Fréttablaðið - 22.03.2003, Qupperneq 26
Þvert á skoðanir margra um aðraunveruleikaþættir væru að
renna sitt skeið horfðu um 18
milljónir manna á fyrsta þátt Fox-
sjónvarpsstöðvarinnar, Joe Milli-
onaire. Í þættinum, sem enn er
ókominn hingað til lands, er fjöldi
kvenna fenginn til að reyna við
huggulegan karlmann. Konunum
er talin trú um að hann sé millj-
ónamæringur á meðan hann er í
raun og veru byggingaverkamað-
ur.
Á sjónvarpsstöðinni ABC hef-
ur þátturinn um einhleypu stúlk-
una, eða The Bachelorette, slegið
heldur betur í gegn, en sá þáttur
er einnig ókominn í íslenskt sjón-
varp. 17,4 milljónir manna fylgd-
ust með fyrsta þættinum í syrp-
unni og sló áhorfið auðveldlega út
áhorf að þættinum West Wing,
sem er leikin þáttaröð um starfs-
lið Hvíta hússins í Bandaríkjun-
um.
Veðjað á raunveruleikann
Fyrr á þessu ári ákváðu stjórn-
endur ABC að færa til sýningar-
tíma lögfræðiþáttanna The Pract-
ice vegna gríðarlegra vinsælda
Joe Millionaire, sem sýndur var á
sama tíma hjá Fox. Vakti ákvörð-
unin litla kátínu höfundarins Dav-
id E. Kelly.
Miðað við ofantaldar stað-
reyndir kemur ekki á óvart að
stjórnendur bandarískra sjón-
varpsstöðva hætta nú í auknum
mæli við framleiðslu á rándýrum
leiknum framhaldsþáttum og
veðja í staðinn á raunveruleik-
ann.
Samtök handritshöfunda í
Bandaríkjunum óttast mjög þró-
unina. „Það er töluverð hræðsla
vegna þessara þátta, sem eru
ódýrir í framleiðslu á sama tíma
og miklir peningar fara í að fram-
leiða nýjar leiknar þáttaraðir,“
sagði Victoria Riskin, forseti
samtakanna, í viðtali við BBC.
Staðreyndin er nefnilega sú að
raunveruleikaþættir kosta um
helmingi minna í framleiðslu en
hefðbundnir þættir. Launakostn-
aður er til að mynda langtum
minni. Framleiðendur þurfa ekki
að hafa áhyggjur af stórstjörnum
eins og til dæmis leikurum
Friends-þáttanna, sem taka um 80
milljónir króna hver fyrir þátt-
inn. Þess í stað stendur almenn-
ingur í biðröðum um að komast að
í raunveruleikaþáttum fyrir eng-
an pening, enda allar líkur á að
frægð og frami manna aukist
stórlega verði þeir fyrir valinu.
Lítill
undirbúningskostnaður
Önnur staðreynd er sú að um
leið og raunveruleikaþættir ná
vinsældum mega framleiðendur
þeirra eiga von á dágóðri summu
í kassann. Þetta er nýlunda í sjón-
varpsbransanum því í gegnum
tíðina hafa framleiðendur hefð-
bundinna þátta þurft að leggja í
mikinn kostnað við undirbúning
þeirra og um leið setja sig í stór-
an mínus áður en nokkur þáttur
hefur farið í loftið.
Málið horfir öðruvísi við í raun-
veruleikaþáttunum: „Við getum
pantað átta raunveruleikaþætti og
jafnað þá upphæð eða jafnvel
grætt undir eins,“ sagði David
Poltrack, varaforseti hjá CBS.
„Við eyðum ekki miklu í gerð þeir-
ra.“
Vinsældir slíkra þátta leiða af
sér miklar auglýsingatekjur eins
og gefur að skilja. Til að mynda
horfðu 40 milljónir áhorfenda á
Jóa milljónamæring velja sér
konu í lokaþætti syrpunnar. Sjón-
varpsstöðin Fox rukkaði rúmar 30
milljónir króna fyrir 30 sekúndna
auglýsingu í þættinum, sem ekki
telst lítill peningur.
Á bólan eftir að springa?
„Þetta snýst allt um auglýsinga-
tekjurnar,“ sagði Sandy Grushow
hjá Fox. „Þegar einn af þessum
þáttum slær í gegn er um gríðarleg-
ar upphæðir að ræða.“
Randy Falco, forseti hjá NBC-
sjónvarpsstöðinni, segist ekki vera
undrandi á vinsældum raunveru-
leikaþátta. „Þú getur fengið þessa
þætti á skjótan hátt. Þeir eru vand-
aðir, þeir eru ódýrir og þeir eru
orðnir meira en bara staðgenglar
fyrir aðra þætti á sumrin. Þeir eru
algjört áhorfsvopn.“
Riskin, hjá samtökum hand-
ritshöfunda, er á því að raun-
veruleikabólan eigi eftir að
springa. „Á síðasta ári náði þát-
turinn Viltu vinna milljón gríð-
arlegum vinsældum á ABC-stöð-
inni þegar hann var sýndur fjög-
ur kvöld í röð. Hann féll síðan
um sjálfan sig því áhorfendur
fengu nóg af honum. Ég er viss
um að það eigi líka eftir að ger-
ast með þætti eins og The
Bachelor, The Bachelorette og
Survivor.“
Það verður tíminn einn að
leiða í ljós. Eins og er hefur
raunveruleikinn yfirhöndina og
virðist hann síður en svo ætla að
sleppa takinu í bráð.
freyr@frettabladid.is
26 22. mars 2003 LAUGARDAGUR
FRIENDS
Launakostnaður við þætti á borð við Friends er gífurlegur.
EYJA FREISTINGANNA
Hinn almenni borgari sem fær að spreyta sig í raunveruleikaþáttum á borð við
Temptation Island öðlast frægð og frama fyrir þátttöku sína. Kostnaður framleiðenda
vegna þáttanna er ekki mikill enda keppist fólk um að komast á skjáinn án þess að taka
nokkuð fyrir það.
Vinsældir bandarískra raunveruleikaþátta virðast ekki dvína. Handritshöfundar hefðbundinna
sjónvarpsþátta óttast verkefnaskort enda kostar raunveruleikinn helmingi minna í framleiðslu en skáldskapurinn.
Raunveruleikinn borgar sig