Fréttablaðið - 22.03.2003, Qupperneq 27
Í svörtum fötum
Ég hef mjög einfaldan smekk. Ég vel yfirleitt svartar gallabuxur ogkaupi fötin mín í Hagkaupum eða Baugsverslunum,“ segir Sigurjón
Kjartansson, dagskrárgerðarmaður á Radíó X. Sigurjón segist hafa
dottið í það að kaupa sér svört föt þótt ekki séu allir jafn hrifnir af litn-
um.
„Ég veit ekki af hverju ég vel alltaf svört föt. Kannski er það af því
að ég er soddan svartsýnisseggur. Ég á að vísu gráar flauelsbuxur sem
hafa komið sér ágætlega.“
27LAUGARDAGUR 22. mars 2003
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
2
8
7
.0
0
8
Stærsti
sýningarsalur
með gólfefnum
á landinu
Nú fer í hönd tími ferminga og eflaust margir sem geta hugsað sér
að leggja parket á gólfið áður en veislugestirnir ganga í bæinn.
Harðviðarval vill taka þátt í fermingarundirbúningnum með því
að veita einstakt fermingartilboð á viðar- og plastparketi
í öllum fáanlegum litum og gerðum.
Rauð eik, smellt: 1.190,-
Eik, smellt: 1.190,-
Eik planka, smellt: 1.190,-
Plastparket
Rauð eik: 3.890,-
Hlynur: 3.890,-
Merbau: 3.990,-
Eik Accent: 2.990,-
Beyki Read: 2.890,-
Viðarparket
Fermingartilboð
á parketi
Aðalleikari kvikmyndarinnar„Nói Albinói“, Tómas
Lemarquis, hefur neyðst til þess
að hlusta á kassettur síðustu vik-
urnar. Geislaspilari heimilisins
bilaði fyrir löngu og nýtti hann
sér þá tölvuna sína til þess að
hlusta á tónlist. Móðurborðið í
henni gafst svo upp fyrir tveimur
vikum og varð hann því að grípa
til örþrifaráða.
„Ég er að hlusta á gamlar
kassettur sem ég dró upp,“ svarar
Tómas og virðist fullkomlega
sáttur við aðstæðurnar. „Ég fann
gömlu Bob Marley-spóluna mína
sem var fyrsta spólan sem ég
eignaðist, hún er alltaf klassísk.
Svo er ég að hlusta á franskt rapp
sem heitir Iam, Wham! og Mich-
ael Jackson. Egill Sæbjörnsson,
vinur minn, leyfði mér svo að taka
upp plötuna hans, Tonk of the
lawn.“
Hugur Tómasar hefur því lík-
lega ferðast nokkur ár aftur í tím-
ann við endurminningu tónanna
þar sem hann hefur ekki hlustað á
kassetturnar í nokkur ár. Hann
lýsir sjálfum sér sem lúmskum
„80’s“ kalli, enda fæddur í lok átt-
unda áratugarins og alinn upp á
hinum nýrómantísku tímum Dur-
an Duran og Wham!
Í geisladiskasafni Tómasar eru
um 60 titlar og svo segist hann
eiga örfáar vínylplötur sem hann
hefur ekki hlustað á í mörg ár.
Gamli plötuspilarinn er ekki uppi
við. Hann segist aldrei hlusta á út-
varpið og að hann eigi ekki sjón-
varp. Þannig sé hann nánast
ótengdur við dægurmenningu
samtímans. Hann segir einnig að
sú tónlistartegund sem í dag
flokkast undir „útvarpsvæna
popptónlist“ sé eina stefnan sem
hann kunni ekki að meta. „Ég á
erfitt með að hlusta á það sem er
á MTV. Ég fæ til dæmis mjög stór-
ar grænar bólur þegar ég heyri í
Anastaciu.“
Hann viðurkennir að nota tölvu
sína sem leið til þess að kynna sér
nýja tónlist. Hann bíður því í of-
væni eftir að fá tölvuna úr við-
gerð. „Upp á síðkastið hef ég ver-
ið að hlusta mikið á Megas,
Mogwai, Johnny Cash og God-
speed You Black Emperor! Tón-
list er svo mismunandi. Ein teg-
und hentar kannski mikið þegar
maður er að vinna, eins og
Slowblow og The Cure. Þær sveit-
ir koma mér í vinnustuð,“ segir
Tómas að lokum.
Slowblow er hljómsveit Dags
Kára Péturssonar, leikstjóra „Nóa
Albinóa“. Öll tónlist myndarinnar
er samin og flutt af sveitinni.
biggi@frettabladid.is
TÓMAS LEMARQUIS
Aðalleikari „Nóa Albinóa“ segist hafa
neyðst til þess að hlusta á gamlar kassettur
síðustu vikurnar þar sem tölvan hans, og
þar með geislaspilari heimilisins, sé biluð.
■ PLÖTUKASSINN MINN
Fær grænar bólur af Anastaciu
■ MINN STÍLL
BUXUR
Þessar buxur keypti ég í
Hagkaupum. Þær eru að-
eins of stuttar á mig. Ég
held ég hafi keypt þær í
fljótfærni.
SKÓR
Skóna keypti ég fyrir
þremur árum í Hagkaup-
um. Þeir voru keyptir fyrst
og fremst af því að þeir
eru nógu stórir. Þeir eru
orðnir mjög slitnir og því
kominn tími á nýja skó.
Þessir eru bara svo þægi-
legir að ég freistast alltaf
til að fara í þá.
BELTIÐ
Þetta er gamalt belti. Ég
þarf að fara að skipta um
það. Það er málningar-
klessa í því og það er
ekkert sérstaklega fínt
þegar ég er í jakkafötum.
BOLURINN
Ég á 20 svona boli. Þeir
fylgdu útvarpsþætti sem
hét Ólafur og var á út-
varpsstöðinni Radíó
103,7. Stöðin lifði í sex
mánuði áður en hún
sameinaðist í Radíó X.
Bolina fékk ég í arf. Þegar
ljóst var að svona margir
bolir hefðu verið prentað-
ir tók ég mér það bessa-
leyfi að taka þá boli sem
eftir voru. Þeir eru allir í
fataskápnum hjá mér.
Mér þykir voða vænt um
þessa línu og er dálítið
mikið í henni.
ÚRIÐ
Þetta er glæsilegt úr sem
ég fékk í þrítugsafmælis-
gjöf frá tengdaforeldrum
mínum. Úrið heitir Deer-
point og er eðalúr.