyrri er
Buddy Guy og Junior Wells komu
með blússveit sína og léku á
Broadway og þá seinni er söngv-
arinn og píanistinn Pinetop Perkins
tróð hér upp, ýmist einn eða með
Vinum Dóra og hljóðritaði meira að
segja geislaplötu.
Deltablús á
síðasta snúningi
Tónlist
NASA
David Honeyboy Edwards söngur og gít-
ar, Michael Frank munnharpa.
12.11.2005
Honeyboy og félagar Morgunblaðið/Árni Torfason
„Þó Honeyboy verði seint talinn til helstu meistara deltablúsins, tókst honum að ná hinum eina sanna blústóni.“
Vernharður Linnet