Fréttablaðið - 22.03.2003, Qupperneq 37
37FÖSTUDAGUR 21. mars 2003
Kæru Placebo-menn, ég veit ekkihvað kom fyrir hjá ykkur en ég
tel alveg tvímælalaust tíma til þess
að hætta núna.
Ástæðan er sú að ef þið ákveðið
að puða áfram þá verður það bara
endalaus og ósigrandi barátta í því
að reyna að ná hæstu hæðum á ný.
Staðreyndin er bara sú, elsku kall-
arnir mínir, að þið náið aldrei að
toppa þessa nýju plötu ykkar. Sama
hvað þið eyðið miklum peningum,
svita eða tárum.
Allar sveitir dreymir um að gera
hina „fullkomnu“ plötu. Að ná því
takmarki er náttúrlega ómögulegt
en „hvert þó í hoppandi“, þið komist
bara nokkuð nálægt því.
Þessi plata á eftir að koma öllum
á óvart. Aðdáendur eiga ekki eftir
að ná að slíta sig frá plötunni næstu
árin og þeir sem aldrei hafa þolað
ykkur eiga eftir segja; „já, mér hef-
ur nú alltaf fundist þetta fremur
sérstök sveit, sko. Svona öðruvísi.“
Þið stiguð skrefið til fulls, þorðuð
að breyta stílnum, hella ykkur út í
netta tilraunamennsku og lögðuð
greinilega allt í laga- og textasmíð-
ar. Vitnið meira að segja í „The Pict-
ure of Dorian Gray“ eftir Oscar
Wilde, yndislegt. Ekki eitt leiðinlegt
lag á plötunni.
Til hamingju, „Sleeping with
Ghosts“ er ykkar meistaraverk.
Hreint út sagt geðbiluð plata. Nú
eruð þið virkilega í vandræðum.
Birgir Örn Steinarsson
Umfjölluntónlist
Hætta, núna!
PLACEBO: Sleeping With Ghosts
SÍMI 553 2075
Sýnd kl. 4, 6, 8, 10 og 12 b.i. 16 ára Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.10
ABOUT SCHMIDT kl. 3, 5.30, 8, 10.30 KALLI Á ÞAKINU m/ísl. tali kl. 2 og 4
BLUE CRASH kl. 7
THUNDERPANTS kl. 2, 3, 4 og 5 SKÓGARLÍF 2 m/ísl. tali kl. 2 og 4
Sýnd kl. 5.50, 8, 9, 10.10 og 11.15 b.i.16
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30 b.i. 12 ára
FRIDA b.i. 12 kl. 3 og 5.30 CHICAGO b.i. 12 kl. 3, 5.30, 8 og 10.20
PUNCH DRUNK b.i. 12 kl. 8 og 10.10Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 b.i. 16 ára
Sýnd kl. 3, 5.40, 8 og 10.20 b.i. 12 ára
DREAMCATCHER FRUMSÝND
Hér sést leikarinn Morgan Freeman laga kraga Damian Lewis á frumsýningu kvikmyndar-
innar „Dreamcatcher“ í Hollywood á miðvikudag. Leikararnir Donnie Wahlberg og Thomas
Jane fylgjast með. Myndin, sem er gerð eftir samnefndri sögu Stephen King, verður frum-
sýnd hér á landi 18. apríl.
VIKMYNDIR Það er aðeins einn karl-
maður sem leikur í frönsku mynd-
inni „8 Femmes“ og honum er
komið fyrir kattarnef snemma í
myndinni. Hér er á ferðinni gam-
ansöm morðgáta sem byggð er upp
á gömlu þekktu þema.
Myndin gerist á einangruðu
sveitasetri í Frakklandi á sjötta
áratugnum. Fjölskylda nokkur hef-
ur ákveðið að eyða jólahátíðinni í
setrinu. Hátíð ljóss og friðar snýst
þó upp í andhverfu sína þegar ætt-
faðirinn finnst myrtur.
Morðinginn getur aðeins verið
ein af þeim átta konum sem stóðu
honum nærri. Er morðinginn eig-
inkona hans? Mágkona hans sem
er piparmey? Þunglynda tengda-
mamma hans? Ósvífna þjónustu-
stúlkan eða hin dygga húsráðs-
kona? Eða er mögulegt að hann
hafi verið myrtur af annarri af
hinum gullfallegu dætrum sínum?
Úti er stórhríð, símalínan er
dauð og því er ákveðið að komast
til botns í málinu áður en næsti
dagur rís. Við rannsóknina kemur
svo vitanlega í ljós að flestar kon-
urnar hafa eitthvað lúmskt í poka-
horninu. Að sjálfsögðu hafa þær
allar ástæðu til þess að vilja hann
feigan. Ein af þeim er morðingi og
hver veit nema að hún reyni að
myrða aftur áður en nóttin er úti.
Í aðalhlutverkum eru átta af
þekktustu leikkonum Frakka. Þær
eru: Catherine Deneuve (“Dancer
in the Dark“), Isabelle Huppert
(“La Pianiste“), Emmanuelle Béart
(“Mission: Impossible“), Fanny
Ardant (“Elizabeth“), Virginie
Ledoyen (“The Beach“), Danielle
Darrieux (“La Ronde“), Ludivine
Sagnier (“Cyrano de Bergerac“) og
Firmine Richard (“Romuald et
Juliette“).
Myndin er farsi enda gerð eftir
samnefndu leikriti Robert Thom-
as.
biggi@frettabladid.is
Köld eru kvennaráð
Í gær frumsýndi Háskólabíó frönsku gamanmyndina „8 Femmes“ eða „8 konur“.
Myndin sló öll aðsóknarmet í heimalandi sínu enda eru aðalleikkonurnar átta á
meðal vinsælustu leikkvenna Frakka.
DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM:
Internet Movie Database - 7.2 /10
Rottentomatoes.com - 78% = Fresh
Entertainment Weekly - B
Los Angeles Times - 2 Stjörnur (af 5)
8 FEMMES
Ein þessara föngulegu kvenna
er morðingi. Veistu hver?
■ KVIKMYNDIR