Fréttablaðið - 22.03.2003, Blaðsíða 1
VIÐTAL
Síðasti austfirski
hákarlabaninn
bls. 24
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Laugardagurinn 22. mars 2003
Tónlist 34
Leikhús 34
Myndlist 34
Bíó 36
Íþróttir 12
Sjónvarp 38
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
FUNDUR Friðrik Skúlason, tölvu- og
ættfræðingur, flytur erindi um ætt-
fræðigrunninn Ís-
lendingabók á
fundi Sagnfræð-
ingafélags Íslands í
húsi Sögufélagsins
í Fischersundi.
Hann mun einkum
reifa þá möguleika
sem gagnagrunnur af þessu tagi
getur opnað fræðimönnum. Fund-
urinn hefst kl. 16.30.
Erindi um
Íslendingabók
FUNDUR Dagskrá um fólk og fersk-
vatn verður haldin á degi vatnsins í
Ráðhúsi Reykjavíkur í dag klukkan
11.00 í tilefni af Ári ferskvatnsins
2003. Rætt verður um stöðu
ferskvatnsmála bæði erlendis og
hérlendis og um framtíðarhorfur í
ferskvatnsmálum hér á landi.
Fólk og ferskvatn
TÓNLEIKAR Vortónleikar Léttsveitar
Reykjavíkur verða haldnir í Aust-
urbæ við Snorrabraut undir yfir-
skriftinni Fljóð og funi. Efnisskráin
er funheit með suðrænum tónum,
tangó og gospel. Snorri Wiium
tenór syngur einsöng. Stjórnandi er
Jóhanna V. Þórhallsdóttir. Tvennir
tónleikar verða haldnir, klukkan 17
og 20.
Léttsveit
í Austurbæ
SUND Innanhússmeistaramót Ís-
lands í sundi fer fram í Vestmanna-
eyjum. Bein útsending verður frá
mótinu í Ríkissjónvarpinu og hefst
hún klukkan 16.20.
Sundmenn keppa
KVIKMYNDIR
Óskarsverðlaun
í skugga átaka
LAUGARDAGUR
69. tölublað – 3. árgangur
bls. 18
STJÓRNMÁL
Unga
kynslóðin
bls. 22
bls. 28
TÓNLIST
Níu sólríkir
mánuðir
bls. 12
FÓTBOLTI
Real á
réttri leið
INNRÁS Gríðarlegar loftárásir voru
gerðar á Bagdad og fleiri borgir í
Írak síðla í gær og í nótt. Flugskeyt-
um rigndi yfir
landið og
sprengjum var
varpað úr há-
f l e y g u m
sprengjuþotum
B a n d a r í k j a -
manna. Stórir
hlutar Bagdad
voru í ljósum log-
um. Þetta eru þær víðtæku árásir
sem bandarísk hermálayfirvöld
höfðu boðað að yrðu gerðar til að
lama írösk stjórnvöld og herinn.
Fréttamaður MSNBC-sjónvarps-
stöðvarinnar, Peter Arnett, sem var
í Bagdad árið 1991 meðan á Flóa-
bardaganum stóð, segir að árásirn-
ar nú séu mun harðari en þær árás-
ir sem hann upplifði fyrir tólf árum.
Fljótlega eftir að sprengjuárásirnar
hófust í gær sagði hann að sér virt-
ist sem 25 byggingar hefðu verið
sprengdar í loft upp á tíu mínútum.
Þeirra á meðal var forsetahöll
Saddams Husseins.
„Í þeim 180˚ sjóndeildarhring
frá svölunum þar sem ég horfi á
þetta sé ég að meira og minna hver
einasta bygging er í ljósum logum,“
sagði Paul Wood, fréttamaður BBC,
þegar hann leit yfir Bagdad.
Bandaríska varnarmálaráðu-
neytið kynnti áætlanir sínar um
sprengjuárásir næturinnar á blaða-
mannafundi í gær. Þar var greint
frá því að ráðist yrði gegn fleiri
hundruðum skotmarka í skjóli næt-
ur. Donald Rumsfeld varnarmála-
ráðherra staðfesti að ekkert sam-
komulag hefði náðst við Íraka um
uppgjöf en sagði þarlend stjórnvöld
að hruni komin. Áður hafði verið
látið að því liggja að verið væri að
semja um uppgjöf.
Bandarískar og breskar innrás-
arsveitir sóttu hratt fram á landi.
Hermálayfirvöld sögðust hafa náð
mikilvægum stöðum á sitt vald, þar
á meðal tveimur flugvöllum, olíu-
lindum og hafnarborginni Umm
Qasr. Fréttamaður BBC greindi þó
frá því nokkru eftir yfirlýsingu her-
málayfirvalda að enn væri barist á
nokkrum stöðum í bænum. Banda-
rískar hersveitir voru sagðar á leið
til Basra, næststærstu borgar
Íraks, og aðrar hersveitir voru
sagðar komnar nálægt 200 kíló-
metra inn í Írak.
Sjá bls. 6
Sprengjum rigndi
yfir Bagdad í nótt
Gríðarlegar loftárásir voru gerðar á Bagdad og fleiri borgir Íraks. Langdrægum flug-
skeytum var skotið á borgirnar og sprengjum varpað úr háfleygum sprengjuþotum.
„...meira og
minna hver
einasta bygg-
ing er í ljós-
um logum.
REYKJAVÍK Sunnan 10-15 m/s
og rigning eða slydda
síðdegis. Hiti 1 til 6 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
+
+
+
+
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 8-13 Skýjað 3
Akureyri 5-10 Skýjað 3
Egilsstaðir 5-10 Skýjað 3
Vestmannaeyjar 10-15 Rigning 3
➜
➜
➜
➜
ÍRAKSDEILAN Utanríkisráðherra
telur að stuðningur Íslands við
innrásina í Írak flokkist ekki sem
meiriháttar utanríkismál.
Himinn og haf eru á milli af-
stöðu ríkisstjórnarinnar og
stjórnarandstöðunnar um stuðn-
ing Íslands við innrásina í Írak.
Síðdegis í gær fundaði utanríkis-
málanefnd en stjórnarandstaðan
telur að samráð við nefndina hafi
verið algjörlega ófullnægjandi.
„Þessi fundur breytti í sjálfu
sér engu,“ sagði Halldór Ás-
grímsson. „Það liggur alveg ljóst
fyrir að ríkisstjórnin telur að það
hafi verið haft fullnægjandi sam-
ráð við utanríkismálanefnd.“
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri grænna, sagðist
enn telja að samráð hefði skort.
Lögin kvæðu skýrt á um að
nefndin ætti að vera ríkisstjórn-
inni til ráðuneytis um meiriháttar
utanríkismál. Ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar um stuðning við
innrásina án þess að Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna hefði fjallað
um málið fæli í sér stefnubreyt-
ingu hjá utanríkisráðherra miðað
við fyrri yfirlýsingar hans.
Vegna þessa hefði ríkisstjórnin
átt að funda með nefndinni áður
en innrásin í Írak hefði verið
studd opinberlega.
Halldór sagði að það hefði eng-
in stefnubreyting orðið. Hann
sagði það vera sína túlkun að þeg-
ar talað væri um meiriháttar ut-
anríkismál væri átt við mál þar
sem verið væri að skuldbinda Al-
þingi. Það hefði ekki verið gert í
þessu tilfelli. ■
Átakafundur var í utanríkismálanefnd um stuðning Íslands við innrásina í Írak:
Ekki meiriháttar utanríkismál
STENDUR Í STRÖNGU
Halldór Ásgrímsson fundaði með
utanríkismálanefnd Alþingis.
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur vikunnar
meðal 25 til 49 ára
samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
október 2002
29%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu?
62%
72%
BAGDAD Í LJÓSUM LOGUM
Mjög harðar árásir voru gerðar á Bagdad og fleiri borgir í Írak. Bandarísk hermálayfirvöld settu sér það markmið að skjóta á fleiri hundruð skotmarka síðustu nótt.
M
YN
D
/A
P