Fréttablaðið - 22.03.2003, Blaðsíða 18
Hundrað og einn Íslendingur áaldrinum 30 ára og yngri
hefur tekið sæti á framboðslist-
um einhverra flokka fyrir næstu
Alþingiskosningar. Það er 18% af
öllum þeim sem hafa tekið sæti á
lista. Horfur eru á að allt að sex
einstaklingar 30 ára og yngri taki
sæti á þingi, sá yngsti 25 ára.
Þegar meðalaldur allra fram-
bjóðenda allra flokka um allt
land er skoðaður kemur í ljós að
Framsóknarflokkurinn er með
yngsta framboðið. Þar er jafn-
framt að finna flesta frambjóð-
endur á aldrinum 18 til 30 ára.
Níu af tuttugu og tveimur á lista
flokksins í Reykjavík suður eru
30 og yngri. Næstflestir fram-
bjóðendur á því aldursbili eru í
Vinstri grænum. Þess ber þó að
geta, þegar þetta er skoðað, að
Frjálslyndi flokkurinn hefur að-
eins lagt fram lista yfir 10 efstu
frambjóðendur, auk heiðurs-
sæta, í öllum kjördæmum enn
sem komið er. Samkvæmt þeim
listum er hann með næstyngsta
framboðið á landsvísu.
Framsókn yngst
Yngsti listinn í kosningunum í
vor, samkvæmt útreikningum
Fréttablaðsins, er listi Framsókn-
arflokksins í Norðausturkjör-
dæmi. Meðalaldur á honum er
40,1 ár. Þar er jafnframt að finna
7 frambjóðendur á aldursbilinu
18 til 30 ára, sem þýðir að 35%
frambjóðenda flokksins í kjör-
dæminu teljast vera ungt fólk. Þó
er hlutfall ungra frambjóðenda
hærra á lista flokksins í Reykja-
víkurkjördæmi suður. Ríflega
40% frambjóðenda flokksins í því
kjördæmi eru 30 ára og yngri.
Meðalaldur þar er 41 og hálft ár.
Meðalaldur frambjóðenda Fram-
sóknarflokksins í það heila, í öll-
um kjördæmum, er 41,3 ár. Af 126
frambjóðendum flokksins á land-
inu öllu er 31 frambjóðandi 30 ára
og yngri. Tæpur fjórðungur af
frambjóðendum Framsóknar-
flokksins telst því vera ungliðar í
pólitík. Yngsti frambjóðandi
flokksins er 19 ára og heitir Helgi
Pétur Magnússon og býður sig
fram í Norðvesturkjördæmi.
Samfylkingin elst
Meðalaldur frambjóðenda Sam-
fylkingarinnar er rétt rúmlega 47
ár. Hún er því með elsta framboðið í
það heila. Þar er jafnframt að finna
fæsta frambjóðendur 30 ára og
yngri, eða 15 manns, sem þýðir að
12% af frambjóðendum flokksins
eru í yngri kantinum. Þó ber að geta
þess að allt að þrír ungir frambjóð-
endur í röðum Samfylkingarinnar
gætu ratað á þing. Yngsti frambjóð-
andi fylkingarinnar er 18 ára, býður
sig fram í Suðvesturkjördæmi og
heitir Dagbjört Hákonardóttir.
Elsti einstaki framboðslistinn er
listi Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík suður, en meðaldur frambjóð-
enda þar er 52 ár. Meðalaldur allra
frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins
er 45 og hálft ár. Yngsti sjálfstæðis-
maðurinn á lista heitir Vilhjálmur
Árnason og býður sig fram í Norð-
vesturkjördæmi. Hann er 19 ára.
Alls eru 20 frambjóðendur Sjálf-
stæðisflokksins á aldrinum 30 ára
og niður úr, eða 16% af heildartölu
frambjóðenda.
Margir ungir í Vinstri
grænum og Frjálslyndum
Tuttugu og fimm ungir fram-
bjóðendur hafa fundið skoðunum
sínum farveg í Vinstri grænum og
ákveðið að taka sæti á lista. Það er
tæpur fimmtungur af öllum fram-
bjóðendum hreyfingarinnar.
Yngsti frambjóðandinn heitir
Ísak Sigurjón Bragason, býður sig
fram í Norðvesturkjördæmi og er
18 ára gamall. Meðalaldur fram-
bjóðenda Vinstri grænna er rétt
rúmlega 46 og hálfs árs.
Meðalaldur frambjóðenda
Frjálslynda flokksins, eða þeirra
60 sem hafa verið tilkynntir í 10
efstu sætum flokksins í kjördæm-
unum öllum, er 43 og hálfs árs.
Tíu frambjóðendur af þessum 60
eru 30 ára og yngri, eða 16%.
Sex manns á þrítugsaldri á
leið á þing
Sex ungir frambjóðendur eiga
raunhæfa von um það að komast á
þing. Sigurður Kári Kristjánsson,
29 ára, má heita nokkuð öruggur
með þingsæti í Reykjavíkurkjör-
dæmi norður fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn. Eins er Ágúst Ólafur
Ágústsson, 26 ára, mjög líklega inni
í Reykjavík suður. Hann skipar 4.
sæti á lista Samfylkingarinnar þar.
Brynja Magnúsdóttir, 25 ára, sem
skipar 5. sæti á lista Samfylkingar-
innar í Suðurkjördæmi, er á leið á
þing samkvæmt skoðanakönnunum
Fréttablaðsins, en verður þó að telj-
ast tæp. Hún yrði þá yngsti þing-
maðurinn á næsta kjörtímabili.
Katrín Júlíusdóttir, 28 ára, í fjórða
sæti á lista Samfylkingarinnar í
Suðvesturkjördæmi, á góða mögu-
leika á þingsæti. Þá er spurning
hvort Dagný Jónsdóttir, 27 ára,
komist á þing fyrir Framsóknar-
flokkinn í Norðausturkjördæmi
sem uppbótarþingmaður, en hún
skipar þar þriðja sæti. Kolbeinn
Proppé, 30 ára, leiðir lista Vinstri
grænna í Suðurkjördæmi og með
góðri baráttu gæti hann sloppið inn.
Hann er jafnframt einn af yngstu
frambjóðendunum til að leiða lista í
þessum kosningum, ásamt Brynjari
S. Sigurðssyni, 30 ára, sem leiðir
lista Frjálslyndra í Norðaustur og
Gunnari Örlygssyni, 31 árs, sem
leiðir lista sama flokks í Suðvestur.
Mögulega 11 þingmenn á
aldrinum 25-35 ára
Af þessu sést að líkur eru á að
Samfylkingin eigi flesta unga þing-
menn, eða þrjá, þrátt fyrir að hún sé
með hæsta meðalaldur frambjóð-
enda. Þess má einnig geta að nokkr-
ir væntanlegir þingmenn, í það
heila, eru rétt yfir 30 ára aldri.
Björgvin G. Sigurðsson, sem skipar
3. sæti Samfylkingarinnar í Suður-
kjördæmi, er 32 ára. Bjarni Bene-
diktsson, í 5. sæti hjá Sjálfstæðis-
flokknum í Suðvestur, er 33 ára.
Helgi Hjörvar, í 4. sæti Samfylking-
arinnar í Reykjavík norður, er 35
ára og sömuleiðis Guðlaugur Þór
Þorvaldsson, í 3. sæti Sjálfstæðis-
flokksins í sama kjördæmi. Þá er
Birgir Ármannsson, í 5. sæti Sjálf-
stæðisflokks í Reykjavík suður, 34
ára.
Af þessu sést að horfur eru á að
11 þingmenn, sem taka sæti á þingi
eftir kosningarnar í vor, verði á ald-
ursbilinu 25 til 35 ára gamlir. Það
yrði ríflega 17% af þingliðinu.
18 22. mars 2003 LAUGARDAGUR
Ekkert kemur í stað hreyfingar og heilbrigðra lífshátta. Engar töfralausnir!
Og allra síst þessi magaþjálfi. En ef þú ert svo glórulaus að kaupa
magaþjálfann þá finnur þú hann hjá okkur. Hann kostar ekki 19.500 kr.
heldur $16.94 eða 2.800 kr. með flutningi, tryggingu, tollum og VSK.
Þú sparar stórfé, en ert samt að henda peningnum.
Við mælum alls ekki með þessum magaþjálfa !
allar vörur beint frá Bandaríkjunum
Ríflega hundrað Íslendingar 30 ára og yngri bjóða sig fram í kosningunum í vor. Flestir þeirra eru á lista hjá
Framsóknarflokknum, sem er yngsta framboðið. Yngsta fólkið virðist vita hvað það vill.
Á máli þess verður ekki annað séð en að skýr munur sé á stefnu flokkanna.
Pólitíska kynslóðin
geysist fram á völlinn
Ég er sammála áherslumflokksins á einstaklingsfrelsi
og á einkaframtak. Ég tel það heil-
brigðara að ríkið setji almennar
leikreglur og skipti sér lítið af
borgurunum,“ segir Helga Árna-
dóttir um ástæður þess að hún
býður sig fram fyrir hönd Sjálf-
stæðisflokksins í komandi kosn-
ingum. Helga er yngsti frambjóð-
andi flokksins í Reykjavík, 23 ára
að aldri, og skipar 13. sætið í
Reykjavík suður. Hún hefur setið
á annað ár í stjórn Heimdallar, nú
sem varaformaður, en hefur verið
skráð í flokkinn í sex ár. Að henn-
ar sögn vaknaði pólitískur áhugi
hennar í Menntaskólanum í
Reykjavík. Hún og vinkona henn-
ar fóru saman og skráðu sig í
Sjálfstæðisflokkinn í kjölfarið á
pólitískum umræðum sem áttu
sér stað á þeim tíma.
„Ég held að hagsmunir ungs
fólks fari saman við markmiðið
um stöðugt og gott efnahagslíf
með fjölbreyttum tækifærum í at-
vinnulífinu,“ segir Helga. „Ég get
ekki séð annað en að það hafi ver-
ið haldið nokkuð vel á spöðunum
síðustu 12 ár.“
Helga segir gott að starfa inn-
an Sjálfstæðisflokksins og að
stærð flokksins sé styrkur.
„Heimdallur er til dæmis stórt og
öflugt félag og mjög virkt,“ segir
Helga. „Það eru margir sem
gegna embættum þar og sitja í
stjórn.“ Helga segir ungliða-
hreyfinguna aldrei hafa verið
feimna við að láta forystu flokks-
ins heyra það og að hreyfingin
hafi oft veitt forystunni strangt
aðhald frá hægri. Hún segist
hlakka til kosningabaráttunnar og
ekki síst þeirra rökræðna sem
henni fylgja. „Það er alltaf gaman
að takast á,“ segir hún. ■
Ég vil hafa áhrif til þess að gerasamfélagið betra fyrir ungt
fólk. Það þarf að uppfæra þjóðfé-
lagið,“ segir Egill Arnar Sigur-
þórsson, 21 árs, sem skipar 4. sæt-
ið á lista Framsóknarflokksins í
Suðvesturkjördæmi. „Ég að-
hyllist þá stefnu sem blandar
saman öflugu velferðarkerfi og
öflugu atvinnulífi, án þess að hall-
ast að öfgunum. Frjálslynd miðju-
stefna höfðar sterkast til mín.“
Egill er úr Garðabæ og byrjaði
snemma að fylgjast með pólitík.
„Ætli ég hafi ekki verið um 10 ára
þegar ég var að klippa út myndir
af stjórnmálamönnum fyrir verk-
efni í skólanum,“ segir hann. „Þá
klippti ég aðallega út myndir af
Denna. Ég var mjög sáttur við
hann. Ætli hann eigi ekki stóra sök
á því að ég er kominn í þetta
núna.“
Egill segist vera í Framsóknar-
flokknum til þess að hafa áhrif á
stefnu flokksins. „Ungir flokks-
menn eiga náttúrlega ekki að éta
allt hrátt upp eftir flokksforyst-
unni,“ segir Egill. „Flokkurinn
hefur líka verið að endurskipu-
leggja sig. Hann er að verða meiri
borgaraflokkur á miðjunni, í hefð-
bundnum skilningi.“
Hugsjón Egils er í hnotskurn
sú að gera samfélagið fjölskyldu-
vænna. Hann nefnir tillögu ungra
framsóknarmanna um niðurfell-
ingu virðisaukaskatts á barnaföt
sem dæmi um viðleitni í þá átt.
Hann mun taka fullan þátt í kosn-
ingabaráttunni og er bjartsýnn á
gott gengi. „Ég er viss um að við
munum taka tvo hér í kraganum,“
segir hann. Aðspurður um hvort
frekari pólitísk þátttaka komi til
greina í framtíðinni er Egill fljót-
ur til svars: „Ég ætla að verða for-
sætisráðherra.“ ■
HELGA ÁRNADÓTTIR
Aðhyllist stefnu Sjálfstæðisflokksins um lítil
ríkisafskipti og einstaklingsfrelsi. Hún
stundar tölvunarfræðinám við Háskóla Ís-
lands og stefnir í framhaldsnám þegar
fram í sækir.
Helga Árnadóttir, 23 ára, skipar 13. sætið
á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík suður
Það er alltaf gaman
að takast á
EGILL ARNAR SIGURÞÓRSSON
Aðhyllist frjálslynda miðjustefnu sem
blandar saman áherslum á öflugt velferð-
arkerfi og öflugt atvinnulíf. Er borgarbarn í
húð og hár og vinnur í hugbúnaðar- og
tölvufyrirtæki, en stefnir í háskólanám.
Egill Arnar Sigurþórsson, 21 árs, er í 4. sæti fyrir
Framsóknarflokkinn í Suðvesturkjördæmi
Ég ætla að verða
forsætisráðherra
KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR, 28 ÁRA
Góðar líkur á að hún hljóti þingsæti fyrir
Samfylkinguna í Suðvesturkjördæmi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M