Fréttablaðið - 22.03.2003, Síða 21
21LAUGARDAGUR 22. mars 2003
La
n
d
lis
t/
E
R
A
N
Gildir til 26. mars eða
á meðan birgðir endast
1985gkr.
ekkert
brudl-
KOMNAR AFTUR
Núðlurnar
Opnum klukkan tíu í dag
Þegar ég var yngri skildi égaldrei hvað átt var við þegar
sagt var að haninn frjóvgaði egg-
ið,“ segir Birgir Snæbjörn Birgis-
son myndlistarmaður, aðspurður
um eftirminnilega bernskuminn-
ingu. „Það var aldrei talað um að
haninn frjóvgaði hænuna,“ segir
Birgir, „heldur að hann frjóvgaði
eggið. Þetta olli mér miklum
heilabrotum. Mér fannst það lík-
legast að haninn hlyti að vera með
mjótt stáltyppi sem hann styngi
inn í eggið, eins og þegar menn
stinga prjóni í egg til að blása úr
því. Þetta var rétt um þær mundir
sem ég hafði séð einfaldar mynd-
ir úr kynfræðslu. Ég skoðaði
stundum eggið og var að reyna að
leita að gatinu. Síðar gerði ég
mynd sem var hluti af bókverki í
riti sem bar heitið „Minningar“.
Myndin er af hana með mjótt stál-
typpi að frjóvga egg.“ ■
Lóa-Lóa og Sponna Star heitaþær þessar dömur og eru eign
Ágústu Hrundar Emilsdóttur. Lóa
-Lóa er af tegundin Papillon, sem
útleggst fiðrildi á íslensku.
Sponna Star er hins vegar Miniat-
ure Pinscher en hann er lifandi
eftirmynd Doberman nema
mörgum númerum minni.
Ágústa hefur átt þær frá því
þær voru hvolpar en Lóa-Lóa er
átta ára og Sponna tveimur árum
eldri. „Þær eru yndislegar báðar
tvær og kemur mjög vel saman.
Lóa-Lóa ber mikla virðingu fyrir
Sponnu og apar allt eftir henni.
Það er í eðli hunda að þar gildir
goggunarröðin,“
Ágústa segir Lóu-Lóu elska að
hreyfa sig í hvað veðri sem er.
Hún er vel klædd í góðum pels
og henni verður aldrei kalt. Það
sama gildir hins vegar ekki fyrir
Sponnu Star, sem þolir illa kulda
þrátt fyrir að vera í kápu enda
mjög snögghærð. „Ég tek hana
þá gjarnan undir úlpuna mína
þegar ég sé að hún er farin að
skjálfa. Hún er svo lítil og nett
að það fer ekki mikið fyrir henni
innan klæða hjá mér,“ segir
Ágústa.
Þær sofa báðar í búrum á næt-
urnar en fá stundum að koma
upp í á morgnana og kúra undir
sænginni hjá mömmu. „Þá skríð-
ur Sponna Star undir sængina en
Lóa-Lóa liggur ofan á henni. Þær
verða ógurlega kátar þegar þær
fá að koma upp í og æsast allar.“
Sponna Star er varðhundur í
eðli sínu og lætur jafnan vita
þegar gesti ber að garði. Hún
geltir líka að krökkum sem leika
sér með ærslum úti við. Ágústa
segir geltið í henni þó aldrei vera
til vandræða. „Þær eru ofdekrað-
ar báðar tvær; það er ekki hægt
annað því þær eru svo sætar og
yndislegar. Ég gef þeim þurrmat
að borða en freistast stundum til
að bæta út í fyrir þær kjúklingi
eða nautahakki. Þá verða þær
voða ánægðar og eru fljótar að
tína kjötið úr.“
Ágústa segist hafa mikið yndi
af hundunum. Hún fer út með
þær á hverjum degi en þess á
milli komast þær út í garð til að
viðra sig. ■
DÖMURNAR Í FANGI MÖMMU SINNAR
Ágústa Hrund segir Sponnu vera mikla kuldaskræfu enda sé hún ekki með mikinn
feld utan á sér. Lóa-Lóa er hins vegar klædd hlýjum loðfeldi og dýrkar að vera úti.
Þær Sponna Star og Lóa-Lóa eru mikil dekurdýr enda ógurlega mikil krútt.
Eigandi þeirra, Ágústa Hrund Emilsdóttir, hefur átt þær lengi og segist
ofdekra þær.
Önnur undir
sæng, hin ofan á
Ég tek hana þá
gjarnan undir úlpuna mína
þegar ég sé að hún er farin
að skjálfa.
,,
BIRGIR SNÆBJÖRN BIRGISSON
Skildi aldrei hvernig haninn fór að
því að frjóvga egg.
Hani með
mjótt stáltyppi
■ GÆLUDÝRIÐ MITT
■ BERNSKUMINNING
FR
ÉT
TA
B
LA
/B
IL
LI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
VI
LH
EL
M