Fréttablaðið - 22.03.2003, Qupperneq 33
33LAUGARDAGUR 22. mars 2003
Landsmönnum stendur til boðaalls kyns nuddþjónusta og
tengdar aðferðir í uppbyggingar-
skyni. Erótískt nudd hefur verið til
umfjöllunar síðustu daga og sið-
ferðilegt, jafnvel lagalegt gildi
þess dregið í efa. Þetta er auglýst í
blöðum og á Netinu, og raunar alls
óskyld nuddmeðferð og yfir sið-
ferðilegan vafa hafin, án þess að
alltaf sé ljóst hvaða þekking býr að
baki þjónustunni sem boðin er.
Fólk sem vill hressingu eða
styrkingu, bót á vöðvabólgu, verkj-
um eða þreytu kann að komast í
hann krappann við að finna réttu
leiðina. Til er Félag íslenskra
nuddara, F.Í.N., nær 200 manna
samtök nuddara með fjögurra ára
nám að baki, viðurkennt af
menntamálaráðuneyti, með aðild
að samtökum norrænna nuddara.
Félagið er stofnaðili að FÍSG, Fé-
lagi íslenskra græðara, en sækist
eftir lögverndun vegna síaukins
fjölda fólks sem selur þjónustu
með afar mismikla kunnáttu.
Vilja löggildingu starfs síns
Adda Gerður Árnadóttir er for-
maður F.Í.N., sem heldur aðalfund
sinn í dag og mun meðal annars
ræða ítrekaða ósk um löggildingu
eða viðurkenningu heilbrigðis-
ráðuneytis. Þar snýst spurningin
um nuddara sem heilbrigðisstétt
og áður hefur af ráðuneytisins
hálfu verið vísað til menntamála-
ráðuneytis um viðbótarstimpil við
fjögurra ára nám: tveggja ára bók-
legt frá Fjölbraut í Ármúla eða
sambærilegt, og jafnlangt verk-
legt nám við einkaskóla F.Í.N. og
hjá viðurkenndum meistara.
Stimpillinn væri þá löggilding eða
viðurkenning starfsréttinda, sem
heimilaði einungis svo lærðum
nuddurum að kenna sig við starfs-
heitið, þannig að fólk sem þjónust-
una sækir viti að hverju það geng-
ur.
„Hér getur hver sem er opnað
nuddstofu eða boðið þjónustu með
nuddi og öðrum aðferðum í bland.
Þessar hliðaraðferðir geta verið til
mikilla bóta í sumum tilvikum, en
ætíð gildir reglan um þekkingu,
ekki kukl eða fikt eftir stutt nám,
hvað sem góðum vilja líður.“ Adda
Gerður segir allt of mikið af því að
fólk með litla menntun, jafnvel
bara helgarnámskeið, auglýsi
nudd undir ýmsum heitum, eins og
um sérhæfingu sé að ræða. Þetta
setji því miður blett á nuddara FÍN
sem lært hafa hér í fjögur ár og
sumir bætt við sig aukagreinum
eða framhaldsnámi. „Það er óverð-
skuldað og hvorki til bóta fyrir
okkur sem við fagið starfa né held-
ur eða sértaklega þá sem sækja
þjónustuna.“
Frumskógur tilboða
„Þeir þvælast margir í frum-
skógi tilboða um betrun og heilun,
ýmiss konar aðferða sem virðast
hver annarri betri. Hvernig á fólk
að vita hvað hentar því og hvernig
á það að vita hvort það fær með-
ferð sem er peninganna virði?
Okkar svar, sem höfum menntun
og reynslu og erum þess vegna í
F.Í.N, er einfaldlega að ganga úr
skugga um að sá eða sú sem leitað
er til hafi viðurkenningu félagsins.
Annars er fólk á eigin vegum og
tekur þá áhættu að láta fara um sig
höndum sem geta verið óreyndar
og gert illt verra í verstu tilfellum.
Alltént þarf að borga fyrir þjón-
ustuna, og svokallað dekurnudd,
oft gefið af tiltölulega óreyndu
fólki, kann að kosta mest, án þess
jafnvel að nuddarinn fái almenni-
lega borgað fyrir sjálfur. Það eru
fremur fáar nuddstofur starfandi
miðað við nuddara sem hafa bekki
í tengslum við heimili sín og svo þá
sem starfa á líkamsræktarstöðv-
um og snyrtistofum.
Annað brýnt mál, auk löggild-
ingar, er virðisaukaskattur á
nuddi. Við viljum auðvitað reyna
að fá hann felldan niður, öllum til
hagsbóta.
Sjúkranuddarar, sem læra er-
lendis og njóta lögverndar sem
heilbrigðisstétt, eru undanþegnir
þessum skatti og okkur, sem lært
höfum nudd eftir bók og reglu hér-
lendis og höldum mörg áfram að
auka við þekkingu okkar, finnst
kominn tími til að losna undan
vaskinum. En aðalmálið er að-
greining alvöru fagfólks og ann-
arra, sem gera gagn eða í sumum
tilvikum, því miður, ekki.“ ■
Lærðir nuddarar
vilja hreinsa til
Þeir sem hyggjast fá sér nudd í heilsubótarskyni standa frammi fyrir miklum
frumskógi tilboða. Ljóst er að nudd er ekki það sama og nudd. Það er því mikil-
vægt fyrir neytendur að leita sér upplýsinga um hvers konar þekking býr að baki
hjá þeim sem bjóða nuddþjónustu.
ADDA GERÐUR
ÁRNADÓTTIR
Adda Gerður er
formaður Félags
íslenskra nudd-
ara, sem vinnur
að löggildingu
starfs nuddara.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM
Sjónvarpsstríðið:
Fylgist með eigin-
manninum í Írak
STRÍÐ Ör fréttaflutningur af átök-
unum í Írak hefur gefið hinu
hvimleiða hugtaki raunveruleika-
sjónvarp nýja merkingu, að
minnsta kosti hvað bandarísku
húsmóðurina Stefanie Lyle varðar.
Hún fékk í það minnsta að fylgjast
með manninum sínum að störfum
á CNN. Húsbóndinn keyrir skrið-
dreka í bandaríska hernum og
þegar frúin kveikti á morgunsjón-
varpinu á föstudaginn blasti eigin-
maðurinn við henni vígreifur að
ryðjast inn í Suður-Írak.
„Ég hef verið að taka þetta upp
á myndband. Það er ótrúlegt að við
getum séð þetta í sjónvarpinu.
Þetta er æðislegt“, sagði Lyle, yfir
sig hrifin, í samtali við CNN. Hún
virðist því ekki hafa miklar
áhyggjur af karlinum og þeim
mun meiri áhuga á því að fá að
fylgjast með honum í vinnunni.
Stríðsútsendingarnar marka
þau tímamót í fréttaflutningi að
sjónvarpsfréttamenn í slagtogi
með bandaríska hernum sjón-
varpa því sem fyrir augu ber beint
í gegnum myndbandssíma og
gervihnött. ■
SKRIÐDREKAR Í ÍRAK
Eiginkonur hermanna geta átt von á því að sjá körlunum bregða fyrir í stríðsfréttunum og
því ganga myndbandstækin á bandarískum heimilum nú allan sólarhringinn.