Fréttablaðið - 22.03.2003, Blaðsíða 31
stóra vinnuhunda heldur en
þessa smáhunda.“
Og ekki má gleyma því að
með tilkomu einangrunarstöðv-
arinnar bættust einnig við marg-
ar nýjar vinnu- og veiðihunda-
tegundir á borð við Boxer, Bri-
ard, Þýskan pointer, Enskan
pointer og Þýskan fjárhund eða
Schäefer og fleiri. Gríðarleg
gróska er nú í hundarækt og
hundahaldi. Nýjustu tegund-
irnar, nýbúarnir eins og Milla
kallar þær, eru: Afghan
Hound, Whippet, Siberian
Husky, Shar-Pei og Japanese
Chin svo dæmi séu tekin. „Sem
betur fer er heimaræktun hér
að mestu en ekki stunduð í úti-
húsum, þetta eru jú heimilis-
hundar sem verið er að rækta
og í mínum huga er mikill mun-
ur á þessu tvennu. Ræktun á að
vera hugsjónastarf en ekki
hvolpaframleiðsla,“ segir Milla.
Margar hetjur meðal hunda
Milla fer að meðaltali þrisvar
á ári á hundasýningar erlendis
og hefur því samanburðinn. „Við
stöndum, að mínu viti, ákaflega
vel í þeim samanburði. Við
græðum á því að hafa byrjað
seinna en þjóðir í kringum okk-
ur. Gátum varað okkur á ýmsum
atriðum. HRFÍ verður 35 ára á
næsta ári. Á hinum Norðurlönd-
unum eru hundaræktarfélög
aldargömul. Við bárum gæfu til
að læra af reynslu þeirra. Leit-
aðir hafa verið uppi góðir og við-
urkenndir ræktendur í tengslum
við innflutning. Og tæknileg at-
riði í sambandi við sýningahald
eru hér betri en víða. Til dæmis
að hundar séu inni í hringnum
allan tímann meðan verið er að
dæma. Bæði fylgir því hávaða-
mengun fyrir áhorfendur þegar
verið er að kalla til hunda í
hringinn og erfitt fyrir dómara,
sem er kominn í gírinn, að bíða
eftir hundum.“
Að ýmsu er að hyggja. Næsta
sýning verður síðustu helgina í
júní, alþjóðleg sýning, og dóm-
ararnir eru Lois Pinto Teixeira
frá Portúgal og Frank Kane frá
Englandi. Og nú á að tilnefna af-
rekshund ársins. „Í ár munum
við í fyrsta skipti leita eftir til-
nefningum um afrekshund árs-
ins. Með tilnefningum á að
fylgja stutt saga um afrek
hundsins, til dæmis í tengslum
við björgun eða annað slíkt. Af-
rekshundurinn verður svo heiðr-
aður á lokasýningu ársins árlega
héðan í frá og saga hans sögð.
Hundurinn þarf ekki að vera
hreinræktaður heldur fyrir alla.
Margar hetjur meðal hunda.“
Ýmsar sögur ganga um verð á
hundum og segir Milla að það sé
alfarið ræktanda hverju sinni að
ákveða það. Þar ráða lögmál
markaðarins og ef um tiltölulega
sjaldgæfar tegundir hreinrækt-
aðra hunda er að ræða getur
verðið farið upp í 300 þúsund
fyrir hvolp.
jakob@frettabladid.is
Myndirnar af hundategundunum eru úr
bókinni Hundabókin okkar, sem Muninn
gaf út árið 2000. Birt með góðfúslegu
leyfi útgefanda.
31LAUGARDAGUR 22. mars 2003
SILKI-TERRIER
Um 1990 fara að skjóta upp kollinum hér-
lendis hundar eins og: Cavalier King Charles
Spaniel, Papillon, Tíbet Spaniel, Pomeranian,
lágfættir Terrierar og Chihuahua.
JAPANESE CHIN
Meðal tegunda sem hafa verið að koma til Ís-
lands að undanförnu. Meðal nýbúa eru Afgan
Hound, Whippet, Siberian Husky og Shar-Pei.
Yfirleitt sef ég fram yfir morg-unmat en fæ mér kannski eitt
rúnstykki þegar ég kem í skól-
ann,“ segir Úlfar Linnet raf-
magnsverkfræðinemi, sem bar
titilinn Fyndnasti maður Íslands í
fyrra. Úlfar borðar hádegismat á
Matstofu Vesturbæjar, sem er
kaffistofan í Tæknigarði við Há-
skóla Íslands. Stóra stundin í mat-
arvenjum Úlfars, að hans eigin
sögn, er kvöldmaturinn.
„Ég er guðslifandi feginn að
konan mín kann lítið til verka í
eldhúsinu. Ég fæ því algjörlega að
sjá um þetta sjálfur óáreittur og
hún þiggur glöð, sem veitir mér
mjög mikið,“ segir Úlfar. Skýr
verkaskipting er á heimili Úlfars.
Hann sér um matargerðina en
kærastan hans, Ragnheiður Þór-
dís Ragnarsdóttir, sér um þvott-
inn.
Úlfar er nýbyrjaður að búa.
Hann fluttist þó ekki langt frá for-
eldrahúsum, fór af Hverfisgötu
23b á Hverfisgötu 23.
Úlfar hefur verið iðinn við að
baka brauð fyrir veislur. Hann
gladdi vini sína um jól og gaf þeim
öllum heimabakaðar bollur.
„Mitt sérbrauð er samt beygl-
ur. Þær eru mjög fagmannlegar
hjá mér,“ segir Úlfar. Hann
kryddar beyglurnar með oregano,
salti og pipar. „Ég fékk uppskrift-
ina að beyglunum í bókinni
„Brunch á hundrað vegu“ sem
Hermann Fannar vinur minn gaf
mér í jólagjöf fyrir þremur
árum.“
Úlfar segist elda mikið af
„billegum“ mat og reynir eitthvað
nýtt á hverju kvöldi. „Ég elda því
mikið af pasta, núðlum og hakki
en undanfarið hefur kjúklingur
verið vinsæll hjá mér þar sem
hann hefur fallið í verði,“ segir
Úlfar og bætir við að hann leiti í
smiðju sjónvarpskokkanna Jamie
Oliver og Nigellu Lawson. „Fólk
sem stendur mér nærri hefur ver-
ið duglegt við að gefa mér mat-
reiðslubækur. Ég hef sérstaklega
mikinn áhuga á mat. Ef elda-
mennska væri átta til fimm starf
hefði ég vel getað hugsað mér að
verða kokkur.“
Úlfar starfaði sem kokkur á
kjúklingastaðnum Kentucky
Fried Chicken. „Það má eiginlega
segja að ég hafi kynnst mat þar,“
segir Úlfar hlæjandi. „Ég er eini
Kentucky-kokkurinn sem ég veit
um sem hefur bæði unnið hér og á
meginlandi Evrópu. En ég viður-
kenni það að ég lærði ekki mikið
þar.“
Úlfar gefur uppskrift að
kjúklingarétti með lime- og chili-
sósu.
„Sanders ofursti, upphafsmað-
ur Kentucky-kjúklingana, fann
þrettánda kryddið sem gerði
kjúklinginn hans þann besta í
heimi. Á sama máta er ég búinn að
finna mitt þrettánda krydd, það er
chilisósan góða.“
Ef svo leiðinlega vill til að af-
gangur verði af kjúklingnum er
hægt að nýta þá í „grjóna-bix“
sem Úlfar Linnet gefur einnig
uppskrift að.
ÚLFAR LINNET
Er afar áhugasamur um matargerð og gæti vel hugsað sér að gerast kokkur ef vinnutím-
inn væri milli átta og fimm.
Fljótlegur kjúkling-
ur með lime-sósu
(fyrir 3)
Innihald:
1 kjúklingur
3 msk. olía
2 msk. chili-sósa (sæt)
2-3 rif hvítlaukur
salt
svartur pipar (grófmalaður)
Sósa:
2/3 dós sýrður rjómi
1/2 lime-aldin
Salat:
4 tómatar
1/3 góður rauðlaukur
fetaostur í olíu
Berið fram með hrísgrjónum.
Aðferð:
Hitið ofninn í 180 gráður. Setjið olíu í
skál, pressið hvítlauk út í olíuna og bætið
við 2 msk. af sætri chili-sósu. Skerið
kjúklinginn í bita, saltið og piprið bitana
rækilega, setjið þá í grunnt eldfast mót.
Hrærið upp í olíublöndunni og hellið yfir,
veltið nú bitunum til þar til olían þekur
þá. Ef þarf má bæta meiri olíu við. Setjið
fatið í heitan ofninn og bakið í rúmar 45
mín. Ef kjúklingurinn roðnar of snemma
má setja álpappír yfir en taka hann af 10
mínútum áður en kjúklingurinn er tilbú-
inn.
Sjóðið hrísgrjón.
Í salatið þarf að sneiða tómatana í báta,
rauðlaukinn í ræmur, setja fetaost yfir og
blanda saman.
Sýrði rjóminn er settur í skál. Lime-ið er
skorið til helminga og safinn kreistur úr
því yfir sýrða rjómann. Bætið lime-safa
við eftir þörfum, þar til sósan er pínulítið
súr en samt þannig að maður haldi and-
liti.
Úlfar telur að lime eigi mun betur við en
sítróna því bak við súra bragðið í lime-
inu er þokki sem sítrónan býr ekki yfir.
Berið fram og borðið sæl og glöð.
Ef afgangur verður af kjúklingnum er
hægt að bera fram „Grjóna-bix“ í hádeg-
inu daginn eftir.
Innihald
Afgangur af kjúklingnum
Afgangur af rauðlauknum
Afgangur af grjónunum
1 egg
2 msk. smjör
2 stilkar sellerí
1/2 paprika
2 hvítlauksrif
1 msk. sæt chili-sósa
Aðferð:
Takið kjúklingakjötið af beinunum og
skerið kjötið mjög smátt. Hitið olíu í
djúpri pönnu. Mýkið pressaðan hvítlauk
og sneiddan rauðlauk á henni. Bætið við
kjúklingnum og selleríi, brjótið egg yfir
og hrærið þar til eggið hefur hlaupið.
Setið grjónin og sneidda papriku út í.
Kryddið með salti, chilisósu og soja.
Hrærið í þar til allt er orðið heitt og berið
fram.
Kentucky-kokkur sem er
iðinn við að baka brauð
■ MATUR
EMI£LÍA SIGURSTEINSDÓTTIR
Hún á tvær Shih Tzu-tíkur ættaðir frá Tíbet; Baby Doll (“nema hvað“) og Ínu Ögn, og Pug-
inn Daða sem kominn er til ára sinna. Emilía hefur séð tímana tvenna í hundarækt á Ís-
landi en hún hefur verið sýningarstjóri HRFÍ í tuttugu ár.