Fréttablaðið - 22.03.2003, Síða 8
8 22. mars 2003 LAUGARDAGUR
■ Bandaríkin
Nuddað upp úr því
Við óttumst að þetta geti komið
óorði á stéttina.
Guðbrandur Einarsson, varaformaður
félags nuddara, um erótískar starfssystur sínar.
DV, 21. mars.
Með hvorum skyldi
hann halda?
Ef ímynd Davíðs
Oddssonar er styrk
og blá hönd við
stjórnvöl, þá er
ímynd Ingibjargar
Sólrúnar Gísladótt-
ur þæfður vettling-
ur.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson. DV, 21. mars.
Akkúrat!
Ekki er hægt að líða það að hann
skapi þá ógn við nágranna sína
og sína eigin þjóð.
Davíð Oddsson um Saddam
Hussein. DV, 21. mars.
Orðrétt
DEILUR „Það eru tvær hliðar á
hverju máli. Það á sér allt aðdrag-
anda og er vinnuregla hjá bílstjór-
um að þeir þurfi að biðja fólk að
yfirgefa vagninn á endastöðvum.
Þeir mega ekki skilja fólk eftir í
læstum vagninum af öryggis-
ástæðum því aldrei er að vita hvað
getur gerst,“ segir Hrafn Antons-
son hjá Hagvögnum.
Farþegi í strætó sagði frá átök-
um við vagnstjóra í blaðinu í gær.
Hrafn segir bílstjóra bera ábyrgð
á farþegum sem eru í vagninum
þegar hann yfirgefur vagninn.
Hann segir bílstjórinn hafa ítrekað
beðið konuna að yfirgefa vagninn,
en hún hafi hafnað því og hvorugt
hafi viljað gefa eftir. „Rætt hefur
verið við bílstjórann þar sem hon-
um er gerð grein fyrir hans þætti
málsins. Málinu er þó hvergi nærri
lokið því koma þarf í veg fyrir að
svona hlutir endurtaki sig,“ segir
Hrafn Antonsson.
Ásgeir Eiríksson, forstjóri
Strætó, segir mál sem þessi heyra
til undantekninga. „Konan ræddi
ekki við mig eins og fram kom í
greininni, heldur við forsvars-
mann Hagvagna, sem eru verk-
takar á okkar vegum. Auðvitað
erum við hundfúlir með þetta og
svona framkomu viljum við alls
ekki sjá, hvorki hjá starfsmönn-
um okkar né starfsmönnum verk-
takanna. Við viljum veita við-
skiptavinum okkar góða þjónustu
og atvik sem þetta flokkast ekki
undir það. Við bregðumst við með
þeim hætti sem okkur þykir eðli-
legt og viljum að Hagvagnar taki
á þessu máli gagnvart sínum
starfsmanni.“ ■
VIÐSKIPTI „Íslenskur fjarskipta-
markaður er um margt sérstæð-
ur. Hér er starfandi ríkisrekið
fjarskiptafyrirtæki með 73 pró-
sent markaðshlutdeild. Þetta er
afar óvenjuleg staða í saman-
burði við Noreg, Danmörku og
Svíþjóð. Telenor í Noregi, Telia í
Svíþjóð og TDC í Danmörku eru
öll með mun minni markaðshlut-
deild á sínum heimamörkuðum á
sviði heimilissíma- og farsíma-
þjónustu en
Landssími Ís-
lands hf. á Ís-
landi,“ sagði
Óskar Magnús-
son, forstjóri Ís-
landssíma, á að-
alfundi fyrir-
tækisins sem
haldinn var á
Grand Hótel.
Hann sagði
að ríkisfyrir-
tækin á hinum
N o r ð u r l ö n d -
unum væru lengra komin í einka-
væðingarferlinu og samkeppni
hefði verið öflugri í þessum lönd-
um. Þar hafi samkeppni verið
tryggð með því að eftirlitsstofn-
anir hafi haft sig meira í frammi
gagnvart markaðsráðandi fyrir-
tækjum.
„Gera má ráð fyrir að svipuð
þróun muni eiga sér stað hér á
landi og á hinum Norðurlöndun-
um, þ.e. að markaðshlutdeild
Landssímans minnki. Sameining
smærri fyrirtækjanna á íslensk-
um fjarskiptamarkaði rennir
stoðum undir þessa framtíðarsýn
enda eru þau ekki lengur að
keppa hvert við annað heldur
hafa þau sameinað krafta sína og
geta beint þeim að einum keppi-
naut,“ sagði Óskar.
Hann segir mikilvægt að eftir-
litsstofnanir á fjarskiptamarkaði
átti sig á þeirri staðreynd að sam-
keppnin hafi á síðustu árum
tryggt stórlækkað verð á fjar-
skiptaþjónustu til neytenda.
„Þótt nú sé orðið til öflugra fé-
lag, eftir sameiningu Íslands-
síma, Tals og Halló, þá er Lands-
sími Íslands enn með yfirburða
stöðu á markaði, flestir myndu
segja óheilbrigða stöðu út frá
samkeppnissjónarmiðum,“ sagði
Óskar.
„Nú sem aldrei fyrr ríður því
á að Samkeppnisstofnun og Póst-
og fjarskiptastofnun haldi vöku
sinni og veiti markaðsráðandi
fyrirtæki aðhald. Ég tel að þar
skorti ýmislegt á. Mál dragast
allt of lengi og sum fást ekki af-
greidd langtímum saman. Það
dugir ekki að málum sé drepið á
dreif mánuðum og jafnvel árum
saman. Við það verða stofnanirn-
ar máttlausar og gagnslausar,“
sagði hann.
Forstjórinn gagnrýndi það
hvar eignarhald á hlutabréfum
Landssíma Íslands liggur. „Ég
leyfi mér einnig að gagnrýna að
eignarhald á hlutabréfum Lands-
síma Íslands sé í samgönguráðu-
neytinu, sama ráðuneyti og fer
með framkvæmdavald á málum
sem lúta að fjarskiptum. Tilskip-
un Evrópusambandsins um að-
skilnað á milli yfirstjórnar fjar-
skiptamála og eignarhalds á fjar-
skiptafyrirtækjum tekur af öll
tvímæli um lögmæti slíkrar ráð-
stöfunar,“ sagði Óskar. ■
SVEITARSTJÓRNIR Sigrún Jónsdóttir,
varabæjarfulltrúi Samfylkingar í
Kópavogi, segir lögreglulið allt of
fámennt í Kópavogi miðað við
íbúafjölda og þörf á löggæslu í
sveitarfélaginu.
„Ríkisvaldið ber ábyrgð á því
hve fáir lögreglumenn eru við
störf í Kópavogi og gagnrýnir und-
irrituð harðlega að ekki skuli hafa
verið fjölgað í lögregluliði bæjar-
ins í samræmi við fjölgun íbúa á
undanförnum árum,“ bókaði Sig-
rún á fundi bæjarráðs á fimmtu-
dag.
Meirihluti sjálfstæðismanna og
framsóknarmanna í bæjarráðinu
sagðist taka undir fyrri samþykkt-
ir bæjarstjórnar um að fjölga þurfi
í Lögreglu Kópavogs. Ekki væri þó
rétt að grípa inn í málið:
„Meirihlutinn vill benda á að í
gangi er tilraunaverkefni milli
Sýslumannsembættisins í Kópa-
vogi og Ríkislögreglustjóra um
löggæslu í Kópavogi og telur bæj-
arráð rétt að bíða eftir niðurstöðu
þess verkefnis. Auk þess er nú
unnið að endurbótum að skipulagi
Sýslumannsembættisins í Kópa-
vogi og óráðlegt að bæjarráð grípi
þar inn í án þess að hafa samráð
við lögregluyfirvöld í Kópavogi,“
sagði meirihlutinn. ■
LÍFSTÍÐARFANGELSI FYRIR
NJÓSNIR Brian Patrick Regan,
fyrrum yfirliðþjálfi í bandaríska
flughernum, hefur verið dæmdur
í lífstíðarfangelsi fyrir að bjóða
íröskum og kínverskum yfirvöld-
um að kaupa leynilegar upplýs-
ingar frá bandarískum stofnun-
um.
ÞRJÚHUNDRUÐASTA AFTAKAN
Hinn 35 ára gamli Keith Clay
hlaut þann vafasama heiður að
verða þrjú-
hundruðasti
fanginn sem
tekinn er af
lífi í Texas.
Clay var
dæmdur fyrir
að skjóta til
bana af-
greiðslumann í
matvöruversl-
un í vopnuðu
ráni árið 1994. Áður en aftakan
fór fram bað Clay aðstandendur
fórnarlambsins fyrirgefningar og
sagðist iðrast synda sinna.
ÓLÖGLEGUR VOPNAÚTFLUTNING-
UR Dómstólar í Flórída hafa gef-
ið út ákærur á hendur tveimur
mönnum sem grunaðir eru um að
hafa reynt að kaupa eldflauga-
vörpur og önnur skotfæri að and-
virði um 2,5 milljóna króna til að
flytja þau ólöglega úr landi.
Mennirnir eru taldir vera frá
Pakistan en ekki er vitað hvar
þeir eru nú niðurkomnir.
HÉRAÐSDÓMUR REYKJANESS
Dæmdi ökumann til sektar og
missis ökuréttinda.
Sviptur ökuréttindum:
130 þúsund
króna sekt
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
ness dæmdi 26 ára gamlan mann
til 130 þúsund króna sektar fyrir
að aka undir áhrifum áfengis í
Kópavogi í janúar. Jafnframt var
hann sviptur ökuréttindum í eitt
ár.
Áfengismagn í blóði mannsins
var 1,85 prómill. Verjandi öku-
mannsins reyndi að sýna fram á
að ökumaðurinn hafi átt erfitt
þegar hann framdi brotið. Dómin-
um þótti hins vegar engin ástæða
til að taka tillit til þess. ■
LÖGREGLAN Í KÓPAVOGI
Lögreglumönnum í Kópavogi fjölgaði úr 23 í 25 á árunum 1992 til 2002. Á sama tíma
fjölgaði bæjarbúum úr 17 þúsundum í 25 þúsundir.
Bæjarfulltrúi í Kópavogi gagnrýnir ríkið:
Gagnrýnir ríkið fyrir
fámennt lögreglulið
Gagnrýndi eignarhald
á Landssímanum
Óskar Magnússon, forstjóri Íslandssíma, gagnrýndi slaka frammistöðu eftirlitsstofnana á
fjarskiptamarkaði. Segir stöðu Landssímans vera óheilbrigða út frá samkeppnissjónarmiði.
ÓSKAR MAGNÚSSON
Frá aðalfundi Íslandssíma þar sem fram-
kvæmdastjórinn gagnrýndi mjög eignar-
hald ríkisins á Landssíma Íslands.
„Nú sem
aldrei fyrr ríð-
ur því á að
Samkeppnis-
stofnun og
Póst- og fjar-
skiptastofnun
haldi vöku
sinni.
Hagvagnar segja tvær hliðar á átökum:
Bílstjóra gerð grein
fyrir ábyrgð
STRÆTÓ
Forstjórinn segist ósáttur við framferði bílstjórans.