Morgunblaðið - 15.12.2005, Síða 40
40 FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030
johann@eignaborg.is
☎ 564 1500
25 ára
EIGNABORG
FASTEIGNASALA
Til sölu eitt glæsilegasta hesthúsið í Fjárborg
Húsið er nánast fullfrágengið
Húsið er með steyptum vegg
milli hlöðu og húss, járnklætt
að utan, loft eru klædd með
bárujárni, milligerði úr
stálrörum.
Undir húsinu er haughús sem
er dælt upp úr. Gert er ráð fyrir
34 hrossum, þrjú útigerði og
því er upplagt fyrir nokkra aðila
að kaupa saman.
Nýklædd 49 fm kaffistofa er yfir hlöðu, rotþró er við húsið, til afhendingar strax.
Áhvílandi hagstætt lán sem getur fylgt. Verð 22.500.000.
Nánari uppl. gefur Helgi Þór í gsm 695 6099.
BLIK í augum og rjóðar kinnar ein-
kenna margan hestamanninn rétt
eins og jólasveinana. Fleira eiga þeir
nú ekki sameiginlegt nema kannski
jólagjafirnar. Hestamenn eru kunnir
að hreysti, láta ekki á sig fá þótt
frost bíti kinnar, og þurfa ekki að
hræðast jólaköttinn – sérstaklega
ekki ef marka má sumar þeirra gjafa
sem sérfræðingar fimm hestavöru-
búða mæltu með við blaðamann sem
athugaði úrvalið með nokkurri eft-
irvæntingu.
Reiðfatnaður er sumsé afskaplega
vinsæll í jólapakka hestamannsins
og eru reiðbuxur, úlpur eða jakkar
og reiðskór ofarlega á listanum, sem
og annað praktískt, enda „staðalbún-
aður“, nauðsynlegur þeim sem ætla
að láta til sín taka í hesthúsum lands-
ins eftir jól. Reyndar eru gjafirnar
fjölbreyttar; sokkar, húfur, reiðtygi,
frá taum upp í hnakk, hjálmar, reið-
skálmar, myndbandsspólur, bækur
o.s.frv. Úrvalið er geysimikið og
ýmsar nýjungar á boðstólum.
Að tolla í tískunni hefði einhvern
tímann þótt hlálegt markmið í hesta-
bransanum en í dag finnast „tísku-
þrælar“ þar eins og annars staðar.
Það skiptir auðvitað máli að fylgjast
með nýjungum og gera kröfur til
þessa búnaðar og er sérstaklega
nauðsynlegt hinum mikla fjölda at-
vinnumanna í greininni. Hins vegar
eru starfsmenn hestavörubúðanna
sammála um að tíska og lífsstíll séu
lykilorð í hestamennsku í dag og
endurspegla hin flottu föt einmitt
það. Aðsniðnir jakkar úr vönduðu
efni, sífellt flottari reiðbuxur og aðr-
ir litir en bara
brúnt og svart
vekja áhuga og
svo rammt
kveður að að
nokkur hópur fólks
sem hefur engan áhuga
á hestum sækist eftir
þessum fötum. Reiðsnið
þykja m.a.s. fín hjá ýms-
um almennum fatahönn-
uðum í dag og hver
kannast ekki við kú-
rekaskóna? Þörf hesta-
manna fyrir smekkleg
reiðföt einskorðast
heldur ekki bara við
það að vera á hestbaki,
t.a.m. vilja margir
brekkugesta á lands-
móti spóka sig í „réttu
græjunum“.
Það þykir ekki
ódýrt að vera í
hestamennsku
en augljóst er að
menn kaupa misdýrar
jólagjafir handa hesta-
mönnum eins og öðrum.
Sumir ætla að gefa „algalla“ (skó,
buxur, jakka) og hnakkar eru sí-
vinsælir – verðið á þeim er reyndar
afskaplega misjafnt. Aðrir fara að
dæmi kvennanna í kvæði Jóhann-
esar úr Kötlum sem vissu að það var
nóg að gefa „litfagran lepp / eða lít-
inn sokk“ til að forðast jólaköttinn.
Hræðast ekki jólaköttinn
Eftir Þuríði Magnúsínu Björnsdóttur
thuridur@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Baldvin og Þorvaldur, Selfossi: Blá
úlpa (fimm flíkur í einni): 18.490 kr.
Rauður mittisjakki: 6.490 kr. Skó-
buxur: 6.990 kr. fyrir börn, fyrir full-
orðna 8.990 kr. Gunnar, 6 ára, veifar
hatti sem kostar 5.490. Hnakktaska:
9.220 kr. Hjálmur: 8.990 kr. Reið-
skálmar: 9.990 kr.
Hestar og menn:
Svört dúnúlpa:
24.900 kr. Jakki úr
gæsadúni: 12.900
kr. Reiðbuxur:
15.900 kr. Reið-
skór: 7.900 kr.
Gegningaskór:
5.900 kr.
Top Reiter 2005-hnakkur á tilboði:
119.900 kr. 25% afsláttur af öllum
beislissettum fyrir jól.
Hnakktaska: 9.900 kr. Hattur: 5.990 kr.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Reiðskálmar með smellum og teygju efst að aftan
sem gefur meiri sveigjanleika: 19.900 kr.
Ístölt: Reiðskór með sérstöku gripi:
14.900 kr. Stykki í ístað sem eykur
enn á grip reiðskónna: 1.490 kr.
Ástund: Úlpa, heilsárs: 18.900 kr.
Skyrta: 5.999 kr. Vesti: 9.999 kr.
Wintec-hnakkur með öllu, tilboð: 59.900
kr. Beislissett á tilboði: 4.990 kr.
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
Þ
or
ke
ll
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
Ó
m
ar
Fréttasíminn
904 1100