Morgunblaðið - 15.12.2005, Side 1
STOFNAÐ 1913 340. TBL. 93. ÁRG. FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
www.postur.is
15.12.
er síðasti öruggi skiladagur
á jólakortum til Evrópu!
Hræðast ekki
jólaköttinn
Tíska og lífsstíll eru lykilorð í
hestamennskunni | Hestar 40
Viðskipti | Umsvif SÍF í Frakklandi Útrás IMG Tímamótaár hjá Samskipum
Tenór á mótorhjóli Málið | Hrafnhildur Arnardóttir Tískan Jólakvikmyndir
Íþróttir | 96 þúsund íþróttaiðkendur Óánægja með HM kvenna Haukar unnu ÍR
Kór Flúðaskóla og Barnakór Sel-
fosskirkju. Kórarnir æfðu í gær á
Flúðum undir stjórn Bernharðs
Wilkinssonar.
verða í Háskólabíói næsta laug-
ardag.
Alls eru um hundrað börn í kór-
unum tveimur en um er að ræða
TVEIR barnakórar úr Árnesþingi
koma fram og syngja saman á ár-
legum jólatónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands sem haldnir
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Sungið á Suðurlandi
ÍRAKAR ganga að kjörborðinu í dag
og hvatti Jalal Talabani, forseti
Íraks, landa sína í gær til að taka
höndum saman og neyta atkvæðis-
réttar síns allir sem einn. „Ég býð
ykkur að gera þetta að eftirminni-
legum degi, að degi þjóðarsáttar sem
marki sigur yfir hryðjuverkum og
öflum sem andsnúin eru lýðræðinu,“
sagði Talabani í sjónvarpsávarpi.
Mikill viðbúnaður er í Írak vegna
kosninganna og öryggisgæsla hefur
verið hert til muna. Al-Qaeda-sam-
tökin í Írak, sem talin eru bera
ábyrgð á ýmsum mannskæðustu
ódæðisverkunum í landinu, hétu því
hins vegar í yfirlýsingu að efna til
nýrrar sóknar í tilefni kosninganna.
Súnnítar hunsuðu þingkosning-
arnar í janúar sl. en vísbendingar
eru um að þeir muni flykkjast á kjör-
stað að þessu sinni; sem hefur gefið
mörgum tilefni til að lýsa þeirri von
að þessar kosningar muni marka
þáttaskil. George W. Bush Banda-
ríkjaforseti sagði t.a.m. í gær að
kosningarnar myndu valda straum-
hvörfum í hinu stríðshrjáða Írak og
raunar stuðla að lýðræði í Mið-Aust-
urlöndum öllum.
Bush viðurkenndi á hinn bóginn –
og vakti sú yfirlýsing hans mikla at-
hygli – að upplýsingar um gereyð-
ingarvopnaeign Íraka, sem voru ein
helsta ástæða Bandaríkjamanna fyr-
ir innrás 2003, hefðu reynst rangar.
„Sem forseti ber ég ábyrgð á þeirri
ákvörðun að gerð var innrás í Írak,“
sagði Bush í framhaldinu.
En Bush varði þá ákvörðun sem
tekin var, sagði að hún hefði verið
rétt. „Það stafaði ógn af Saddam og
það er gott fyrir bandarísku þjóðina
og fyrir veröldina alla að hann er
ekki lengur við völd,“ sagði hann.
Írakar ganga
að kjörborðinu
Bush viðurkennir að upplýsingar um
gereyðingarvopn Íraka hafi verið rangar
Mikilli/20
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
VERÐ á matvörum í verslunum á Íslandi er 42%
hærra en í löndum Evrópusambandsins og virðist
helsta ástæðan vera innflutningshöft á búvörur.
Vöruúrval í stórmörkuðum hér á landi er mun
minna en í löndum innan ESB. Meiri samþjöppun
er á matvörumörkuðum á Norðurlöndunum en í
öðrum löndum Evrópu en Ísland sker sig þó ekki
úr.
Þetta eru helstu niðurstöður nýrrar skýrslu
samkeppniseftirlita á Norðurlöndum um stöðuna
á matvælamörkuðum landanna.
Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðu-
sambands Íslands, segir sambandið telja brýnt að
stjórnvöld breyti um aðferðafræði í verndun land-
búnaðar. „Ég held að við séum sammála um að það
eigi að vera með ýmsar aðgerðir til þess að vernda
íslenskan landbúnað. Innflutningshöftin og þær
samkeppnishömlur sem eru í greininni hafa hins
vegar leitt til þess að neytendur bera mjög skarð-
an hlut frá borði,“ segir Gylfi.
Samþjöppun á matvörumarkaði
á Norðurlöndum áhyggjuefni
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseft-
irlitsins, segir niðurstöður könnunarinnar óviðun-
andi og vísbendinu um að kraftar samkeppninnar
vinni ekki nægilega vel neytendum í hag. Hann
segir það áhyggjuefni samkeppniseftirlita á öllum
Norðurlöndum hversu samþjöppun á matvöru-
markaði sé mikil og mun meiri en í samanburð-
arlöndum innan ESB. „Þetta er ekki séríslenskt
áhyggjuefni sem er athyglisvert í ljósi umræðunn-
ar hér,“ segir Páll Gunnar.
Norðurlöndin skera sig úr hvað varðar fleiri
þætti. Til dæmis er einkennandi að það eru fáir
stórir aðilar sem annast innkaup fyrir fáar og stór-
ar verslunarkeðjur. Með þessu móti hafa verslanir
getað náð betri samningum og flutningskostnaður
ætti að hafa minnkað. „En þessi þróun hefur líka
þau áhrif að nýir birgjar eiga erfiðara með að ná
fótfestu og hafa ekki lengur aðgang að verslunum
til að selja sína vöru,“ segir Páll Gunnar.
Hann segist bjartsýnn á að viðræður við stjórn-
völd varðandi innflutningshöft á matvæli skili ár-
angri.
Matvöruverð 42% hærra á Íslandi en í löndum Evrópusambandsins
ASÍ segir brýnt að breyta að-
ferðum við verndun landbúnaðar
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
og Elvu Björk Sverrisdóttur Bjartsýni á árangur
viðræðna við stjórnvöld
Innflutningshöft | 18–19
KORN var þreskt síðastliðinn
mánudag á bænum Ytri-Hofdölum í
Viðvíkursveit í Skagafirði. Skorið
var upp af einum hektara og var
kornið óskemmt og gott, að því er
segir á vef Bændasamtakanna.
Einnig hafa bændur verið að rúlla
hálm sem ekki náðist í haust.
Einar Valur Valgarðsson, bóndi
og þreskingarmaður hjá Þreski hf.
í Skagafirði, þreskti kornið í Ytri-
Hofdölum. Hann sagði að einnig
hefði óþresktur akur í Blönduhlíð
verið skoðaður nú, en kornið þar
hefði reynst óþroskað og haft lítið
fóðurgildi. Kornið í Ytri-Hofdölum
var hins vegar vel þroskað og
ágætt. Nú er leiðinleg spá fram-
undan og verður líklega ekki meira
þreskt í vetur í Skagafirði. Þar
voru um 40 ha óþresktir í haust og
náðust í hús um 85% af korn-
uppskerunni þar, að sögn Eiríks
Loftssonar ráðunautar hjá Leið-
beiningarmiðstöðinni á Sauð-
árkróki.
Jónatan Hermannsson, til-
raunastjóri Landbúnaðarháskól-
ans, taldi það einsdæmi að korn
væri þreskt jafn seint árs og nú.
Kornþresking í desember
PAUL Martin, forsætisráðherra
Kanada, brást í gær hart við gagn-
rýni sendiherra Bandaríkjanna á
hendur honum. „Ég tek ekki við
fyrirmælum um það hvaða mál ég
set á dagskrá [í kosningabarátt-
unni],“ sagði Martin skv. The Globe
and Mail, en þingkosningar verða í
Kanada 23. janúar nk. Sendiherr-
ann, David Wilkins, hafði sakað
Martin um að halda uppi ómál-
efnalegri gagnrýni á Bandaríkin í
því skyni að græða atkvæði. „Það
er varasamt að gagnrýna sífellt
vinaþjóð þína og helsta viðskipta-
land,“ sagði Wilkins en deilan snýst
m.a. um stefnu í umhverfismálum
og viðskipti landanna með timbur.
Uppnám
í Kanada
Viðskipti, Málið og Íþróttir í dag