Fréttablaðið - 22.03.2003, Page 35
LAUGARDAGUR 22. mars 2003 35
■ ■ FUNDIR
11.00 Opið hús verður á vegum
Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og Þjóð-
kirkjunnar í Hafnarfirði. Opna húsið
hefst með guðsþjónustu. Að því búnu
verður húsnæði safnaðarheimilisins og
Tónlistarskólans til sýnis.
13.00 Afmælishátíð Kjarvalsstaða
verður í dag í tilefni þess að þrjátíu ár
eru liðin frá formlegri vígslu þeirra. Boð-
ið verður upp á veitingar í anda Kjarvals
og fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskyld-
una. Fram koma m.a. Gunni og Felix,
Barna- og unglingakór Grafarvogs-
kirkju, Gunnar Eyjólfsson leikari og
Davíð Þór Jónsson píanóleikari.
16.00 Á Listadögum í Garðabæ
verður danssýning í íþróttahúsinu. Þar
verður sýnt ballettatriði úr Hnotubrjótn-
um, samkvæmisdans þar sem Íslands-
og bikarmeistarar verða meðal sýnenda,
hópfimleikaatriði, freestyle-dans og at-
riði úr söngleiknum Grease í uppfærslu
nemendafélags Garðaskóla.
20.00 Í minningu samíska
skáldsins og fjöllistamannsins Nils-
Aslaks Valkeapää, sem lést um aldur
fram fyrir rúmu ári, gengst Norræna
húsið í samstarfi við samísk-íslenska
vináttufélagið SAMÍS fyrir samískri
kvölddagskrá þar sem flutt verða er-
indi um samísk menningarmál og les-
in verða ljóð eftir Nils-Aslak í þýðingu
Einars Braga.
■ ■ TÓNLEIKAR
16.00 Kór Langholtskirkju efnir til
afmælistónleika í kirkjunni þar sem
eldri og yngri kórfélagar syngja. Tilefnið
er fimmtíu ára afmæli kórsins. Einnig
mun karlakórinn Stjúpbræður taka lag-
ið. Stjórnandi er Jón Stefánsson og að-
gangur er ókeypis.
17.00 Kirkjukór Fella- og Hóla-
kirkju flytur í Fella- og Hólakirkju verk
eftir tékknesku tónskáldin Jan Dismas
Zelenka og Frantisek Xaver Brixi undir
stjórn Lenku Mátéová ásamt kammer-
sveitinni Jón Leifs Camerata og ein-
söngvurunum Ólafíu Linberg Jensdótt-
ur sópran, Jóhönnu Ósk Valsdóttur alt,
Garðari Thór Cortes tenór og Davíð
Ólafssyni bassa.
17.00 Kvintett úr Kór Hjallakirkju,
Jón Ólafur Sigurðsson organisti og séra
Íris Kristjánsdóttir flytja úrdrátt í tali og
tónum úr Passíusálmum Hallgríms Pét-
urssonar í Hjallakirkju í Kópavogi.
Einnig verða fluttir orgelkóralar fyrir
föstutímann eftir J.S. Bach og Maríutón-
list eftir Pál Ísólfsson, Jón Ólaf Sigurðs-
son, Jakob Arkadelt og fleiri.
20.00 Jón Svavar Jósefsson bassa-
söngvari og Eva Guðný Þórarinsdóttir
fiðluleikari halda tónleika á Listadögum
Garðabæjar í safnaðarheimilinu Kirkju-
hvoli.
20.30 Stórsveit Reykjavíkur
heldur tónleika í Kaffileikhúsinu í
Hlaðvarpanum með bandaríska sax-
ófónleikaranum og hljómsveitarstjór-
anum Andrew D’Angelo.
■ ■ KVIKMYNDIR
15.00 Stjarnan nefnist ný rússnesk
kvikmynd, sem sýnd verður í bíósal MÍR
að Vatnsstíg 10. Mynd þessi var gerð í
Moskvu í fyrra og er leikstjóri Emmanúíl
Kazakevits. Myndin gerist í Sovétríkjun-
um árið 1944. Kvikmyndin er með rúss-
nesku tali og sýnd án þýddra texta. Að-
gangur er ókeypis og öllum heimill.
19.30 Bíó Reykjavík heldur Sunnu-
dagsbíó á Sirkus á horni Laugavegs og
Klapparstígs. Sýndar verða kvikmyndir
Orson Welles, Citizen Kane frá árinu
1941 og F for Fake frá 1975. Ókeypis
aðgangur á meðan húsrúm leyfir.
■ ■ LEIKLIST
14.00 Leikfélag Mosfellsbæjar
sýnir Hobbitann í leikgerð Odds Bjarna
Þorkelssonar eftir sögu Tolkiens.
17.00 Leikfélag Mosfellsbæjar
sýnir Hobbitann í leikgerð Odds Bjarna
Þorkelssonar eftir sögu Tolkiens.
14.00 Karíus og Baktus eftir Thor-
björn Egner á Litla sviði Þjóðleikhúss-
ins.
14.00 Honk! Ljóti andarunginn
eftir George Stiles og Anthony Drewe á
Stóra sviði Borgarleikhússins.
15.00 Leikfélagið Snúður og
Snælda sýnir gamanleikritið Forsetinn
kemur í heimsókn í Ásgarði, Glæsibæ.
16.00 Halaleikhópurinn sýnir gam-
anleikinn Á fjölum Félagsins eftir Unni
Maríu Sólmundardóttur í húsakynnum
leikhópsins að Hátúni 12.
20.00 Farsinn Allir á Svið eftir
Michael Frayn er sýndur á Stóra sviði
Þjóðleikhússins, þýddur og leikstýrður
af Gísla Rúnari Jónssyni.
20.00 Veislan eftir Thomas Vinter-
berg og Mogens Rukov á Smíðaverk-
stæði Þjóðleikhússins.
20.00 Íslenski dansflokkurinn
sýnir Lát hjartað ráða för, þrjú ný verk
eftir Katrínu Hall, Itzik Galili og Ed
Wubbe, á Stóra sviði Borgarleikhúss-
ins.
20.00 Kvetch eftir uppreisnar-
manninn Steven Berkoff á Nýja sviði
Borgarleikhússins í samstarfi við Á
senunni.
20.00 Hin smyrjandi jómfrú, ein-
leikur eftir Charlotte Bøving, sýnt í Iðnó.
20.00 Leikfélagið Hugleikur sýnir í
Tjarnarbíói Undir hamrinum eftir Hildi
Þórðardóttur í leikstjórn Ágústu Skúla-
dóttur.
■ ■ SKEMMTANIR
Í kvöld er Djasssunnudagur að
venju með Árna Ísleifs og góðum gest-
um á Kránni, Laugavegi 73.
Caprí-tríó leikur fyrir dansi í Ás-
garði, Glæsibæ.
■ ■ SÝNINGAR
Í Vestursal Kjarvalsstaða sýnir Helgi
Þorgils Friðjónsson ný málverk.
Í Austursal Kjarvalsstaða stendur yfir
sýning á verkum Jóhannesar S. Kjarvals.
Í miðrými er svo sýningin Sveitungar frá
Kjarvalsstofu, Borgarfirði eystra, og ýmsir
munir úr fórum Kjarvals í eigu safnsins.
Sýningin Undir fíkjutré: Alþýðu-
listir og frásagnarhefðir Indlands
stendur yfir í Listasafninu á Akur-
eyri. Þetta er í fyrsta sinn sem ind-
versk myndlist er kynnt með jafn víð-
feðmum hætti hér á landi.
Í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhús-
inu, stendur yfir sýning á sovéskum
veggspjöldum úr eigu safnsins, sem
hafa ekki komið áður fyrir almennings-
sjónir. Heilbrigði, hamingja og friður er
yfirskrift sýningarinnar.
Í Arinstofu Listasafns ASÍ stendur
yfir sýning á nokkrum konkretverkum
frá sjötta áratug síðustu aldar. Á sýning-
unni eiga verk listamennirnir Benedikt
Gunnarsson, Hjörleifur Sigurðsson,
Nína Tryggvadóttir, Valtýr Pétursson og
Þorvaldur Skúlason.
Bernd Koberling í sýnir í galleríinu
i8 við Klapparstíg.
Myndlistarmaðurinn Gunnar Örn
sýnir í Listasafni ASÍ, Freyjugötu 41.
Verkin á sýningunni nefnast Sálir og
Skuggi.
Sýningin Hraun-Ís-skógur stendur
yfir í Norræna húsinu.
Í Hafnarhúsinu stendur yfir einka-
sýning Patrick Huse sem nefnist
Penetration. Sýningin er síðasti hluti
trílógíu sýninga listamannsins, sem fjalla
um samband manns og náttúru á norð-
urslóðum.
Í sal Íslenskrar grafíkur, sem er
hafnarmegin í Hafnarhúsinu, sýnir
Alistair Macintyre stór pappírsverk, sem
unnin eru með ís og járnlitarefni.
Í Hafnarborg, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar, stendur yfir
sýning á áður ósýndum verkum lista-
konunnar Louisu Matthíasdóttur.
Sýnd verða málverk og vatnslita-
myndir úr vinnustofu listakonunnar á
16. stræti í New York þar sem fjöl-
skyldan bjó lengst af og einnig vinnu-
stofu hennar hér heima í Reykjavík.
Í Hafnarborg, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar, stendur yfir sýn-
ing á verkum Hlífar Ásgrímsdóttur og
Ólafar Oddgeirsdóttur. Á sýningunni,
sem þær nefna Með lífsmarki eru að
hluta til verk sem listakonurnar hafa
unnið í sameiningu.
Örn Magnússon píanóleikariheldur tónleika í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar á sunnu-
dagskvöldið. Á efnisskránni eru
verk eftir Mozart og Chopin.
„Þetta eru fyrstu einleikstón-
leikar mínir í fjögur ár. Ég hef ein-
beitt mér að íslenskri píanótónlist
undanfarin ár. Kynnti mér til
dæmis píanótónlist Jóns Leifs og
lék hana inn á disk. Eins píanótón-
list Páls Ísólfssonar,“ segir Örn.
„En nú er ég kominn yfir í
klassíkina aftur og hef óskaplega
gaman af því. Það má líkja þessu
við leikara sem fer að fást við
Shakespeare aftur eftir langt
hlé.“
Örn hefur ferðast um landið
síðustu vikur og haldið tónleika
með þessari sömu efnisskrá. Tón-
leikarnir á sunnudaginn eru
endapunktur á því ferðalagi.
„Það er mjög gott fyrir tónlist-
armann að leika sömu efnis-
skrána oftar en einu sinni, því
það gerist alltaf eitthvað nýtt í
hvert skipti sem hún er leikin.“ ■
ÖRN MAGNÚSSON
Heldur píanótónleika í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar annað kvöld klukkan átta.
■ TÓNLEIKAR
Kominn aftur
í klassíkina
Ég mæli meðað fólk sjái
s ý n i n g u n a
Undir fíkju-
tré: Alþýðu-
listir og frá-
sagnarhefðir
Indlands, í Listasafninu á Akur-
eyri,“ segir Stefán Friðrik Stef-
ánsson pistlahöfundur. „Þetta er í
fyrsta skipti sem indversk mynd-
list er kynnt með þessum hætti
hérlendis og er mjög athyglisvert
að kynna sér þau verk sem á sýn-
ingunni eru. Undanfarna mánuði
hafa verið settar þar upp mjög
áhugaverðar sýningar, til dæmis
Rembrandt og samtíðarmenn
hans og Aftökur og útrýmingar.
Undir fíkjutré er enn ein rósin í
hnappagat Listasafnsins.“
Mittmat
✓
✓