Fréttablaðið - 22.03.2003, Page 22
22 22. mars 2003 LAUGARDAGUR
Allt frægasta og flottasta fólkið í kvikmyndabransanum kemur saman í Kodak-höllinni annað kvöld og verð-
launa þá sem það telur fremst meðal jafningja. Þetta er alla jafna stærsti dagur ársins í heimi Hollywood en í
ár varpa átökin í Írak skugga á gleðina og við fáum ekki að fylgjast með stjörnunum á rauða dreglinum.
Óskarsverðlaun
í skugga átaka
Óskarsverðlaunakvöldið eróumdeilanleg árshátíð kvik-
myndabransans. Goðumlíkar
stjörnurnar mæta skælbrosandi, í
sínu fínasta pússi, og svífa eftir
rauða dreglinum á meðan þær
veifa til dauðlegra aðdáendanna
sem safnast saman fyrir framan
Kodak-höllina til þess eins að fá
að berja fræga og fallega fólkið
augum.
Spennan í kringum verðlaunin
fer að láta á sér kræla upp úr ára-
mótum þegar framleiðendur eiga
það til að drífa helstu vonarpen-
inga sína í bíó svo myndirnar
verði gjaldgengar í baráttunni um
gylltu styttuna í byrjun næsta árs.
Í febrúar æsist svo leikurinn til
muna þegar Akademían kynnir
tilnefningar sínar og hápunktin-
um er svo náð í mars þegar það
kemur í ljós hverjum styttan eft-
irsótta fellur í skaut það árið.
Spennan og eftirvæntingin í ár
eru þó í algeru lágmarki og allt út-
lit er fyrir að verðlaunin árið 2003
verði helst í minnum höfð fyrir að
vera þau fábrotnustu og látlaus-
ustu í 75 ára skrautlegri sögu
verðlaunanna. Það er vitaskuld
fyrst og fremst stríðið í Írak sem
skyggir á gleðina en þar fyrir
utan er almennt gert ráð fyrir
frekar óspennandi verðlaunaaf-
hendingu þar sem flestir eru sam-
mála um að dans- og söngvamynd-
in Chicago muni sópa til sín öllum
helstu verðlaununum.
Ekkert stöðvar Óskar
Það þarf eitthvað mikið að
ganga á til þess að Óskarsverð-
launaafhendingunni sé slegið á
frest og hingað til hefur það að-
eins gerst þrisvar, fyrst í flóðun-
um miklu 1938, næst þegar Mart-
in Luther King var myrtur 1968
og síðast þegar Ronald Reagan,
þáverandi forseta Bandaríkjanna,
var sýnt banatilræði árið 1981.
Menn óttuðust það á tímabili að
yfirvofandi stríð í Írak myndi
verða til þess að athöfninni yrði
frestað eitthvað, en árið 2001 var
Emmy-verðlaununum frestað
daginn sem sprengjuárásirnar á
Afganistan hófust og á tímabili
leit út fyrir að verðlaunin yrðu
slegin af það árið. Ímyndarspek-
ingunum og markaðsmógúlunum í
Hollywood finnst nefnilega svolít-
ið vandræðalegt að blanda saman
fréttum af þjóð í stríði og þessum
miklu glanshátíðum skemmtana-
bransans enda er vissulega eitt-
hvað bogið við það að þeir sem
vinna allan ársins hring við að búa
til draumaveröld berji sér á brjóst
og baði sig í sviðsljósinu á meðan
sprengjum rignir í raunveruleik-
anum.
Gil Cates, sem stjórnar útsend-
ingunni, hefur lagt ofuráherslu á
að verðlaunaafhendingin fari
fram á sunnudaginn og hefur ekki
viljað láta átökin slá sig út af lag-
inu. „Við viljum öll að það verði af
þessu. Almenningur vill þetta og
stjörnurnar vilja það líka. Við
erum hins vegar öll góðir Amerík-
anar og munum því reyna að gera
þetta að sýningu sem við getum
verið stolt af.“
Rauða dreglinum rúllað upp
Það eru einnig miklir hags-
munir í húfi, ekki síst fjárhagsleg-
ir, þegar Óskarsverðlaunin eru
annars vegar enda er þeim sjón-
varpað út um allan heim og alla
jafna horfir um einn milljarður
manns á útsendinguna. Það var
því ákveðið að láta slag standa en
draga verulega úr íburðinum og
prjálinu. Við fáum því ekki að
fylgjast með gyðjunum og goðun-
um ganga eftir rauða dreglinum á
sunnudaginn en í hugum margra
er sú stund hápunktur kvöldsins.
Þeir sem fylla þann flokk munu
því ekki þurfa að vaka fram eftir
annað kvöld. Gil Cates segir að
það hafi verið hætt við rauða
dregilinn vegna óska kvikmynda-
stjarnanna sjálfra, sem kunnu
margar hverjar illa við það að
ræða kvikmyndir og fatatísku á
meðan bandarískir hermenn
væru að stofna lífi sínu í hættu.
Því má segja að flottasta tísku-
sýning ársins hafi verið blásin af
en þekktustu fatahönnuðum
heims er það ætíð mikið kappsmál
að fá að sýna heimsbyggðinni
hvað í þeim býr með því að fá
þekktustu leikkonur heims til að
spóka sig í afurðum þeirra. Kvöld-
ið missir því heilmikið aðdráttar-
afl bara fyrir þessar sakir og
þannig hafa Giorgio Armani,
Donatella Versace og Ellie Saab,
sem hannaði kjól Halle Berry í
fyrra, afboðað sig. Þá hefur fjöldi
frétta- og myndatökumanna verið
takmarkaður en venjulega eru um
500 manns frá 300 fjölmiðlum að
sniglast í kringum hátíðina. Að-
eins nokkrir útvaldir fá að vera
með að þessu sinni auk þess sem
engum óbreyttum borgurum
verður hleypt nálægt inngangi
Kodak-hallarinnar.
Tvær grímur
renna á leikarana
Hollywood-stjörnurnar sjálfar
eru sumar einnig á báðum áttum.
Will Smith tilkynnti það til dæmis
strax í miðri viku að hann myndi
ekki láta sjá sig og talsmaður hans
sagði einfaldlega að leikaranum
þætti tilhugsunin um að mæta
óþægileg og hann ætlaði því að sitja
heima. Þá komst sá orðrómur á
kreik að Cate Blanchett yrði ekki á
meðal kynna en fulltrúar Akademí-
unnar hafa þvertekið fyrir það og
segja að ekkert annað en tafir á
kvikmyndatökum í Nýju Mexíkó
geti komið í veg fyrir að hún láti sjá
sig.
Sjónvarpskonan Barbara Walt-
ers hefur einnig dregið sig til baka
en hún átti að vera með sérstakan
þátt fyrir ABC, með viðtölum við til-
nefnda leikara á borð við Nicolas
Cage, Julianne Moore og Renee
Zellweger, í tengslum við beinu út-
sendinguna. „Þegar jafn alvarlegir
hlutir blasa við þjóðinni tel ég rétt
að fresta útsendingu þáttarins,“
sagði Walters í yfirlýsingu sem gef-
in var út í vikunni. Engin ákvörðun
hefur verið tekin um hvenær þætt-
inum verður sjónvarpað.
Harðjaxlinn og repúblikaninn
Arnold Schwarzenegger telur Aka-
demíuna hafa tekið réttar ákvarðan-
ir. „Ég held að það sé hið besta mál
að sleppa rauða dreglinum og reyna
líka að koma í veg fyrir allar póli-
tískar ræður.“ Hér á Schwarz-
enegger væntanlega við þá ákvörð-
un að banna gestgjafanum, Steve
Martin, og öðrum kynnum að minn-
ast einu orði á stríðið í Írak. Verð-
launahafarnir fá sínar 45 sekúndur
til að þakka fyrir sig og geta í raun
sagt allt sem þeim sýnist á þeim
tíma en stemningin er þannig að
væntanlega munu fáir kjósa að
draga átökin inn í þakkarræður sín-
ar.
Samviskuspurningar
og ótti um eigið öryggi
Það er ekki fullljóst hvort allar
kvikmyndastjörnurnar muni yfir-
leitt mæta til leiks enda hafa marg-
ar þeirra talað mjög opinskátt og
ákveðið gegn stríðinu síðustu vik-
urnar. Daniel-Day Lewis, sem þykir
líklegur til að hreppa verðlaunin
fyrir leik sinn í Gangs of New York,
lýsti því yfir í síðustu viku að sér
fyndist það með öllu ótækt „að við
séum að spóka okkur á rauða dregl-
inum með bros á vör á meðan fólk
er að deyja. Það verður mjög erfitt
að finna leið til þess að gera þetta.“
Þá hefur Nicole Kidman, sem marg-
ir telja geta gengið að verðlaunun-
um sem besta leikkonan, fyrir The
Hours, vísum sagt að hún sé mjög
tvístígandi um hvort hún eigi að
mæta á athöfnina á stríðstímum.
Það er þó ekki einungis pólitísk
rétthugsun sem vefst fyrir stjörn-
unum og margar þeirra óttast um
eigið öryggi og hrýs hugur við því
að fljúga til Los Angeles hvort sem
það er í þeim tilgangi að kynna,
troða upp, taka við verðlaunum eða
einfaldlega að sýna sig og sjá aðra.
Öryggisráðstafanirnar á athöfninni
verða miklu harðari í ár en í fyrra.
Einhverjum götum í grennd við
Kodak-höllina var lokað strax á
fimmtudaginn og stjörnurnar og
gestir þeirra þurfa að fara í gegnum
málmleitartæki við innganginn,
leitað verður að sprengjum í öku-
tækjum og yfirvöld hafa farið þess
á leit að flugumferð yfir Hollywood
verði bönnuð síðdegis á sunnudag-
inn. Lögreglan í Los Angeles mun
verða með fleiri á vakt en á síðasta
ári, auk þess sem þeim berst liðs-
auki frá alríkislögreglunni og sjálf-
stætt starfandi öryggisvörðum.
thorarinn@frettabladid.is
BESTA MYNDIN
Chicago
Gangs of New York
The Hours
The Lord of the Rings: The Two Towers
The Pianist
BESTA ERLENDA MYNDIN
Crimen del padre Amaro
Hero
The Man Without a Past
Nowhere in Africa
Zus & Zo
BESTI LEIKSTJÓRINN
Rob Marshall - Chicago
Martin Scorsese - Gangs of New York
Stephen Daldry - The Hours
Roman Polanski - The Pianist
Pedro Almodóvar - Talk To Her
BESTI KARLLEIKARINN
Í AÐALHLUTVERKI
Adrien Brody
Nicolas Cage
Michael Caine
Daniel Day-Lewis
Jack Nicholson
BESTA LEIKKONAN
Í AÐALHLUTVERKI
Salma Hayek
Nicole Kidman
Diane Lane
Julianne Moore
Renée Zellweger
BESTI KARLLEIKARINN
Í AUKAHLUTVERKI
Chris Cooper
Ed Harris
Paul Newman
John C. Reilly
Christopher Walken
BESTA LEIKKONAN
Í AUKAHLUTVERKI
Kathy Bates
Julianne Moore
Queen Latifah
Meryl Streep
Catherine Zeta-Jones
RAUÐI DREGILLINN
Er kominn á staðinn og stjörnurnar munu ganga á honum til veislunnar en að þessu sinni
fáum við ekki að fylgjast með þeim enda finnst þeim fæstum viðeigandi að tala um vonir
sínar og væntingar á meðan verið er að sprengja í Írak.