Fréttablaðið - 22.03.2003, Page 6
6 22. mars 2003 LAUGARDAGUR
AKUREYRI Mótmæli eru víða vegna
innrásarinnar í Írak, jafnt á er-
lendum vettvangi sem innan-
lands. Þannig komu saman rúm-
lega þrjú hundruð friðarsinnar á
Ráðhústorgi á Akureyri á fimmtu-
dag og í ályktun fundarins er það
harmað að Ísland sé dregið í stríð
Bandaríkjaforseta og fylgifiska
hans. Þar segir meðal annars:
„Mikill meirihluti íslensku þjóð-
arinnar er andvígur þessari árás
og því að Ísland skuli vera á sér-
stökum stuðningslista við stríð
George W. Bush. Það er í hróp-
legri andstöðu við vilja okkar og
brot á stjórnarskrá Íslenska lýð-
veldisins og einnig á stofnsátt-
mála Sameinuðu þjóðanna. Við
skorum á utanríkisráðherra að
taka okkur tafarlaust af þessum
lista og hverfa frá þessari stríðs-
stefnu. Annars getur hann ekki
verið utanríkisráðherra okkar.“ ■
BANVÆN MÓTMÆLI Tveir létust
og tugir særðust þegar til átaka
kom milli lögreglumanna og mót-
mælenda í Jemen. Mótmælin
fóru fram við bandaríska sendi-
ráðið.
AUKINN STUÐNINGUR Sjö af
hverjum tíu Bandaríkjamönnum
eru hlynntir stefnu stjórnvalda
gagnvart Írak samkvæmt nýrri
skoðanakönnun. Vinsældir
George W. Bush hafa aukist tals-
vert, 67% eru ánægð með
frammistöðu hans í starfi, rúm-
lega tíu prósentustigum fleiri en í
síðustu könnunum.
SADDAM BÝÐUR VERÐLAUN
Saddam hefur heitið Írökum pen-
ingaverðlaunum fyrir frammi-
stöðu sína gegn innrásarherjum.
Hver sá sem skýtur niður óvina-
flugvél fær andvirði 4,5 milljóna
króna, en þeir sem skjóta niður
þyrlu fá helming þeirrar upp-
hæðar. Sá sem handsamar banda-
rískan eða breskan flugmann fær
andvirði 2,3 milljóna króna, en sé
flugmanninum banað fæst hálf sú
upphæð.
BYRJAR VEL Innrásin í Írak virð-
ist byrja vel þrátt fyrir að átta
breskir hermenn hafi látist í
þyrluslysi, sagði Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, en var-
aði við því að fólk gerði sér vonir
um skjótan sigur.
RAUÐI KROSSINN „Ég á í raun von á
hverju sem er en er óttalaus
enda almennt ekki mjög
áhyggjufull né lífhrædd. En
vissulega þarf maður að vera
léttruglaður til að taka þátt í
svona,“ segir Eva Laufey Stef-
ánsdóttir hjúkrunarfræðingur,
sem mjög líklega er á leið til
Miðausturlanda að sinna hjálpar-
starfi á vegum Rauða krossins
vegna stríðsins í Írak.
Hún er í viðbragðsstöðu, búin
að pakka og þess albúin að fara.
Eva Laufey hefur verið starfandi
hjá Landspítalanum að unda-
förnu, á hjartadeild, en gerir
ekki ráð fyrir því að mæta þang-
að til vinnu í bráð. Vinnuveitend-
ur líta þetta skilningsríkum aug-
um enda var um það samið í
byrjun að Eva Laufey gæti þurft
að fara með litlum fyrirvara.
Hvenær hún nákvæmlega fer
er nokkuð sem erfitt er að segja
um. „Fyrir einni og hálfri viku
var mér sagt að vera í viðbragðs-
stöðu. Alltaf var búist við því að
mikill hernaður yrði en ekki
stendur til að fara inn í Írak fyrr
en óhætt er talið. Við förum ekki
inn í átökin mið enda erum við
mjög varkár. Rauði krossinn
starfar í nánu samstarfi við yfir-
völd á hverjum stað. Í auknari
mæli en aðrar stofnanir. Ég er í
góðum höndum.“
Að sögn Þóris Guðmundsson-
ar hjá Rauða krossinum eru tíu
alþjóðlegir Rauða kross menn
alls í Írak. Í gærmorgun voru 400
flóttamenn komnir til Jórdaníu.
Sögusagnir eru um flóttamenn
við landamæri Írans sem ekki
hafa komist yfir. Hernaðurinn er
ekki hafinn af þeim þunga sem
búist var við og flóttamenn eru
að miklu leyti útlendingar.
Flóttamannastraumur innan Írak
er þegar hafinn.
Eva Laufey er þaulvön hjálp-
arstarfi og hefur farið víða, enda
hefur hún stefnt að þessu frá því
hún var ung. „Þetta er ævintýra-
mennska. Skemmtilegt líf að rífa
sig upp með rótum og laga sig að
nýjum aðstæðum og nýrri menn-
ingu. Maður verður að vera sér
meðvitaður um að maður bjargar
ekki heiminum en leggur sitt lóð
á vogarskálarnar.“
jakob@frettabladid.is
HERT ÖRYGGISGÆSLA
Öryggi hefur verið eflt verulega í Bandaríkj-
unum að undanförnu en engu að síður
virðast margir landsmanna forðast ferðalög
þessa dagana, jafnt innanlands sem utan.
Bandaríkja-
menn halda
sig heima
ATLANTA, AP Það þarf varla að koma
á óvart að Bandaríkjamenn forð-
ast að leggja leið sína til Miðaust-
urlanda þessa dagana. Athyglis-
verðara er að fjöldi Bandaríkja-
manna hefur skotið á frest ferða-
lögum til annarra Asíulanda, Afr-
íku og Evrópu. Bandarísk skipafé-
lög hafa stöðvað siglingar um
Miðjarðarhafið í bili og flugfélög
lagt niður ferðir á ákveðnum flug-
leiðum. Ástæðan er ótti við
hryðjuverk í kjölfar innrásar
Bandaríkjamanna í Írak.
Hræðslan og óróleikinn gera
einnig vart við sig heima fyrir.
Ferðalög innanlands hafa dregist
töluvert saman auk þess sem
margir velja að keyra fremur en
fljúga á milli staða. ■
BRUSSEL, AP Hafi vonir leiðtoga
Evrópusambandsríkjanna staðið
til þess að jafna út ágreining sinn
um innrás í Írak á leiðtogafundi
Evrópusambandsins í Brussel í
gær má vera ljóst að það hafi
mistekist.
„Frakkland hefur fullan rétt
til að gagnrýna þetta stríð,“
sagði Jacques Chirac Frakk-
landsforseti og ítrekaði að
Frakkland myndi ekki sam-
þykkja ályktun til að réttlæta
innrás í Írak og viðurkenna völd
innrásarríkjanna í Írak. Tony
Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, hafði lagt til að Evrópu-
sambandið myndi styðja ályktun
í öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna um nýja ályktun sem heim-
ilaði nýja stjórn í Írak eftir fall
Saddams Husseins.
Leiðtogar aðildarríkja Evr-
ópusambandsins voru sammála
um nauðsyn þess að vinna að
mannúðarstarfi í Írak að stríði
loknu og því að ný stjórn sem
tæki við völdum endurspeglaði
vilja írösku þjóðarinnar. ■
ÓHEPPILEGIR FÁNATILBURÐIR
Breskur stjórnarandstöðuþing-
maður hefur farið þess á leit við
bandarísk stjórnvöld að þau beiti
sér fyrir því að hermenn hætti að
draga bandaríska fánann að húni
á stöðum sem þeir leggja undir
sig í Írak. Brýnt hefur verið fyrir
breskum hermönnum að draga
fána sinn ekki að húni í fagnaðar-
skyni.
SADDAM Í HÚSINU Bandarískir
herforingjar telja að Saddam
Hussein hafi verið í húsnæði sem
flugskeytum var skotið á aðfara-
nótt fimmtudags. Þeir segja vís-
bendingar um að háttsettur leið-
togi hafi særst og byggja það á
því að sjúkralið hafi verið kallað
á vettvang í miklum flýti.
■ Innrás í Írak/Ferðalög
■ Innrás í Írak/örfréttir
■ Innrás í Írak/örfréttir
■ Innrás í Írak/Hjálparstarf
■ Innrás í Írak/Evrópusambandið
■ Innrás í Írak/Mótmæli
Ekki lífhrædd kona
Eva Laufey Stefánsdóttir er hjúkrunarfræðingur og starfsmaður hjá Alþjóðaráði Rauða
krossins. Hún er í viðbragðsstöðu, búin að pakka og gerir fastlega ráð fyrir því að
vera kölluð til starfa í grennd við átakasvæðið í Írak.
EVA LAUFEY STEFÁNSDÓTTIR:
Á leiðinni í áttina að Írak. Hún er segist spennt en játar að eiga erfiðara með svefn en
venja er til.
Akureyrskir friðar-
sinnar skora á Halldór
RÁÐHÚSTORG
Fundur friðarsinna mótmælir veru Íslands á sérstökum stuðningslista við stríð
George W. Bush og fylgifiska hans.
Evrópuríki deila
enn um innrásina
RÖKRÆTT Í BRUSSEL
Leiðtogar aðildarríkja ESB voru sammála
um nauðsyn þess að vinna að mannúðar-
starfi að stríði loknu og koma á fót
lýðræðislegri ríkisstjórn í Írak.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T