Morgunblaðið - 15.12.2005, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2005 37
UMRÆÐAN
Á ALÞJÓÐADEGI fatlaðra hinn 3.
desember sl. var Múrbrjóturinn af-
hentur. Landssamtökin Þroskahjálp
veita þessa viðurkenningu til verk-
efna sem þykja hafa rutt nýjar braut-
ir fyrir fatlaða í jafnréttisátt á við
aðra í samfélaginu. Að þessu sinni var
það atvinna með stuðningi (ams) sem
fékk viðurkenninguna. Atvinna með
stuðningi gengur út á að aðstoða fatl-
aða við að fá störf á almennum vinnu-
markaði, þjálfun og aðlögun á vinnu-
staðnum og stuðningur eftir þörfum.
Svæðisskrifstofa Reykjaness fór að
nota vinnubrögð byggð á hug-
myndafræði ams í kringum 1990 og
hafa þau skilað góðum árangri.
Vinnuveitendur og fyrirtæki hafa
verið jákvæð og viljug í samstarf. Í
dag starfa á vegum Svæðisskrifstofu
Reykjaness 90 einstaklingar í atvinnu
með stuðningi á almennum vinnu-
markaði í álíka mörgum fyrirtækjum
á höfuðborgarsvæðinu.
Fyrir starfsfólk sem starfar við at-
vinnu með stuðningi er það bæði
heiður og hvatning að hljóta Múr-
brjótinn.
Undirritaðar vilja af þessu tilefni
þakka þeim fyrirtækjum sem hafa
verið í samstarfi við Svæðisskrifstofu
Reykjaness fyrir gott samstarf. Um
leið er von okkar sú að enn fleiri fyr-
iræki á vinnumarkaðnum veiti fötl-
uðum tækifæri til að taka þátt í at-
vinnulífinu.
HELGA RÚNA
GÚSTAFSDÓTTIR,
INGIBJÖRG MARGRÉT
ÍSAKSDÓTTIR,
ráðgjafaþroskaþjálfar hjá
Svæðisskrifstofu málefna
fatlaðra á Reykjanesi.
Atvinna með
stuðningi er
múrbrjótur
Frá Helgu Rúnu Gústafsdóttur og
Ingibjörgu Margréti Ísaksdóttur:
BRÉF TIL
BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1
103 Reykjavík
Bréf til blaðsins | mbl.is
Í FRÉTTABLAÐINU 10. des-
ember sl. birtist frétt undir fyr-
irsögninni: Yfirtaka Atorku er ekki
óvinsamleg. Í fréttinni er vísað til
samtals við Guðmund Þóroddsson,
stjórnarformanns Jarðborana hf.
og forstjóra Orkuveitunnar. Guð-
mundur gætir hagsmuna Orkuveit-
unnar, sem er stærsti hluthafi
Jarðborana, með um 12,98% eign-
arhlut. Ekki er hægt að skilja
fréttina og orð Guðmundar á ann-
an hátt en svo að það sé nánast
formsatriði að ganga frá þessum
viðskiptum. Munu
hluthafar í Jarðbor-
unum fá greitt með
bréfum í Atorku.
Miðað er við að gengi
Jarðborana verði 25
og greitt verði með
bréfum í Atorku á
genginu 6.
Ef orð forstjóra
Orkuveitunnar hafa
verið skilin rétt má
telja þá fyrirætlan
furðulega í ljósi þess
að greiningadeild KB
banka hefur nýlega
gert verðmat á Jarð-
borunum. Samkvæmt
því verðmati er virði
Jarðborana verulega
hærra en það verð
sem Atorka hefur nú
boðið. Að mati grein-
ingardeildar KB
banka miðast verð-
mat Jarðborana við
gengið 31, sem er um
24% hærra gengi en
felst í tilboði Atorku.
Það má einnig velta
því fyrir sér hvort
Orkuveitan sé ekki
betur sett með því að
halda eignarhlut sín-
um í Jarðborunum
fremur en að taka við
eignarhlut í Atorku.
Jarðboranir er traust
fyrirtæki sem starfar á markaði
sem Orkuveitan þekkir vel til og
fellur starfsemi þess vel að starfs-
umhverfi Orkuveitunnar. Megin-
umsvif Atorku eru í atvinnurekstri
óskyldum starfsemi Jarðborana og
Orkuveitunnar. Þau félög sem
Atorka hefur fjárfest í og Orku-
veitan mun öðlast eignarhlut í,
verði fallist á yfirtökutilboð
Atorku í Jarðboranir, starfa t.d.
við framleiðslu hverfisteyptra pla-
steininga, sölu lækningatækja, eld-
hústækja og iðnaðartækja, inn-
flutning á lyfjum, íþróttavörum,
víni, snyrtivörum o.fl. Ekki þarf að
fjölyrða að megin-
áherslur og umsvif
Atorku eru á erlendri
grundu. Þá hefur
reynslan sýnt að við-
skipti með hlutabréf í
Atorku eru lítil og því
óvíst um raunveruleg
verðmæti stærri eign-
arhluta hyggist hlut-
hafar losa um þá. Í
öllu falli hlýtur það að
vera krafa stjórnar
Orkuveitunnar að
greitt sé með pen-
ingum í slíkum við-
skiptum en ekki hluta-
bréfum sem kunna að
hafa óvíst verðgildi á
markaði.
Það hlýtur að vera
markmið stjórnar
Orkuveitunnar, þar
sem R- listinn ræður
nú meirihluta, að varð-
veita eignir fyrirtæk-
isins og gæta hags-
muna fyrirtækisins við
ráðstöfun þeirra. Ráð-
stöfun eigna almenn-
ings upp á 1,3 millj-
arða með þessum
hætti felur í sér rausn-
arlegan fjárstuðning
R-listans til Atorku.
Samkvæmt verðmati
KB banka nemur fjár-
stuðningur R- listans
til Atorku 312 milljónum króna og
verður greiddur af eignum al-
mennings. Að auki felst í slíkri
ráðstöfun stefnumarkandi ákvörð-
un, sem væntanlega hefur áhrif á
greiðslur til annarra hluthafa
Jarðborana. Skorað er á stjórn
Orkuveitunnar að hafna yfirtöku-
tilboði Atorku í eignarhlut fyr-
irtækisins í Jarðborunum en ella
að fá tvö óháð verðbréfa- eða end-
urskoðendafyrirtæki til að meta
sjálfstætt virði Jarðborana.
Ætlar R-listinn að veita
Atorku hf. fjárstuðning?
Davíð Ólafur Ingimarsson
fjallar um viðskipti Orkuveit-
unnar, Jarðborana hf. og
Atorku hf.
Davíð Ólafur
Ingimarsson
’Það hlýtur aðvera markmið
stjórnar Orku-
veitunnar, þar
sem R-listinn
ræður nú meiri-
hluta, að varð-
veita eignir fyr-
irtækisins og
gæta hagsmuna
fyrirtækisins
við ráðstöfun
þeirra.‘
Höfundur er hagfræðingur og
hluthafi í Jarðborunum.