Fréttablaðið - 22.03.2003, Side 2
2 22. mars 2003 LAUGARDAGUR
Nei, ég er góður bakari, ágætur
myndlistarmaður og heiðarlegur
bæjarfulltrúi.
Andrés Sigmundsson, bakari og bæjarfulltrúi
Framsóknarflokksins í Vestmannaeyjum, sleit
meirihlutasamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn og er í
viðræðum við Vestmannaeyjalistann um nýjan
meirihluta.
Spurningdagsins
Bakarðu bara vandræði, Andrés?
■ Lögreglufréttir
VIÐSKIPTI Stofnfjáreigendur
SPRON hafa stofnað með sér
samtök til þess að vinna að hags-
munum sínum. Á aðalfundi
SPRON á miðvikudag býður hóp-
urinn fram lista gegn núverandi
stjórn SPRON. Guðný Rósa Þor-
varðardóttir, formaður samtak-
anna, segir að framboðið megi
ekki túlka sem allsherjar gagn-
rýni á stjórn SPRON. „Við teljum
hins vegar hollt að fá nýtt blóð í
stjórn sparisjóðsins og okkur
finnst að hagsmunir stofnfjár-
eigenda hafi verið vanræktir.“
Lista samtakanna skipa Pétur
Blöndal alþingismaður, sem fer
fyrir framboðinu, Hildur Njarð-
vík, Þorvarður Elíasson, Dögg
Pálsdóttir og Sveinn Valfells.
Pétur og Sveinn tilheyrðu
hópi fimmmenninganna sem
vildu kaupa hluti stofnfjáreig-
enda fyrir Búnaðarbanka Ís-
lands.
Guðný Rósa segir eitt af
markmiðum samtakanna að gera
stofnfjáreigendum kleift að selja
stofnfé sitt á markaðsverði. Þá
sé markmiðið að styrkja spari-
sjóðinn og efla tengsl stofnfjár-
eigenda og stjórnenda sjóðsins.
Hópurinn hyggst halda opinn
fræðslufund á mánudagskvöld.■
Stefnir í baráttu um SPRON:
Tveir listar
í stjórnarkjöri
NÝTT BLÓÐ
Guðný Rósa Þorvarðardóttir segir að ekki beri að líta á framboð til stjórnar í SPRON sem
allsherjar gagnrýni á störf núverandi stjórnar. Nýtt blóð sé hins vegar hollt.
Stríðið í Írak:
Senda
CNN beint
á Stöð 1
SJÓNVARP Sjónvarpsstöðin Stöð 1,
sem sendir út á Faxaflóasvæðinu,
mun endurvarpa dagskrá CNN-
fréttastöðvarinnar beint á næstu
dögum. Gert hefur verið sam-
komulag þessa efnis við eiganda
CNN, Turner Broadcast.
Útsendingarnar áttu að hefjast
strax í nótt sem leið. Stöð 1 segir
að með þessu sé sjónvarpsáhorf-
endum gefinn kostur á því að
fylgjast með atburðarás stríðs-
átaka í Írak í opinni og ólæstri dag-
skrá. Sjónvarpsmerki Stöðvar 1
næst með hefðbundnu sjónvarps-
loftneti. Stöð 1 hefur verið í burð-
arliðnum um allnokkurt skeið. ■
KÓREUSKAGI, AP Á sama tíma og
Bandaríkjamenn og Bretar ráð-
ast á Írak grafa heræfingar
Bandaríkjamanna og Suður-
Kóreumanna á Kóreuskaga und-
an friði á svæðinu, segja norður-
kóresk stjórnvöld. Haldi þetta
áfram kemst Kóreuskaga á
barm kjarnorkustríðs.
Norður-Kóreumenn hafa iðu-
lega gagnrýnt heræfingar
Bandaríkjamanna og Suður-
Kóreumanna. Æfingarnar fara
sérstaklega fyrir brjóstið á þeim
nú þegar deilt er um kjarnorku-
vopnaeign þeirra. Suður-Kóreu-
menn settu her sinn í aukna við-
bragðsstöðu þegar innrásin var
gerð í Írak.
Það var rökstutt með því að
hætt væri við því að stjórnvöld í
Pyongyang myndu gera eitthvað
til að auka á spennu. Norður-
Kóreumenn hafa gagnrýnt þetta
harkalega sem „ruddalega
áskorun og óþolandi fjandskap“.
Cho Young-kil, varnarmála-
ráðherra Suður-Kóreu, sagði
norður-kóresk stjórnvöld hafa
fyrirskipað loftvarnaæfingar til
að halda almenningi við efnið.
Hann óttaðist þó ekki að Suður-
Kóreu myndi verða ögrað með
hernaðaraðgerðum Norður-
Kóreumanna. ■
Norður-Kóreumenn:
Á barmi kjarn-
orkustríðs
HERÆFINGUM MÓTMÆLT
Suður-Kóreumaður mótmælir heræfingum
Suður-Kóreuhers og Bandaríkjahers. Mað-
urinn mótmælti á staðnum þar sem her-
æfingar fara fram.
SVEITARSTJÓRNAMÁL Uppnám er í
bæjarpólitíkinni í Vestmannaeyj-
um eftir að Andrés Sigmundsson,
bæjarfulltrúi Framsóknarflokks,
sleit meirihlutasamstarfi við
Sjálfstæðisflokkinn og tók upp
viðræður við aðstandendur Vest-
mannaeyjalistans. Hluti Fram-
sóknarflokksins fylgir bæjarfull-
trúa sínum að málum en annar
maður á lista leiðir andstöðu við
Andrés. Samstarf Framsóknar-
flokks og Sjálfstæðisflokks hafði
aðeins staðið í tæpt ár en áður
stjórnaði Sjálfstæðisflokkurinn í
krafti hreins meirihluta. Það sem
endanlega varð meirihlutanum að
falli var niðurstaða vinnuhóps um
bættar samgöngur við Vest-
mannaeyjar. Framsóknarmenn
höfðu barist fyrir því að hrað-
skreiðari ferja yrði fengin til að
þjóna Eyjamönnum í stað Herj-
ólfs en niðurstaða vinnuhópsins
varð sú að afskrifa hugmyndina
um hraðskreiða
ferju en horfa
þess í stað til
þess að koma
upp ferjulægi í
Bakkafjöru og
stytta þar með
siglinguna milli
lands og Eyja.
„Þetta var að-
eins kornið sem fyllti mælinn,“
segir Andrés bæjarfulltrúi.
Hann segist hafa verið leyndur
ýmsum upplýsingum um sam-
krull bæjarins og fyrirtækja á
staðnum og ekki fengið þau svör
sem hann óskaði eftir.
„Ég hef verið ákaflega ósáttur
með margt í samstarfinu, svo sem
samkrull við atvinnulífið. Þar
nefni ég Þróunarfélagið og að
ekki hafi verið hægt að klára þau
mál og loks var verið að senda
reikning á bæjarsjóð upp á rúm-
lega 21 milljón króna vegna Eign-
arhaldsfélagsins. Ég fellst ekki á
að bærinn sé látinn borga þann
reikning sem er vegna hlutafjár-
loforða fyrri meirihluta Sjálf-
stæðisflokksins. Að mínu mati
stríðir það loforð gegn sveitar-
stjórnarlögum og ég mun beita
mér fyrir því að þau mál verði
krufin til mergjar,“ segir Andrés.
Mikil umræða hefur verið
vegna Þróunarfélagsins en þar
var Guðjón Hjörleifsson bæjar-
stjóri stjórnarformaður. Þrjár af
fjórum bókhaldsmöppum félags-
ins eru týndar og hefur það vakið
tortryggni um að ekki hafi verið
allt með felldu. Félagsmálaráðu-
neytið er nú með málefni Þróun-
arfélagsins til skoðunar.
Andrés segir að staða bæjar-
sjóðs sé afar veik og verkefnið
verði að endurreisa fjárhaginn.
„Bæjarsjóður er mjög illa
staddur og verkefni okkar er að
forðast að lenda í gjörgæslu.
Hefði ég haldið áfram í þessu
samstarfi þá hefðum við verð-
skuldað fallið í næstu kosning-
um,“ segir Andrés, sem segist
hafa haft efasemdir um samstarf-
ið nánast frá upphafi.
„Það hefur dunið á mér rógur
sem er með ólíkindum. Ég hef
aldrei fyrr upplifað neitt þessu
líkt,“ segir Andrés.
Lúðvík Bergvinsson oddviti
Vestmannaeyjalistans, segir að
það muni skýrast á næstu dögum
hvernig nýju meirihlutasamstarfi
verður háttað.
„Meirihlutinn er sprunginn og
það verður ekki myndaður meiri-
hluti nema með okkar aðkomu.
Við öxlum þá ábyrgð og munum
leggja okkar af mörkum til að
snúa við þeirri neikvæðu þróun
sem hér hefur verið að undan-
förnu. Í Eyjum eru mörg tækifæri
sem bæjarbúar verða að leggjast
á eitt um að nýta,“ segir Lúðvík.
Ingi Sigurðsson, sem var ráð-
inn bæjarstjóri eftir að Guðjón
Hjörleifsson lét af störfum, mun
samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins ekki halda starfinu þar
sem litið er á hann sem trúnaðar-
mann Sjálfstæðisflokksins.
Lúðvík vildi ekkert um það
segja hvernig bæjarstjóramálum
yrði háttað en útilokaði að taka
sjálfur við embættinu.
rt@frettabladid.is
Vill forða fjárvana
bæ frá gjörgæslu
Andrés Sigmundsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, sprengdi meirihlutann og vill fá allt
upp á borðið varðandi ábyrgðir bæjarins og samkrull við atvinnulífið. Segir bæjarsjóð vera
kominn að fótum fram. Lúðvík Bergvinsson vill ekki verða bæjarstjóri.
LÚÐVÍK BERGVINSSON VILL EKKI VERÐA BÆJARSTJÓRI
Segir að á næstu dögum skýrist hvernig nýju meirihlutasamstarfi verður háttað.
„Það hefur
dunið á mér
rógur sem
er með
ólíkindum.
ÞJÓÐARÚTGJÖLD VAXA Þjóðarút-
gjöld eru talin hafa vaxið um
0,2% að raungildi á fjórða árs-
fjórðungi 2002 miðað við sama
fjórðung fyrra árs, samkvæmt
Hagstofu Íslands. Þetta er tals-
verð breyting því þrjá fyrri
fjórðunga ársins höfðu þjóðarút-
gjöldin dregist saman miðað við
sama tíma árið áður.
EINKANEYSLA EYKST Einkaneysla
er talin hafa vaxið um 1,3% á 4.
ársfjórðungi 2002 samanborið við
0,2% vöxt á 3. fjórðungi ársins,
hvort tveggja miðað við sömu
fjórðunga árið áður. Áfram gætti
samdráttar í fjárfestingu, nú um
8,5% frá fyrra ári samanborið við
19% á 3. fjórðungi. Samneysla er
talin hafa vaxið um 4,7% á 4. árs-
fjórðungi, sem er meiri vöxtur en
á fyrri fjórðungum ársins.
SJÖ BÍLA ÁREKSTUR Fjórir
árekstrar urðu í Hafnarfirði
seinni partinn í gær. Allt voru
þetta aftanákeyrslur sem voru
ýmist á Flatahrauni eða á
Reykjanesbraut við Kaplakrika.
Í einum árekstrinum voru sjö
bílar sem lentu hver aftan á
öðrum. Ekki urðu slys á fólki.
Framlög til
stjórnmálaflokka:
180 milljónir
FJÁRMÁL STJÓRNMÁLAFLOKKA Stjórn-
málaflokkarnir sem eiga fulltrúa á
þingi hafa fengið 780 milljónir síð-
astliðin fimm ár til starfsemi sinn-
ar. Framlagið í ár er 180 milljónir.
Flokkar sem fá yfir 2,5 prósent at-
kvæða fá framlög frá ríkinu. Fram-
lögunum er úthlutað í hlutfalli við
atkvæðamagn sem flokkarnir fá í
kosningum. Framlagið var 136
milljónir króna til ársins 2001, en
þá hækkaði það í 164 milljónir til
ársins í ár. ■
■ Efnahagsmál
Einangrunarbúðir:
Reyna enn að
svipta sig lífi
GUANTANAMO, AP Einn fanganna
sem Bandaríkjamenn halda í ein-
angrunarbúðunum í Guantanamo
gerði tilraun til að svipta sig lífi.
Maðurinn reyndi að hengja sig en
vörðum tókst að bjarga lífi hans.
Þetta er 23. tilraunin sem fangi
í Guantanamo gerir til að svipta
sig lífi. Þessi fangi hefur áður
reynt að fremja sjálfsmorð. 13
sjálfsmorðstilraunir hafa verið
gerðar það sem af er þessu ári.
Um 650 hermönnum Talibana og
al Kaída-liðum er haldið í Guant-
anamo herstöðinni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
I/
RÓ
B
ER
T