Fréttablaðið - 22.03.2003, Blaðsíða 38
22. mars 2003 LAUGARDAGUR
Alvöru stríð er ekki skemmtilegtsjónvarpsefni en samt situr
heimsbyggðin núna límd fyrir
framan kassann og fylgist með
sprengjum falla og húsum hrynja.
Áhuginn ræðst sjálfsagt að miklu
leyti af því hversu mikið sjónarspil
er á ferðinni enda er ekki laust við
að þeir sem standa fyrir sýningunni
séu svolítið grobbnir yfir þessu öllu
saman. Þetta er víst öflugasta árás
sem sögur fara af og á sér enga hlið-
stæðu. „Það hefur sko aldrei verið
gert svona áður og við erum að
setja nýtt met í sprengjuregni.“
Þetta er sem sagt flottara stríð
en það sem pabbinn skellti sér í fyr-
ir 12 árum og miklu magnaðra en
gegndarlausar loftárásir á
Afganistan. Þessar stríðsútsending-
ar eru háðar nákvæmlega sömu lög-
málum og raunveruleikasjónvarpið
fáránlega sem Kaninn fann upp.
Það þarf alltaf að ganga lengra í
næstu seríu svo fólk komi aftur.
Einhvern tíma fáum við að fylgjast
með því þegar lausaleiksbarn verð-
ur búið til á Eyju freistinganna, ein-
hvern tíma eigum við eftir að sjá
Sörvævörana berast á banaspjótum
þar til aðeins einn er uppistandandi
og einhvern tíma
fáum við að sjá
eitthvert Jack-
ass-fíflið drepa
sig í beinni.
R a u n v e r u -
leikasjónvarpið
er samt auðvitað ekkert í alvörunni.
Þetta er allt sviðsett og í plati. Sömu
sögu er að segja af þessum stríðs-
raunveruleikaþætti sem er hafinn í
Írak. Eini munurinn er að þetta er
mun kostnaðarsamari framleiðsla
bæði í dollurum og mannslífum.
Þetta er ríkissjónvarp Bandaríkj-
anna en sú mynd sem stjórnvöld
munu draga upp af átökunum með
aðstoð CNN er úr jafn miklum
tengslum við raunveruleikann og
Survivor og The Bachelor. ■
Við tækið
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
■ sér ekki ástæðu til að fylgjast
með stríðinu í beinni enda hefur
reynslan kennt honum að það sem
fyrir augu ber er eitthvað annað en
það sem er í raun og veru að gerast.
Raunveruleikasjónvarp CNN
20.00 Billy Graham
21.00 Praise the Lord
23.00 Robert Schuller
0.00 Miðnæturhróp C. Parker
Thomas
Á Breiðbandinu má finna 28
erlendar sjónvarpsstöðvar sem
seldar eru í áskrift og þar af eru
6 Norðurlandastöðvar. Að auki
sendir Breiðbandið út flestar ís-
lensku útvarpsrásirnar ásamt 10
erlendum tónlistarrásum með
mismunandi tónlistarstefnum.
12.15 Enski boltinn (Man. Utd. -
Fulham) Bein útsending frá leik
Manchester United og Fulham.
14.30 4-4-2 (Snorri Már og Þor-
steinn J.)
15.45 Intersport-deildin (4 liða
úrslit) Bein útsending.
17.30 Toppleikir
19.20 Lottó
19.25 Nash Bridges IV (7:24)
(Lögregluforinginn Nash Bridges)
20.10 MAD TV (MAD-rásin)
Geggjaður grínþáttur þar sem allir
fá það óþvegið. Þátturinn dregur
nafn sitt af samnefndu skop-
myndablaði sem notið hefur mik-
illa vinsælda.
21.00 Unhook the Stars (Stjörn-
urnar stíga niður) Mildred er eldri
kona sem hefur alla tíð séð um sig
og sína en þegar yngsta barn
hennar flytur að heiman myndast
ákveðið tómarúm í lífi hennar. Einn
góðan veðurdag fær hún heim-
sókn frá ungri nágrannakonu sinni
sem á í erfiðleikum með að sjá fyr-
ir barni sínu. Vönduð mynd þar
sem fjallað er um samskipti fólks
og hvernig náungakærleikur sigrar
allar þrautir. Aðalhlutverk: Gena
Rowlands, Marisa Tomei, Gerard
Depardieu, Jake Lloyd. Leikstjóri:
Nick Cassavettes. 1996.
22.45 Tim Austin - Rafael
Marquez Útsending frá hnefaleika-
keppni í Las Vegas. Á meðal þeirra
sem mættust voru Tim Austin og
Rafael Marquez en í húfi var
heimsmeistaratitill IBF-sambands-
ins í bantamvigt.
0.50 The Necklace (Djásnið)
Erótísk kvikmynd. Stranglega bönn-
uð börnum.
2.10 Dagskrárlok og skjáleikur
9.00 Morgunstundin okkar
9.02 Mummi bumba (12:65)
9.07 Bingur (12:13) (Binka)
9.17 Malla mús (52:55) (Maisy)
9.25 Engilbert (5:26)
9.38 Albertína ballerína (8:26)
10.00 Ungur uppfinningamaður
(55:65) (Dexter’s Laboratory)
10.24 Harry og hrukkudýrin (4:8)
10.50 Viltu læra íslensku? (11:22)
11.10 Kastljósið
11.30 Formúla 1
12.50 Íslandsmótið í handbolta
Bein útsending frá leik ÍBV og
Hauka í lokaumferð Esso-deildar
kvenna í Vestmannaeyjum.
14.25 Þýski fótboltinn Bein
útsending frá leik í þýsku
úrvalsdeildinni.
16.20 Innanhússmeistaramót
Íslands í sundi Bein útsending frá
Vestmannaeyjum.
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Smart spæjari (25:30)
18.25 Flugvöllurinn (9:16)
18.54 Lottó
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.40 Laugardagskvöld með
Gísla Marteini
20.25 Spaugstofan
20.50 Fyrirmyndar unnusti
Rómantísk gamanmynd frá 1997.
Kate hefur fundið mann sem hún
er hrifin af. Til þess að kanna hvort
tilfinningarnar eru gagnkvæmar og
gera hann afbrýðisaman ræður
hún leikara sem á að þykjast vera
kærastinn hennar. Leikstjóri: Glenn
Gordon Caron. Aðalhlutverk:
Jennifer Aniston, Jay Mohr og
Kevin Bacon.
22.40 Samsæriskenningin
(Conspiracy Theory)
Kvikmyndaskoðun telur myndina
ekki hæfa fólki yngra en 16 ára.
Aðalhlutverk: Mel Gibson og Julia
Roberts.
0.50 Indiana Jones og
Dómsdagsmusterið
Kvikmyndaskoðun telur myndina
ekki hæfa fólki yngra en 12 ára.
Aðalhlutverk: Harrison Ford, Kate
Capshaw, Amrish Puri og Roshan
Seth. e.
2.45 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
6.30 Formúla 1 Bein útsending
frá kappakstrinum í Malasíu.
Umsjón: Gunnlaugur Rögnvalds-
son.
8.00 Barnatími Stöðvar 2
9.55 The Luck of the Irish
11.25 Yu Gi Oh (10:48)
11.50 Bold and the Beautiful
13.30 Viltu vinna milljón?
14.20 Alltaf í boltanum
14.45 Enski boltinn
17.10 Sjálfstætt fólk
17.40 Oprah Winfrey
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.55 Lottó
19.00 Ísland í dag, íþróttir, veður
19.30 Angel Eyes (Vakir yfir)
Lögreglukonan Sharon Pogue
stendur andspænis dauðanum
kvöld eitt á vaktinni. Ógæfumaður
miðar á hana byssu þegar veg-
farandi kemur henni til hjálpar. En
hver er þessi bjargvættur og hafa
kannski örlögin ætlað þeim að hitt-
ast? Með Sharon og Catch, en svo
heitir maðurinn, takast frekari kynni
og þá kemur nokkuð óþægilegt í
ljós. Aðalhlutverk: Jennifer Lopez,
James Caviezel, Jeremy Sisto. Leik-
stjóri: Luis Mandoki. 2001.
21.15 Rat Race .
23.05 54 (Stúdíó 54) Stúdíó 54
var heitasti staðurinn í New York
þegar diskóið réð ríkjum. Það voru
einungis útvaldir sem komust inn
og þegar þangað var komið skorti
ekki kynlíf, eiturlyf og umfram allt
dúndrandi diskótakt! Aðalhlutverk:
Mike Myers, Sela Ward, Salma
Hayek. Leikstjóri: Mark Christopher.
1998. Bönnuð börnum.
0.40 Scream 2 (Öskur 2) Fram-
hald vinsællar hrollvekju sem skaut
mörgum áhorfendum skelk í
bringu hér um árið. Enn er geð-
veikur morðingi á kreiki sem ógnar
lífi Sydney Prescott og skólafélaga
hennar en spurningin er enn sem
fyrr: Hver er morðinginn? Aðalhlut-
verk: Neve Campell, David
Arquette, Courtney Cox, Jerry
O’Connell. Leikstjóri: Wes Craven.
1997. Stranglega bönnuð börnum.
2.35 The Killing (Uppgrip)
Aðalhlutverk: Vince Edwards, Sterl-
ing Hayden, Coleen Gray. Leikstjóri:
Stanley Kubrick. 1956.
4.00 Tónlistarmyndbönd frá
Popp TíVí
6.00 North By Northwest (Á
flótta)
8.15 Air Bud: World Pup
(Hundatilþrif 3)
10.00 Flirting With Disaster
(Nagandi óvissa)
12.00 The Wedding Planner
(Brúðkaupsplön)
14.00 North By Northwest (Á
flótta)
16.15 Air Bud: World Pup
(Hundatilþrif 3)
18.00 Flirting With Disaster
(Nagandi óvissa)
20.00 The Wedding Planner
(Brúðkaupsplön)
22.00 Perfect Storm (Banvænn
stormur)
0.05 Dirty Pictures (Dónamyndir)
2.00 Rumble in the Bronx (Barist
í Bronx)
4.00 Perfect Storm (Banvænn
stormur)
7.00 Meiri músík
12.00 Lúkkið
14.00 X-TV..
15.00 Trailer
16.00 Geim TV
17.00 Pepsí listinn
19.00 XY TV
20.00 Meiri músík .
13.30 Mótor (e)
14.00 Jay Leno (e)
15.00 Yes, Dear (e)
15.30 Everybody Loves Raymond
(e)
16.00 Djúpa laugin (e)
17.00 Survivor Amazon (e)
18.00 Fólk með Sirrý (e)
19.00 Listin að lifa (e)
20.00 Charmed Heillanornirnar
þrjár gera allt sem þær geta til að
halda heimi sínum og andanna í
jafnvægi en ill öfl reyna hvað þau
geta að sundra félagsskap þeirra.
Þær njóta sín best í selskap engla
og fagurra vera en neyðast meira
til að eiga kompaní við djöfla,
drýsla og dára af ýmsu tagi.
21.00 Leap Years Hæfileikarík
ungmenni kynnast árið 1993 og
halda vinskap sínum lifandi næstu
ár. Rugla saman reytum og eiga
(stundum óþarflega) náin kynni.
Við fáum að líta inn til þeirra árin
1993, 2001 og 2008 og sjá hvernig
samböndin hafa þróast. Leik-og
söngkonan Athena berst við að ná
frægð og frama, kemst á toppinn
en hrynur síðan í hyldýpi eitur-
lyfjaneyslu. Vinir hennar Gregory
gagnrýnandi, Joe lögmaður og Ben
ríkisbubbi reyna að hjálpa henni
en eiga sjálfir við sín vandamál að
stríða, þá helst framhjáhöld,
fjölskyldudeilur og vændiskvenna-
heimsóknir.
22.00 Law & Order SVU (e)
22.50 Philly (e)
23.40 Tvöfaldur Jay Leno (e)
1.10 Dagskrárlok Sjá nánar á
www.s1.is
John Cleese og
hlauparottunar
John Cleese, Whoopi Goldberg
og Rowan Atkinson eru meðal
leikenda í gamanmyndinni
Hlauparottur, eða Rat Race, sem
er frá árinu 2001. Donald
Sinclair rekur spilavíti í Las Veg-
as. Til að skemmta velunnurum
sínum fær hann hóp fólks til að
eltast við tvær milljónir dala. Í
þessum leik er allt leyfilegt og
þeir sem koma fyrstir í mark fá
alla upphæðina. Donald lætur
vera að greina keppendum frá
því að útvaldir vinir hans veðja
um úrslitin í þessu æsispenn-
andi kapphlaupi. Leikstjóri er
Jerry Zucker.
Stöð 2
21.15
Sjónvarpið
20.50
Fyrirmyndar
unnusti
Rómantíska gamanmyndin Fyrir-
myndar unnusti (Picture Perfect)
er frá 1997. Kate hefur fundið
mann sem hún er hrifin af. Hana
langar að komast að því hvort
hann ber sama hug til hennar
og eins vill hún gera hann af-
brýðisaman. Þess vegna bregður
hún á það ráð að ráða leikarann
Nick til þess að þykjast vera
kærastinn hennar, en þá vill
ekki betur til en svo að Nick
verður meira en lítið skotinn í
Kate. Í aðalhlutverkum eru
Friends-stjarnan Jennifer Ani-
ston, Jay Mohr og Kevin Bacon
og leikstjóri er Glenn Gordon
Caron.
DAGSKRÁ
LAUGARDAGSINS
22. MARS
Ekkert kemur í stað hreyfingar og heilbrigðra lífshátta. Engar töfralausnir!
Og allra síst þessi magaþjálfi. En ef þú ert svo glórulaus að kaupa
magaþjálfann þá finnur þú hann hjá okkur. Hann kostar ekki 19.500 kr.
heldur $16.94 eða 2.800 kr. með flutningi, tryggingu, tollum og VSK.
Þú sparar stórfé, en ert samt að henda peningnum.
Við mælum alls ekki með þessum magaþjálfa !
allar vörur beint frá Bandaríkjunum
Skápahurðir
Spónn og harðvið
ur í úrvali
Hurðir fyrir skápa í eldhús, bað og svefnherbergi
Hurðirnar eru fáanlegar úr eftirtöldum viðartegundum:
Eik, beyki, birki og fura
Ólakkaðar, lakkaðar eða hvítlakkaðar. Litaðar og lakkaðar
Staðlaðar stærðir, einnig er hægt að fá smíðað eftir máli
KVIKMYNDIR Framleiðendur nýjustu
myndar leikkonunnar Meg Ryan
hafa ákveðið að fresta útgáfu henn-
ar um skeið. Þeir óttast að stríðið í
Írak muni hafa áhrif á vinsældir
hennar.
Myndin heitir „Against the
Ropes“ og er sönn saga um kven-
kyns framkvæmdastjóra hnefa-
leikaliðs. Talið er að framleiðend-
urnir treysti sér ekki til þess að
eyða peningum í sjónvarpsauglýs-
ingar bara til þess að hætt verði við
að birta þær vegna stríðsfrétta.
Kvikmyndaiðnaðurinn óttast
einnig að stríðið í Írak verði upphaf-
ið að lægð þar sem Bandaríkjamenn
vilja halda sig heima til þess að
fylgjast með stöðu mála í stríðinu.
Frumsýna átti myndina 25. apríl
næstkomandi. ■
MEG RYAN
Kvikmyndaiðnaðurinn í Hollywood óttast
að stríðið verði til þess að áhorfendum
fækki í bíó.
Nýjasta mynd Meg Ryan:
Frumsýningu
frestað vegna stríðs