Fréttablaðið - 01.02.2003, Side 22

Fréttablaðið - 01.02.2003, Side 22
22 1. febrúar 2003 LAUGARDAGUR Íslenska þjóðin deilir. Deilumálið er fyrirhugaðar fram-kvæmdir vegna Kárahnjúkavirkjunar. Á Alþingi, í fjöl- miðlum og á götum úti takast menn á. Gera má ráð fyrir að stór hluti Íslendinga hafi ekki kynnt sér málið til hlít- ar og því ekki gert upp hug sinn. En stöðugt bætist í hóp þeirra sem hafa tekið afstöðu og fylkingarnar eru tvær, með og á móti. Stuðningsmenn virkjunar segja að ekki sé hægt að mæla því í mót að framkvæmdin sé arðsöm. Þá sé virkj- un umhverfisvæn því verið sé að endurnýta orku. And- stæðingarnir telja fórnarkostnaðinn of mikinn í ljósi þeirra miklu um- hverfisáhrifa sem verði á hálendinu. Ísland eigi að vera í forystu um- hverfisverndar. Þjóðaratkvæða- greiðslu er krafist. Í lok ágústmánaðar tók sig saman lítill hópur karla og kvenna og hóf að mótmæla fyrirhuguðum framkvæmdum vegna Kára- hnjúkavirkjunar. Hópurinn kom saman klukkan tólf á há- degi og stillti sér upp fyrir framan styttuna af Jóni Sigurðssyni á Austur- velli. Þessi hópur hefur síðan þá haldið uppi götumótmælum á sama tíma, á sama stað, alls hundrað og einu sinni. Í upphafi voru tuttugu manns mættir á Austurvöll en á þriðjudag höfðu þrjú hundruð manns safnast saman. kolbrun@frettabladid.is Tilboð Varalitir 2 fyri 1 Naglalökk á ½ virði Meðan birgðir endast RAGNHILDUR GÍSLADÓTTIR „Fólk er í auknum mæli að átta sig á hvers lags hryðjuverk eru að fara af stað á hálendinu.“ Ragnhildur Gísladóttir: Hryðjuverk á hálendinu Ragnhildur Gísladóttir söng-kona er á móti Kárahnjúka- virkjun. Hún segir það vissulega staðreynd að fólk hafi seint áttað sig á mikilvægi þessara fram- kvæmda frá umhverfissjónar- miði. En það sé mikið gleðiefni hversu margir hafi bæst í mót- mælahópinn og eins hversu mikil vakning sé nú að eiga sér stað meðal landsmanna. „Fólk er í auknum mæli að átta sig á hvers lags hryðjuverk eru að fara af stað á hálendinu með byggingu Kárahnjúkavirkjunar. Ég er á móti því að vera stimpluð hryðju- verkamaður,“ segir Ragnhildur ómyrk í máli. ■ Auður Laxness, eftirlifandieiginkona stórskáldsins Halldórs Laxness, var stödd á Austurvelli til að mótmæla fyr- irhugaðri framkvæmd Kára- hnjúka. Henni til halds og traust voru dætur hennar Guðný og Sigríður. Auður lét ekki snjó- drífu aftra sér frá að taka þátt. „Það er mikilvægt að mótmæla þessari framkvæmd, leggja málstaðnum lið og mæta,“ sagði Auður aðspurð hvað henni væri efst í huga. ■ Jökull Bergmann er andvígurframkvæmdum vegna Kára- hnjúkavirkjunar. Hann segist fullur gremju í garð Íslendinga, hvort sem þeir séu fylgjandi framkvæmdum við Kárahnjúka eða andvígir. „Við eigum að vera að mótmæla en gerum samt ekki neitt. Persónulega vildi ég að Ís- lendingar létu meira til sín taka og að þeir létu meira í sér heyra. Ég bjó lengi í Frakklandi og kann ákaflega vel við þeirra aðferð við að mótmæla hlutunum. Enda eru það mótmæli sem skila ár- angri.“ ■ Lítill hópur mótmæl- enda kom saman í lok ágústmánaðar á Austur- velli til að mótmæla Kárahnjúkavirkjun. Síð- an þá hafa þátttakendur stillt sér 101 sinni upp fyr- ir framan styttuna af Jóni Sigurðssyni. Þegar þau byrjuðu voru þau tuttugu talsins. Á þriðjudag voru þau þrjú hundruð. MÓTMÆLTU KÁRAHNJÚKAVIRKJUN Hátt í þrjú hundruð manns voru á Austur- velli til að mótmæla fyrirhugaðri fram- kvæmd vegna Kárahnjúkavirkjunar. Auður Laxness: Mikilvægt að mótmæla AUÐUR LAXNESS Auður lét ekki snjódrífu aftra sér frá að taka þátt. Jökull Bergmann: Gremst fálæti Íslendinga JÖKULL BERGMANN „Við eigum að vera að mótmæla en gerum samt ekki neitt.“ Mér er efst í huga hve mikið er íhúfi. Að þjóðin vakni til vit- undar um gjörðir sínar og hafi ekki eftir hið fornkveðna „þeir vissu ekki hvað þeir gjörðu,““ sagði Ög- mundur Jónasson, sem staddur var á Austurvelli. Hann sagði vanga- veltur manna um hvort barátta væri um garð gengin fjarri lagi. „Álver og virkjun eru eitt. Þessi barátta sem nú hefur risið og þessi mikla alda sem hefur risið í þjóðfé- laginu til varnar náttúrunni er mjög gleðileg,“ sagði Ögmundur að lokum. ■ Ögmundur Jónasson: Mikilvægt að þjóðin vakni ÖGMUNDUR JÓNASSON Mikið í húfi. Mótmælafundur númer 101 ALLIR SEM VETTLINGI GETA VALDIÐHrúga af vettllingum var á Austurvelli.Mótmælendur tóku sér einn vettling oglögðu fyrir framan Alþingishúsið. Þetta vargert til að leggja áherslu á að allir sem vett-lingi geta valdið mótmæli framkvæmdunum. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /VILH ELM FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.