Morgunblaðið - 15.12.2005, Side 31
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2005 31
Síðumúla 21. Reykjavík.
Sími 581 1100. reykjavik@beostores.com
www.bang-olufsen.com
Bang & Olufsen óska þér
gleðilegra jóla!
BeoSound 1:
BeoSound 1 er hin fullkomna jólagjöf fyrir vini, fjölskyldu eða
sjálfa(n) þig. Úr glæsilegri hönnun berst afbragðs hljóm-
burður - hvort sem þú hlustar á uppáhalds geisladiskinn þinn
eða útvarpið. Komdu við hjá Bang & Olufsen og upplifðu.
Gefðu þínum nánustu hina fullkomnu jólagjöf
frá B&O.
BeoCom 6000:
BeoCom 6000 er ekki eingöngu þráðlaus sími. Hann sýnir
þér hver er að reyna að ná í þig - og þú ákveður hvort þú vilt
svara! Einnig getur þú tengt 6 önnur símtæki við og haft þína
eigin símstöð á heimilinu.
BeoVision 6:
Fullkomin LCD mynd og kraftmikill hljómur samtvinnuð
í fyrirferðalítilli, fullbúinni lausn. Komdu og skoðaðu
BeoVision 6 í verslun okkar.
Ármúla 10 • Sími: 5689950
Jólatilboð
Með hverri sæng
fylgir 50x70 gæsadúnskoddi frítt með
að verðmæti kr. 11.800
Duxiana Royal
Gæsadúnsængur
140x200 kr. 34.980
140x220 kr. 39.360
150x210 kr. 30.360
220x220 kr. 58.880
260x220 kr. 68.640
GAMLA mjólkurhúsið
á bænum Meðalheimi
á Svalbarðseyri hefur
fengið nýtt hlutverk
en þar hefur í rúmt ár
verið starfrækt fyr-
irtækið Ice & Fire
ehf. Fyrirtækið fram-
leiðir kavíar úr laxa-
hrognum en hrognin
eru fengin frá laxeld-
isfyrirtækinu Rifósi í
Kelduhverfi. Ice &
Fire er í eigu Lauf-
eyjar Kristjánsdóttur
og hjónanna Mait
Trink og Külliki Mat-
son frá Eistlandi, sem
öll starfa við fram-
leiðsluna. Mait sagði að ekki væru
allir sáttir við að talað væri um
kavíar í þessu sambandi, þar sem
hann væri yfirleitt svartur en laxa-
hrognin eru rauðleit.
Vinnsluaðferðin kemur frá Eist-
landi en hrognin eru hreinsuð og
söltuð og pakkað í lofttæmdar
krukkur. Að sögn Laufeyjar fer öll
framleiðslan á innanlandsmarkað
enn sem komið er en stefnt er að
útflutningi í framtíðinni. Hrygning-
artími eldislaxa er að mestu leyti yf-
ir síðustu fjóra mánuði ársins og á
þeim tíma er reynt að komast yfir
sem mest af hrognum. Hrognin eru
hreinsuð strax en hluti þeirra fryst-
ur og þeim þá pakkað á öðrum tím-
um ársins. „Það er mjög erfitt að fá
hráefni til vinnslunnar og við mynd-
um gjarnan vilja komast í viðskipti
við fleiri aðila,“ sagði Laufey.
Á þessu fyrsta starfsári hefur
fyrirtækið sent frá um 1,5 tonn af
afurðum og salan hér innanlands
gengið vel. Stefnt er að því að auka
framleiðsluna og hefja útflutning,
enda er einnig eftirspurn erlendis
frá.
Viðtökur hér á landi hafa verið
góðar og laxahrognin fást í mörgum
verslunum. Laufey sagði að Friðrik
V. Karlsson, veitingamaður á Frið-
riki V., hafi reynst þeim vel, enda sé
hann ávallt tilbúinn í nýjungar.
Friðrik hefur verið með laxahrogn
frá fyrirtækinu á matseðlinum hjá
sér sl. ár. Mait Trink sagði að stefnt
væri að innflutningi á tilbúnum unn-
um afurðum frá Eistlandi, síld,
brislingi og steinsugu, sem er
styttri útgáfan af ál. Um er að ræða
reyktar afurðir, sem þó eru unnar
öðruvísi en hér á landi.
MATUR | Laxahrogn í neytendaumbúðum
Munaðarvara fyr-
ir matgæðinga
Laufey Kristjánsdóttir setur laxahrogn í krukkur.
Morgunblaðið/Kristján
Spurning: Ef keypt er jóla-
pakkatilboð á flugmiða hjá
Icelandair kostar 2.000 krón-
um meira að borga með debet-
korti en kreditkorti. Einungis
er hægt að borga með kred-
itkorti á netinu og ef miðinn er
keyptur í símsölu og borgað
með debetkorti kostar það
2.000 krónum meira. Hvers
vegna?
Svar:
„Í netviðskiptum hjá okkur
er bara hægt að nota kred-
itkort,“ segir Guðjón Arn-
grímsson hjá Icelandair. „Ef
fólk kaupir jólapakkana á sölu-
miðstöðum Icelandair þá kost-
ar það ekkert aukalega hvaða
greiðslumáta sem það notar.
En ef fólk vill láta starfsmann
okkar bóka fyrir sig flugið þá
leggjast 2.000 krónur ofan á
sem þjónustugjald. Annars
vegar er þjónustugjaldið
kostnaður við starfsmannahald
og hins vegar hvatning til
fólks að nota netið.
Bókað á netinu
Fólk sem vill ekki borga
með kreditkorti á netinu getur
farið á söluskrifstofu okkar og
keypt jólapakkann þar og
borgað með peningum eða de-
betkorti. Þá fær það gjafabréf-
ið í hendurnar, fer inn á netið
og notar númerið sem kemur
fram á gjafabréfinu til að
ganga frá bókuninni sinni þar.
Þá þarf ekki að borga þjón-
ustugjald fyrir að láta starfs-
mann okkar bóka sig,“ segir
Guðjón.
SPURT OG
SVARAÐ UM
NEYTENDAMÁL