Fréttablaðið - 22.03.2003, Blaðsíða 19
19LAUGARDAGUR 22. mars 2003
Bæjarlind 14-16 | 201 Kópavogi | Sími 564 4400 | Fax 564 4435 | tekk@tekk.is | www.tekk.is
BOR‹STOFUBOR‹ OG 6 STÓLAR M/LE‹URÁKLÆ‹I
H
R
IN
GDU EÐA
K
O
M
D
U
S
E
M
F Y R S T
TUTTI bor›stofuhúsgögn
úr Mandi-ávaxtavi› frá Indónesíu
ver› á›ur ver› nú
Bor› 180x90cm og 6 stólar 163.800 131.040
Bor› 220x100cm og 6 stólar 173.800 141.040
s
é
r
s
t
ak
t tilboðsv
e
r
ð
f
r
a
m
a ð p á
sk
u
m
20%
afsláttur
Agnar Freyr Helgason, 20 ára, er í 6. sæti
fyrir Frjálslynda flokkinn í Reykjavík suður
Hringdi í Margréti
og bauð mig fram
Það er út af því að ég er sam-mála þeirra málefnum, og þá
einkum gagnrýni þeirra á kvóta-
kerfið og áherslum þeirra á bætt
kjör aldraðra og öryrkja,“ segir
Agnar Freyr Helgason, tvítugur
verkfræðinemi, um ástæður þess
að hann býður sig fram í 6. sæti í
Reykjavík suður fyrir Frjáls-
lynda flokkinn. „Svo er ég líka
ánægður með það hvað þetta er
opinn flokkur. Frjálslyndi flokk-
urinn er eini flokkurinn sem er
með opið bókhald. Ég er sammála
Frjálslynda flokknum um það að
stjórnkerfið á almennt að vera
opnara og gegnsærra.“
Agnar segist hafa haft mikinn
áhuga á pólitík allt frá 13 ára
aldri, verið pólitískur sem ung-
lingur og með miklar skoðanir á
þjóðfélagsmálum. Ólafur Ragnar
Grímsson var í sérstöku uppá-
haldi hjá honum og hann hallast
fremur til vinstri en hægri í skoð-
unum. Það var í stjórnmálafræði-
tíma í MH sem hann ákvað að
fylgja Frjálslyndum að málum.
„Fulltrúar flokkanna komu einn
af öðrum í stutt spjall og einn dag-
inn kom Margrét Sverrisdóttir í
tíma hjá okkur. Mér fannst hún
mjög réttsýn og leggja áherslu á
mjög góð málefni,“ segir Agnar.
„Ég ákvað þess vegna að hringja í
hana skömmu síðar og bjóða mig
fram til starfa fyrir flokkinn.“
Agnari finnst andinn í flokkn-
um vera góður. „Mér finnst skoð-
anir mínar eiga mjög vel heima í
flokknum,“ segir Agnar. „Ég ætla
að leggja mig allan fram til að
tryggja að við fáum menn á þing.
Ég held að við munum auðveld-
lega ná yfir 5% markið.“ ■
Anna Tryggvadóttir, átján ára, skipar 11. sæti
á lista Vinstri grænna í Suðvesturkjördæmi
Ég hef alltaf haft
áhuga á pólitík
Ég hef alltaf haft áhuga á póli-tík og mig hefur alltaf langað
til að taka þátt í pólitísku starfi,“
segir Anna Tryggvadóttir, átján
ára nemi í Menntaskólanum í
Hamrahlíð, sem skipar 11. sæti á
lista Vinstri grænna í Suðvestur-
kjördæmi. „Þeir vissu af mér í
Vinstri grænum og hringdu í mig.
Þeir vildu unga manneskju á list-
ann og ég sló til.“
Anna segist alltaf hafa verið
vinstrisinnuð. Áherslan á jafn-
réttismál hjá Vinstri grænum er
henni mjög að skapi. „Ég vil jafna
launamun kynjanna, jafna rétt
innfæddra og nýbúa og einnig
bæta rétt samkynhneigðra,“ segir
Anna. „Mér finnst Vinstri grænir
hafa mjög skýra stefnu í þessum
málum.“
Anna er einnig sammála
Vinstri grænum í umhverfismál-
um og utanríkismálum, er á móti
innrásinni í Írak og á móti inn-
göngu í Evrópusambandið. Hún
hefur hugsað sér að taka virkan
þátt í kosningabaráttunni. „Ég hef
hugsað mér að starfa að því sem
er næst mér,“ segir Anna. „Ég
ætla að reyna að kynna ungu fólki
kosningamálin og hvetja það til að
kjósa.“
Anna segir að það séu passlega
margir sammála skoðunum henn-
ar í MH, og það sé allt í lagi því
hún hafi gaman af pólitískum rök-
ræðum. „Ég hef alltaf gert mikið
af því að ræða pólitík og var byrj-
uð á því löngu áður en ég tók sæti
á þessum lista,“ segir Anna. „Mér
finnst félagsskapurinn mjög
skemmtilegur í Vinstri grænum
og þar er auðvitað fullt af fólki
sem er til í að tala um pólitík.“ ■
Melkorka Óskarsdóttir, 21 árs, skipar 9. sæti
á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík suður
Það er hlustað á það
sem við segjum
Ég er jafnaðarmanneskja. Égtreysti Samfylkingunni til
þess að stunda ábyrga stefnu í
fjármálum samhliða því sem hún
beinir sjónum að velferðarmálum
og stendur vörð um öflugt vel-
ferðarkerfi,“ segir Melkorka Ósk-
arsdóttir, tuttugu og eins árs, að-
spurð um ástæður þess að hún
ákvað að taka 9. sætið á lista Sam-
fylkingarinnar í Reykjavík suður.
„Mér finnst líka liggja ljóst fyrir
að við þurfum að ganga í Evrópu-
sambandið. Ég tel að það sé ekki
síst ungu fólki mjög í hag.“
Melkorka hefur setið á póli-
tískum fundum frá því í vöggu, en
foreldrar hennar hafa komið að
stjórnmálastarfi á vinstri væng
um árabil. Það eru tvö ár síðan
Melkorka fór í stjórn ungra jafn-
aðarmanna og jafnframt er hún í
framvarðarsveit í samtökunum
Heimsþorp, sem eru samtök gegn
kynþáttafordómum. „Flestir sem
ég umgengst eru pólitískir,“ segir
Melkorka. „Ég held að í vinahópn-
um sé að minnsta kosti einn úr
hverjum flokki. Sumir eru í fram-
boðum annars staðar. Það eru því
stundum fjörugar samkomur í
hópnum.“
Melkorku finnst kosningarnar
fram undan vera mjög mikilvæg-
ar fyrir framtíð þjóðarinnar. Hún
hyggst taka virkan þátt í barátt-
unni, og þá helst í gegnum starf
ungra jafnaðarmanna. „Ungliða-
hreyfingin er sterk og stór í Sam-
fylkingunni,“ segir Melkorka.
„Og það er hlustað á það sem við
segjum.“ ■
AGNAR FREYR HELGASON
Er sammála gagnrýni Frjálslynda flokksins
á kvótakerfið. Stundar verkfræðinám við
Háskóla Íslands og var aðdáandi Ólafs
Ragnars Grímssonar á unglingsárunum.
ANNA TRYGGVADÓTTIR
Aðhyllist stefnu Vinstri grænna í jafnréttis-
málum, utanríkismálum og umhverfismál-
um. Stundar nám í Menntaskólanum í
Hamrahlíð auk þess sem hún er í stífu
námi í sellóleik.
MELKORKA ÓSKARSDÓTTIR
Treystir Samfylkingunni til þess að leggja
áherslu á velferðarmál samhliða ábyrgri
fjármálastefnu. Hún leggur stund á bók-
menntafræði í HÍ og leikur um þessar
mundir í leikritinu Sweeney Todd í Vestur-
porti, sem Stúdentaleikhúsið frumsýndi í
gærkvöld.
Skýr munur á málefnum í
hugum ungra frambjóðenda
Viðtölin við allra yngstu fram-
bjóðendurnar hér á síðunni, sem
sýna ný og áður óþekkt andlit
flokkanna, eru um margt athyglis-
verð. Öll voru þau fljót að svara
spurningunni um það af hverju
þau kusu að ganga til liðs við þá
flokka sem þau völdu sér. Þannig
geta svör þeirra veitt þeim sem
eiga erfitt með að sjá mun á flokk-
unum í dægurþrasi stjórnmála-
manna kærkomið tækifæri til að
greina slíkan mun skýrar en oft
áður. Frambjóðandi Sjálfstæðis-
flokksins vill lítil ríkisafskipti
með áherslu á einkavæðingu, ein-
staklingsframtak og frelsi til at-
hafna. Framsóknarmaðurinn kýs
að starfa í frjálslyndum miðju-
flokki sem leggur áherslu á öflugt
velferðarkerfi samfara öflugu at-
vinnulífi. Sú sem fer fram fyrir
Vinstri græna gerir það á for-
sendum umhverfismála, utanrík-
isstefnu, sem er gegn stríði í Írak
og gegn inngöngu í ESB, og á
grundvelli áherslu flokksins á fé-
lagslegt jafnrétti. Unga Samfylk-
ingarkonan er jafnaðarmanneskja
og treystir flokknum til að leggja
áherslu á velferðarkerfið samfara
því að stunda ábyrga fjármála-
stefnu. Og hún vill ganga í Evr-
ópusambandið. Ungi maðurinn
sem fer fram fyrir Frjálslynda
flokkinn er á móti kvótakerfinu
og vill opna stjórnkerfið og gera
það gegnsærra. Öll byggja þau af-
stöðu sína á málefnum og eru
hvergi bangin að leggja þau undir
dóm kjósenda.
gs@frettabladid.is
Byggt á aldurstölum úr þjóðskrá
og frá kosningaskrifstofum flokkanna.
ÁGÚST ÓLAFUR ÁGÚSTSSON, 26 ÁRA
Er inni sem þingmaður fyrir Samfylkinguna
í Reykjavík suður, samkvæmt könnunum.
DAGNÝ JÓNSDÓTTIR, 27 ÁRA
Skipar 3. sætið á lista Framsóknarflokksins
í Norðausturkjördæmi og gæti komist inn
sem uppbótarþingmaður.
KOLBEINN ÓTTARSSON
PROPPÉ, 30 ÁRA
Með góðri baráttu gæti hann náð þingsæti
fyrir Vinstri græna í Suðurkjördæmi, en
hann leiðir listann þar.
BRYNJA MAGNÚSDÓTTIR, 25 ÁRA
Er í 5. sæti Samfylkingarinnar í Suðurkjör-
dæmi og er inni á þingi samkvæmt skoð-
anakönnunum Fréttablaðsins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI