Fréttablaðið - 01.02.2003, Side 44
44 1. febrúar 2003 LAUGARDAGUR
ÍSLAND Það er óhætt að segja að
áhrifa handboltans hafi gætt víða
þegar íslenska karlalandsliðið atti
kappi við Spánverja á fimmtudag
um sigur í milliriðli heimsmeistara-
mótsins sem fram fer í Portúgal.
Fólk sat sem fastast fyrir framan
sjónvarpsskjáina, hvort sem það
var eitt heima eða safnaðist saman
fyrir framan risaskjái á veitinga-
stöðum og verslunarmiðstöðvum.
Þúsundir manna voru saman komin
í verslunarmiðstöðinni Smáralind
til að fylgjast með leiknum og styð-
ja við bakið á „strákunum okkar“.
Afar fáir voru á ferli á meðan
leiknum stóð og er sjaldgæft að
þjóðarsálin sameinist um slíka við-
burði ef undan eru skilin þau ár sem
Ísland hefur haft þátttökurétt í
Söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva.
Því miður fóru Spánverjar með
sigur af hólmi og leika því í undan-
úrslitum heimsmeistaramótsins. Ís-
lenska landsliðið leikur um 5.-8.
sæti keppninnar og leikur því gegn
Rússum á hádegi í dag.
Íslenska landsliðið hefur svo
sannarlega náð góðum árangri þótt
flestir hefðu viljað sjá það komast
lengra í heimsmeistarakeppninni.
Ljósi punkturinn við mótið er þó að
Ísland er best Norðurlandanna í
handknattleik. Svíar og Danir fóru
heim með skottið á milli lappanna
eftir slæmt gengi í milliriðlum. ■
NELLY
Getur því miður ekki komið fram á
Brit-verðlaunahátíðinni þar sem
systir hans er veik.
Nelly hættir við Brit-
verðlaunahátíðina:
Situr yfir
systur sinni
TÓNLIST Söngvarinn Nelly getur
ekki komið fram á Brit-verðlauna-
hátíðinni þar sem systir hans er
alvarlega veik.
Skipuleggjendur hátíðarinnar
segja að Nelly, sem hefur verið
tilnefndur sem besti karlkyns tón-
listarmaðurinn, sé staddur í
Bandaríkjunum að huga að systur
sinni.
Í stað Nelly munu David Gray
og Blue bætast í hópinn en fyrir
eru Pink, Coldplay, Sugababes,
Avril Lavigne og Justin Timber-
lake.
Bæði Ms. Dynamite og Tom
Jones munu koma fram með
óvæntum gestum á hátíðinni, sem
verður í London þann 20. febrúar.
Mikill áhugi er fyrir verð-
launaafhendingunni og seldust
miðarnir upp á einum og hálfum
tíma. ■
SKRAUTLEGIR SKÓR
Spænski skóhönnuðurinn Manolo Blahnik
sýnir hér nýjustu afurð sína í Hönnunar-
safninu í London. Á safninu stendur yfir
sýning Blahnik en ferill hans spannar um
30 ár. Hann hefur unnið með hönnuðum
á borð við Calvin Klein, John Galliano og
Christian Dior.
Pondus eftir Frode Øverli
Sumir myndu kjökra eins og
nýfæddir hvolpar... aðrir
hefðu gefist upp fyrir fullt
og allt...
Þó að það sé
kominn febrúar...
SAMEINUÐ STÖNDUM VÉR
Fjöldinn allur af fólki safnaðist saman í Smáralind til að fylgjast með leik íslenska landsliðsins gegn Spánverjum á risaskjá. Ætla má að
um þúsund manns hafi verið þar saman komin.
BEÐIÐ EFTIR SÍMTALI
Starfsmenn Úrvals-Útsýnar í Smáranum
voru tilbúnir við símann til að taka við
bókunum ef íslenska landsliðið hefði kom-
ist í undanúrslit heimsmeistaramótsins. En
því miður fyrir íslensku þjóðina og við-
skiptin hjá ferðaskrifstofum tapaði Ísland
fyrir Spáni og leikur því um 5.-8. sæti
heimsmeistaramótsins.
KOMA SVO
Einbeitingin skein úr andliti þeirra sem
söfnuðust saman í Vetrargarðinum í
Smáralind og var fólk ekki feimið við að tjá
sig um leikmenn eða dómara.
AUÐAR GÖTUR
Það var ekki sálu að sjá á ferli þegar íslenska landsliðið lék við Spánverjar á heimsmeis-
taramótinu í handbolta sem fram fer í Portúgal.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Sumir hefðu fleygt sér
á hnén og grátbeðið um
miskunn... en ekki ég...
ónei...
ÞÚ ERT
MINN!
Ísland - Spánn:
Þjóðarsálin sameinaðist
um þjóðaríþróttina
Nánari upplýsingar á heimasíðu Búseta, www.buseti.is og á skrifstofu félagsins í Skeifunni 19, sími 520-5788.
Íbúðir til leigu, allar stærðir, eins lengi og þú þarft!
2ja til 4ra herbergja 60 m2 – 98 m2 íbúðir.
Verð frá 60.000 – 92.000. Húsaleigubætur geta
lækkað verð umtalsvert.
Umsóknarfrestur til 3. febrúar nk.
Umsóknar- og greiðsluskilmálar:
Allir geta sótt um sem geta gert boðgreiðslusamning
um leigugreiðslur. Ef umsækjendur eru fleiri en íbúðir
í boði er dregið um röð umsækjenda.
Enn er möguleiki á að tryggja sér íbúðir til langtímaleigu.
Í Þorláksgeisla eru lausar til umsóknar 60 íbúðir með sérinngangi sem
afhendast í apríl, maí, ágúst og september.
38 tveggja herbergja
16 þriggja herbergja
6 fjögurra herbergja
Allt innifalið nema rafmagn íbúðar, líka ísskápur!