Fréttablaðið - 22.03.2003, Síða 14
14 22. mars 2003 LAUGARDAGUR
Framsóknar-
flokkurinn
AF ÞEIM SEM VELJA
FRAMSÓKN Í KÖNNUNUM:
72% kusu Framsóknarflokkinn síðast
11% kusu Sjálfstæðisflokkinn síðast
1% kaus Frjálslynda
3% kusu Samfylkinguna
3% kusu Vinstri græna
3% voru ekki með kosningarétt
7% kusu ekki eða neituðu að svara.
AF ÞEIM SEM KUSU FRAM-
SÓKN Í SÍÐUSTU ALÞINGIS-
KOSNINGUM:
48% kjósa Framsóknarflokkinn
6% kjósa Sjálfstæðisflokkinn
2% kjósa Frjálslyndaflokkinn
11% kjósa Samfylkinguna
2% kjósa Vinstri græna
2% ætla ekki að kjósa
29% eru óákveðin
Ferðalag fylgisins
SKOÐANAKÖNNUN Samfylkingin á
tryggustu kjósendurna sam-
kvæmt könnunum Fréttablaðsins
þar sem skoðaðar eru hreyfingar
kjósenda frá síðustu kosningum.
70 prósent þeirra sem kusu Sam-
fylkinguna í síðustu kosningum
ætla að gera það aftur í vor.
Næstir koma sjálfstæðismenn,
en 61 prósent kjósenda Sjálfstæð-
isflokksins skilar sér aftur til
flokksins. Tryggðin er ekki jafn
augljós í fylgi annarra flokka.
Rúmlega helmingur kjósenda
Vinstri grænna og Frjálslynda
flokksins skilar sér áfram frá
kosningum til kannana. Hið marg-
umtalaða Framsóknargen er sam-
kvæmt könnununum víkjandi.
Einungis 48 prósent þeirra sem
kusu Framsóknarflokkinn síðast
segjast ætla að gera það aftur nú.
Reikandi stjórnarkjósendur
Þegar hreyfing fylgisins frá
flokkunum er skoðuð kemur í ljós
að stór hópur kjósenda ríkis-
stjórnarflokkanna í síðustu kosn-
ingum er óákveðinn nú. Af þeim
sem kusu Framsóknarflokkinn í
síðustu kosningum eru 29 prósent
nú óákveðin. Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur tapað 21 prósenti kjós-
enda sinna í síðustu kosningum
yfir í hóp óákveðinna. Þetta hlýtur
að vekja þessum flokkum nokkrar
vonir um að hægt sé að smala
hjörð óákveðinna heim.
Sex prósent kjósenda Fram-
sóknarflokksins í síðustu kosning-
um fara yfir á Sjálfstæðisflokk-
inn. Hins vegar fara þrjú prósent
frá Sjálfstæðisflokki yfir á Fram-
sóknarflokk. Stærðarmunur
flokkanna gerir það að verkum að
prósenturnar segja ekki allt.
Þannig eru framsóknarmenn að
stela fleiri atkvæðum frá Sjálf-
stæðisflokki en sjálfstæðismenn
frá Framsóknarflokki. Sá flokkur
sem stelur mestu fylgi frá stjórn-
arflokkunum er Samfylkingin.
Ellefu prósent þeirra sem kusu
Framsóknarflokkinn síðast ætla
að kjósa Samfylkinguna nú og tíu
prósent þeirra sem kusu Sjálf-
stæðisflokkinn. Sama gildir um
þetta og hreyfinguna milli Fram-
sóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks. Samfylkingin tekur mikl-
um mun fleiri atkvæði frá Sjálf-
stæðisflokki en Framsóknar-
flokki.
Nælt í nýtt fylgi
Flokkunum gengur misvel að
ná til sín nýju fylgi. 88 prósent
þeirra sem segjast ætla að kjósa
Sjálfstæðisflokkinn kusu hann
einnig í síðustu kosningum. 72
prósent þeirra sem ætla að kjósa
Framsóknarflokkinn gerðu það
einnig í síðustu kosningum.
Hlutfallið er mun minna hjá
öðrum flokkum. Stjórnarflokkun-
um gengur því illa að fá þá sem
kusu aðra eða kusu ekki síðast í
sinn hóp. Tryggðin kemur þá til
góða, en mikið fylgistap Fram-
sóknarflokksins skýrist af því að
tryggð við flokkinn er á undan-
haldi um leið og ekki tekst að
næla í nýja kjósendur. Sjálfstæð-
isflokkurinn stendur betur að vígi
þrátt fyrir að honum gangi illa að
laða til sín nýja kjósendur. Hann
heldur betur í gamla kjósendur
sína.
Fjórtán prósent fylgis Sam-
fylkingarinnar koma frá þeim
sem kusu Sjálfstæðisflokkinn síð-
ast. Langmest af nýju fylgi Sam-
fylkingarinnar kemur frá kjós-
endum Sjálfstæðisflokksins.
Miðjusækni Samfylkingarinnar
skilar henni hópi kjósenda frá
Sjálfstæðisflokki, en á sama tíma
fer vinstrisinnaðri hluti flokksins
yfir á Vinstri græna. Hreyfing er
á milli kjósenda Samfylkingar og
Vinstri grænna. Báðir flokkar
tapa og vinna fylgi frá hinum. 22
prósent kjósenda Vinstri grænna
kusu Samfylkinguna síðast. Nýtt
fylgi Vinstri grænna kemur að
mestu leyti frá Samfylkingunni. Á
sama tíma er 21 prósent þeirra
sem kusu Vinstri græna síðast
komið í herbúðir Samfylkingar-
innar. Vinstri grænir tapa óveru-
legu fylgi yfir til annarra flokka
en Samfylkingarinnar.
Nýir og óákveðnir
Um 38 prósent nýrra kjósenda
hafa ekki gert upp hug sinn. Af
þeim sem gert hafa upp hug sinn
ætla 39 prósent að kjósa Sjálf-
stæðisflokkinn, tæp 32 prósent
Samfylkinguna og tæp fimmtán
prósent kjósa Vinstri græna og
Framsóknarflokkinn. Enginn nýr
kjósandi ætlaði að kjósa Frjáls-
lynda flokkinn.
Tæp 40 prósent þeirra sem eru
óákveðnir kusu ekki í síðustu
kosningum. Fimmtán prósent
gefa ekki upp hvað þeir kusu. Ef
teknir eru þeir óákveðnu sem
segjast hafa kosið flokk í síðustu
kosningum segist tæpur helming-
ur hafa kosið Sjálfstæðisflokkinn.
24 prósent kusu Framsóknar-
flokkinn og rúm 20 prósent kusu
Samfylkinguna. Sex prósent kusu
Vinstri græna og eitt prósent
Frjálslynda flokkinn.
Vonir og væntingar
Nú þegar formleg kosninga-
barátta er að hefjast eru eflaust
margir að spá í hver þróunin verði
fram að kjördegi. Vandi er um
slíkt að spá. Fylgi næst ekki nema
með tvennum hætti. Annars vegar
að ná gamla fylginu sínu og hins
vegar að laða til sín nýtt fylgi.
Annað hvort með því að næla í
nýja kjósendur eða stela fylgi
annarra flokka. Stjórnarflokkarn-
ir hljóta samkvæmt þessum könn-
unum að horfa til þess hóps sem
hefur horfið frá þeim yfir í hóp
óákveðinna. Þessi óákveðni hópur
fyrrum kjósenda stjórnarflokk-
anna ætti einnig að skapa sóknar-
færi fyrir Frjálslynda flokkinn og
Til að vinna kosningasigur þarf bæði að halda gamla fylginu og ná í nýtt. Sóknarfæri flokkanna
eru mismunandi. Þeir sækja fylgi sitt í ólíka hópa. Kjósendur þeirra eru líka mistryggir og þeim
gengur líka misvel að laða til sín nýja kjósendur.
- þar sem þú
finnur fagmanninn
Í dag laugardaginn 22. mars kynna félagsmenn
í Meistarafélagi bólstrara glæsilega íslenska
húsgagnaframleiðslu og bólstrun. Verið velkomin
í opið hús milli 13 og 16 í dag. Þið finnið allt um
Dag iðnaðarins og bólstrara á Meistarinn.is og
í laugardagsblaði Morgunblaðsins.
Sjálfstæðis-
flokkurinn
AF ÞEIM SEM VELJA SJÁLF-
STÆÐISFLOKK Í KÖNNUNUM:
3% kusu Framsóknarflokkinn síðast
88% kusu Sjálfstæðisflokkinn síðast
0% kusu Frjálslynda
2% kusu Samfylkinguna
1% kaus Vinstri græna
3% voru ekki með kosningarétt
3% kusu ekki eða neituðu að svara
AF ÞEIM SEM KUSU SJÁLF-
STÆÐISFLOKKINN Í SÍÐUSTU
ALÞINGISKOSNINGUM:
3% kjósa Framsóknarflokkinn
61% kýs Sjálfstæðisflokkinn
2% kjósa Frjálslyndaflokkinn
10% kjósa Samfylkinguna
1% kýs Vinstri græna
2% ætla ekki að kjósa
21% er óákveðið
Frjálslyndi
flokkurinn
AF ÞEIM SEM VELJA FRJÁLS-
LYNDA Í KÖNNUNUM:
7% kusu Framsóknarflokkinn síðast
26% kusu Sjálfstæðisflokkinn síðast
37% kusu Frjálslynda
12% kusu Samfylkinguna
4% kusu Vinstri græna
0% voru ekki með kosningarétt
14% kusu ekki eða neituðu að svara
AF ÞEIM SEM KUSU FRJÁLS-
LYNDA Í SÍÐUSTU ALÞINGIS-
KOSNINGUM:
6% kjósa Framsóknarflokkinn
6% kjósa Sjálfstæðisflokkinn
55% kjósa Frjálslyndaflokkinn
22% kjósa Samfylkinguna
3% kjósa Vinstri græna
0% ætla ekki að kjósa
9% eru óákveðin
Samfylkingin
AF ÞEIM SEM VELJA SAM-
FYLKINGUNA Í KÖNNUNUM:
5% kusu Framsóknarflokkinn síðast
14% kusu Sjálfstæðisflokkinn síðast
1% kaus Frjálslynda
56% kusu Samfylkinguna
5% kusu Vinstri græna
2% voru ekki með kosningarétt
11% kusu ekki eða neituðu að svara.
AF ÞEIM SEM KUSU SAMFYLK-
INGUNA Í SÍÐUSTU ALÞINGIS-
KOSNINGUM:
1% kýs Framsóknarflokkinn
3% kjósa Sjálfstæðisflokkinn
1% kýs Frjálslyndaflokkinn
70% kjósa Samfylkinguna
7% kjósa Vinstri græna
1% ætlar ekki að kjósa
15% eru óákveðin
Vinstri
grænir
AF ÞEIM SEM VELJA VINSTRI
GRÆNA Í KÖNNUNUM:
5% kusu Framsóknarflokkinn síðast
4% kusu Sjálfstæðisflokkinn síðast
1% kaus Frjálslynda
22% kusu Samfylkinguna
53% kusu Vinstri græna
4% voru ekki með kosningarétt
11% kusu ekki eða neituðu að svara.
AF ÞEIM SEM KUSU VINSTRI
GRÆNA Í SÍÐUSTU ALÞINGIS-
KOSNINGUM:
3% kjósa Framsóknarflokkinn
2% kjósa Sjálfstæðisflokkinn
1% kýs Frjálslyndaflokkinn
21% kjósa Samfylkinguna
56% kjósa Vinstri græna
1% ætlar ekki að kjósa
15% eru óákveðin
DAVÍÐ ODDSSON
88% þeirra sem ætla að kjósa
Sjálfstæðisflokkinn kusu hann síðast.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
Framsóknarflokknum helst mun verr á
kjósendum en samstarfsflokknum í
ríkisstjórn, Sjálfstæðisflokknum.