Fréttablaðið - 01.02.2003, Síða 16

Fréttablaðið - 01.02.2003, Síða 16
Risastórt hjarta, lýst bleikumneonljósum, er ef til vill ekki það fyrsta sem manni dettur í hug þegar forsetasetur ber á góma. Einu slíku var þó komið fyrir í kastalanum í Prag þar sem Vaclav Havel, leikritaskáldið sem gerðist forseti, ræður ríkjum þar til á morgun. Hjartað lét hann setja upp í nóvember síðastliðnum þeg- ar haldið var upp á að 13 ár voru liðin síðan kommúnistastjórnin í Tékkóslóvakíu hrökklaðist frá völdum. „Hjarta er tákn ástar, skilnings og háttprýði. Það var nokkuð sem fylgdi okkur í flauels- byltingunni,“ sagði forsetinn frá- farandi við það tækifæri. Fjarlægur og íhugull Ef til vill á enginn einstakling- ur það frekar skilið en Havel að teljast táknmynd umbyltingarinn- ar þegar þjóðir Austur-Evrópu brutust undan oki kommúnism- ans, táknmynd tímans þegar hver kommúnistastjórnin á fætur annarri missti fótanna og lýðræð- ið ruddi sér braut. Maðurinn sem leiddi Tékka á braut nýrra tíma. Leikritaskáldið gamla, heim- spekingurinn sem hefur verið nefndur sem einn af mikilhæfustu Evrópumönnum 20. aldarinnar, er nú 66 ára. Heilsa hans hefur verið tæp síðan hann fór í aðgerð vegna lungnakrabbameins og sjálfur er hann orðinn fjarlægur og hneigð- ur til sjálfsskoðunar, fyrirmynd- arsamfélagið sem hann sá fyrir sér er langt frá því að vera orðið að raunveruleika. Fyrir 13 árum bauð almenn- ingur kommúnistaveldinu birg- inn með því að mála slagorðið „Havel í kastalann“ á húsveggi í borginni. Nú er almenningur orð- inn alvanur hversdagslegu þrasi stjórnmálamanna eftir fall kommúnismans, hagsveiflum markaðshagkerfisins, verðhækk- unum og atvinnuleit. Fáir veita Havel mikla athygli og síður draumi hans um hið fullkomna lýðræði sem átti að koma í stað 40 ára einræðis kommúnista sem hann nefndi fjarstæðulandið. „Hættu að tala um alla ástina sem býr í hjarta þér og út- skýrðu fyrir mér hvers vegna appelsínur eru svona dýrar,“ segir Jana Ciglerova, sem 13 ára gömul horfði á Havel borinn til valda á öxlum fólksins. Þá vöruðu foreldr- ar hennar, staðfastir komm- únistar, hana við því að þar færi viðsjárverður maður. Hún tekur ekki undir það en orð hennar endurspegla nokkuð hug margra Tékka sem finnst forset- inn hafa fjarlægst veruleika al- mennings um of. Sneri aftur til jarðar Stutt er síðan Havel sagðist hafa lært mikilvæga lexíu. Jafn- vel skáld á forsetastóli geta ekki gert raunveruleikann að öðru en hann er. „Mér var í raun slöngvað inn í heim ævintýra og síðan, á árunum sem fylgdu í kjölfarið, varð ég að snúa aftur til jarðar,“ sagði hann í ræðu sem hann hélt í háskóla í New York. „Mér var ekki gefin vernd frá því harka- lega falli til jarðar, úr hinum spennandi heimi uppreisnar- mannsins í hversdaglegan heim stofnanaveldis og vana.“ Þegar hann var fyrst valinn forseti var það sem forseti Tékkóslóvakíu. Örfáum árum síðar var landinu skipt í tvennt, Tékkland og Slóvakíu. Sumir þökkuðu Havel að það tókst að gera það átakalaust. Aðrir kunnu honum litlar þakkir fyrir að gera ekki meira til að halda Tékkóslóvakíu saman. Öðruvísi forseti Bókmenntaafrekin eru ekki það eina sem hefur greint Havel frá öðrum þjóðhöfðingjum. Þegar hann kom sér fyrir í forsetahöll- inni tóku hann og aðstoðarmenn hans upp á því að fara á fleygiferð um gangana á hlaupahjólum. Með- al fyrstu gestanna sem hann tók á móti var Frank Zappa heitinn, sem hefði víst ekki þótt aufúsu- gestur á mörgum öðrum forseta- setrum. Og sennilega hefði engum öðrum þjóðhöfðingja dottið í hug að setja risastórt bleikt neon- hjarta á forsetahöll sína. Það gerði Havel þó. Þar hefur logað á hjartanu en þó ekki lengur en til morguns, þá verður slökkt á því þegar leikritaskáldið hverfur af forsetastóli. Sá hinn sami forseta- stóll bíður auður um sinn þar til þingmenn hafa valið arftaka Havels, verkefni sem enn sem komið er hefur reynst þeim um megn. ■ FITLANDI VIÐ BINDISHNÚTINN Það hefur verið sagt að Havel kunni betur við sig í afslappaðri klæðnaði, finnist betra að vera klæddur galla- buxum en jakkafötum. Það verður þó ekki komist hjá því að klæð- ast formlegum fatnaði þeg- ar menn eru í opin- berum heim- sóknum. 16 1. febrúar 2003 LAUGARDAGUR Tékkar og Slóvakar fylktu sér um Vaclav Havel í flauelsbyltingunni 1989 þegar þjóðir Evrópu brutust undan oki kommúnista. Á morgun hverfur leikritaskáldið úr stóli forseta rúmum 13 árum eftir að þjóðin hvatti hann til forystu. Forseti flauels- byltingarinnar kveður SÍÐASTA ÁRAMÓTAÁVARP FORSETANSÞað hefur verið í mörg horn að líta hjá Havel að undanförnu. Hann hefur ferðast til fjölda landa í nokkurs konar kveðjuferð sinni sem forseti. FORSETINN MEÐ FUNDARHAMARINN Havel heldur hér á fundarhamri sem hann gaf framkvæmdastjóra Atlantshafsbanda- lagsins við upphaf fundar þess í Prag í nóvember. Við lok kalda stríðsins taldi Havel Atlantshafsbandalagið vera búið að glata tilgangi sínum en síðar barðist hann fyrir aðild Tékklands að bandalaginu. Mér var í raun slöngvað inn í heim ævintýra og síðan, á árunum sem fylgdu í kjöl- farið, varð ég að snúa aft- ur til jarðar. ,, Útsala Okkar vinsæla vetrarútsala er hafin - einstakt tækifæri 20-50%afsláttur Silfurskart Gullskart Úr - klukkur allt að 50% 15-20% 20-40% Vinsæla postulínið allt að 50% afsláttur Laugavegi 61 Sími 552 4910 úrad. 552 4930 Betra líf-Kringlunni Paradís- Laugarnesvegi 82 Gigtarfélag Íslands- Ármúla 5 Heilsubúðin NLFÍ- Hveragerði Sólveig Stolzewald-Hellu

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.