Fréttablaðið - 22.03.2003, Síða 32
32 22. mars 2003 LAUGARDAGUR
Við fengum góðfúslegt leyfihöfundanna til að birta ljóðin,
sem eiga ekki síður erindi núna,
tólf árum síðar, þegar annar Bush,
og ekki betri, hefur ráðist inn í
Írak. Iðunn gaf Ljóðabók barn-
anna út árið 1991, í samstarfi við
ASÍ. Bókin ber undirtitilinn Ljóð
eftir börn fyrir fullorðna, og víst
er að fullorðnir geta lært margt
við lestur bókarinnar.
Höfundur limrunnar Ráðaleys-
is er Atli Páll Hafsteinsson, sem
var 11 ára þegar hann orti hana.
Aðspurður segist hann ekki hafa
verið mjög upptekinn af ljóðagerð
á þessum árum, en því áhyggju-
fyllri yfir stríðinu. „Það var efnt
til einhvers konar samkeppni um
ljóð þegar ég var 11 ára í Villinga-
holtsskóla í Árnessýslu. Það var
náttúrlega ekki talað um neitt
annað en stríð á þessum tíma,
endalausar fréttir í sjónvarpinu
og umræða allt í kringum mann
svo það var eðlilegt viðfangsefni.“
Atli Páll segist ungur hafa
heillast af limruforminu. „Við
vorum náttúrlega búin að læra um
mismunandi ljóðform í skólanum
og ég ákvað að nota þetta. Mér
fannst „punch“-línan, eða lokalín-
an, í limruforminu alltaf svo
flott.“
Atli Páll er áhyggjufullur yfir
stríðinu núna. „Mér líst bara ekk-
ert á þetta og alls ekki aðferðirn-
ar, að Bandaríkin fari þarna upp á
sitt eindæmi og gefi frat í alla
aðra, það er náttúrlega hið versta
mál.“
Atli hefur ekki ort svo mikið
sem eitt ljóð síðan hann sendi frá
sér limruna góðu. „Ég er í tölvun-
arfræði við háskólann og yrki
öðruvísi núna,“ segir hann hlæj-
andi, en viðurkennir samt að hann
sé rígmontinn af ljóðinu. Hann
segist viss um að börn á Íslandi
taki svona átök inn á sig, kannski
meira en fullorðna grunar. „Það
er samt örugglega einstaklings-
bundið, en ég man að mér leist
ekkert á blikuna á sínum tíma. Þó
stríðið sé langt í burtu snertir það
mann samt.“
Nú ríkir sorg í Kúvæt borg
Í sömu bók birtist annað ljóð
um Persaflóastríðið, eftir Stein-
unni Mörtu Gunnlaugsdóttur. „Ég
var níu ára í Grunnskóla Grundar-
fjarðar þegar ég orti ljóðið og
gerði það alveg hjálparlaust. Ég
var svo ótrúlega skelkuð yfir
stríðinu, svaf ekki heilu næturn-
arar og tók þetta allt mjög inn á
mig,“ segir hún.
Steinunn Marta samdi ljóðið
ekki sérstaklega fyrir bókina.
„Þegar við vorum beðin að semja
ljóð, sem átti svo að velja úr til að
birta í bókinni, átti ég þetta til og
sendi það. En það má segja að
þetta ljóð sé hvort tveggja í senn
upphafið og endirinn á mínum
skáldferli, ég hef nefnilega ekk-
ert ort síðan,“ segir hún bros-
andi.
Steinunn Marta er hárgreiðslu-
dama og starfar á hársnyrtistof-
unni Trít. „Ég er mjög ánægð með
starfsvalið. En mér líður ekki síð-
ur illa núna en þegar ég var barn
og orti þetta ljóð. Ég er sjokkeruð
yfir þessu stríðsbrölti öllu saman
og skíthrædd,“ segir Steinunn
Marta, sem reiknar þó ekki með
að setjast niður og semja annað
ljóð um efnið.
edda@frettabladid.is
Í Írak er vont að vera...
Íslensk börn fara ekki varhluta af fréttum og umfjöllun um stríð úti í heimi og taka átökin oft mjög nærri sér, jafnvel svo að þau missa
svefn. Flóastríðið fyrir tólf árum vakti ugg í brjósti íslenskra barna og tvö þeirra tjáðu tilfinningar sínar í ljóðum sem birtust í
Ljóðabók barnanna árið 1991.
Ljóð
Nú ríkir sorg í Kúvæt borg,
fuglarnir kvaka og börnin vaka
skyldu allir pabbarnir koma til baka
ATLI PÁLL HAFSTEINSSON
Er í tölvunarfræði við háskólann og
yrkir örðuvísi núna.
Ráðaleysi
Í Írak er vont að vera
í Amríku ekkert að gera.
Hussein og Bush
ég teikna með túss
og krota yfir myndina þvera.
STEINUNN MARTA
GUNNLAUGSDÓTTIR
Er nú hársnyrtir og hefur ekkert ort frá því
hún var 9 ára. Henni er mjög órótt vegna
ástandsins í Írak.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/RÓ
B
ERT
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FRÉTTABLAÐIÐ/BILLI